Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001 Í NÝJUM heimi þurfum við að endurskil- greina hugtökin fullveldi og sjálfstæði, skrifar Jack Straw, utanríkisráðherra Breta, í grein sem birtist í breska dag- blaðinu Independent síðla í nýliðnum nóvembermánuði. Ekki spáir hann endalokum þjóðríkja þar með, vegna þess að þau verða að hans mati grund- vallareining í alþjóðlegum samskiptum í nán- ustu framtíð, eins og þau hafa verið síðustu öldina, en á næstu árum munu þau þó tengjast hvert öðru mun sterkari böndum en áður hefur tíðkast. Einungis með því að flétta saman full- veldi ríkja geta þau varið þegna sína fyrir ut- anaðkomandi árásum og skapað þeim um leið möguleika til sjálfstæðs lífs, fullyrðir utanrík- isráðherrann, vegna þess að einangruð verða þjóðríkin leiksoppar örlaganna, eða stefnulaus reköld á svipulum sjó heimsmálanna.1 Í orðum Straws má greina viðhorf til full- veldis og sjálfstæðis ríkja sem hafa orðið sífellt meira áberandi í evrópskri þjóðfélagsumræðu á síðustu árum. Ganga þau þvert á það sem áð- ur hefur talist einkenna stöðu þjóðríkja í al- þjóðastjórnmálum, en lengst af hafa fræði- og stjórnmálamenn gengið út frá því að slík ríki tækju til skýrt afmarkaðra landsvæða, þar sem þegnarnir hefðu óskorað vald yfir eigin innri málefnum, settu sér lög og veldu sér stjórnendur án afskipta annarra ríkja. Hug- takið fullveldi hefur því verið túlkað bókstaf- lega á þann hátt að þjóðin hefði fullt vald yfir því landi sem hún ræður yfir og oftast þannig að henni væri nánast óheimilt að láta þetta vald af hendi til annarra þjóða eða stofnana. Þjóðir hafa þó aldrei lifað í einangrun. Benda má á að þrátt fyrir allt hjal um heilagt fullveldi hafa stórveldi aldrei hikað við að hlutast til um innanríkismál sjálfstæðra ríkja sem þau hafa talið innan sinna áhrifasvæða, og iðulega hafa smáríki afsalað sjálfviljug full- veldi sínu í varnarmálum þegar þeim hefur sýnst öryggi sínu ógnað. Breyttar aðstæður í heiminum á síðari hluta tuttugustu aldar, sem oft er lýst með hugtakinu hnattvæðing, hafa aukið enn á vantrú manna á hinu óskoraða full- veldi þjóða. Losun mengandi efna í andrúms- loft og úthöf er t.d. alþjóðlegt vandamál sem erfitt hefur reynst að leysa með frjálsum samningum ríkja, vegna þess að allar ríkis- stjórnir telja sig skuldbundnar til að fría þegna sína afleiðingum slíkra samninga og verja þar með stundarhagsmuni kjósendanna. Þetta hef- ur leitt til þess að allar aðgerðir í umhverf- ismálum koma seint – eða alls ekki – og erfitt hefur reynst að fylgja eftir slíkum aðgerðum þegar um þær hefur tekist sátt á alþjóðlegum ráðstefnum. Hnattvæddir fjölmiðlar og hryðjuverkasamtök hafa einnig fært mönnum heim sanninn um að þjóðir geta ekki lokað sig frá umheiminum í skjóli landamæra, og sést það kannski hvað best í því að eftir 11. sept- ember hefur einangrunarsinninn George W. Bush dregist inn í flókinn vef alþjóðastjórn- mála – maðurinn sem virtist varla átta sig á því í kosningabaráttunni að til væri heill heimur utan Bandaríkjanna þylur nú heiti smæstu dal- verpa í fjalllendi Afganistans og ríður út með Vladimír Pútín, eins og hverjum öðrum alda- vini, á búgarðinum í Texas. Þróun alþjóðamála á síðari hluta nýliðinnar aldar hefur grafið undan fullveldi þjóðríkja í öðrum málum en þeim sem snúa að vörnum þeirra eða umhverfi. Afnám ýmiss konar við- skiptahindrana og greiðara flæði upplýsinga og fjármagns á milli fjarlægra staða hefur dregið úr möguleikum þjóða til að verja sér- hagsmuni sína eða sérvisku. Nefna má sem dæmi að hart er sótt að Evrópubúum um að leyfa innflutning á erfðabreyttum matvælum, þrátt fyrir útbreiddan ótta evrópskra neyt- enda við áhrif þeirra á heilsu sína og umhverfi, vegna þess að bandarískir framleiðendur líta á bann við slíkum innflutningi sem lítið annað en dulbúin viðskiptahöft. Sókn eftir erlendum fjárfestingum, eða viðleitni til að verjast fjár- magnsflótta úr landi, rekur stjórnvöld líka til að bæta stöðu fyrirtækja, draga úr álögum á þau og takmörkunum á frelsi þeirra til athafna. Ástæðan er sú að alþjóðleg fyrirtæki leita eðli- lega þangað sem samkeppnisstaða þeirra er hvað best, og því keppast ríki við að skapa þeim sem hagstæðust skilyrði í því skyni að tryggja þegnunum atvinnu og styrkja stoðir efnahagslífsins. Að síðustu hefur aukinn flutningur fólks á milli landa, og þá fyrst og fremst frá fátækari svæðum heimsins til hinna ríkari, grafið undan þeirri tilfinningu fólks (ímyndun segja sumir) að þegnar hverrar þjóðar séu almennt veru- lega líkir innbyrðis um leið og þeir teljast ólíkir þegnum annarra ríkja. Mörgum virðist líka sem menningarleg sérstaða þjóða sé á und- anhaldi, enda verður menningarneysla um heim allan sífellt einlitari. Allt stefnir því í að hugtakið „þjóðmenning“, líkt og hugtakið „þjóðhagfræði“, glati allri merkingu, enda eru „þjóð“sögur nútímans framleiddar í drauma- verksmiðjum kvikmyndaveranna sem velflest miða framleiðslu sína við bandaríska drauma, veruleika og gildi. Viðbrögð Evrópubúa við þessari þróun hafa verið margs konar og mjög misvísandi. Áð- urnefnd grein breska utanríkisráðherrans var t.d. skrifuð til varnar þátttöku Breta í sam- starfi Evrópuríkja, og þá fyrst og fremst innan Evrópusambandsins, en að mati Straws eykur sambandið möguleika þátttökuríkjanna til að verja hagsmuni þegna sinna. Þessi skoðun er reyndar mjög útbreidd meðal evrópskra mennta- og stjórnmálamanna, sem margir hverjir sjá náið samband Evrópuríkja sem helstu von álfunnar til að verjast yfirburðum Bandaríkjanna á sviði alþjóðastjórnmála og yf- irráðum alþjóðlegra stórfyrirtækja á sviði efnahagsmála. Ef Evrópuríkin vilja verja lífs- hætti sína og menningu verða þau að standa ÍSLAND – ÚTLAND FULLVELDIÐ ENDURSKOÐAÐ Morgunblaðið/Golli „Á komandi árum munu íslenskir stjórnmálamenn þurfa að taka afstöðu til þverstæðukenndrar stöðu Íslands í alþjóðamálum og bregðast við þeirri endurskoðun sem er að verða á skilgreiningu fullveldishugtaksins í þeim löndum sem standa okkur næst.“ E F T I R G U Ð M U N D H Á L F D A N A R S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.