Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.2002, Page 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. MARS 2002
HANIF Kureishi sendir frá sér
bók í þessum mánuði þar sem
safnað hefur verið saman grein-
um og ritgerðum eftir höfund-
inn frá 15 ára tímabili. Bókin
heitir Dreaming and Scheming:
Reflections on Writing and Poli-
tics (Draumar og ráðagerðir:
Hugleiðingar um skrif og
stjórnmál). Þar er m.a. að finna
greinar um pólitísk efni, frá-
sagnir af kvikmyndaverkefnum
Kureishis, ritgerðir hans um
föður sinn og hugleiðingar um
skrif og ritstörf. Þá kannar höf-
undurinn í hugleiðingum sínum
hið skapandi starf hugans. Skrif
Kureishis sem safnað er saman í
bókinni einkennast af innsæi og
krafti sem að sögn útgefanda
gera hana að ómissandi lesn-
ingu fyrir aðdáendur höfund-
arins og hvern þann sem hefur
áhuga á skrifum og ritlist.
Hanif Kureishi er einn hinna
svonefndu innflytjendarithöf-
unda sem sett hafa mark á
breskt samfélag með skrifum
sínum en hann er af pakistönsku
bergi brotinn og fæddur í Lund-
únum. Kureishi hefur sent frá
sér skáldsögur, smásögur, leik-
rit og kvikmyndir sem unnið
hafa til fjölda viðurkenninga.
Vélgengi og mörk
hins mennska
Útgáfufyrirtækið Faber & Fab-
er gefur í aprílmánuði út áhuga-
vert fræðirit eftir Gaby Wood er
nefnist Living Dolls. A Magical
History of the Quest for Mech-
anical Life (Lifandi brúður:
Töfrandi saga af leitinni að vél-
gengu lífi). Þar fer höfundur í
saumana á aldalangri hrifningu
mannkynsins á sjálfvirkum
brúðum, vélmennum og gervi-
greind. Í gegnum aldirnar hafa
uppfinningamenn og töframenn
reynt að láta vélar líkja eftir lífi.
Í úttekt sinni á hinum ólíkustu
tilraunum til þess að skapa vél-
geng fyrirbæri bendir Wood á
þær grundvallarspurningar um
mörk mennsku og lífs sem tekist
er á við í slíkum tilraunum.
Gaby Wood nam frönsku við
Camebridge-háskóla og starfar
sem greinarhöfundur hjá dag-
blaðinu The Observer. Hún hef-
ur áður sent frá sér ritgerðir en
Living Dolls er hennar fyrsta
ritverk.
Innsýn í störf
meistara Hitchcocks
Í mánuðinum kemur út bókin
Writing with Hitchcock (skrifað
með Hitchcock) eftir Steven De-
Rosa þar sem fjallað er um sam-
starf kvikmyndaleikstjórans
Alfreds Hitchcocks og handrits-
höfundarins
Johns Mich-
aels Hayes.
Samstarf
þeirra var
ákaflega gjöf-
ult, en það
hófst árið
1953 þegar
Hayes var
ungur og
óþekktur rit-
höfundur. Þær kvikmyndir sem
Hitchcock vann eftir handritum
Hayes, þ.e. Rear Window, To
Catch a Thief, The Trouble with
Harry og The Man Who Knew
Too Much þóttu marka skil í
listsköpun leikstjórans, hvað
fágun í stíl varðar.
Höfundur bókarinnar, Steven
DeRosa, er rithöfundur og kvik-
myndafræðingur og þykir bók
hans veita í senn persónulega
og lifandi innsýn í list og störf
meistara Hitchcocks og sam-
starf hans við Hayes.
ERLENDAR
BÆKUR
Draumar og
skrif Kureishi
Alfred
Hitchcock
LÍF einhleypra kvenna á vinnumarkaðnumer mjög spennandi sjónvarpsefni. Allmarg-ar sápuþáttaraðir í sjónvarpinu snúast umkonur og ástamál þeirra. Sú mynd sem þar
er dregin upp er frekar einsleit. Söguhetjurnar
búa oftast einar, eru yfirleitt barnlausar en eiga
eitt eða fleiri sambönd að baki (hafa brennt sig á
ástinni). Þær eru fallegar og vel vaxnar, oft á
aldrinum 27–34 ára: hafa menntað sig og eru í
góðu starfi en eru ekki of gamlar fyrir barn-
eignir. En þrátt fyrir velgengni og glæst yfir-
borð er líf þessara kvenna ekki fullnað, það vant-
ar karlmann inn í það. Þættirnir snúast því oft
um leit að kærasta eða mannsefni, væntingar og
vonbrigði af nýjum kynnum. Þær er orðnar leið-
ar á einlífinu og farnar að leita að lífsförunaut
eða jafnvel óttast að þær gangi aldrei út.
Svo virðist sem kvenlögfræðingar höfði mest
til þáttagerðarmanna – og sápuáhorfenda sem
vel að merkja eru flestir konur. Hin sívinsæla
Ally McBeal á Stöð tvö er ágætt dæmi, svo og
konurnar í The Practice á Skjá einum. Lögfræð-
ingsstarfinu fylgir jú virðing samfélagsins þar
sem það byggist á kaldri skynsemi og rökhyggju
(karllegum eiginleikum) en ekki tilfinningum
(kvenlegir eiginleikar) – en kannski er það bara
dragtin sem laðar: sambland hins karllega og
kvenlega. Kvenlögfræðingurinn hefur náð um-
talsverðum starfsframa og komið sér vel fyrir en
það veitir henni hvorki fullnægju eða hamingju
til lengdar. Myndarlegir karlmenn veita t.d. Ally
McBeal ómælda athygli, bjóða henni út að borða
og færa henni gjafir en hana er farið að langa svo
mikið í alvörusamband – að deila lífinu með þeim
rétta – að jaðrar við örvæntingu.
Það eru ýmis tilbrigði við þetta stef. Í Judging
Amy búa þrjár kynslóðir kvenna undir sama
þaki og dóttir Amyar dómara sést stundum eiga
hugljúfar og lærdómsríkar samræður við móður
sína á kvöldin. Hjá Amy er framinn í góðum
höndum en ástamálin ganga brösulega. Hún er
sjaldan tilhöfð, oftast í dómaraskikkjunni eða í
hversdagslegum fötum enda búin að uppfylla
móðurhlutverkið og enginn eiginmaður er í sjón-
máli. Beðmál í borginni eru enn eitt tilbrigðið.
Þar segir frá fjórum konum í New York sem eru
hver annarri fallegri, greindari og hæfileikarík-
ari. Ein er fræg fyrir skapandi skrif sín um beð-
mál en í lífi hennar eru þau ansi flókin (Carrie),
önnur er forstjóri og reynir að komast yfir sem
flesta karla (Samantha), sú þriðja er lögfræð-
ingur og meðeigandi í stöndugu fyrirtæki (Mir-
anda). Loks er það hin rómantíska Charlotte
sem vinnur í listagalleríi og á þann draum heit-
astan að upplifa gamaldags hjónabandsdraum
með demantshring á fingri. Þær eru allar frjáls-
ar, fjárhagslega sjálfstæðar og lifa fjörugu kyn-
lífi. Draumsýn þeirra er að finna ástina, hinn
fullkomna karlmann, og lifa hamingjusamar upp
frá því. Sá draumur virðist ekki ætla að rætast í
bráð. Nýlega hóf Ríkissjónvarpið endursýningu
á fyrstu þáttum Beðmálanna, áður en Marlboro
og fatahönnuðirnir komust með puttana í fjár-
mögnun þeirra, og sést þar vel að lítið hefur
þeim stöllum miðað áfram.
Konur í kvöldsápum eru gáfaðar og glæsi-
legar, vinmargar og vel efnum búnar. Þær eru
virkir gerendur í eigin lífi og engum háðar. En
þrátt fyrir þetta upplifa þær sig í einhverju ófull-
nægjandi millibilsástandi og bíða þess með vax-
andi óþreyju að komast í hefðbundið kynhlut-
verk aldanna sem mæður og eiginkonur. Eina
mótvægið við þessa klisjulegu mynd af konum er
breski skemmtiþátturinn Út í hött (Smack the
Pony) á RÚV. Þar gera konur stólpagrín að
sjálfum sér sem ástsjúkum konum í karlaleit og
framakonum í vinnunni. Endalaus viðleitni
þeirra til að vera gáfuð kyntákn er dregin sund-
ur og saman í háði og engu/engri er hlíft.
Í gær, 8. mars, var alþjóðlegur baráttudagur
kvenna. Í hinum vestræna heimi hafa konur bar-
ist ötullega fyrir réttindum sínum alla síðustu
öld og orðið nokkuð ágengt. Hlutdeild kvenna á
vinnumarkaði þykir nú alveg sjálfsögð. Þær fá
bara aðeins minni laun en karlar og bera áfram
hitann og þungann af heimili og börnum. Eftir
langan vinnudag, barnastúss, matseld og þvotta,
hefst útsending sápuþáttaraðanna á öllum stöðv-
um. Þá er ljúft að geta hent sér í sófann, gengið á
vit ungu og einhleypu kvennanna í sjónvarpinu
og látið sig dreyma um ástina.
FJÖLMIÐLAR
EIGINMAÐUR ÓSKAST
„Konur í kvöldsápum eru gáf-
aðar og glæsilegar, vinmargar
og vel efnum búnar. Þær eru
virkir gerendur í eigin lífi og
engum háðar.“
S T E I N U N N I N G A
Ó T TA R S D Ó T T I R
HÉR lítur fyrsta hefti Ritsins dagsins
ljós og við vonum að það eigi langa
lífdaga fyrir höndum. Hugmyndin
með útgáfu þess er þríþætt: Í fyrsta
lagi finnst mörgum sem fást við hinar
ýmsu greinar hugvísinda innan og
utan Háskóla Íslands vera lífs-
nauðsyn að gefið sé út vandað rit á
þessu sviði. Ritið þjónar hinum fjöl-
mörgu einstaklingum sem stundað
hafa háskólanám í hugvísindum og
öllum þeim áhugamönnum um fræði,
menningu og listir sem fylla sali Há-
skólans þegar spennandi ráðstefnur,
málþing og fyrirlestrar eru í boði. Í
öðru lagi er skýr þörf fyrir öflugri út-
gáfu frumsamdra og þýddra greina
handa nemendum og kennurum við
heimspekideild og vonum við að Rit-
ið eigi eftir að koma að góðum not-
um í kennslu. Í þriðja lagi viljum við
stuðla að því að fræðimenn birti verk
sín á íslensku í riti sem stenst fyllilega
samanburð við helstu fræðirit á er-
lendri grundu. Nú þegar tungu-
málaþekking er orðin jafnalmenn og
raun ber vitni er hætta á því að menn
láti hjá líða að íslenska þau fræði-
legu hugtök sem eru orðin þeim svo
töm á erlendum tungum. En ef það er
einlæg ætlun okkar að halda inn-
lendri fræðastarfsemi á lofti verðum
við stöðugt að vinna að því að skapa
orðræðu og tungutak sem hæfir sam-
tíma okkar.
Guðni Elísson og Jón Ólafsson
Ritið, Tímarit Hugvísindastofnunar
Konur og kristni
Í ljósi þeirra skaðlegu áhrifa sem
boðskapur kristinnar hefðar um fórn-
arkærleikann hefur oft haft á konur,
er mikilvægt að þær í dag sjái trú-
verðuga kven-kristsgervinga, eins og
Systur Helen, til þess einfaldlega að
sjá möguleika sína til þess að flytja
áfram boðskapin um Guð sem tók á
sig hold og bjó með okkur. Helen er
trúverðug fyrirmynd fyrir konur í
dag, vegna þess að við sjáum í henni
konu sem er fær um að setja mörk,
að velja, og einnig að yfirstíga hindr-
anir hins kyngreinda valds í sam-
félaginu. Kven-kristsgervingar í kvik-
myndum eru holdgervingar ímyndar
Guðs, sem konum, eins og körlum, er
gefin hlutdeild í, skv. Fyrri sköp-
unarsögunni. Vegna þess að konur
eiga möguleika á fullri mennsku geta
þær orðið erindrekar þess sem kom
til þess að sýna hvað í henni felst.
Arnfríður Guðmundsdóttir
Kistan.is
www.kistan.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Lífinu verðum við að lifa áfram en við skiljum það aftur á bak.“
(Søren Kierkegaard.)
FYRSTA RITIÐ
KOMIÐ ÚT
I Kenningar Marshalls McLuhans frá öndverðumsjöunda áratugnum um rafvædda heimsþorpið
hafa fengið uppreisn æru þegar enginn getur leng-
ur mótmælt því að hann hafi haft rétt fyrir sér í
öllum aðalatriðum. Það er forvitnilegt að velta fyr-
ir sér hlutverki spámannsins á tækniöld, sjáand-
ans sem les úr þeim táknum sem finna má í sam-
tímanum og rýna þannig inn í framtíðina með
misjöfnum árangri. Kostur þess að helga sig spá-
mennsku er að enginn getur sannreynt spádóminn
fyrr en löngu síðar og því er spámanninum mik-
ilvægari en flest annað sá eiginleiki að sannfæra
hlustendur sína um trúverðugleika kenninganna.
II Spámaðurinn getur byggt upp spádóm sinnmeð rökum og vísað í þekktar staðreyndir máli
sínu til stuðnings en niðurstaðan, spádómurinn
sjálfur, er háður því að áheyrandinn trúi því sem
sagt er án þess að hafa möguleika á að sannreyna
það. Spámenn í okkar samfélagi eru fjölmargir og
þrátt fyrir alla hina rafvæddu tækni og vísindi
hvers konar er hlutverk spámannsins líklega enn
mikilvægara í byrjun 21. aldar en nokkru sinni
fyrr. Stjórnmálamenn og fræðimenn á öllum svið-
um reiða sig á trúgirni almennings og eigin sann-
færingarkraft í sífellt vaxandi þörf til að afla alls
kyns skoðunum og sjónarmiðum fylgis.
III Löngun fólks til að trúa spádómum og for-vitni um framtíðina gerir spámönnum kleift
að stunda iðju sína. En hvers vegna einum er trú-
að og öðrum ekki byggist á allt öðru, nefnilega per-
sónulegum sannfæringarkrafti. Sterkustu spá-
menn stjórnmálanna eru því ekki alltaf
heppilegustu fulltrúar almennings þegar á hólm-
inn er komið og gera á alvöru úr spádómunum;
eiginleikarnir sem komu stjórnmálamanninum á
stallinn eru ekki alltaf þeir sem reynast best til að
hrinda hlutunum í framkvæmd. Lýðskrumarar
eru þeir nefndir sem ganga hvað lengst í því að
heilla almenning með vel völdum orðavaðli og
standa svo ekki við neitt af því þegar takmarkinu,
valdastólnum, er náð. Hlutverk fjölmiðlanna í
þessu umhverfi er ekki að bergmála spádómana og
skrumið af misskildu hlutleysi heldur krefja stjórn-
málaspámennina nánari svara um hvernig þeir
hyggist hrinda loforðum, spádómum og skvaldri
sínu í framkvæmd. Ennfremur að rifja upp fyrri
afrek spámannsins og halda honum við jörðina
svo hann taki ekki flugið og hniti hringa yfir kjós-
endum, glaðhlakkalegur og ávallt áhyggjulaus um
fortíð sína. Flestir stjórnmálamenn virðast reiða
sig í blindni á takmarkað minni almennings og
treysta því að allt sem gerðist fyrir gærdaginn sé
umsvifalaust gleymt. Á tímum rafvæðingar er
auðveldara og aðgengilegra en nokkru sinni fyrr í
sögunni að kalla fram ræður, myndbrot og greinar
stjórnmálamanna mörg ár aftur í tímann. Þar
geta fjölmiðlar beitt tækninni sem McLuhan spáði
svo réttilega um.
IVMcLuhan hélt því fram að merkilegustuskilaboð fjölmiðlanna væru þeir sjálfir, inn-
tak þeirra og efni skipti sáralitlu máli fyrir sögu-
lega framvindu. Vonandi hefur spádómsgáfa hans
brugðist hvað þetta snertir.
NEÐANMÁLS