Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.2002, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. MARS 2002 15
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handrit. Þri.-
fös. 14-16. Til 15.5.
Galleri@hlemmur.is: Jóhannes Atli
Hinriksson ljósmyndir. Til 30.3.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Daði Guð-
björnsson. Til 24.3.
Gallerí Reykjavík: Ingibjörg Klemenz-
dóttir. Til 12.3. Guðfinna Hjálmarsdótt-
ir. Til 20.3.
Gallerí Skuggi: Timo Mähönen og Juha
Metso. Til 30.3.
Gerðarsafn: Ljósmyndir. LÍ og BLÍ. Til
30.3.
Gerðuberg: Þetta vil ég sjá - Eva María
Jónsdóttir. Til 23.3.
Hafnarborg: Svifið seglum þöndum.
Sverrissalur: Skipamódel Gríms Karls-
sonar. Til 8.4.
Hallgrímskirkja: Sigtryggur Bjarni
Baldvinsson. Til 20.5.
Íslensk grafík: Guðný Björk Guðjóns-
dóttir. Til 24.3.
Listasafn Akureyrar: Sigurjón Ólafs-
son. Katrín Elvarsd. Til 7.4.
Listasafn ASÍ: Inga Sólveig Friðjónsd.
Íris Elfa Friðriksd. Til 10.3.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudag kl. 14-17.
Listasafn Íslands: Finnbogi Pétursson.
Til 14.4. Úr eigu safnsins - fjórar sýn-
ingar. Til 14.4.
Listasafn Rvíkur - Hafnarhús: Úrval
aðfanga 1998-2001. Til 5.5. Breiðholt. Til
5.5.
Listasafn Rvíkur - Kjarvalsstaðir: Hall-
steinn Sigurðsson og Þór Vigfússon. Til
1.4. Jóhannes S. Kjarval. Til 31.5. Hann-
es Lárusson. Til 1.4.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Kyn-
legir kvistir. Til 5.5.
Listasalurinn Man: Glerlist, þrjár lista-
konur. Til 10.3.
Ljósmyndasafn Rvíkur: Guðmundur
Ingólfsson. Til 24.3.
Norræna húsið: Nútímaverk úr Nor-
ræna vatnslitasafninu. Til 24.3. Húðflúr
á Álandseyjum. Til 17.3.
ReykjavíkurAkademían: Hjálmar Stef-
ánsson. Til 3.4.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Borgarleikhúsið: CAPUT og einleikar-
ar. Kl. 15:15.
Seltjarnarnesk.: Carmina Burana. Há-
skólak., Vox academica, einsöngv. Kl.
17.
Ýmir: Laugardagsk. á Gili. Kl. 22.
Sunnudagur
Ýmir: Sunnudags-matinée: Bach. Sex
fiðluleikarar. Kl. 16.
Norræna húsið: Djasstr. Grisfo. Kl. 17.
Salurinn: Skólahljómsveit Kópavogs.
Kl. 14 og 17.
Seltjarnarneskirkja: Sjá laugard. Kl.
20.
Þriðjudagur
Íslenska óperan: Þóra Fríða Sæmunds-
dóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson,
Signý Sæmundsdóttir. Kl. 12:15.
Salurinn: Einleikstónleikar Halldórs
Haraldssonar. Kl. 20.
Miðvikudagur
Norræna húsið: Ómar Einarsson, Jak-
ob H. Olsen, gítarar. Kl. 12:30.
Salurinn: Contrasti. Kl. 20.
Fimmtudagur
Langholtskirkja: Til styrktar Götu-
smiðjunni. Kórar, einsöngvarar og
kvartettar. Kl. 20.
Listas. Ísl.: Hamrahlíðark. Kl. 20.30.
DANS
Borgarleikhúsið: Íslenski dansflokkur-
inn: Through Nana’s eys, Lore, fim.
Bylting hinna miðaldra, sun., fim.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Jón Oddur og Jón
Bjarni, sun. Með fulla vasa af grjóti,
sun., fim. Syngjandi í rigningunni, lau.
Hver er hræddur við Virginíu Woolf?
fim., fös.
Borgarleikh.: Boðorðin 9, lau., sun., fös.
Með vífið í lúkunum, fim. Fyrst er að
fæðast, lau., fös. Gesturinn, sun., fim.
Vesturport: Lykill um hálsinn, sun., fim.
Ísl. óperan: Leikur á borði, lau., fös.
Loftkastalinn: Á sama tíma að ári, fös.
Möguleikhúsið: Prumpuhóllinn, sun.,
mið., fim.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Rauðhetta,
lau., sun.
Leikfélag Akureyrar: Slavar, lau. Gull-
brúðkaup, lau., sun. Prinsessan í hörp-
unni, fös.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Y
ASUDA-tryggingafélagið í Tók-
ýó keypti sólblómamynd eftir
Vincent van Gogh fyrir met-
verð á uppboði Christie’s í
London árið 1987. Yasuda bauð
þrisvar sinnum meira í mynd-
ina en hafði nokkru sinni verið
boðið í listaverk fram að því.
Myndin fór á 24,75 milljón pund. Helstu van
Gogh sérfræðingar heims hældu myndinni í há-
stert í söluskrá uppboðsins. Hún var ekki fyrr
seld fyrir metverð en ýmsir fóru að velta fyrir
sér hvort van Gogh hefði í raun og veru málað
hana. Hún þykir mun síðri en hinar sólblóma-
myndirnar tvær sem hann gerði í Arles af 14
sólblómum í vasa og eru í eigu National Gallery í
London og van Gogh safnsins í Amsterdam.
Yasuda-sólblómin eru nú á sýningunni Van
Gogh og Gauguin í Arles í Amsterdam ásamt
hinum myndunum tveimur. Í fyrsta sinn gefst
tækifæri til að bera allar myndirnar saman.
Sýningunni lýkur 2. júní. Stjórnendur og list-
fræðingar safnsins ætla að nota tækifærið til að
þagga endanlega niðri í þeim sem segja að van
Gogh hafi alls ekki málað Yasuda-myndina. Þeir
hafa skrifað langa grein þar sem þeir telja sig
sanna í eitt skipti fyrir öll að van Gogh hafi mál-
að hana í desember 1888. Helstu rökin eru þau
að myndin er máluð á pokastriga en van Gogh
notaði aldrei pokastriga nema þá tvo mánuði
sem Gauguin var hjá honum í Arles og keypti 20
metra af ódýrum striga. Málið verður tekið fyrir
á ráðstefnu í sambandi við sýninguna nú í mars.
Benoit Landais, sjálfmenntuðum, frönskum van
Gogh sérfræðingi sem býr í Hollandi, hefur ver-
ið boðið að tala fyrir hönd þeirra sem telja
myndina illa gerða og fyrir neðan virðingu van
Goghs.
Voru ósammála um flest
Vincent van Gogh skrifaði bróður sínum Theo
ítarleg bréf um líf sitt og listsköpun. Hann skrif-
aði honum frá Arles að hann ætlaði að hengja
tvær sólblómamyndir sem hann hafði gert í
ágúst upp í herbergi Gauguins. Önnur myndin
er af 12 sólblómum á blágrænum bakgrunni en
hin af 14 sólblómum á gulgrænum bakgrunni.
Gauguin hældi þeirri á gula bakgrunninum í há-
stert og sagði hana jafnvel betri en sólblóma-
mynd sem hann hafði séð eftir Monet. Hann
vildi eignast myndina.
Þeir félagar virtu hvor annan sem listamann
en þeir voru ósammála um flest og það ríkti
samkeppni á milli þeirra. Þeir máluðu sem mest
þeir máttu og reyndu að slá hvor öðrum við
þessa mánuði í Arles. Van Gogh fór loks á taug-
um og skar af sér eyrað á Þorláksmessu. Gaugu-
in forðaði sér samdægurs til Parísar. En hann
langaði enn í sólblómamyndina. Van Gogh vildi
fyrst eftir að honum fór að batna ekki heyra á
það minnst en ákvað svo að mála báðar mynd-
irnar aftur, eina með 12 blómum og aðra með 14
blómum. Þegar Roulin póstur leit inn til hans í
lok janúar 1889 sýndi van Gogh honum fjórar
sólblómamyndir, tvær sem hann gerði í ágúst og
tvær í janúar. Hann sendi þær til Theos í París í
lok apríl. Fimmtán mánuðum seinna skaut hann
sig, Theo fór yfirum og lést í janúar 1891.
Það hafði enginn hugmynd um að van Gogh
hefði málað 5 stórar sólblómamyndir fyrr en sú
fimmta skaut upp kollinum í eigu Emils nokkurs
Schuffeneckers í febrúar 1901. Hún er af 14 sól-
blómum og Landais segir litinn á bakgrunnin-
um vera einhvers staðar á milli gulgræna og blá-
græna litarins sem van Gogh notaði í sínum
myndum. Hún er máluð á pokastriga og er nú í
eigu Yasuda-fyrirtækisins.
Vann með Gauguin
Schuffenecker var myndlistarkennari í
menntaskóla í París. Hann vann um tíma með
Gauguin í verðbréfafyrirtæki og þeir máluðu þá
oft saman. Hann þótti nokkuð efnilegur lista-
maður, einn listunnandi líkti honum jafnvel við
Michelangelo og þótti hann bera af öðrum im-
pressjónistum. En hann náði hvorki frægð né
frama. Gauguin leitaði hælis hjá honum þegar
hann kom til Parísar frá Arles. Þeir ræddu kosti
og galla pokastriga og Gauguin var hjá honum
þegar hann skrifaði van Gogh og bað enn um
sólblómamyndina góðu.
Schuffenecker átti fjölbýlishús og hafði
tekjur af því. Hann fjárfesti í listaverkum og átti
um tíma stærsta safn van Gogh mynda í París.
Landais telur að hann hafi einnig falsað van
Gogh myndir og Yasuda-myndin sé ein þeirra.
Hann átti mest viðskipti við Eugene Druet lista-
verkasala. Sá seldi Paul Mendelssohn-Bar-
holdy, þýskum bankamanni, sólblómamyndina
fyrir 35.000 franska franka árið 1910, en það var
þá metverð fyrir van Gogh. Yasuda greiddi met-
verð fyrir sömu mynd 77 árum seinna.
Enginn myndi gruna Schuffenecker um
græsku ef listakonan Judith Gérard hefði ekki
sagt frá því í blaðaviðtali árið 1931 að hún hefði
málað mynd af van Gogh á námsárunum sem
Druet þessi seldi Mendelssohn-Barholdy seinna
sem sjálfsmynd eftir van Gogh. Bróðir Schuffe-
neckers keypti myndina af henni á sínum tíma
og Emil Schuffenecker bætti nokkrum blómum
inn á hana og máði út nafnið hennar. Það veitti
enginn orðum listakonunnar athygli og sviss-
neski viðskiptajöfurinn Emil Bührle keypti
myndina sem þá var kölluð Sjálfsmynd með
blómum eftir heimsstyrjöldina síðari. Þegar hið
sanna kom loks í ljós var myndin tekin niður og
lokuð inni í kjallarageymslu Bührle-safnsins í
Zürich. Schuffenecker var góður kunningi Juli-
ens Leclerqs sem skipulagði fyrstu van Gogh
sýninguna í París árið 1901. Önnur 14 blóma sól-
blómamyndin frá Arles, Landais segir sú sem
var máluð í janúar og er nú í eigu National Gall-
ery í London, var hjá Leclerq í lengri tíma.
Hann sagði Jóhönnu, ekkju Theos, að myndin
þyrfti viðgerða við en sagði henni ekki að
Schuffenecker sæi um þær. Hún var ekki sér-
lega hrifin af Schuffenecker. Henni fannst hann
helst til prúttinn.
Nægur tími til að falsa
Samkvæmt niðurstöðum Landais hafði
Schuffenecker því nægan tíma til að falsa Sól-
blóm van Goghs. Hann vissi að Gauguin og van
Gogh notuðu pokastriga þegar þeir voru saman
í Arles. Yasuda-tryggingafélagið setti þau skil-
yrði þegar það lánaði sína mynd á sýninguna í
Amsterdam að það yrði farið vel með hana og
hún yrði ekki skoðuð á vísindalegan eða tækni-
legan hátt. Stjórnendur safnsins samþykktu
það. Þeir geta ekki verið alltof kröfuharðir eða
frekir við fyrirtæki sem gaf safninu 15 milljón
pund fyrir nokkrum árum til að byggja nýja
sýningarálmu við safnið. Svo listfræðingarnir
urðu að láta sér nægja að telja þræðina í strig-
anum og sáu að þetta var nákvæmlega eins
pokastrigi og listamennirnir notuðu í Arles.
Gallinn er bara sá að pokastrigi var framleiddur
með samskonar vélum út um alla Evrópu frá
miðri 19. og fram á 20. öld. Fjöldi þráðanna
sannar því ekki neitt.
FYRIR NEÐAN
VIRÐINGU
VAN GOGHS?
Sólblómamynd eftir Vincent van Gogh, sem seldist fyrir metfé á uppboði
1987, er nú á sýningu í Amsterdam. ANNA BJARNADÓTTIR segir frá
myndinni sem sumir telja að van Gogh hafi alls ekki málað.
Hin umdeilda sólblómamynd van Goghs.