Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.2002, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.2002, Síða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. MARS 2002 K RISTJÁN Albertsson stóð á þrítugu þegar hann tvítók at- viksorðið „loksins“ í upphafi dóms um nýútkomna íslenska skáldsögu og þótt hann ætti eftir að komast á tíræðisaldur fylgdu þau honum alla leið – og út yfir gröf og dauða – því enn er Kristjáns Albertssonar sérstaklega minnst fyrir ritdóminn um Vefarann mikla frá Kasmír og upphafsorðin: „Loksins, loksins…“ Það skipti engu máli þótt hann fyndi verkinu ýmislegt til foráttu, það var yfir upphrópuninni einhver „verði ljós“ tilfinning. Síðan hafa margir reynt að endurtaka leikinn þegar þá hefur langað til að finnast mikið til um eitthvað, en áhrifin eru oftast svipuð og þegar fiktað er í slökkvara. Í viðtali við Elínu Pálmadóttur í Morgun- blaðinu árið 1969 rifjar Kristján upp útkomu Vefarans: „Hann kom út í heftum, sem send voru áskrifendum og leið allt að mánuður á milli. Ég man, að þegar ég hafði lesið þriðja eða fjórða heftið, var ég svo hrifinn og lá svo mikið á að þakka skáldinu, sem þá bjó heima í Laxnesi hjá móður sinni, að ég skrifaði bréf og fór með það út í náttmyrkrið til að pósta það. Þessi bók stakk svo í stúf við allt, sem áður var til á ís- lenzkri tungu, að ég var gersamlega undr- andi…“ *** Og þetta var ekki eina bréfið sem Kristján átti eftir að senda skáldi sínu, þótt ekki væri hann alltaf jafn upptendraður og nóttina góðu. Oft skal hann hafa gengið samanbitinn um götur erlendra borga og troðið umslagi niður um lúg- una á einhverjum póstkassanum, þegar Hall- dór hafði gengið fram af honum. En samband þeirra hefst í nokkurri kátertni af hálfu Kristjáns, þannig segist honum svo frá í Verði 8. nóvember 1924: „Halldór Kiljan Laxness, hinn ungi gáfaði rithöfundur, er um þessar mundir, sem oftlega áður, íslenzkum skáldskaparvinum hið mesta áhyggjuefni. Hann hefir sýnt óvenjulega hæfileika á yngra aldri, en títt mun um norræna rithöf- unda og veit jeg þess engin dæmi að Íslend- ingur hafi innan tvítugt skrifað jafngóða sögu „Kálfakotungaþætti“ (sem prentaður er í bók hans „Nokkrar sögur“). Blaðagreinar skrifar hann fjörlega og skemmtilega – en allajafnan töluvert sjálfbirgingslega, að því er mörgum finnst. Hvort sem hann skrifar um Hamsun eða lýsir messu í Westminster Cathedral í London – altaf finnst manni hann fyrst og fremst vera að skrifa um sjálfan sig, um Halldór Kiljan Laxness. Og stundum er engu líkara en að hann tylli sjer á tá í annarri hvorri setningu – sko mig, takið eftir mjer, jeg hefi farið um heiminn, jeg er katólskur, sko mig, mig, mig! Það var einhverntíma í vor, að jeg heilsa honum á götu með þeim orðum, að það gleddi mig að þrýsta þá hönd, sem stýrði montnasta penna á Íslandi. Það datt yfir skáldið unga – jeg montinn, sagði hann. Við ræddum um þetta lengi og jeg fór að halda að Halldór hefði aldrei rennt grun í það, að hann skrifaði sjálfbirgings- lega, að montblærinn á greinum hans hlyti að stafa af einhverjum klaufaskap…“ Sjálfur var Kristján þegar hér var komið sögu ekki beint lítillætið uppmálað. Hann var þá þegar orðinn áhrifamikill menningarfröm- uður, ritstjóri vikublaðsins Varðar sem var málgagn Íhaldsflokksins og meðritstjóri Vöku, tímarits sem nokkrir reykvískir menntamenn stóðu að. Hann var með vígfúsari skylminga- mönnum á velli ritdeilunnar og það gustaði af honum í menningarumræðunni þar sem hann var talsmaður kröfuhörku í mati á skáldverk- um og baráttumaður gegn hvers konar hei- móttarskap og afdalamennsku. Aðeins 22 ára birtir hann eftirfarandi stefnu- yfirlýsingu í Morgunblaðinu: „Af engu stendur bókmenntum vorum meiri hætta í bili, en hinni góðmannlegu lítilþægni ís- lenzkra ritdómara, af geðleysi þeirra og hug- leysi, af tepruskap þeirra og tannleysi. Þeir varast eins og heitan eldinn að mæla styggð- aryrði til nokkurs rithöfundar, og allra sízt þeirra sem minnstir eru að þroska, menntun og gáfum… Stundum verður þetta svo ógeðslegt að það minnir á flaður, tilburði og kurteisisöfg- ar erlendra knæpuþjóna… Það er engin afsök- un til fyrir lélegu skáldriti. Blátt áfram engin.“3 *** Fljótlega eftir útkomu Vefarans fór Halldór til Ameríku og settist að við Kyrrahafið þar sem hann dvaldi í þrjú ár. Kristján aftur á móti hélt til Frakklands og dvaldi löngum við Miðjarð- arsjó. Báðir í þeim tilgangi að skrifa ódauðleg skáldverk. Og bréfin ganga á milli. Við lestur þeirra er ljóst hve sambandið er sérkennilega háspennt, engu líkara en það sé ævinlega við það að bresta. Kristján hafði hlaupið í skráp- ana fyrir Halldór þegar sá síðarnefndi hélt ut- an og talið blaðstjórn Varðar á að greiða hon- um fyrirfram upp í ritlaun fyrir aðsendar greinar. Í millitíðinni hafði Kristján sjálfur birt grein um „Andlegt líf á Íslandi“ í Vöku þar sem svo gat virst sem hann vildi draga í land varð- andi Vefarann: „Tvær bækur hafa vakið mest umtal hér á síðari árum, „Bréf til Láru“ og „Vefarinn mikli frá Kasmír“. Hver sem heyrt hefir nokkra tugi manna minnast á þessar bækur, veit að það var ekki fyrst og fremst ritlist og andríki höfunda, sem athygli vakti. Halldór K. Laxness er fræg- astur fyrir að hafa skrifað um kynvillu og „sód- ómíska skrautdansa“, Þórbergur Þórðarson fyrir að hafa hreytt út úr sér skætingi í nokkra af broddum þjóðfélagsins og leyst niðrum sig í skógarrunni.“ Gegn þessum dónum teflir hann svo Sigurði Nordal: „Hel“ Sigurðar Nordal var skrifuð af fegurri ritsnild, dýpri skáldgáfu, fínni smekk, meiri þroska og menningu en báðar þær bækur sem ég nefni. En það er enginn pólitískur gaura- gangur, engin klúryrði, enginn líkamsdaunn, engir „hrökkálar“, engir „himneskir hrákar“ – að eins hrein, fáguð list, alvarleg og skáldleg hugsun um mannlegt líf…“4 Halldór er skjótur til svars í aðsendri grein sem hann nefnir „Um upplýsingu“ og birtist í næsta hefti Vöku. Eftir að hafa dregið dár að helstu hugmyndum Kristjáns um viðreisn and- legs lífs á Íslandi, segir hann: „… En þegar maður er að ræða um lista- smekk árið 1928, þá má maður ekki tala eins og mubla úr stofu frá mid-victorian-tímabilinu enska, þegar það var til siðs á kurteisum heim- ilum að klæða borðfætur og stólfætur í buxur svo að þessir miklu krikar hefðu ekki klám- fengin áhrif á fólk. Alvarleg fagurfræði er ekki framar neitt hispur, heldur miklu fremur mat á hreinskilni…“ Og Halldór teflir því næst fram hugtaki sem Sigfús Daðason taldi síðar að hefði valdið straumhvörfum á ritferli Halldórs: The charm of ugliness…5 „… mönnum finnst nú smekklaust, leiðinlegt og jafnvel viðbjóðslegt það, sem áður þótti fag- urt, göfugt og tignarlegt. Siðgæði hefur tekið slíkum þroska að nú þykir ekkert framar ljótt, nema það sem logið er… Fólki er óhætt að reiða sig á að það eru að eins dauðadæmdir menn, sem færa stólfæt- urna í buxur, til þess að verjast óhreinum hug- renningum. Ekkert er fegurra né voldugra í listum vorrar aldar en hin vaxandi hreinskilni og einlægni við sjálfan sig, Guð og menn. Ekk- ert er hægt að hugsa né segja svo ljótt, að það verði ekki fagurt, ef það er hugsað eða sagt í hreinskilni og einlægni…“6 Kristján skilur sneiðina og svarar sárreiður í sendibréfi: „Enginn íslenskur rithöfundur hefir haldið Vefaranum meira á lofti en ég, ég hefi skrifað um hann lengsta ritdóm sem til er um íslenzka skáldsögu, reynt að skýra ritið, gera það að- gengilegt, fyrirbyggja misskilning og smáþjóð- arlegan tepruskap – eg hefi birt útdrátt úr dómum í Verði (með mynd af þér) og skorað á hólm alla þá sem saka þig um klám og ósiðsemi og hótað þeim með Biblíunni og Shakespeare og Sögunum. Og svo kemur þú og ætlar að brennimerkja mig sem dauðadæmdan mann fyrir sakir tepruskapar, segir að eg tali eins og mubla í buxum o.s.frv… Eg lofa þér því – þú skalt fá á baukinn fyrir þetta.“7 Og Kristján lætur ekki sitja við orðin tóm, einvígið fer fram í tímaritinu Vöku með þeirri kostulegu niðurstöðu að úr því að hægðir og þvaglát séu á annað borð komin inn í fagurbók- menntirnar: „… þá mætti ef til vill saka sjálfan Halldór Kiljan Laxness um tepruskap. Hann nefnir James Joyce, sem ekki er feiminn við að lýsa því þegar söguhetja kastar af sér vatni. Og allir vitum við hvað kom fyrir Þórberg Þórðarson í skógarrunna við Breiðafjörð. Hvers vegna er ekki sagt frá neinu slíku um Stein Elliða í Vef- aranum á röskum 500 blaðsíðum? Hvað á slíkur dýrindis-velluskapur að þýða? Væntanlega er hann þó skapaður eins og aðrir menn?“8 *** En jafnframt hinum opinbera vettvangi freista þeir vinir að útkljá deilumál sín í einkabréfum. Bréfberar í Los Angeles og París skiptast á sáttaboðum og hótunum. Það má ekki á milli sjá hvor er hörundsárari og má engu muna að viðkvæmt jafnvægi raskist. Samanber þessa klausu úr bréfi Kristjáns frá 2. september 1928: „Við þykjumst auðvitað báðir eiga allskostar hvor við annan í ritdeilu, en þó að eg, af áður greindum ástæðum, þættist þurfa að svara upplýsingar-pistli þínum fullum fetum þá leiddist mér samt og mun altaf leiðast að þurfa að skiftast á við þig illkvitnisorðum og finst mér, eins og þú hefir sjálfur áður sagt, við hafa annað betra að brúka blek og penna til en þess- konar deilur. Úr því að þú ekki svarar mér í Vöku þá skal eg sýna að eg met það við þig með því að svara engu því í bréfi þínu, sem á að hæfa mig óþægilega – hvert orð þess skal standa óhrakið um aldur og æfi! (Nema hvað eg auð- vitað veit ekki hvaðan á mig stendur veðrið þegar þú segir að eg skrifi „glósu“ til þín utan á bréfsumslagið! Hvílíkt og annað eins!).“9 *** Halldór stóð við gefin loforð um að senda greinar í Vörð, en fljótlega kom á daginn að þær voru svo róttækar að blaðið treysti sér ekki til að birta þær. Vaka ekki heldur. Kristján harmar þessar lyktir, en ber því næst upp spurninguna: „Ertu orðinn kommúnisti?“10 Svarið barst í sjópósti frá Íslandi þegar Hall- dór sendi honum Alþýðubókina „sem eg las spjalda á milli sama dag og eg fékk hana – og hafði mikið gaman af (þótt skömm sé frá að segja – er best að bæta við svo að eg byrji nú strax að pexa við þig!) Víða kemur þú við, mikil er þín mælska og gnótt hugmynda – og altaf fer þér fram í að geta komið orðum að öllum þremlinum… En því ertu, kæri vinur, með þennan eilífa stráksskap og ruddahátt í orðalagi… Eg er síst of mikið fyrir það að taka dauflega til orða – en að bölsótast bara til að bölsótast og reyna að ganga fram af fólki – það er þér ekki samboðið, ungi snillingur!“11 *** Næst þegar við höfum fregnir af þeim félögum er Kristján kominn til Parísar þar sem hann HALLDÓR OG KRISTJÁN ALBERTSSON „Og viti menn, Kristján stóð nákvæmlega á sextugu þegar honum barst bókin sem sætti þá félaga heilum sáttum. Maður skynjar hvern- ig hvert verk frá hendi Halldórs hefur verið Kristjáni eins og ferðalag um fagurt landslag – með jarðsprengjum. Hann hefur sett í axlirnar um leið og hann las og ævinlega átt von á því að hans gamli vinur hlypi út undan sér og færi að ráðast á þau lífsgildi sem Kristjáni voru heilög. Þess vegna er feginleikinn ekki lítill þegar honum loksins loks- ins gefst að lesa heila bók þar sem ekkert truflar.“ E F T I R P É T U R G U N N A R S S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.