Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.2002, Síða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. APRÍL 2002
LAUGAR, VESTFIRÐIR, 1991: Þessi laug skipar sérstakan sess í lífi mínu á Íslandi. Á
ferðum mínum seint á áttunda áratugnum og snemma á þeim níunda átti ég þar margar
stundir, yljaði mér eftir kalda, óblíða veðráttuna. Er ég sneri aftur til að taka ljósmyndir af
henni árið 1991 sagði húsvörðurinn mér að von væri á nýrri laug. Hann sagði mér einnig að
þetta væri elsta innilaug á Íslandi, er ætti daga sína að telja aftur til upphafs þriðja áratug-
arins. Auk laugarinnar hýsti byggingin einstakan og fallegan heitan pott.* Annar fróðleiks-
moli sem hraut af vörum húsvarðarins var sú staðreynd að fyrr á tímum var þessi bygging,
sem sú stærsta í sveitinni, notuð sem eins konar samkomuhús; þegar fólkið úr nágrenninu
kom saman eða fagnaði var laugin tæmd og hún notuð sem danssalur – fágað augnablik í
sögu menningarheims þar sem allt veltur á útsjónarsemi.
*Sjá næsta hluta Iceland’s Difference (Sérkenna Íslands), Lesbók, 4. maí 2002.
Þetta er þriðji hluti í flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljós-
mynd, 1991, og texta, 2002, Roni Horn.