Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.2002, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.2002, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JÚLÍ 2002 Ú R mörgu að velja í háborgum Evrópu stefni ferðalangur- inn sérstaklega á vit mynd- listarviðburða, sumartíminn yfirleitt vel skipulagður í þeim efnum. Að ekki sé minnst á hina miklu sýningu Dokumenta 11 í Kassel, sem telst millistór borg á mælikvarða Þýðverja. Þar hefur helst gerst, að þjóðfélagsumræðan er komin aftur í listina, herma fréttir að það boði lok gamansins og flippsins á undanförnum ár- um, sandkassaleiksins, eins og sumir gagnrýn- endur heimspressunnar nefndu fyrirbærið. „Jetz ist schluss mit Lustig“ (nú er gamanið bú- ið) var þannig fyrirsögn einnar fyrstu og ríku- lega myndskreyttu frásagnar af framkvæmd- inni og birtist í vikublaðinu Stern. Að venju bítast Berlín, London og París um athyglina ef marka má almennt yfirlit í ,art Das Kunstmagazin, Hamburg, en Róm, borgin ei- lífa, kemst ekki umfram venju á blað, hvorki um gamalt né nýtt á sýningavettvangi. Þó skal síð- ur sjást yfir, að borgin sjálf er listaverk og geymir fjársjóði innan veggja safna, hofa og hörga sem tekur mánuði að skoða til fulls. Í borginni eilífu kunnu menn að hugsa stórt á ár- um áður og voru öðrum betur meðvitaðir um mikilvægi hins óþarfa, eins og Voltaire orðaði það. Var spekingur upplýsingastefnunnar þá að benda á kosti þess sem væri utan almennra og efnislegra þarfa en gæfi lífinu lit. Vínarborg með alla sína sjónrænu virkt frá dögum Habs- borgaranna, og ríku tónlistarhefð, er hins vegar í rífandi sókn. Meðal þess sem lyftir sálinni hátt uppúr önn hvunndagsins, eru ótvírætt hinar viðamiklu stórsýningar í heimsborgunum, í öllu falli ef tekið er mið af aðstreymi ungra sem aldinna. Hér eru meistarar módernismans hátt skrifaðir sem fyrri daginn, þannig virðist hin mikla sýn- ing í Lundúnum, Matisse – Picasso, vera að rétta Tate Modern, Bankside við, eftir að að- sókn tók ískyggilega að hrapa eftir opnunar- árið, og menn sáu fram á erfiðleika í rekstri ef svo héldi fram. Aðsóknin mun hafa farið vax- andi allan tímann og stefnir í eitt af metunum í allri sögu safnsins er henni lýkur 18. ágúst. Þá ber að nefna hina árlegu sumarsýningu inn- lendrar listar á Royal Academy, hvar jafnan getur að líta yfirgengilegt magn myndlistar af öllu tagi og jafnaðarlega drjúgur lærdómur að sækja heim, arkirektúr þar engan veginn und- anskilinn, lýkur 11. ágúst. Og á Tate Britain, Millvall, heiðrar þjóðin hinn áttræða raunsæis- málara Lucian Freud með yfirgripsmikilli sýn- ingu á æviverki hans, stendur til 22. september. Þrátt fyrir þann ljóma sem stendur af nafni listamannsins, sem nú er heimskunnur og í verðflokki eftir því, væri ofsagt að hann hafi ekki þurft að hafa fyrir hlutunum á listabraut- inni. Jafnvel lengstum þekktastur fyrir hið fræga eftirnafn, sem var bæði akkur og þrösk- uldur. Í yfirgripsmiklu og skilvirku uppslátt- arriti í tólf drjúgum bindum, Lexikon der Kunst, í útgáfu Herder; Freiburg, Basel, Wien 1989, er hans þannig að engu getið og eru það mikil býsn í ljósi frægðar hans í dag. Hér hefur mönnum orðið á í messunni en um leið segir það okkur hve listheimurinn breytist hratt, einnig hve framtíðarspár reynast hér fallvaltar. Að vissu marki sem betur fer, listin á ekki að vera miðstýrt fyrirbæri né eign fárra, hið óvænta á jafnaðarlega að leynast á bak við næsta horn, annars hættir hún að hrista upp í hlutunum, rasskella staðnaðan og vanabundinn þanka- gang. Ógleymdur og í fullu gildi er vitaskuld sem áður hæfileikinn til að sjá alltaf nýja hlið á hlutunum, hann var lengi á hröðu undanhaldi en hefur risið upp úr öskustó á síðustu árum. Að hluta til með fulltingi hátækninnar sem hefur opnað nýjar víddir til fortíðar, en einnig hennar sjálfrar vegna og hins ólífræna umhverfis sem hún framber og kallar á andstæðu sína. Má segja að viðhorfin hafi komið bakdyramegin, hér voru engir með reglustrikur og áætlanir á lofti, öllu frekar um óviðráðanlega þörf fyrir líf- ræna kviku og mjúk gildi að ræða. Viðurkenni fúslega, að ég átti sem fleiri lengi bágt með að melta list Lundúnaskólans svo- nefnda, eins og hún birtist í verkum Lucian Freuds, þetta hrjúfa, hráa og efniskennda raunsæi, sem var til að mynda svo óralangt frá yndisþokkafullum hvunndegi síðimpressjónist- ans Pierre Bonnards í Frans. Að svo komnu tilefni að gera hér dálítinn samanburð á þrem myndlistarmönnum, þeim Freud, Bonnard, og Alberto Giacometti, sem allir leituðu á sömu mið, næsta nágrenni sitt. Magnaður litaheimur Bonnards var sem óður til náttúrunnar og eiginkonunnar, sem hann mál- aði í öllum mögulegum stellingum, í fötum og án. Hafði líka sína gildu skýringu, spúsan þoldi síður tilhugsunina um að hann málaði aðrar konur og fór því úr pjötlunum hvenær sem hann bað hana um, þótt yfirleitt í öðrum og plat- ónískari tilgangi væri en almennt gerist. Hið merkilega við þetta er að konan var alltaf ung á dúkunum eins og árin stæðu í stað, í þeim jafn- an eins konar tímalaust sólskin eins og menn segja um myndverk sumra landslagsmálara. Ef náttúrumögnin í næsta nágrenni svo og birtu- brigðin voru inntakið í myndheimi Bonnards, gegndi sjálf tilvistin hliðstæðu hlutverki í högg- myndum og málverkum Giacomettis. Sjálfur Jean Paul Sartre postuli tilvistarstefnunnar hlustaði af stakri íhygli og andakt á hugleið- ingar málarans um lífið og tilveruna er þeir sátu saman á kaffihúsum Parísarborgar, og það AF LUCIAN FRE Flestir munu gera sér grein fyrir að nafnið Sigmund Freud vísar til frumkvöðuls sálgreiningarinnar, jafnframt nýrra öllu færri vita að sonarsonur hans, Lucian Freud (f. 1922), er af mörgum talinn einn fremstur raunsæismálara heim efni yfirlitssýningar á verkum hans á Tate Britain, Milvall, beinir BRAGI ÁSGEIRSSON sjónum að þessum leng Lucian Freud og Caroline í Madrid 1953. Blessunarleg hvíld, Hin fræga mynd Lucian Freud af starfsbróðurn- um og vininum Francis Bacon, olía 1952. Endurvarp, sjálfsmynd, olía á léreft 1985.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.