Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.2002, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.2002, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JÚLÍ 2002 15 MYNDLIST Galleri@hlemmur.is: Magnús Sig- urðsson. Til 20.7. Gallerí Reykjavík: Díana Hrafnsdótt- ir. Til 26.7. Loes Muller. Til 31.7. Gerðarsafn: Úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guð- mundsdóttur. Til 28.7. Grafarvogskirkja: Björg Þorsteins- dóttir. Til 18.8. Hafnarborg: David Alexander. Dis- till. Til 22.7. Hallgrímskirkja: Húbert Nói. Til 29.8. Hús málaranna, Eiðistorgi: Einar Hákonarson. Til 1.9. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Úr eigu safnsins. i8, Klapparstíg 33: Sabine Funke, Ragna Róbertsdóttir og Beate Ter- floth. Til 17.8. Undir stiganum: Frosti Friðriksson. Til 27.7. Listasafn Akureyrar: Akureyri í myndlist II. Til 21.7. Listasafn ASÍ: Valgerður Hauksdótt- ir og Kate Leonard. Til 28.7. Listasafn Borgarness: Sigríður Val- dís Finnbogadóttir. Til 14.8. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnudag kl. 14–17. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar- safn: Listin meðal fólksins. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Íslensk samtímalist. Til 11.8. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sum- arsýning. Hin hreinu form. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Kíkó Korriró. Til 7.8. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Grófar- húsi: Blaðaljósmyndir. Til 1.9. Mokka: Marý. Til. 14.8. Norræna húsið: Siri Derkert. Til 11.8. Safnahús Borgarfjarðar: Skógasýn- ing, myndlist og handverk. Til 1.9. Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Átta sýningar á alþýðu- list. Til 15.9. Sjóminjasafn Ís- lands: Smíðisgrip- ir eftir íslenska handverksmenn. Til 12.8. Skaftfell, Seyðis- firði: Peter Frie og Georg Guðni. Til 10.8. Skálholtsskóli: Benedikt Gunn- arsson. Til 1.9. Straumur, Hafnarfirði: Mark Norm- an B Rosseau. Til 21.7. Þjóðarbókhlaða: Halldór Laxness. Til 31. des. Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og ragnarök. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Árbæjarsafn: Ingi Garðar Erlends- son, básúna, Guðrún Rútsdóttir, bás- úna og Ella Vala Ármannsdóttir, pí- anó. Kl. 14. Hallgrímskirkja: Katrin Meriloo org- anisti frá Eistlandi. Kl. 12. Reykholtskirkja, Borgarfirði: Hauk- ur Guðlaugsson organisti. Kl. 16. Reykjahlíðarkirkja, Mývatnssveit: Judith Portugall, flauta, Wolfgang Portugall, orgel og Margrét Bóas- dóttir, sópran. Kl. 21. Sunnudagur Fríkirkjan í Reykjavík: Barrokkdúó: Ólöf Sigursveinsdóttir og Hanna Loftsdóttir. Kl. 17. Hallgrímskirkja: Sumarkvöld við orgelið: Katrin Meriloo frá Eistlandi. Kl. 20. Þriðjudagur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Ca- mila Söderberg (blokkflauta) og Guð- rún Óskarsdóttir (sembal). Kl. 20.30. LEIKLIST Árbæjarsafn: Spekúlerað á stórum skala. Sun. kl. 14. Upplýsingar um listviðburði sem ósk- að er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á mið- vikudögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U Benedikt Gunnarsson Värmland héraði Svíþjóðar, nokkru fyrir utan Gautaborg. Í stórum garði setursins eru þó nokkur lítil garðhús, eða pavillion, mismunandi að gerð og lögun, og nýttu íslensku listamenn- irnir sér þau til sýningarhaldsins. „Fyrst átti sýningin að vera í tveimur eða þremur af þess- um húsum. Marc hafði hugsað sér að fá ein- ungis fjóra til fimm listamenn. En hugmyndin um að nota öll þessi garðhús varð ofan á, svo við sendum út boð til fjórtán listamanna og athug- uðum hvernig þau tækju í þetta,“ segir Halldór. „Við vissum að það yrði lítið um styrki, lítill tími til undirbúnings og þetta væri almennt allt í mjög miklu uppnámi. En allir voru reiðubúnir að taka þátt, þrátt fyrir þetta. Við fengum styrk úr menntamálaráðuneytinu, og svo hófst eyði- merkurgangan, að ganga milli fyrirtækja og biðja um styrki. Það gekk heldur illa, þar til Landsvirkjun gat hugsað sér að styrkja okkur, að minnsta kosti um gerð sýningarskrár, gegn því að þessi sami hópur héldi sýningu í haust í Ljósafossvirkjun. Auk þess fengum við fyrir- greiðslu frá Flugleiðum um flutning á verkun- um. Það tókst því að ná endum saman.“ Sýningarskráin ber yfirskriftina Hvalreki og er á kápu hennar mynd af mönnum að gera að hvalskrokki. „Við unnum að gerð hennar um þær mundir sem Svíar neituðu samstöðu við okkur Íslendinga um hvalveiðar,“ segir Halldór um titil sýningarskrárinnar. „Við ákváðum að hafa þennan titil og Steingrímur Eyfjörð kom með þessa hugmynd að hafa mynd af hval- skrokknum. Okkur fannst það hafa ákveðna skírskotun í þetta sænsk-íslenska samstarf.“ Halldór segir sýninguna hafa komið mjög vel út og hlotið lofsamlega dóma gagnrýnenda sem gesta. „Það kom mörgum nokkuð á óvart að sjá hversu fjölbreytileg íslensk samtímamyndlist er,“ segir hann. „Ég viðurkenni reyndar að það sem gerir það að verkum að sýningin gengur svo vel upp sem raunin er, eru þessi litlu hús sem gera hana nánast að fjórtán einkasýning- um. Hver listamaður er í raun með sinn sér- staka sal. Gestir sjá þannig vel hversu verkin og listamennirnir eru innbyrðis ólík og upplifa á sýningunni mikla breidd í myndlist. Ég held að það hafi haft gífurleg trekkjandi áhrif. “ Áframhaldandi sýningar á dagskrá Sýningin mun standa opin í Alma Löv-safn- inu til 22. ágústs, en Halldór Björn segir að ekki sé ráðgert að verkin komi heim strax. „Sýningin verður sett upp í MECCA í Terezín í Tékklandi í vor. Við vonumst til að þaðan geti hún ferðast víðar um Evrópulöndin. Það er von okkar að í hvert skipti sem hún yfirgefur nýtt land, sláist einn þarlendur listamaður í hópinn. Þannig mun sænskur myndlistarlistamaður sýna ásamt íslenska hópnum í Tékklandi, svo gæti tékkneskur bæst við, og þannig koll af kolli. Ef af þessu verkefni verður, gæti þetta orðið ein viðamesta kynning á íslenskri sam- tímalist sem farið hefur fram í Evrópu,“ sagði Halldór Björn að lokum. Verk Gabrielu Friðriksdóttur er staðsett í glerskála. Innsetning Ásmunds Ásmundssonar. Ilmur Stefánsdóttir sýnir í skála er nefnist Kafka-paviljongen, og má greina vísun í Ham- skipti Franz Kafka í kakkalökkunum sem skornir eru út í gluggabyrgin. ingamaria@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.