Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.2002, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.2002, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JÚLÍ 2002 9 skeði oft. En holdið sjálft, kynngi þess, fyrirferð og skynsvið, er inntakið og veigurinn í mynd- heimi Freuds, fyrirsætur og -sátar hans yfir- leitt í gleiðum stellingum, eins og kenningar afa hans séu að hluta til innbyggðar í pentskúfnum. Málverkin þættu mörg hver ei heldur stásstofu- væn á nærliggjandi norðurslóðum, en þar eiga menn að vísu nokkuð í land með að skynja innri lífæðar málverksins, eins og menn nefna fyr- irbærið. Meðtaka fleiri þætti innan þess en yf- irborðið og myndefnið, en það er í sjálfu sér mikill lærdómur eins og til að mynda að skilja inntak orða og hugtaka. En svo á málarinn einn- ig til fleiri hliðar og skal ekki alfarið veginn og metin í ljósi hins holdgnáa myndefnis sem er svo stór þáttur í sköpunarferlinu, fínlegir hlutir og tær náttúrusköp leika í höndum hans ef hann beinir sjónum að slíku í umhverfinu og finnur tilefni til að hantéra pentskúfinn. Það sem gerir þessa þrjá ólíku myndverka- smiði að hliðstæðum í listinni er eingöngu nær- tækt myndefnið, að þeir eru að tjá reynsluheim sinn og eru um leið í engu leiðitamir. Hið und- urfagra sköpunarverk í málverkum Bonnards var jafnaðarlega spúsa hans, Giacometti fann einnig myndefni sín í eiginkonunni, ásamt skyldmennum og nánum vinum, hið sama gerði svo Lucian Freud. Allt mitt lífsverk er sjálfs- ævisaga, segir málarinn sem í rúm 60 ár hefur málað vini sína, fjölskyldu, ástkonur, starfs- bræður og í sífellu sjálfan sig með afhjúpandi og hérumbil kvalafullu innsæi. Myndir hans túlka hráan raunveruleikann, þar sem gerandinn finnur ekki þörf hjá sér til að fegra hið minnsta smáatriði, búa þó yfir sterkum skírskotunum til lífsins í mögnuðu og stórbrotnu túlkunarferli. Lucian Freud fæddist í Berlín 1922, sonur Lusie Brasch og Ernst Freud. Móðirin var dótt- ir kornvörukaupmanns, faðirinn yngsti sonur Sigmund Freuds, arkitekt að mennt. Fjölskyld- an bjó í nágrenni Tiergarten (Dýraengi) í mið- borginni en flúði til Englands er Hindenburg vék fyrir Hitler 1933, hlaut enskt ríkisfang 1939. Ásamt bræðrum sínum Stefan og Clem- ens gekk hann í almenna skóla, Dartington Hall, seinna Bryanston. Árið 1938 lá leiðin í list- iðnaðarskóla, seinna myndlistaskóla í Dedham, en hélt til Liverpool 1941 og skráði sig á kaup- skip; slasaðist og afskráður að fjórum mánuðum liðnum. Að spítalavistinni lokinni hélt hann áfram námi í skólanum sem var fluttur til Had- leigh í Suffolk, nú sem óreglulegur nemandi. Frá 1939-1943 birtust myndir eftir hann í Horizon magazine og 1944 fékk hann inni fyrir málverk sín í Lefevre Gallery. Dvaldist sum- arlangt í París 1946, þaðan hélt hann til Grikk- lands og ferðaðist um landið. Kvæntist Kitty Garman, dóttur myndhöggvarans Jacob Ep- steins 1948, en seinni kona hans er Caroline Blackwood sem hann kvæntist 1952. Hefur hlot- ið ýmsar mikilvægar opinberar viðurkenningar meðal annars Order of Merit 1993, var gesta- kennari við Slade 1949-54, af og til eftir það. EUD aðferða í geðlækningum. En msins um þessar mundir. Í til- gstum umdeilda málara. Stúlka í rúmi, Caroline Blackwood, seinni eig- inkona málarans, olía á léreft 1954. Verðlaunaverkið Innimynd í Paddington, olía á léreft 1951. Stúlka með rós. Kitty Garman, fyrri eiginkona málarans. Olía á léreft 1947–48. , olía á léreft, 1994. Málarinn og módelið hans, olía á léreft 1986–87.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.