Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.2002, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.2002, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. ÁGÚST 2002 5 hrollvekjan sér til rúms með Drakúla greifa og ófreskju Frankensteins í fararbroddi. 7. Lifandi kona söguð í tvennt Árið 1937 keypti breskættaða leikkonan Eva Berkson rekstur Grand Guignol af Jack Jouvin. Berkson virtist bera gott skynbragð á starf sitt því hún tók gömlu farsana aftur til sýningar og blandaði þeim saman við nýjar hrollvekjur með þeim árangri að fólk flykktist aftur á sýning- arnar. Þegar nasistar réðust inn í Frakkland 1940 neyddist Berkson hins vegar til að flýja land vegna uppruna síns. Á stríðsárunum voru það síðan helst þýskir hermenn sem heimsóttu sláturleikhúsið sér til „dægrastyttingar“ og sagt er að Hermann Göring, yfirmaður flugflot- ans, hafi haft sérstaka ánægju af blóðugum sýn- ingum þess. Berkson sneri ekki aftur fyrr en bandamenn höfðu sigrað þýsku hersveitirnar árið 1944. En þá hafði almenningur misst allan áhuga á hryll- ingsleikritum. Hann fór frekar á heimilda- myndir sem fjölluðu um pyndingar nasista og læknisfræðilegar tilraunir þeirra. Grand Guig- nol átti ekki upp á pallborðið hjá fólki sem hafði upplifað alvöru hörmungar og dauða allt í kringum sig. Það var haft eftir Berkson skömmu áður en hún dró sig í hlé árið 1951 að helst þyrfti að saga lifandi konu í tvennt á sviði til að hneyksla franskan almenning. 8. Harmræn endalok Næstu árin voru eigendaskipti Grand Guig- nol tíð og menn reyndu hvað þeir gátu til að hressa upp á starfsemina en án árangurs. Char- les Nonon, sem stýrði því á tímabilinu 1951– 1954, bryddaði t.d. upp á þeirri nýjung að sýna söngleiki og satýrur í leikhúsinu en af einhverj- um ástæðum létu undirtektirnar á sér standa. Femínistinn og glæpasagnahöfundurinn Ray- monde Machard tók við af Nonon og fékk til liðs við sig unga og snjalla rithöfunda. Í hennar tíð voru leikritin vel skrifuð en vegna raðar óhappa – ein leikkona brenndist t.d. illa á sýningu og önnur fékk taugaáfall á sviði – fékk leikhúsið óorð á sig. Þegar Fred Pasquale tók við rekstrinum árið 1959 var neðanbeltis skopskyn allsráðandi í sláturleikhúsinu og leikstíll leikaranna ein- kenndist af hroðvirknislegum vinnubrögðum. Grand Guignol, sem hafði verið eitt helsta að- dráttarafl Parísarborgar á blómaskeiði sínu, var orðið skugginn af sjálfu sér. Allar tilraunir til að endurvekja forna frægð þess fóru út um þúfur. Í nóvember árið 1962 var leikhúsinu lok- að og í mars ári seinna var hryllingsleikhúsið í Montmartre jafnað við jörðu. Lauk þar með hálfrar aldar langri sögu eins skrautlegasta og skemmtilegasta menningarviðburðar úr nætur- lífi Parísarbúa. 9. Áhrifavaldur á menningu og listir Að lokum má benda á að undanfarin ár hefur áhugi manna á leikhúsinu vaknað að nýju og aukist á milli ára. Þennan óvænta áhuga má ekki síst rekja aftur til starfa fræðimanna sem hafa sýnt leikhúsinu, sem áður taldist svartur blettur á leikhússögunni, nýjan skilning og aukna virðingu. Mel Gordon hefur t.d. skrifað bókina Grand Guignol: Leikhús ótta og ógnar (1997) sem þessi grein byggir m.a. á og er áhugasömum bent á að kynna sér hana til frek- ari fróðleiks, en hún inniheldur m.a. tvö óstytt guignol-verk í enskri þýðingu og yfirlit helstu leikritanna. Gordon líkt og fleiri er þeirrar skoðunar að þótt Grand Guignol sé ekki lengur við lýði hafi það haft nokkur áhrif á menningu og listir sem séu enn merkjanleg og þá ekki hvað síst í sjálfu leiklistarlífinu. Máli sínu til stuðnings bendir hann á að um víða veröld starfi nú leikhús og leikhópar sem kenna sig við franska hryllings- leikhúsið og haldi nafni þess á lofti. Ein helsta ástæðan fyrir þessum menning- arlegu áhrifum er sú að leikhópar á vegum franska hryllingsleikhússins ferðuðust vítt og breitt um Evrópu og um endilöng Bandaríkin. Gagnrýnendur í Bretlandi, Þýskalandi og Ítalíu voru hins vegar lítt hrifnir af uppátækjum ná- granna sinna og aðsóknin lét á sér standa. Sömu sögu má segja um Bandaríkin. Grand Guignol náði því hvergi jafn miklum vinsældum og í Frakklandi – ef frönskumælandi Montreal er undanskilin þar sem gagnrýnandi Montreal Herald (9. október 1923) hélt ekki vatni yfir hinu stórkostlega sjónarspili. En þótt leikhóp- arnir uppskæru ekki erfiði sem skyldi sáðu þeir fræjum sem síðar urðu að tveimur guignol-leik- húsum á Ítalíu, stofnuðum í kringum 1910, og einu á Bretlandi árið 1920, í kjölfar ferðalag- anna. Að vísu náðu leikhúsin ekki sömu vin- sældum og franska fyrirmyndin og á þriðja ára- tugnum lögðu þau starfsemi sína niður. Grand Guignol hafði líka áhrif út fyrir leik- húsið og þá einna helst á kvikmyndir. André de Lorde skrifaði t.d. handrit að ellefu þöglum guignol-myndum sem gerðar voru á tímabilinu 1911–1914. Þýski leikstjórinn Robert Oswald sagði myndir sínar Ójarðneskar sögur (1919) og Fimm ójarðneskar sögur (1933) bera með sér keim af leikfléttum franska leikhússins, enda innihélt hvor um sig nokkrar stuttar hrollvekj- ur á gamansömum nótum. Kvikmyndin Klefi Dr. Caligari (Robert Wiene, 1919), sem er talið eitt af höfuðverkum þýsks expressjónisma, var hafnað af mörgum fylgismönnum stefnunnar á þeim forsendum að myndin bryti í bága við heimspeki hennar og væri frekar í anda franska hryllingsleikhússins. Í því samhengi mætti líka nefna að Filmulíkkistan (Robert Florey, 1928) var fyrsta viðurkennda guignol-myndin frá Hollywood. Á tímabili misstu kvikmyndagerðarmenn (í Hollywood) áhuga á Grand Guignol, en þá vildi svo til að leikritin rötuðu í bandaríska útvarps- þáttinn „Slökkvið ljósin“ árið 1939. Þátturinn naut talsverðra vinsælda og gat af sér ýmsar eftirlíkingar, s.s. „Stund reimleika“, „Hinn und- arlegi Dr. Strange“, „Hurðin sem hriktir í“ og „Helgistaður hugans“, sem fluttu gamanleikrit og hrollvekjur til skiptis rétt eins og sláturleik- húsið. Það var ekki fyrr en með tilkomu breska Hammer-kvikmyndagerðarfyrirtækisins á 6. áratugnum, sem framleiddi blóðugar hrollvekj- ur, að aftur mátti skynja áhrif Grand Guignol í kvikmyndum. Þá hafa eftirmyndir leikhússins skotið upp kollinum í nokkrum nýlegum mynd- um, síðast Viðtali við vampíruna (Neil Jordan, 1994), sem byggð er á samnefndri bók Anne Rice. Það má því til sanns vegar færa að þótt öskrin í leikhúsinu við Chaptel-götu í Mont- martre hafi fyrir löngu hljóðnað lifir andi Grand Guignol áfram, bæði í máli og myndum. Að lokum vil ég þakka Guðna Elíssyni, lektor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Ís- lands, fyrir góð ráð og gagnlegar ábendingar. Heimildir: Gordon, Mel. The Grand Guignol: Theatre of Fear and Terror. Önnur útgáfa. De Capo Press Inc., New York 1997. Ritstjóri Hartnoll, Phyllis. The Theatre: A Concise History. Thames og Hudson, London og New York 1998. Ritstjóri Jakob Benediktsson. Hugtök og heiti í bók- menntafræði. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, Mál og menning, Reykjavík 1998. Úlfhildur Dagsdóttir. „Það liggur í augum úti: Grand Guignol, leikhús og líkamshryllingur“. Lesbók Morgun- blaðsins, 17. febrúar 2001. „Á stríðsárunum voru það síðan helst þýskir hermenn sem heimsóttu sláturleik- húsið sér til „dægra- styttingar“ og sagt er að Hermann Göring, yfirmaður flugflot- ans, hafi haft sér- staka ánægju af blóð- ugum sýningum þess. Berkson sneri ekki aftur fyrr en banda- menn höfðu sigrað þýsku hersveitirnar árið 1944. En þá hafði almenningur misst allan áhuga á hryllingsleikritum. Hann fór frekar á heimildamyndir sem fjölluðu um pynd- ingar nasista og læknisfræðilegar tilraunir þeirra. “ „Fólk af öllum stéttum, dagfarsprúðir og löghlýðnir borgarar, dreif hvaðanæva að úr heiminum til að borga sig inn á ofbeldisverk Grand Guignol.“ Skopmynd úr frönsku samtímablaði sem sýnir að áhorfendur þurfi að gangast undir læknisskoðun áður en þeir fá að horfa á sýningu í Grand Guignol.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.