Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.2002, Síða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. ÁGÚST 2002
S
UÐUR af sögulegu miðbæjar-
svæði Düsseldorf við svonefnt
Rínarhné, árfarvegsbugðu er
umlykur vestanmegin hið borg-
aralega Oberkassel, er að finna
nesið Lausward. Þar er siglt inn í
Rínarhöfnina. U.þ.b. 185 hektar-
ar vatns og láðs tilheyra mann-
virkinu með sjö U-laga hafnarkerum. Með úr-
skurði 8. júlí 1976 að gefa hluta hafnarinnar
(tolla- og verslunarhöfnina) frjálsa til lengri tíma
fyrir nýtt borgarskipulag kom borgarráðið af
stað mikilvægu þróunarferli fyrir borgina við
fljótið. Á ótrúlega stuttum tíma hefur Düsseldorf
tekið stakkaskiptum. Með nýjum miðbæjar-
kjarna við höfnina, þar sem meðal annarra kynna
heimsfrægir arkitektar afurðir sínar, nýjum
skrúðgarði í bæjarhlutanum Bilk og endursköp-
un göngugötunnar við Rínarbakkann, er Düssel-
dorf orðin eitt af fegurstu borgarstæðum Rín-
arfljóts.
Stórframkvæmdir um aldamótin 1900
Þó svo þegar á miðöldum hafi viðlegugarður
staðið við elsta hluta bæjarins, er staðreyndin sú
að Düsseldorf var í aldanna rás aldrei nein versl-
unarborg í venjulegum skilningi. Þær tvær ör-
yggishafnir sem seinna voru byggðar þjónuðu
eingöngu þeim tilgangi að veita hjálíðandi skip-
um skjól væri fljótið ísi lagt eða flóð mikil. Fyrst á
19. öld hefjast alvarlegar umræður um byggingu
verslunarhafnar. Eftir áratuga þrætur ráða-
manna var farið út í hafnargerð á nesi sunnan við
miðbæinn niður undir bæjarhlutanum Bilk. Þessi
höfn, er hlaut nafnið Nýja-Rínarhöfnin, var opn-
uð 1896 og átti eftir að verða ein þýðingarmesta
umhleðsluhöfn við Rínarfljót. Í framhaldi þessa
mikla hafnarvirkis var ákveðið að fara útí aðrar
stórframkvæmdir sem fólust í því að hleypa fram
með uppfyllingu jarðvegs bakkanum framan við
miðbæjarsvæðið, þannig að úr yrði óslitið at-
hafnasvæði frá Rínarhöfninni nýju norður að
gamla viðlegugarðinum við Hallartorgið. Til varð
múrhlaðinn traustur hafnarbakki sem jafnframt
var varnargarður gegn háflæði. Ofan við hafn-
arvinnusvæðið var hlaðinn annar garður með 25
metra breiðri göngugötu þar sem reist voru
splunkuný skrautleg ungstílshús. Þarna gátu nú
borgarbúar spókað sig innanum strætisljós, trjá-
göng, kaffihús og bjórskála. Þar með var búið að
færa borgarlífið, hvort sem var í starfi eða frí-
tíma, niður að bökkum Rínar. Áður en langt um
leið tóku þó uppgangstímar tækni, hraða og nýj-
unga að gera vart við sig. Þar sem áður einn og
einn hestvagn leið framhjá gangandi vegfarend-
um á Rínarbakkastrætinu, bar stöðugt meira á
sjálfvirkum bifreiðum með öskrandi vélum og
bensínstybbu. Í upphafi sjötta áratugarins var
bílaumferðin orðin það mikil að borgarbúar
veigruðu sér við að ganga niður að fljótsbakk-
anum. Göngugatan var löngu horfin og í stað
hennar komin blikkkeðja er skildi milli borgar og
fljóts, Þjóðvegur 1.
Aftur niður að bökkum Rínar
Rekstur Rínarhafnarinnar varð stöðugt erfið-
ari eftir hörmungar heimsstyrjaldarinnar síðari
og átti hún erfitt um vik í samkeppni við aðrar og
stærri hafnir Rínarfljóts er fljótari voru að sam-
lagast nýjum tímum með nýtísku tæknibúnaði og
breyttum aðstæðum. Annað var aukin gatnagerð
og lagning járnbrautarteina upp úr miðri öldinni.
Í nálægð hafnarinnar var byrjað að þrengja að
starfseminni er þar fór fram. Þetta varð til þess
að byrjað var að leiða hugann að því hvort Düss-
eldorf þyrfti yfirhöfuð á umhleðsluhöfn að halda.
Þannig leiddu þessar vangaveltur til að farið var
að íhuga breytingar á nýtingu hennar. Það var þó
ekki fyrr en í byrjun níunda áratugarins þá er
aukið fjármagn byrjaði að streyma inn í borgina
að framkvæmdir hófust fyrir alvöru er stefndu að
því að koma borginni aftur niður að bökkum Rín-
ar. Þetta átti auk þess að þjóna þeim tilgangi að
styrkja gamla verslunar- og menningarkjarnann
Altstadt, Karlstadt, og jafnframt byggðarhlut-
ann Bilk sem mikilvægan tengilið milli gamla
miðbæjarins og hafnarinnar. Höfuðvandamálið
var hinsvegar að losna við þær sextíuþúsund bif-
reiðar er þeyttust daglega fram og aftur eftir
endilöngum bakkanum. Til að leysa þetta mál
urðu til stór og rúm tveggja kílómetra löng jarð-
göng er lögð voru undir það svæði er fyrirhugað
var að endurbyggja. Hugmyndin fólst í að end-
urheimta það andrúmsloft og að hluta til fyrir-
komulag er var til staðar í byrjun aldarinnar. Við
höfnina var um að ræða endurbyggingu 19 hekt-
ara svæðis á vatni og láði. Auk fjarskiptaturnsins
sem þegar var búið að byggja var gert ráð fyrir
nýbyggingum á miðsvæði þar sem fram færi veit-
inga-, fjölmiðla- og verslunarrekstur.
Á sólríkum júnídegi 1995 var framkvæmdun-
um við Rínarbakkann lokið og göngugatan opnuð
á ný. Hvorutveggja Rínarbakkastrætið og neðri
hafnarbakkinn með skemmti- og smáferðaskip-
um í stað flutningaskipa, voru nú yfirfull af veit-
ingahúsum, tónlist og gangandi vegfarendum. Og
meðfram 600 trjám og 125 bekkjum lykkjaðist
blá öldulöguð gangbraut er vísar veginn niður til
hafnarinnar. Á göngunni suðureftir ber eitt og
annað fyrir augu sem vert er að veita athygli. Þar
sem þéttskipuðum ungstílshúsum frá aldamót-
unum 1900 sleppir, vekja eftirtekt tvær bygg-
ingar frá blómlegum tíma Mannesmann-fyrir-
tækisins. Hin ferkantaða bygging P. Behrens
klædd móbergi stóð 1912 á þröskuldi klassisma
og notastíls. Háhýsið við hliðina byggt 1958 er
verk heimamanns P. Schneiders von Esleben og
telst meðal fyrstu háhýsa Þýskalands. Þar er um
24 hæða stálgrindarhús að ræða sem teljast verð-
ur gott dæmi um fagurfræði fúnkísstílsins. 40
sentimetra undir uppkeyrslu Rínarhnésbrúar-
innar liggur þak Apollo-fjöllistaleikhússins, gljá-
fægður glerkúbus er leggur á herslu á brúna sem
spegilmöndul milli gömlu og nýju byggðarinnar.
Þessi stáltaugarbjálkabrú er ein af þremur, sömu
gerðar er tilheyra svokallaðri Tamms-fjölskyldu
(Friedrich Tamms, bæjarfulltrúi) og tengja sam-
an höfuðkjarna borgarinnar austan- og vestan-
megin fljótsins. Þegar gengið er inn í skrúðgarð-
inn í Bilk tekur á móti göngumanni, á hægri
hönd, hringformað Alþingishúsið og beint af aug-
um borgarhliðið sjálft, „Stadttor“, risuleg gler-
bygging úr smiðju arkitektsins Petzinka Pinks
frá Düsseldorf. Með þessari tilkomumiklu smíð
hefst einstök sýning á nútímabyggingarlist. Á
hinum 234 metra háa Rínarturni er að finna
stærstu dezimalklukku veraldar, þar sem hægt
er að lesa hvað klukkan er af tímamæli sem fest-
ur er á steinsteypta súluna. Hún er hönnuð af
ljósalistamanninum Horst H. Baumann og komst
í heimsmetabók Guinnes. Alþingishúsið er byggt
á því eina hafnarkeri sem ákveðið var að fylla
upp. Kerin við tolla- og verslunarhöfnina (það
svæði sem þegar er búið að skipuleggja) með
tröppum, pollum, handriðum, krönum og braut-
arteinum voru látin halda sér í upphaflegri mynd.
Mikilvægt var talið að glata ekki alveg því and-
rúmslofti sem höfnin hafði yfir sér. Innanum
hánútímaarkitektúr er því að finna eina og eina
byggingu sem látin var standa. Myndlistarmað-
urinn og prófessor við listaakademíuna, Günther
Uecker, hefur t.d. sína vinnustofu í endurbyggðu
pakkhúsi.
Fremdarstundir nútímaarkitektúrs
Hvað skipulag svæðisins varðar er um
splundraða heild að ræða, þar sem mismunandi
alþjóðleg áhrif og þróun síðustu ára mætast á
einum bletti. Það að halda sér ekki eingöngu við
heimamenn var mikilvæg ávörðun þannig að
raunsæ mynd yrði gefin af því sem í rauninni er
að gerast á þessu sviði. Það verður að segjast eins
og er að Bauhaus-stýringin hefur í Þýskalandi og
stórum hluta Evrópu haft hamlandi áhrif á eðli-
lega þróun innan fagsins. Frá því á níunda ára-
tugnum hefur þó borið á hægum breytingum til
batnaðar, sem ber að mestu leyti alþjóðlegri
stefnu stjórnvalda víða um heim að þakka. Hinn
evrópski póstmódernismi með sínum þröngsýnu
konstrúktífu viðhorfum er þar með settur á
metaskálarnar. Sú stefna stjórnvalda að sækja æ
meir til erlendra byggingarmeistara þar sem
önnur viðhorf gilda hefur leitt til þess að mönnum
er orðið ljóst að fúnksjónin er ekki neinn algildur
sannleikur. Þarna hafa ekki síst áhrif menn eins
og Frank O. Gehry frá Kaliforníuskólanum, sem
þora, þvert gegn þurrausinni fræðistefnu dóm-
greindarmanna póstmódernismans, að láta hug-
sýn (intuition) ráða ferðinni. Árangurinn er sá að
meiri átök og leikur er komið í formskipunina.
Hin klassíska línuregla notastílsins, sem með ár-
unum hefur fengið stöðugt andlausari meðferð,
er nú fönsuð fagurfræðilegu innsæi. Í stað klast-
urs við skipun ská- og bogalína sem alloft hefur
verið raunin, ber meira á formrænni þekkingu í
meðhöndluninni. Loft (autt svæði) er líka í aukn-
um mæli notað sem spennusvið milli bygging-
arhluta. Þarna hefur hinn listræni skúlptúr sín
áhrif sem segir ekkert annað en það að arkitektar
eru farnir að leyfa sér aftur að hugsa af og til eins
og listamenn, „fiction“ kemur í stað „function“.
Sérstaka athygli vekja Grand Bateau-bygging
Frakkans Claude Vasconis, „risaskúlptúrar“
Franks O. Gehrys, multiplexkvikmyndahúsið eft-
ir Kölnararkitektinn Till Sattler, Kai-Center pró-
fessors Wolfgangs Dörings og Ateliergebäute –
Hús 1 eftir David Chipperfield, en þar hefur mál-
arinn Jörg Immendorff vinnustofu sína.
En þetta er ekki allt. Þrátt fyrir að fram-
kvæmdirnar séu komnar langt fram úr þeirri
tímasetningu er áætluð var í upphafi, er ennþá
miklu ólokið. Á hafnarkambinum vestanmegin
„Kai-center“, teiknað af prófessor Wolfgang Döring. Átök og leikur. „Risaskúlptúrar“ Franks O. Gehrys með Rínarturninn í bakgrunni.
NÝI ARKITEKTÚRINN VIÐ
HÖFNINA Í DÜSSELDORF
„Á ótrúlega stuttum tíma hefur Düsseldorf tekið stakka-
skiptum. Með nýjum miðbæjarkjarna við höfnina, þar
sem meðal annarra kynna heimsfrægir arkitektar afurð-
ir sínar, nýjum skrúðgarði í bæjarhlutanum Bilk og end-
ursköpun göngugötunnar við Rínarbakkann, er Düssel-
dorf orðin eitt af fegurstu borgarstæðum Rínarfljóts.“
E F T I R J Ó N T H O R G Í S L A S O N