Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Síða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002 Þ EGAR þarna var komið sögu var Jónatan Garðarsson orðinn viss í sinni sök: Þetta var gabb, hrekkur á vegum sjónvarps- stöðvar; á endanum myndu þau stökkva fram og hrópa „Falin myndavél!“ Síðan myndi parið benda honum brosandi á ein- hver tól og tæki og hljóðnema og aðdráttar- linsur sem þau hefðu falið innanklæða eða jafnvel í strætisvagninum sjálfum. Þau segðu honum að brosa. Og sneru sér svo aftur í vagn- inn og fengju farþegana til að taka þátt í fögn- uðinum, stund uppljóstrunarinnar. Þau voru tvö. Annarsvegar ung kona í fjólu- blárri kápu, hinsvegar nokkru eldri maður með handlegginn í gifsi og fatla. Hún hafði komið fyrst uppí vagninn á stoppistöðinni við Sogaveg og farið svo úr honum þremur stöðv- um síðar. Í millitíðinni hafði maðurinn komið uppí og fengið skiptimiða. Svo kom hún aftur í vagninn á þriðja viðkomustað eftir að hún fór úr. Sama konan. Í fyrstu hafði hann ekki gert sér rellu útaf þessu, þótt það vekti vissulega athygli hans. Kannski væri þetta tvíburasystir hinnar kon- unnar. Svona sláandi lík og alveg eins til fara. Ef til vill þurfti konan bara að skjótast rétt sem snöggvast að sinna einhverju erindi og var svo skutlað á fólksbíl í veg fyrir vagninn. En þegar hún kom uppí í þriðja sinn tóku að renna tvær grímur á Jónatan Garðarsson. Ég verð að rjúfa frásögnina til að taka skýrt fram að Jónatan Garðarsson vagnstjóri á ekk- ert skylt við Jónatan Garðarsson sem sér um menningarþátt í sjónvarpinu. Þannig var að sögupersónan kom til mín þar sem ég sat útí garði heima hjá mér og var að reykja (ég geri það gjarnan) og var hún alsköpuð og skýrð þegar hún birtist mér. Þannig vildi til að sami maðurinn átti þrí- vegis leið framhjá á þessum stutta tíma sem það tók mig að reykja eina sígarettu. Í fyrsta skiptið fór hann út götuna og kom síðan strax aftur inn hana; ég ályktaði að hann hefði farið í sjoppuna úti á horni og væri á heimleið. En svo sneri hann aftur og gekk ákveðnum en hægum skrefum út götuna, líkt og hann væri að fara hana í fyrsta sinn. Í þetta sinn sneri hann ekki til baka. Og ég fór að hugsa um eilífa end- urkomu hins sama í hugmyndum þýska heim- spekingsins Friederich Nietzsche, sem gengur einsog kunnugt er útá það að hver og einn ein- asti atburður í tilveru okkar endurtaki sig útí hið óendanlega. Með því er ekki átt við að líf okkar sé endurtekningasamt svona almennt séð heldur að atburðurinn sjálfur endurtaki sig sem slíkur. Uppúr þessum þönkum kom sögupersónan Jónatan Garðarsson til mín fullsköpuð og ljós- lifandi og hét einfaldlega þessu nafni þegar hún kom. Ég reyndi að breyta því, kalla hana eitthvað annað, en það hljómaði ekki sannferð- ugt. Nafn er einhvernveginn svo fast við eig- anda sinn þegar það hefur eitt sinn límst við hann. Mér fannst ég hafa þekkt hann í árarað- ir. Ég gat ekki breytt nafninu hans. Enda sér hver sem virðir Jónatan bílstjóra fyrir sér að hann er ekki líkur nafna sínum í veruleikanum. Hann er lágvaxinn og feitlaginn og með alskegg þar sem svört og grá hár eru í jöfnum hlutföllum. Hann er fjörutíu og átta ára. Kaskeitið gerir hann nokkuð virðulegan og búningurinn fer honum vel. Samt er hann engan veginn stífur í fasi; hann er almennileg- ur og viðfelldinn en gefur þó kannski alla jafna ekki mikið af sjálfum sér gagnvart farþeg- unum. Hann er ekki gefinn fyrir spjall um ekki neitt. Fólk kemur í vagninn, býður kannski góðan dag og hann tekur undir ef svo er, en annars er hann bara að sinna vinnu sinni. Hann kann sjálfur ekki að meta leigubílstjóra sem tala mikið við farþegana. Fólk tekur ekki leigubíla eða strætisvagna til að spjalla við bíl- stjórann. Svo einmana getur enginn verið, að hans mati, í þessari einmanalegu borg, Reykjavík. Í eitt skipti hending og aftur kannski til- viljun en það gat bara ekki verið allt með felldu þegar konan kom uppí vagninn í þriðja sinn. Jónatan hafði ekki veitt manninum eins mikla athygli, aðeins tekið eftir að tvívegis kom maður með hönd í fatla um borð. En kon- an kom í sífellu í vagninn að nýju, á því lék enginn vafi. Þetta gátu ekki verið þríburar. Líkurnar á því voru hverfandi. Hún var ekki fastagestur í strætó og hvernig ætti að standa á því að þríburar færu allt í einu að taka vagn- inn sama daginn? Það væri meiri tilviljun en eðlilegt væri. „Góðan daginn,“ sagði Jónatan. „Góðan dag,“ sagði konan og hann var ekki frá því að hún væri talsvert sposk í málrómn- um. Hún setti pening í kassann og sagði: „Stoppar þú ekki hjá Hótel Loftleiðum?“ „Ójú,“ sagði Jónatan. „Það geri ég.“ Jónatan var fyrir sitt leyti heldur ekki laus við að vera glaðhlakkalegur í röddinni; hann skyldi taka þátt í leiknum, hver sem hann væri. „Gott,“ segir konan og settist í eitt af fremstu sætunum um leið og bíllinn rann af stað. Hún blasti við í speglinum. Og Jónatan fór að hugsa. Það var aðeins ein leið til að gera þetta. Bíll hlaut að bíða eftir henni við hverja stoppistöð þar sem hún fór úr og bruna með hana fram úr vagninum, stytta sér leið eftir hliðargötum eða einfaldlega taka fram úr þegar vagninn hleypti úr farþegum, og láta hana úr nokkrum stöðvum framar á leið vagnsins. Síðan æki hann rakleiðis að næstu stöð þar sem ákveðið væri fyrirfram að konan færi út. En til hvers? Þá flaug honum það í hug. Hann væri í fal- inni myndavél. Þegar þarna var komið sögu var Jónatan Garðarsson orðinn viss í sinni sök. Hann hafði tekið eftir manninum með fatlann líka. Þau léku bæði sama leikinn. Þetta var greinilega þaulskipulagt og ærin fyrirhöfn lögð í hrekk- inn. Þau hlutu að hafa að minnsta kosti tvo bíla á sínum snærum og hafa kortlagt útí ystu æs- ar hvar þau ætluðu að fara úr og koma aftur uppí. Ætlunin væri að ná á mynd viðbrögðum hans þegar hann færi að taka eftir því að engu var líkara en að sama fólkið væri stöðugt að koma í vagninn hans, jafnvel þótt það hefði rétt nýlega yfirgefið hann. Hann gæti falið myndavél í gifsinu, hún í kápunni. Kannski væri SVR jafnvel með í spilinu. Það gæti kom- ið á hann kostulegur svipur og þegar fram liði gæti hann jafnvel farið að efast um að hann væri með réttu ráði. Enn finn ég mig knúinn til að útskýra frekar nafn söguhetjunnar. Í nótt dreymdi mig að Jónatan Garðarsson raunveruleikans kom til mín og var djúpt særður. Hann spurði hvað hann hefði eiginlega gert á minn hlut og ég átti í mestu erfiðleikum með að útskýra að þannig væri ekki í pottinn búið. Mér leið einsog glæpamanni. Nú gæti ég náttúrulega einfaldlega hringt í hann og reynt að útskýra mál mitt áður en ég birti söguna en ég kem mér einhvernveginn allsekki til þess. Ég veit ekki hvernig ég gæti orðað það. Maðurinn sem gekk margsinnis framhjá mér þar sem ég stóð útí garði og var að reykja er hin raunverulega fyrirmynd Jón- atans. Svo einfalt er það. En hugmyndina að nafninu fékk ég aftur á móti að láni frá vini mínum og hæfði það persónunni strax algjör- lega; raunar hét hún þetta þegar hún birtist mér. Að auki var nafnið svo með einhverjum einkennilegum hætti ákaflega hlægilegt í mín- um huga og hafði dvalist með mér lengi og leit- að persónu. Ég er að velta því fyrir mér hvers- vegna mér þyki það svona hlægilegt að bílstjórinn skuli heita Jónatan Garðarsson. Ég býst við að ástæðan sé sú að það táknar ekki neitt, það er algjörlega gjörsneytt allri merk- ingu. Í því er ekki fólgin nokkur einasta mein- ing, þessvegna er það fyndið. Gísli Magnússon rithöfundur viðraði fyrir nokkru við mig þetta nafn á sögupersónu og hafði þá þegar sjálfur hrint hugmyndinni í framkvæmd og var í þann mund að birta í smá- sagnasafni sínu Einsog vindurinn býður (MM, 2001). Mér er ekki kunnugt um nein viðbrögð af hálfu Jónatans. Ég ræddi þetta við Gísla í síma – einnig þá var ég staddur í garðinum mínum að reykja (stundum finnst mér að ég geri ekkert annað). Við vorum sammála um að Jónatan Garðarsson sem stýrir menningar- þættinum Mósaík væri einstaklega geðugur maður og hreinlega ekki hægt að láta sér vera eitthvað í nöp við hann. Einmitt þessvegna væri svo hlægilegt að einhver skyldi skrifa sögu þar sem nafn hans kemur fyrir, líkt og sá hinn sami legði órökvísa fæð á hann, hygðist ofsækja hann. Hvað skyldi Jónatan sjálfur eig- inlega halda? Vissulega væri óþægilegt fyrir hann ef þetta yrði mjög útbreitt, að skíra skáldaðar persónur í höfuðið á honum, ef það yrði að nokkurskonar æði. Vonandi fyrirgefur Gísli mér að lána svona hugmynd hans. Einsog ég segi, ég þekki Jónatan ekki neitt, er ekki á nokkurn hátt illa við hann og hann lítur út fyr- ir að vera víðsýnn og skilningsríkur maður; og gagnvart honum jafnt sem Gísla þá bara gat ég ekki að þessu gert. Persóna mín hét þetta þegar hún kom. Þá hafði Jónatan séð í gegnum brelluna og hún því í rauninni ónýt. Hann varð þó að við- urkenna að þetta var nokkuð smellin hug- mynd. Eiginlega bráðfyndið uppátæki. Fer- lega sniðugt. Tilveran sett í einhverskonar lykkju þar sem sami atburðurinn kemur fyrir aftur og aftur. Endalaus endursýning á við- burðum hversdagslífsins. Og var ekki hversdagurinn nokkurnveginn þannig? Maður flaut sofandi að feigðarósi án þess að taka eftir hlutunum í kringum sig: með því að endurtaka þá í sífellu urðu þeir eft- irtektarverðir, minnisverðir. Einhvernveginn vakinn af svefni hvunndagsdoðans. Allt þetta svipbrigðalausa fólk sem kom í vagninn hans á hverjum degi og fór út aftur án þess að hann veitti því nokkra athygli. Hvað nú ef eitthvað algjörlega útilokað tæki að gerast, einsog það að sama manneskjan kæmi stöðugt inní vagn- inn, sama andlitið, sömu fötin? Eitthvað full- komlega órökvíst og brjálað, eitthvað sem ekki er fræðilegur möguleiki að gerist í hversdags- lífinu en fellur þó að flestu leyti einsog flís við rass að raunsæislegri framvindu hans. Þetta var miklu fyndnara en ef þau hefðu til dæmis látið fólk með undarlega hatta streyma inní vagninn, því með þessu móti var athyglisgáfa hans vakin til meðvitundar og virkt með ísmeygilegri hætti í þágu brandarans. Kannski væru svipbrigði hans þegar skráð á filmu, breytingarnar sem urðu á andliti hans þegar fáránleikinn tók að renna upp fyrir honum. Kannski sæjust hugsanir hans með einhverju móti á andlitinu. Hann hafði þó verið ansi snöggur að komast að þessu. Sumir af hinum bílstjórunum hefðu getað ekið sama fólkinu allan liðlangan daginn án þess að kippa sér nokkuð upp við það. Það var hann viss um. Þau gætu jafnvel útfært þetta fyrir hinar ýmsu að- stæður. Sama manneskjan kæmi kannski í sí- fellu í apótek og bæði alltaf um hóstasaft, kassa í Nóatúni með páfagaukamat, til úr- smiðs og spyrði um gauksklukkur. Hún myndi þvertaka fyrir að hafa komið áður væri hún spurð. Gera sér upp undrunarsvip. Nú kom maðurinn aftur uppí vagninn. „Gætirðu nokkuð …“ Hann ætlaði greinilega að ganga úr skugga um að eftir sér væri tekið og rétti veskið sitt að bílstjóranum með klinkhólfið opið svo að hann gæti tekið rétta upphæð fyrir handleggsbrot- inn manninn. „Alveg sjálfsagt.“ Jónatan reyndi að koma auga á linsu upp- tökuvélar í gifsinu. En hann sá ekkert. Ætti SAMUR OG SAMUR ÚT OG AUSTUR: FALIN MYNDAVÉL SMÁSAGA E F T I R H E R M A N N S T E FÁ N S S O N Þau voru tvö. Annarsvegar ung kona í fjólublárri kápu, hinsvegar nokkru eldri maður með handlegginn í gifsi og fatla. Hún hafði komið fyrst uppí vagninn á stoppistöðinni við Sogaveg og farið svo úr honum þremur stöðvum síðar. Í millitíðinni hafði maðurinn komið uppí og fengið skiptimiða. Svo kom hún aftur í vagninn á þriðja viðkomustað eftir að hún fór úr. Sama konan.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.