Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002 9 House í New York, byggt árið 1952 eftir upp- dráttum teiknistofunnar Skidmore, Owings & Merrill, einn fyrsti skýjaklúfurinn í þeirri borg með léttbyggðum útvegg úr gleri. Í báðum til- vikum er gerður skýr greinarmunur á einkenn- um láréttra og lóðréttra forma. Aðgreiningin er jafnframt táknræn fyrir ólíka þætti í innri starf- semi. Í lágbyggingu hótelsins eru almennings- rými í beinum tengslum við götuna: anddyri, gestamóttaka, veitingasalir, verslanir og skrif- stofur. Léttur útveggur hótelturnsins er með mildum grænum lit með lóðréttum listum úr áli sem hindra það að innri skilveggir hafi sýnileg áhrif á útlit hússins. Litatónn glersins var val- inn með tilliti til himinsins og því hvernig skýja- farið speglast í glerinu. SAS hótelið hefur alla tíð notið þess að vera eina nútímalega háhýsið í hjarta miðborgarinnar og hefur því öðlast sess sem einstakur fulltrúi síns tímabils í sjónarrönd Kaupmannahafnar. Annað sérkenni þess er gegnumfærð hönnun innanhúss, þar sem arki- tektinn hafði traust tök á hverju smáatriði. Hann hannaði m.a. teppi hótelsins, lampa, gluggatjöld, borðbúnað og hnífapör. Hæst ber þó stólana Svaninn og Eggið, sem báðir voru sérstaklega hannaðir fyrir hótelið. Enn í dag má sjá húsgögn Arne Jacobsen víða í byggingunni og eitt herbergi hótelsins, nr. 606, er varðveitt með öllum upphaflegum búnaði. Af síðari byggingum Arne Jacobsen má nefna aðalstöðvar Seðlabanka Danmerkur við Holm- ens Kanal, skammt frá Kristjánsborgarhöll í hjarta Kaupamannahafnar. Bankinn var teikn- aður í kjölfar lokaðrar samkeppni árið 1961 en var ekki fullbyggður fyrr en nokkrum árum eft- ir andlát höfundarins árið 1971. Arkitektarnir Hans Dissing og Otto Weitling sáu um lokafrá- gang byggingarinnar að höfundinum látnum. Utan að sjá er bankinn virki líkastur og stingur óneitanlega í stúf við gömlu húsin umhverfis. Innan dyra opinberast meistaraleg tök höfund- arins á mælikvarða, birtu og rými, einkum í fleigmynduðum forsalnum með tuttugu metra lofthæð, þar sem eina skreytið er fagurlega smíðaður stigi sem hangir neðan úr loftinu við breiðari enda rýmisins. Áhrif hérlendis Ólíkt samlanda sínum, Jörn Utzon, arkitekt óperuhússins í Sydney, tókst Arne Jacobsen að finna sér traustan starfsvettvang í heimalandi sínu og það þó að ýmsar byggingar hans væru umdeildar á sínum tíma. Flest helstu verk hans er að finna í Danmörku, með örfáum undan- tekningum. Ein þeirra er St. Catherinés Coll- ege í útjaðri háskólabæjarins Oxford, byggð á árunum 1960–63. Utan Danmerkur er Arne Jac- obsen kunnari sem húsgagnahönnuður en arki- tekt enda þótt sköpun hans á þessum sviðum sé nátengd. Hér á landi má greina bein og óbein áhrif frá byggingarlist Arne Jacobsen í verkum margra þeirra arkitekta 6. og 7. áratugarins sem kusu að vinna í anda hins alþjóðlega mód- ernisma eftirstríðsáranna. Á þetta bæði við um heildarmótun bygginga og einstök útfærsluat- riði. Því má með nokkrum rétti halda fram að verk hans hafi haft áhrif hér með beinni hætti en raunin var með aðra norræna arkitekta sama tímabils. OBSEN Höfundur er arkitekt og deildarstjóri byggingar- listardeildar Listasafns Reykjavíkur. ista (1931–34). „Dýrlingar eru afar mikilvægur þáttur í ís- lensku menningarlífi og kirkjusögu fram á 17. og 18. öld. Ísland er reyndar alveg sérstakt hvað varðar afstöðu til dýrlinga eftir siðaskipti en ljóst er að trú á dýrlinga lifði áfram í marg- víslegri mynd. Sums staðar hétu íbúar á kirkjur í staðinn fyrir dýrlingana og eru t.d. áheit á Strandarkirkju þekkt dæmi um hvernig áheit að kaþólskum sið héldu áfram eftir siðaskipti. Dýr- lingar birtast í kveðskap og einnig eru dæmi þess á 17. öld að líkneskjum sé haldið við í kirkjum. Spurningin er hvort þetta hafi verið svæðisbundið eða almenn þróun, nærri biskups- setrum, sé tímabundið o.s.frv. Gagnagrunnur- inn myndi gera okkur kleift að fletta upp og rannsaka atriði sem þessi og svara jafnframt fjölmörgum fróðlegum atriðum öðrum,“ segir hún. „Í þessu sambandi eru vísistasíubækur lút- ersku biskupanna, einkum Brynjólfs Sveinsson- ar, mjög mikilvægar,“ bendir Margaret á, „þar sem hann tók alla helstu fyrri máldaga sem hann náði í og skrifaði þá upp. Þar sem sumir þeirra eru ekki til lengur er Brynjólfur ákaflega traustur miðað við aðrar fyrirliggjandi heimild- ir. Það væri raunar verðugt verkefni að fá ein- hvern til að gefa út vísitasíubækur Brynjólfs. Þessar gömlu heimildir gefa mikilvægar upplýsingar t.d. um kirkjueignir, sóknarmörk og grafreiti til forna og þær upplýs- ingar verða einnig að finna í grunn- inum.“ Gagnagrunnur í tengslum við önnur verkefni „Síðustu árin hef ég verið að tala við fræðimenn og aðra á Íslandi til þess að finna út hvaða efni úr mál- dögum þeir hafi áhuga á og hvern- ig hægt verði að tengja minn grunn við aðra, t.d. SARP Þjóð- minjasafnsins og ÍSLEIF Forn- leifastofnunarinnar.“ Grunnurinn mun líka gagnast menningar- tengdri ferðaþjónustu. Ferðamenn og aðrir gætu þá án minnstu vand- kvæða flett upp ítarlegum og skemmtilegum upplýsingum um kirkjur sem þeir heimsækja eða hvaða dýrlingar tengjast staðnum. „Gagnagrunnurinn myndi vera tengdur landfræðilegu upplýsinga- kerfi, efni úr rituðum heimildum verður tengt honum, frásagnir yrðu settar í samhengi við tímaþróun kirkjunnar á smærri og stærri svæðum o.s.frv.“ Í haust er áformaður viðamikill fundur hjá TASC-hópinum og kveðst Margaret ætla að nota það tækifæri til að ræða við meðlimi hans um hvaða leið sé best til að móta gagnagrunninn fyrir Ísland. „Ég hef safnað efni undanfarin misseri, upprunalega til að hugsa þetta sem gagnagrunn um dýr- linga en nú er það ætlað fyrir kirkjur almennt, t.d. mun verða hægt að finna út hversu stór kirkj- an var, hvort bænahús tilheyrði henni og fleira í þeim dúr. Það er einnig merkilegt að TASC getur stuðst við hugbúnað sem heitir TIMELINE og það þýðir að hægt er að tíma- setja efnið og fylgjast með þróun atburða í ís- lensku kirkjunni frá 1200 til nútímans. Þetta gæti orðið mjög spennandi. Gagnagrunnurinn getur einnig tengst margvíslegum öðrum gagnagrunnum sem búið er að koma upp erlend- is og opnað þannig ótal dyr bæði fyrir þessar rannsóknir og aðrar,“ segir Margaret. Að end- ingu kveðst hún gera sér vonir um að ljúka þessu verkefni fyrir þann merka áfanga er hald- ið verður upp á 900 ára afmæli Hólastóls árið 2006. Hún hefur ekki látið sitja við orðin tóm í þess- um efnum og árið 1994 beindi hún sjónum að dýrlingaátrúnaði á Íslandi fyrstu 400 árin frá kristnitöku í bók sinni, The Saints in Iceland: Their Veneration from the Conversion to 1400. Hún vinnur nú að framhaldi þess verks, „The Saints in Iceland: 1400 to the Present“, og hyggst setja gögn úr báðum ritum í áðurnefnd- an gagnagrunn. Lesandi gæti þá flett upp á hvaða dýrlingi sem hann kærir sig um og fengið nákvæmar upplýsingar um staðsetningu, eðli og einkenni dýrkunar hans. D ÝRLINGAR voru kannski mikilvægustu persónur í trúarheimi manna á miðöld- um. Þegar maður hugsar um kristni fyrir siðaskipti hugsar maður fyrst og fremst um dýrlinga,“ segir bandaríski fræðimaðurinn dr. Margaret Cormack, prófessor í trúarbragðafræði við Charleston-háskóla í Suður-Karólínu. Hún hlaut doktorsnafnbót sína frá Yale-háskóla árið 1983 fyrir ritgerðina „The Saints in Iceland: Their Veneration from the Conversion to 1400“, sem var gefin út með sama titli árið 1994. Margaret vinnur nú að framhaldi þessara rannsókna á dýrlingum á Íslandi, eða frá 1400 til nútímans, og fer það starf fram í alþjóðlegri samvinnu. Margaret tilheyrir alþjóðlegum hópi fræðimanna sem kallast TASC eða Transnat- ional Atlas and Database of Saints’ Cults. Hóp- urinn samanstendur af fræðimönnum vítt og breitt um veröldina sem eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á trúarbragðafræði, hagsögu, listasögu, bókmenntasögu, réttarsögu og sið- fræði og safnar hver í sínu lagi gögnum um dýr- linga. Standa vonir til að hægt sé að sameina þennan fróðleik í einn alheims- gagnagrunn. Fyrirlestrar sem haldnir voru á fyrsta fundi þessa hóps fyrir þremur árum verða gefnir út í bókarformi innan skamms og á seinasta fundi hópsins í Búdapest í október sl. var nánari útfærsla þessa gagna- grunns síðan skeggrædd. Ísland tilvalið fyrir þessar rannsóknir Til að sinna þessum rannsókn- um hefur Margaret dvalið á Ís- landi undanfarin tvö ár og notið styrkja frá RANNÍS. „Ég verð að þakka RANNÍS fyrir stuðn- ing til rannsókna minna hérlend- is og öllum þeim aðilum öðrum sem hafa stutt við bakið á mér undanfarin tvö ár, Stofnun Árna Magnússonar, Örnefnastofnun Íslands og fleiri aðilum. Ég geri mér vonir um að geta lagt mitt af mörkum til að byggja alþjóðleg- an gagnagrunn sem auðvelda myndi samanburð á dýrkun heil- agra manna,“ segir Margaret. „Á um það bil fimm árum væri hægt að safna saman einstökum upplýsingum og tengja allar þessar heimildir rafrænu korti. Þá væri unnt að slá inn nafn ákveðins dýrlings, sjá hvar hann hafi verið dýrkaður og bæta við eftir þörfum. Ísland er alveg tilvalið, svo að segja einsdæmi, hvað varðar þessar rannsóknir enda tak- markast svæðið við eina eyju langt úti í Atlantshafi og tiltölu- lega afmarkað tímabil. Það hent- ar því einstaklega vel, bæði til að greina á milli hvaðan áhrifin komu, þ.e. hvaða áhrif bárust að utan og hver áttu sér innlendar rætur, og einnig vegna þess að hér eru til svokallaðir máldagar, ítarlegar skrár um kirkjueignir sem hérlendis eru varðveittar frá 12. öld og fram yfir siða- skipti. Í máldögum er skráð hvaða dýrlingi um- rædd kirkja er helguð, hvaða bækur og líkneski voru í eigu kirkjunnar, gjafir til dýrlingsins og fleira í sama dúr,“ heldur Margaret áfram. „Það er alveg ljóst að þessar heimildir eru óaðgengilegar þorra fræðimanna sem hafa áhuga á þeim, vegna þess að þær eru skrifaðar á íslensku en ekki latínu. En með því að fella það inn í gagnagrunninn verður það aðgengilegt öll- um fræðimönnum og almenningi.“ DÝRLINGAR SÉRSTAKIR Í SÖGU ÍSLANDS Bandaríski miðaldafræðingurinn Margaret Cormack vinnur nú að rannsóknum á dýrlingum á Íslandi frá 1400 til nútímans ásamt alþjóðlegum og þverfaglegum hópi fræðimanna. SINDRI FREYSSON ræddi við Cormack um rannsóknirnar sem miða að því að búa til gagnagrunn þar sem hægt er að fá nákvæmar upplýsingar um staðsetningu, eðli og einkenni dýrkunar á tilteknum dýrlingum. „Dýrlingar eru afar mikilvægur þáttur í íslensku menningarlífi og kirkjusögu fram á 17. og 18. öld,“ segir Margaret Cormack. Margaret Cormack

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.