Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.2002, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.2002, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 16. NÓVEMBER 2002 O FT hef ég fundið til með eldri listamönnum þeg- ar þeir geysast fram á ritvöllinn argir vegna þess að þeim finnst sér á einhvern hátt vera mismunað gagnvart öðrum listamönnum, gjarnan yngri, eða þeir lúti í einhverju lægra haldi í útekt og mati tímans. Það kann að vera réttmætt og eðlilegt að gera það, og oft er það eðlilegt lífsmark hjá yngri mönnum að æsa sig svolítið, en það verður oft einhvern veginn dapurlegt og einmanalegt hjá þeim eldri, og einhvern veginn eins og æsingurinn sé fyrst og fremst vegna þess að þeim finnist að þeir hafi verið skildir eftir og lífið sé að líða hjá. Þá vill blekið sullast stjórnlaust í erg- elsi á pappírinn. Það má þó vera að moldviðrið sem þyrlast upp við atið sé nauðsynlegt, og eitt er víst að það hefur skapað einhverja umræðu að þessu sinni. Don Kikote barðist ekki til einskis fyrir réttlætinu. Við höfum dregið lærdóm af bar- áttu hans og kannski er mörg réttlætisbar- áttan auðskiljanlegri í ljósi hennar. Þegar hann berst við ímyndaðan óvin, fyrir réttlæt- inu, þá gæti það virst undarlegur óvinur. En þar slær hann ryki í augu áhorfenda, sem halda að hann sé eitthvað ruglaður. Ímyndaði óvinurinn er tákn fyrir fasta og staðlaða hugs- un. Sansjó og don Kikote frelsuðu sjálfa sig frá hversdagslífinu, í hugmyndinni um að frelsa fegurðina og réttlætið úr höndum óvin- arins. Ég var á leið til Ítalíu í Flugleiðaflugvél, þegar ég las Reykjavíkurbréf Morgunblaðs- ins, sem fjallaði um stöðu myndlistar á Ís- landi. Greinin var á einhvern hátt viðbrögð við bréfum Kjartans Guðjónssonar, Einars Hákonarsonar og fleiri listamanna, og jafn- framt almenn hugleiðing sem fór vítt yfir myndlistarsviðið á Íslandi, um ástand og skipulag sýningarsala og hvað mætti vera til bóta fyrir okkur gagnvart heiminum. Hvernig mætti gera okkur stærri og virkari í listheim- inum og hvernig mætti fá aukið fjármagn til listarinnar. Eitt meginvandamálið á Íslandi er smæð myndlistarmarkaðarins, ég held að menn séu nokkuð sammála um það. Það er jafnvel erfitt að tala um myndlistarmarkað, vegna þess að það eru ekki mikil viðskipti sem fara fram með myndlist og flestir vinna algjörlega á eig- in forsendum og eiga sér fáa utanaðkomandi stuðningsmenn. Það er þó hægt að sjá það ágæti í þessu að listamaðurinn þarf ekki að sveigja sig að kröfum kaupanda, en um leið er minna um almenna krítík eða samtal, sem er bæði nauðsynlegt og skemmtilegt, og dýptin eykst við skoðanaskipti, báðum megin frá og geta velt af stað þriðja hjólinu. Ef allt væri með eðlilegum hætti, þá ættu að vera hér gömul og gegn gallerí, sem sýndu reglulega eldri listamenn okkar, og ný sem sífellt væru að koma manni á óvart með yngri listamönn- um, og allt í bland þar á milli. Með eldri gall- eríum á ég við stofnanir sem væru búnar að fá virðingarsess í þjóðfélaginu, og sýndu góða viðurkennda list. Þannig er það víðast hvar. Það gerði allt betra og þægilegra fyrir lista- mennina og væri líka þáttur í þróun þeirra og ábyrgð. Þetta fyrirkomulag ýtir líka á ábyrgð umhverfisins, og kannski gleymdust menn ekki eins gjörsamlega eins og hendir nú. Ég man það, frá því að ég var í listráði Listasafns Íslands, hvernig menn áttu sín ár í sölu lista- verka til safnsins, þegar ég leit yfir lista- verkakaupin frá upphafi. Þar var mjög aug- sýnilegt hver var ríkjandi hópur hvers tíma, og hvenær honum lauk. Þetta er ekki alltaf rangt að því marki að þetta eru oftast atkvæðamestu listamennirnir opinberlega, að hluta til vegna þess að í þessu einsýna umhverfi fá þeir flest tækifæri, og ef við gefum okkur að tækifæri sé aukinn mögu- leiki til þróunar. En dugleg gallerí og duglegir listamenn og listáhugamenn hafa mikið að segja, við að koma sínum mönnum að. Sá hluti kom mér reyndar talsvert á óvart. Jafnvel per- sónulegar hringingar eða samræður um að ein- hver ákveðinn listamaður væri blankur og hefði ekki verið keyptur í þetta og þetta lang- an tíma. Báðar þessar forsendur eru nátt- úrlega afleitar og ég held hvergi tíðkaðar nema hér, og eru kannski ekkert betri en þess- ar pólitísku tilskipanir, báðar teknar frá einka- sjónarhorni. Kannski má kalla þetta örlög, og þá að örlög ráði, að fyrri tíma hætti. Þetta gæti breyst ef fleiri og ólíkari gallerí og list- unnendur stæðu þarna að baki, og ólíkari raddir tækjust á, og ekki er við neinn að sak- ast þó að hver haldi sínu fram. Menn hafa líka verið að hafa á orði að pró- fessoraskipanin í Listaháskólanum sé nokkuð einlit og það tal jókst ef eitthvað var þegar Roni Horn var ráðin sem gestaprófessor. Það er náttúrlega erfitt að hafa nokkuð á móti því. Hún hefur unnið mikið með Ísland og búið hér reglulega, og er góður listamaður. Það þarf náttúrlega alltaf að velja þegar þessi möguleiki kemur upp og þó að ég viti að það sé eins og að kasta skítafýlusprengju inn í dyragættina, þá dettur mér í hug að það hefði verið gaman að fá andstæðan pól inn í skólann eins og Odd Nerdrum, eða nýja „tengdason“ Íslands Matthew Barney, sem mér finnst einn af for- vitnilegri myndlistarmönnum nútímans. Svo mætti náttúrlega finna hvaða listamann sem er, án þess að hann tengdist landinu svona með beinum og óbeinum hætti. Listaháskólinn þarf náttúrlega að rusla upp ólíkum hugmynd- um. Vegna smæðarinnar í öllu er eins og sjaldan hafi verið pláss fyrir meira en eitt ráðandi afl hverju sinni. Fyrst þegar ég kom inn á þetta leiksvið í raunveruleikanum, tiltölulega ný- kominn úr sveitinni og vanastur þúfnagang- inum, var Septem-hópurinn ráðandi aflið. Til gamans, þá er mér minnisstætt þegar ég heyrði, forvitinn listnemi, Jón Gunnar Árna- son segja, helvítis Septembermennirnir náðu honum, og átti þá við einhvern útlendinginn sem var hér kominn til að skoða íslenska list með sýningu í útlöndum í huga. Enn heyrist svipað tal og hver hópurinn hefur tekið við af öðrum, og þá eru þeir sem tilheyrðu síðasta ráðandi hópnum verstu óvinirnir, eins og sannast á hverri byltingunni á fætur annarri út í heimi, og svo einn af öðrum. Ég var fyrir nokkrum árum að sýna í Prag, og heyrði að þeir listamenn sem höfðu lifað í vellystingum nokkrum árum áður, í skjóli kommúnista- stjórnarinnar, voru gersamlega úti í kuld- anum, jafnvel þó að þeir væru ágætislista- menn. Sama gerðist í Rússlandi í kringum byltinguna þar. Fyrst átu listamenn bylting- arinnar listamenn keisaratímabilsins, svo voru þeir étnir af eigin mönnum sem voru farnir að festast í sessi og lifa rólegu og öðru vísi lífi, og kærðu sig ekkert um truflandi kringum- stæður. Í eðli sínu er þetta eins alls staðar þó að ekki sé gengið eins hreint og augljóslega til verks hér vestra. Hópar og klíkur myndast auðvitað líka á svokölluðum Vesturlöndum, og verða e.t.v. ríkjandi, samkvæmt einhverjum tískum og tíðaranda, en munurinn er sá að þar er heimurinn mun stærri og flóknari og þá frjálsari og flestir eiga sér forsvarsmenn og vini einhvers staðar annars staðar, sem koma líka efni og upplýsingum að og eiga önnur samskipti eftir öðrum krákustígum, sem eru kannski engu minna forvitnilegir. Þar þróast svo annað tungumál og hugsun, sem ef til vill dúkkar upp að krafti annars staðar í öðrum tíma. Vegna þess að pop-heimurinn virðist mér einhvern veginn auðskiljanlegri í byggingu, er ágætt að horfa á hann, og sjá hvernig hann skiptist. Lög af vinsældalistanum í dag geta verið horfin fyrir fullt og allt viku síðar, og það eru endalusir hópar af þessari og hinni tegund tónlistar, og oft eru bestu listamenn- irnir ekkert sérstaklega viðurkenndir nema innan hóps fagmanna og sérstakra áhuga- manna. Þannig er hægt að sjá, ef flett er í uppboðs- Í RYKMEKKI FAR „Ef allt væri með eðlilegum hætti, þá ættu að vera hér gömul og gegn gallerí, sem sýndu reglulega eldri lista- menn okkar, og ný sem sífellt væru að koma manni á óvart með yngri listamönnum, og allt í bland þar á milli,“ segir í þessari grein þar sem fjallað er um ís- lenska myndlist og myndlistarmarkað en höfundurinn horfir úr fjarlægð þar sem hann er á ferðalagi á Ítalíu. ÚR FERÐADAGBÓK Þó að það komi hingað erlendur sýningarstjóri verður listaverkið ekkert betra fyrir bragðið. Það er eins og talað sé um hann eins og frelsandi engil, frelsi listamanninn úr álagaham, rétt eins og fyrirmenn þjóðarinnar tala um álverin. Það frelsar ekkert álver þessa þjóð. Það er að heyra að komi hingað erlendur sýningarstjóri þá verði allt gott og blessað. Frelsandi engill gat ekki bjargað Sódómu allri, eins og menn vita. En Lot lagðist með dætrum sínum, að vísu í ölæði eins og skipulagið sagði til um, og allt varð gott á ný þannig að kannski er von. E F T I R H E L G A Þ O R G I L S F R I Ð J Ó N S S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.