Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.2002, Blaðsíða 15
Dierick Bouts, Van der Weyden, Lochner,
Cima da Conegliano, Carpaccio, Rubens,
Van Dyck, Frans Hals, Rembrandt, Guardi,
Gainsborough, Romney, Lawrence, Fragon-
ard, Corot, Renoir, Nattier, Fantin- La To-
ur, Boucher, Manet, Degas og Monet. Hér
hafa ratsjáraugu verið að verki, næmi sem
verður einungis höndlað fyrir áhuga og ást á
viðfangsefninu, mannlífinu um leið. Tryggvi
Ólafsson var einkum uppnuminn af hlut Ma-
nets, ég hins vegar gat seint slitið mig frá
myndum Corots fyrir hið kristalstæra yf-
irbragð, hreina og yfirnáttúrulega birtu-
flæði.
Safnið var tekið í gegn á síðasta ári, svo
allt var eins og nýtt þar inni, en eitt gleymd-
ist á leiðinni, sem við vorum ekki par
ánægðir með, sem var að betrumbæta upp-
lýsingastreymið í formi bóka og almennra
rita. Gátum ekki skilið það í ljósi ríkidæm-
isins allt um kring og létum í ljós furðu okk-
ar, en fengum enga úrlausn fyrr en við höfð-
um lokið við að versla að safnskoðuninni
lokinni en þá fylgdi óvænt lítill pési með
upplýsingum um stofnandann og stofnunina
með í kaupbæti! Að vísu gat maður gengið
að skrá/katalógu á ensku en hún var gömul
og litgreiningin afleit, nýrri útgáfa svo ein-
ungis á portúgölsku, létum okkur því nægja
póstkort, en af þeim var mikill fjöldi en
skipulagið þar klént og seinlegt. Með of-
anskráðu var aðalatriðið að kynna safnið, en
mig fýsir með sanni að skrifa fyllri grein um
það í framtíðinni en þá þyrfti ég öllu betri
heimildir milli handanna. En það yrði svo
sannarlega mitt fyrsta verk að sækja það
heim eigi ég leið til Lissabon aftur og á því
hef ég fullan hug.
Við héldum svo gegnum garðinn að nú-
tímalistasafninu ölvaðir af þeim háleitu hlut-
um sem við höfðum hlaðið heilabúið með, en
þar biðu okkar vonbrigði á vonbrigði ofan.
Ekki endilega vegna einstakra verka heldur
vorum við að yfirgefa mjög sérstætt safn
þar sem margt kom á óvart og hreyfði
sterklega við heilasellunum, en komum svo í
það sem nefna má eftirgerð annarra nú-
listasafna um alla Evrópu. Mikill misskiln-
ingur að halda að menn leggi á sig þúsunda
kílómetra ferðalög til að sjá það sama og
maður hefur fyrir framan nefið á sér. Ekki
tók betra við er í sölubúðina kom, þar engar
upplýsingar að fá og ekki einu sinni póstkort
gefin út af safninu. Áttum eftir að rekast
enn frekar á þessar miklu andstæður næstu
daga og ekki aðeins á söfnum heldur í þjóð-
lífsbyggingunni allri. Bilið á milli fortíðar og
nútíðar einfaldlega ekki brúað sem skyldi og
að því mun ég víkja nánar í næsta og síðasta
pistli mínum frá þessum slóðum …
Hið óviðjafnanlega meistaraverk Rubens (1577–1640) af spúsu sinni Helenu Fournment.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. DESEMBER 2002 15
MYNDLIST
Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Grófar-
húsinu: Reykjavík í hers höndum. Til 2.2.
Galleri@hlemmur.is: Viktoría Guðnadótt-
ir. Til 5.1.
Gallerí Skuggi: Anna Þóra Karlsdóttir og
Guðrún Gunnarsdóttir. Til 22. des.
Gallerý nr. 5, Skólavörðustíg 5: Samsýn-
ing Álfheiðar Ólafsdóttir og Helgu Sigurð-
ardóttur. Til 31. des.
Gerðuberg: Teikningar úr nýjum barna-
bókum. Til 6.1.
Hafnarborg: Samspil og Sambönd Íslands.
Til 22. des.
Hallgrímskirkja: Aðalheiður Valgeirsdótt-
ir. Til 1.3.
Hús málaranna, Eiðistorgi: Einar Há-
konarson og Óli G. Jóhannsson. Til 23. des.
Listasafn Borgarness: Guðmundur Sig-
urðsson. Til 23. des.
Listasafn Einars Jónssonar: Safnið er lok-
að til janúarloka.
Listasafn Íslands: Íslensk myndlist 1980–
2000. Til 15.1.
Listasafn Rvíkur – Ásmundarsafn: Listin
meðal fólksins. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Borg
– innsetning Ingu Svölu Þórsdóttur. Nú-
tímalist frá arabaheiminum. Til 19.1.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir:
Martin Bigum. Til 15.1. Miðrými: Odd Ner-
drum. Til 31.1.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Andlits-
myndir og afstraksjónir. Opið e. samkomu-
lagi í desember og janúar. Til 30.3.
Mokkakaffi: Hildur Margrétardóttir. Til
15.1.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B : Giovanni
Garcia-Fenech. JBK Ransu. Til 12.1.
ReykjavíkurAkademían, Hringbraut 121:
Ingólfur Júlíusson, ljósmyndir. Til 31.1.
Sal #39, Hverfisgötu 39: Kristján Jónsson.
Til 23. des.
Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á verkum
Halldórs Laxness. Til 31. des.
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu.:
Handritin. Landafundir. Skáld mánaðar-
ins: Einar Sigurðsson í Eydölum. Íslands-
mynd í mótun – áfangar í kortagerð. Til 8.8.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Borgarleikhúsið: Næturtónleikar á sól-
stöðum – Slagverkshópurinn Benda. Kl.
20.
Dómkirkjan: Mozart við kertaljós. Camer-
arctica. Kl. 21.
Ýmir: Lúðrasveitin Svanur. Kl. 16.
Fríkirkjan í Reykjavík: Margrét Sigurð-
ardóttir, Edda Hrund Harðardóttir, Haf-
steinn Þórólfsson og Þorbjörn Sigurðsson.
Anna Rún Atladóttir leikur á píanó. Kl. 17.
Langholtskirkja: Jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju. Gradualekórinn, Ólafur Kjart-
an Sigurðarson og Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir. Kl. 23.
Sunnudagur
Dómkirkjan: Dómkórinn í Reykjavík og
Barnakór Dómkirkjunnar. Kl. 17.
Hallgrímskirkja: Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Jólaóratóría eftir John Speight.
Bein útsending til fjöl-
margra Evrópulanda.
Flytjendur: Elín Ósk
Óskarsdóttir sópran,
Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir alt, Garðar Thór
Cortes tenór, Benedikt
Ingólfsson bassi,
Schola cantorum, Mót-
ettukór Hallgríms-
kirkju og Kammersveit
Hallgrímskirkju.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Kl. 17.
Langholtskirkja: Jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju. Sjá laugard. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Með fullri reisn, fim., fös.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir
kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgun-
blaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103
Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang:
menning@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Elín Ósk Ósk-
arsdóttir
NÚ fagna himins englar er yfirskrift tónleika
sem haldnir verða í Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, laugardag, kl. 17. Þar koma fram söngv-
ararnir Margrét Sigurðardóttir, Edda Hrund
Harðardóttir, Hafsteinn Þórólfsson og Þor-
björn Sigurðsson, en hann leikur einnig á gít-
ar. Undirleikari á píanó er Anna Rún Atla-
dóttir.
Tónlistin er tileinkuð jólunum og aðvent-
unni, ýmist einsöngs- eða samsöngslög og
kemur úr hinum áttum. Á efnisskránni eru
m.a. Ave María e. Gounod og Corpus Christi
Carol e. Britten, aríur úr Messíasi e. Handel
ásamt íslenskum þjóðlögum.
Margrét Sigurðardóttir er um þessar
mundir við framhaldsnám í Royal Academy
of Music. Hún söng nýlega í Messíasi eftir
Handel í London og hefur komið víða fram
bæði hér á landi og erlendis. Edda Hrund
Harðardóttir er einnig í framhaldsnámi í Ro-
yal Academy of Music og hélt nýlega ein-
söngstónleika í Salnum. Hafsteinn Þórólfsson
er nú á lokaári í Söngskólanum í Reykjavík
og syngur með kammerkórnum Schola can-
torum. Það gerir Þorbjörn Sigurðsson einnig
og syngur auk þess í Mótettukór Hallgríms-
kirkju. Hann hefur einnig komið fram sem pí-
anó- og gítarleikari.
Anna Rún Atladóttir starfar sem píanóleik-
ari við Söngskólann í Reykjavík og sem fiðlu-
kennari við Tónmenntaskólann í Reykjavík
og kemur reglulega að tónleikahaldi.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Edda, Þorbjörn, Hafsteinn, Anna Rún og Margrét.
Ungir söngvarar
í Fríkirkjunni