Pressan - 16.03.1989, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 16. mars 1989
PRESSU
Hefurðu veitt því athygli að götur bæjarins hafa orðifrvitni að samankomnaáökklumfólks. Reiknaðumeðaðsjáennfleirisokka
skyndilegum litagusum í ökklahæð upp á síðkastið. Tískuheimur- sem ættu frekar heima í teiknimyndum á næstu mánuðum. Enda
inn hefur nefnilega fundið nýjungagirni sinni nýjan véttvang þar kominn tími til að hvíla hvítu íþróttasokkana, ekki satt?
sem sokkar eru annars vegar. Núna má finna alla liti regnbogans
Upptökur á lokastigi hjá Sykurmolunum. Einar Örn aö æfa sig fyrir fyrirhugaða heimildamynd um rússneskar
limósínur.
HIIMAR í SÝRLANDI
Svo virðist sem stærsta spurningin í herbúðum Sykurmolanna þessa
dagana snúist um heiti nýju plötunnar sem þeir leggja síðustu hönd á í
hljóðveri Stúdíó Sýrlands á allra næstu dögum. Að sögn talsmanna þeirra
eru ýmis nöfn í sigtinu, s.s. „Time to Suffer“ eða „Humar eða dauöi". Við
verðum samt að bíða róleg eftir endanlegri nafngift, því platan verður ekki
gefin út fyrr en í september. Málverndarsinnar geta svo fengið séríslenskt
eintak af plötunni, því ásamt enskri útgáfu verður platan gefin út hér
heima með íslenskum textum.
Næst á dagskrá, eftir að vinnslu plötunnar lýkur, er heimsókn til Banda-
ríkjanna, þar sem Sykurmolarnir munu slást í sameiginlega tónleikaför
með bresku hljómsveitunum New Order og P.I.L. Því næst er ráðgert aö
leggja annað stórveldi heimsins að velli með nokkurra daga ferð til Sovét-
ríkjanna, þar sem komið verður við í helstu stórborgum landsins. Kannski
er kominn tími til að taka stefnuyfirlýsingu Smekkleysu sm. um „heims-
yfirráð eða dauða“ bókstaflega?!
velkomin i heiminn
1. Andri heitir þessi kyrrláti pilt-
ur sem fæddist 5. mars siðastlið-
inn og vó þá 16 merkur og var 53
sm langur. Foreldrar hans, þau
María Gunnarsdóttir og Gérard
Lemarquis, eiga tvo stráka fyrir.
2. Þessi myndarlegi snáði kom i
heiminn 6. mars síðastliðinn og
var þá 51 sm langur og vó 15,5
merkur. Lára Sigurðardóttir og
Rúnar Ólafsson eru stoltir foreldr-
ar piltsins, en þetta er annað barn
þeirra.
Þessi smávaxni bílaáhugamaður vildi eignast bjölluna sem hring-
snerist i höfði styttunnar, enda örugglega með nytsamlegra verk-
efni fyrir bílinn í huga.
Áhöld voru meðal gesta um það úr
hvaða landsfjórðungi þetta úrvals-
hey væri komið.
HEYBAGGAR OG FRANSKBRAUÐ
A KJARVALSSTÖÐUM
Síöastliðinn laugardag
var opnuö á
Kjarvalsstööum yfirlits-
sýning meö verkum þeirra
listamanna sem kenndu
sig viö íslensku listhreyf-
inguna SÚM á árunum
1965—72. Þegar verkin
litu fyrst dagsins Ijós var
ekki laust viö aö velsæm-
iskennd íslenskra listunn-
endaværi illilega misboö-
ið. Viöbrögð opnunar-
gesta núna voru ekki al-
veg eins sterk, en samt
máttu sum verkin láta sér
lynda tortryggnislegar
augngotur viöstaddra.
Ljósmyndari PRESSUNN-
AR, Einar Ólason, festi
nokkur verk á filmu.
Andrea Gylfadóttir söngkona virðir fyrir sér nýju linuna í heimilistækjum
Kjarvalsstaða.
:v