Pressan - 16.03.1989, Page 7

Pressan - 16.03.1989, Page 7
Fimmtudagur 16. mars 1989- PRESSU L ■ ■ inn sívinsæli sjónvarpsmað- ur með meiru, Hermann Gunnars- son, stingur símsvara í samband, þegar hann er ekki heima. Það er hins vegar dálítið erfitt að koma skilaboðum á þetta þarfaþing, því segulbandsspólan er gjarnan yfir- full og tekur ekki við fleiri orðsend- ingurn. Ástæðan er sú, að grunn- skólabörn hringja unnvörpum í Hemma eftir að hann sá um þátta- röð til að kenna krökkum að spjara sig, þegar þeir eru einir heima. Þurfa ungmenni þessa lands að spjalla margt og mikið við hann um málið... v ið gjaldþrotaskipti Avöxt- unar sf. á að ganga að öllum eign- um þeirra Péturs Björnssonar og Ármanns Reynissonar. Mikið er spáð og spekúlerað um hvort skiptaréttur hafi komist yfir allar eigur þeirra félaga. Við höfum nú fengið staðfest að Pétur Björnsson er enn skráður eigandi lítillar versl- unar sem nefnist Byssubúðin og var til skamms tíma rekin í tengslum við Sportlíf á Eiðistorgi. Byssubúð- in flutti inn skotfæri á síðasta ári fyrir nokkrar milljónir en hefur nú flutt aðsetur sitt upp í Mosfellsbæ. Þá er Pétur einnig sagður standa á bak við fyrirtæki sem nefnist Myrkvi hf. sem stofnað var upp úr öðru fyrirtæki í ágúst á síðasta ári. Þar mun Pétur vera í kompaníi við Björn Birgisson, en þeir hafa haft samvinnu um nokkra hríð... A ins og kunnugt er stendur nú yfir svokölluð barna- og unglinga- vika og liður í henni var m.a. fundur í Tónabæ síðastliðið mánudags- kvöld. Þar mættu fulltrúar ungl- inga í nokkrum félagsmiðstöðvum og kvörtuðu sáran undan háum fargjöldum í strætó. Töldu þeir að það væri brýnasta hagsmunamál unglinga að fá gjaldskránni breytt, því margir þeirra notuðu strætis- vagna mjög mikið vegna íþróttaiðk- ana og tómstundastarfs. Og safnast þegar saman kemur, þegar greiða verður fimmtíu krónur fyrir hverja ferð. Ætla krakkarnir að útbúa áskorun til borgaryfirvalda um málið... If' ■^Lominn er upp rígur á milli framkvæmdastjóra Fiskmarkaðar- ins í Hafnarfirði og verkstjóra stað- arins vegna sölu svartfugls á mark- aðnum. Deilan snýst um hvort salan samrýmist heilbrigðiskröfum um fiskmarkaði. Forstjórinn, Einar Sveinsson, vill meina að þar sem engin vinnsla fer fram í húsinu sé ekkert athugavert við þetta, en verkstjórinn bendir á að svartfugl- inn sé ekki fiskur heldur fugl með heitu blóði og því stangist það á við heilbrigðisreglur. Jafnframt sé matsleyfi fiskmarkaðarins í veru- legri hættu ef haldið verður áfram að selja þar svartfugl i... 7 ' Vi SNORRABRAUT 29 SÍMI 62-25-55 FENGUM AUKASENDINGU AF HINUM FRÁBÆRU BONDSTEC ÖRBYLGJUOFNUM OG GETUM ÞVÍ BOÐIÐ TAKMARKAÐ MAGN Á SÉRSTÖKU KJARAVERÐI. BT-101 EINN ALLRA FULLKOMNASTI OG HÆFASTI ÖRBYLGJUOFNINN SEM VÖL ER Á í DAG. 10 ORKUSTIG, ELDUNARPRÓGRÖM, 28 LÍTRA INNANMÁL, PRÓGRAMMAMINNI, SJÁLFVIRK AFFRYSTING, HITASTÝRÐ ELDUN, BARNALÆSING, MINNI FRAM í TÍMANN, HITAMÆLIR, SJÁLFVIRK UPPHITUN SEM HELDUR MATNUM Á RÉTTU HITASTIGI EINS LENGI OG MENNVIUA. NÁKVÆMUR ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA- BÆKLINGUR FYLGIR. RÉTT VERÐ 38.650,- KJARABÓT OPUS AÐEINS 27.900,- BT-112 MJÖG FUL'LKOMINN OG ÖFLUGUR TÖLVUSTÝRÐUR ÖRBYLGJUOFN. 650 VATTA ELDUNARORKA, 32 LÍTRA INNANMÁL, 10 ORKUSTILLINGAR OG ELDUNARPRÓGRÖM. ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA- BÆKLINGUR FYLGIR. RÉTT VERÐ 31.800,- KJARABÓT OPUS AÐEINS 22.500,- BT-612 HINN SÍVINSÆLI FJÖLSKYLDUOFN. 500 VATTA ELDUNARORKA 18 LÍTRA INNANMÁL, AFFRYSTING, SNÚNINGSDISKUR OG AÐ SJÁLFSÖGÐU FYLGIR ÍSLENSKUR LEIÐBEININGA- BÆKLINGUR RÉTT VERÐ 16.980,- KJARABÓT OPUS AÐEINS 13.600,-

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.