Pressan - 16.03.1989, Side 8

Pressan - 16.03.1989, Side 8
8 Fimmtudagur 16. mars 1989 VIKUBLAP Á FIMMTUPÓGUM Útgefandi Blað hf. Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson / Ritstjórar Jónína Leósdóttir / Ómar Friðriksson Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjóm <?g skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingaslmi: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 68 18 66. Setning og umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu- blaöið: 900 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 125 kr. eintakið. Ekkert feimnismál Mjög ánægjuleg og jákvæð þróun hefur orðið í íslensku samfé- lagi á undanförnum árum Við erum sífellt að verða opnari og ófeimnari við að ræða hluti, sem áður þótti óviðeigandi eða beinlín- is dónalegt að minnast á. Það, sem þagað var yfir eins og manns- morði fyrir svo sem áratug, er nú rætt á fjöldafundum og í fjölmiðl- um eins og ekkert sé eðlilegra. Sú tíð er liðin að fólki finnist skammarlegt að hafa skilið. Það er raunar eins gott, því annars gengi hálf þjóðin núorðið með haus- poka, og auðvitað er tíðni skilnaða ein höfuðorsök þess að þeir þykja ekki Iengur mannorðsblettur. Viðhorf manna til þeirra, sem eiga við áfengisvanda að stríða, hefur líka tekið miklum breyting- um. Starf AA-samtakanna og SÁÁ hefur borið þann árangur að alkóhólistar eru ekki Iengur álitnir óviðbjargandi rónar, heldur sjúklingar sem hægt er að hjálpa. Enda eru frammámenn í þjóðfé- laginu fyrir löngu farnir að tala opinskátt um eigin áfengisvanda- mál í viðtölum við fjölmiðla, án þess að missa við það æruna. Sifjaspell voru fram á allra síðustu ár í flokki þess, sem alls ekki var talað um. Þá sjaldan einhver gerðist svo djarfur að brydda á því umræðuefni bönduðu menn frá sér og fullyrtu að slíkt og þvílíkt gerðist sem betur fer bara í útlöndum. Þar með var það útrætt mál. En þetta hefur einnig breyst upp á síðkastið. Fjallað hefur verið um sifjaspell í flestum fjölmiðlum og þau hafa verið til umræðu víða í þjóðfélaginu. Það hefur síðan orðið til þess að auka skilning manna á vandanum og auðvelda fórnarlömbunum að fá þá aðstoð, sem þau þurfa nauðsynlega á að halda. Það er heldur ekki langt síðan vel uppaldir íslendingar ræddu ekki kynlíf á opinberum vettvangi. En nú er öldin önnur. Getnaðar- varnir eru hættar að vera feimnismál og við höfum eignast okkar fyrsta kynlífsfræðing, Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur, sem á örugg- lega stærstan þátt í að fólk er farið að ræða flisslaust um kynlíf. Þegar Jóna Ingibjörg hélt fyrstu námskeiðin hér á landi fyrir tæp- um tveimur árum ætlaði allt um koll að keyra. Brandarar um full- nægingarfræðslu glumdu hvar sem maður kom. Síðustu mánuði hefur umræðan hins vegar færst af barnaskólastiginu og er komin á annað og hærra plan. Kynlíf er nú tekið til umfjöllunar eins og sá eðlilegi og sjálfsagði þáttur mannlegs lífs, sem það auðvitað er. Frá og með þessu tölublaði PRESSUNNAR verður Jóna Ingi- björg Jónsdóttir með fastan dálk, þar sem hún fjallar um ýmsar hliðar kynlífs og svarar bréfum frá lesendum. Vonandi hafa sem flestir bæði gagn og gaman af framlagi þessa nýja dálkahöfundar blaðsins. Athugasemd við „Ósvífna blaðamennsku“ Blaðamaður stendur við um- fjöllun sína um vafasama við- skiptahætti fasteignasölunnar Húsafells í síðasta tölublaði Pressunnar. Húsafell gætir ekki hagsmuna nema annars aðila í þeim viðskiptum sem fjallað var um, þ.e. sölunni á veitingastaðn- um American Style. Það sem verra er: Húsafell dregur taum al- ræmds vanskilamanns og hjálpar honum að sölsa undir sig annarra manna eigur á fölskum forsend- um. Bergur fékk tækifæri til að svara þeim atriðum í untfjöllun- inni sem snertu Húsafell. Hann kaus að segja sem fæst. í blaðamennsku er almenna reglan sú að viðmælendur fái að heyra hvað eftir þeim er haft, sé þess óskað. í umfjöllun Pressunn- ar var hvert orð heimildarmanna borið undir þá áður en blaðið fór í prentun. Lögfræðingur Hafþórs Kristjánssonar fékk ekki að sjá neitt nema það sem eftir Hafþóri var haft; Bergur fékk að heyra það sem eftir honum sjálfum var haft. Blaðamaður samþykkti aldrei að væntanleg umfjöllun um sölu American Style yrði gerð að samningsatriði deiluaðilja. í við- tali, sem var tekið við lögfræðing Hafþórs, neitar hann ásökunum Bergs. Það undrar blaðamann ekki að Bergi þyki umræða um heiðarlega framkomu „fjálgleg". Honum hlýtur heiðarleiki að vera fram- andi hugtak. ps Eftir að greinin um við- skiptahætti Húsafells birtist hafa tveir aðilar haft samband við blaðamann og sagt áþekka sögu af viðskiptum sínum við fast- eignasöluna Húsafell. Eigendur Húsafells tóku upp á sína arma vanskilamenn og hjálpuðu þeim að komast yfir eigur fólks. Van- skilamenn og viðskiptasóðar keyptu og seljendur borguðu Húsafelli umboðslaun. Það er áhugavert að velta fyrir sér hvort þessi viðskipti séu talandi dæmi um siðferðið í íslensku þjóðfélagi anno 1989. ■ Páll Vilhjálmsson. ,Leyfið mér nú að byggja í friði, strákar. pressupóstur „Osvífin fasteignasala“ — Osvífin blaðamennska Undirritaður, sem ábyrgðarmað- ur Fasteignasölunnar Húsafells, vill koma að eftirfarandi athugasemd- um við grein Páls Vilhjálmssonar blaðamanns í síðustu Pressu. Greinin fjallaði á mjög svo hlut- drægan hátt um viðsicipti Hafþórs Kristjánssonar í gegnum Húsafell sf. Skal nú reynt að upplýsa lesend- ur Pressunnar um þætti þessara „ósvífnu" viðskipta, sem Páll blaðamaður lét farast fyrir að afla sér upplýsinga um, eða geta um í grein sinni. 1. Um sölu American Style: Viðurkennt er að mistök áttu sér stað í gerð veðskuldabréfa, þannig að skuldbindingar voru verðtryggð- ar, en til skemmri tíma en tveggja ára. Slíkt er óheimilt. Það er á hinn bóginn röng fullyrðing að skulda- bréfin séu „svikin“, þótt þau hafi ekki fengist þinglýst vegna verð- tryggingarákvæðisins. Bréfin eru gild skuldaviðurkenning af hálfu kaupanda. Seljandi hefur þessi bréf undir höndum og getur sótt greiðslu til skuldararis eða ábyrgð- armanna skv. nafnverði þeirra. Á bréfin rituðu þrír sjálfskuldar- ábyrgðarmenn til frekari tryggingar greiðslum. Þessa sjálfskuldar- ábyrgðarmenn „athugaði" Hafþór, seljandi, og lagði endanlega blessun sína á. Síðan kom í ljós að kaupandi hafði veðsett lausafé, sem hann átti aðeins að hluta. Allir, sem til þekkja, geta staðfest að ómögulegt er að ganga úr skugga um eignar- hald á lausafjármunum eða veð- setningar á þeim, nema með ítar- legri bókhaldskönnun hjá eiganda. Slíkt er ekki tíðkað við sölu at- vinnufyrirtækja. Veðsetning og sala lausafjármuna hljóta því að fara fram á ábyrgð eiganda. Við- semjandi Hafþórs, Daníel B. Þor- geirsson, ber því beina ábyrgð á saknæmri veðsetningu lausafjár- ins, sem átti að tryggja greiðslu skuldabréfanna enn frekar. Þeir Hafþór og Daníel komu sér saman um, án milligöngu Húsafells og án þess að gera um það skrifleg- an samning, að rifta kaupum Daní- els á „American Style“. Hafþór hefir fengið eign sína til baka. Hann heldur títtnefndum skuldabréfum, samtals að fjárhæð kr. 7.500.000. Bréf þessi getur Haf- þór innheimt og fengið tjón sitt bætt af andvirði þeirra frá viðsemj- anda sínum, Daníel B. Þorgeirs- syni. Fyrst eftir að sannreynt hefir verið að skuldabréfin fáist ekki greidd kemur hugsanleg skaðabóta- ábyrgð Húsafells til greina. Hafþór hef ir enn enga tilraun gert til að inn- heimta skuldabréfin. 2. Hafþór hefir engin sölulaun greitt til Húsafells, sbr. Ijósrit af óinnheimtum víxli, sem fylgir greinarkorni þessu: Ég vil, til að Ijúka þeim þætti, sem snýr að milligöngu Húsafells í viðskiptum Hafþórs og Daníels, taka það fram að ég, sem ábyrgðar- maður fasteignasölunnar, harma þau mistök, sem gerð voru af starfs- manni fyrirtækisins. Ég tel hinsveg- ar, að þrátt fyrir þessi mistök hafi seljanda, Hafþóri, verið og sé enn auðvelt að komast hjá fjártjóni. Hafþór hefur einfaldlega ekki gætt réttar síns sem skyldi. Strax og svik viðsemjanda hans, Daníels, komu í Ijós gat Hafþór rift kaupunum. Svokallað „rekstrartjón“ Hafþórs stafar af aðgerðarleysi hans sjálfs. Lögmaður Húsafells telur að Húsa- fell beri enga skaðabótaskyldu, eft- ir ítarlega könnun á málavöxtum. Tilburðir Hafþórs nú til að krefja Húsafell um „tjón“ sitt eru vægast sagt síðbúnir og jafnvel tortryggi- Iegir, eins og fram kemur hér á eftir: Ósvífin blaóamcnnska Mánudaginn 6. marz síðastliðinn hringdi lögfræðingur Hafþórs, Sig- urður Gunnarsson, til mín. Gaf Sig- urður mér (Húsafelli) kost á að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 2,5—3 milljónir til Hafþórs. í stað- inn kvaðst Sigurður „hafa tök á að draga greinina í Pressunni til baka“. Það er vægt til orða tekið að ég hafi orðið hissa á bíræfni lögfræðings- ins unga (útskrifaður árið 1988). Hafði maðurinn séð of margar bíó- myndir með „snjöllum" lögfræð- ingum? Ég átti tal við Pál, blaða- mann Pressunnar, í framhaldi af samtalinu við Sigurð lögfræðing. Páll kannaðist að sjálfsögðu ekki við að Sigurður hefði neitt með birtingu greinarinnar að gera. Páll talaði líka fjálglega um frjálsa fjöl- miðlun, ítarlega rannsókn sína á öllum málavöxtum og var í einu og öllu hinn kátasti yfir fyrirsjáanlegu „scoopi". Hann bauð mér að „kommentera" á greinina, sem ég reyndar fengi ekki að sjá. Ég tjáði Páli að ég gæti að sjálfsögðu ekki „kömmenterað“ á greinina óséða. Slitum við svo tali ókkar. Miðvikudagsmorguninn 8. marz hringdi Þorlákur Einarsson, starfs- maður Húsafells, til Sigurðar lög- fræðings. Aftur ítrekaði lögfræð- ingurinn tilboð sitt. Húsafell greiddi 3 milljónir og hann skyldi sjá um að greinin birtist ekki í Pressunni. Hann kryddaði nú til- boð sitt með því, að hann hefði greinina fyrir framan sig til yfir- Iestrar, og væri hún upp á 3 heilar síður. Samtal þetta hef ég hlustað á sjálfur. Strax eftir símtalið hringdi ég í Pál blaðamann og bað um að fá greinina til yfirlestrar þar sem Sig- urður hefði fengjð hana hjá Páli. Þessu þverneitaði Páll. Ég mætti lesa það sem eftir mér væri haft og annað ekki. Hvar voru nú sann- leiksástin og rannsóknarblaða- mennskan hjá Páli? Maðurinn sem hafði daginn áður talað fjálglega um göfugt starf sitt við að lyfta hul- unni af þessu óþverramáli vildi nú ekkert um hina hlið málsins vita. Afstaða blaðamannsins og hót- anir Iögfræðingsins leiddu hug minn að því að kannski væri hlutur Húsafells bestur, ef greinin birtist. Ég læt svo fólk um að dæma hvaða hvatir lágu að birtingu grein- arinnar. Bergur Guðnason hdl.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.