Pressan - 16.03.1989, Page 14

Pressan - 16.03.1989, Page 14
14 Fimmtudagur 16. mars 1989 BATMAN-BYLGJAN BERSTTIL ÍSLANDS Heilagar hjálparsveitir skáta! Hvað skal til bragðs taka þegar hinn illvígi ofurskúrkur Mörgæsin hefur leikið lögreglu- lið Gotham-borgar svo grátt með klækjum sinum, að það stendur ráðþrota gegn fólsku- brögðum hans? Svarið er ein- falt, því aðeins einn maður get- ur komið glæpafuglinum al- ræmda á kaldan klaka. Þetta er auðvitað enginn annar en krossfarinn grímuklæddi, BATMAN! TEXTI: ÞORSTEINN HÖGNI GUNNARSSON Til bjargar hinum siðmenrrtaða heimi Það voru sannkölluð gleðitíðindi fyrir alla unnendur réttvísinnar hér- lendis, þegar þær fregnir bárust að ævintýri Leðurblökumannsins snjalla yrðu loks sýnd í sjónvarp- inu. Sjónvarpsþættirnir um Bat- man og hans dygga aðstoðarmann Robin eru með þeim vinsælustu sem bandaríski afþreyingariðnað- urinn hefur getið af sér í g'egnum ár- in. Þegar þættirnir hófu göngu sína í Bandaríkjunum árið 1966 mældist mesta horfun sem um gat frá því Bítlarnir sjálfir komu fyrst fram í sjónvarpi nokkrum árum áður. Sleitulaus barátta teiknimyndahetj- unnar Batmans við undirheimalýð Gotham-borgar kveikti í ímyndun- arafli áhorfenda, sem kunnu að meta ýkta atburðarás teiknimynd- anna í bland við yfirdrifinn leik söguhetjanna. Vinsældir þáttanna í Bandaríkjunum héldust mörgum árum eftir að framleiðslu þeirra var hætt. Hrein tilviljun réð því að Evrópu- búar uppgötvuðu hetjudáðir Bat- mans á haustdögum 1987. Þannig vildi til að verkfall tæknimanna á Bretlandi olli því að ITV-sjónvarps- stöðin gat ekki haldið úti beinni út- sendingu á morgunþætti sínum TV- AM. Stjórnendur gripu til þess ráðs að sýna einhvern ódýran sjónvarps- þátt frá Bandaríkjunum í staðinn. Fyrir tilviljun urðu Batman-þætt- irnir fyrir valinu. Ekki þurfti að spyrja að leikslokum: Vinsældir þáttanna urðu stjarnfræðilegar, langt umfram það efni sem áður hafði verið sýnt. Þetta gekk svo langt að merkjanleg seinkun varð á starfsfólki til vinnu í London, sem vildi ekki missa af nýjustu hetju- dáðum Batmans. í kjölfar þessara vinsælda upp- hófst gífurleg bylgja í kringum allt sem tengdist á einhvern hátt Leður- blökumanninum. Teiknimyndasög- urnar með honum fóru að rokselj- ast. Fljótlega spratt upp hátísku- fatnaður að fyrirmynd búninga úr þáttunum og nýlega var uppruna- legi Batman-búningurinn úr sjón- varpsþáttunum seldur á uppboði fyrir rúmlega hálfa milljón ís- lenskra króna. Meira að segja rúlla Leikarinn Adam West í hlutverki Leðurblöku- mannsins: Hálfaumingjalegur í samanburði við Stallone og Schwarzenegger... Skúrkarnir í hnotskurn: UPPÁHALDSÓVINIR BATMANS — The Penguin (Mörgæsin): — The Riddler (Gátuglæpóninn): — Catwoman (Kattarkonan): — The Joker (Spilafíflið): Þessi sparibúni glæpafugl heldur mest upp á safn sitt af stór- hættulegum regnhlíf- um, sem ýmist spúaeit- urgufum eða byssukúl- um. Eins og nafnið gef- ur til kynna hefur Mör- gæsin dálæti á fuglum, sem hann þjálfar í því að hrifsa skartgripi eða kála nærstöddum. Oft- 'ast á leiðinni í eða úr Gotham-fangelsinu. Þessi snilldarskúrkur sérhæfir sig í glæpum, sem fela í sér einhvers- konar gátur eða dauða- gildrur — auðvitað sér- sniðnar fyrir Batman. Hans heitasta ósk er að búa til gátu, sem Bat- man getur ekki leyst. Hann er ennþá að reyna. Glæpir kattarkon- unnar tengjast allir köttum á einhvern hátt og eitt vopn hennar er m.a. svartur hlébarði. í anda hinnar sönnu „femme fatale" hefur hún haft sérstakt lag á Batman vegna ómót- stæðilegra kyntöfra sinna. Hann hefur þó aldrei fallið fyrir henni til lengdar. Þetta er erfiðasti óvinur Batmans vegna þess hve óstjórnlega veill hann er á geðs- munum. Glæpir hans eru alltaf hættulegirog bráðdrepandi. Uppá- haldsvopn hans eru flugbeitt kastspil og eiturgufur, sem skilja fórnarlömbin eftir með hryllilega grettu. Undradrengurinn Robin er ávallt við hlið meistara síns í þáttunum.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.