Pressan - 16.03.1989, Qupperneq 15
Fimmtudagur 16. mars 1989
15
af Batman-veggfóðri frá sjöunda
áratugnum, sem seld var á hundrað
krónur, er ekki föl fyrir minna en
þúsund krónur á fermetra í dag.
Engan veginn er séð fyrir endann
á þessari Batman-bylgju því
Warner Bros-kvikmyndafyrirtækið
frumsýnir nýja kvikmynd um hetj-
una á komandi sumri. Myndin, sem
heitir einfaldlega Batman — The
Movie, skartar ýmsum stórstjörn-
um breiðtjaldsins s.s. Michael
Keaton í hlutverki krossfarans
grímuklædda, Kim Basinger sem
ástkonu hans og engum öðrum en
Jack Nicholson sem erkióvininum
The Joker. Þegar hafa meira en
fjórir milljarðar króna farið í
myndina og sú næsta er þegar í bí-
gerð. Batman er greinilega kominn
til að vera.
Krossfarinn grimuklæddi
fæðist________________________
En hver er uppruni þessa myrka
sendiboða réttvísinnar? Batman
geystist fyrst fram á sjónarsviðið í
hasarblaðinu Detective Comics '21
árið 1939. Þar sveiflaðist þessi dul-
arfulla vera um skýjakljúfa ímynd-
aðrar borgar í Bandaríkjunum, sem
nefndist Gotham City. Uppruna
hans er að finna í æsku mannsins á
bak við grímuna, milljónamær-
ingsins Bruce Wayne. Tíu ára gam-
all var hann á heimleið úr bíói
ásamt foreldrum sínum, þegar
þjófur réðst að þeim og myrti báða
foreldra hans. Hinn ungi munaðar-
leysingi hét því að hefna dauða
þeirra með því að helga líf sitt bar-
áttunni við glæpalýð heimsins.
Bruce Wayne notaði auð föður síns
til að þjálfa sig sem útsjónarsama
leynilögreglu og líkamlegan afreks-
mann.
Nótt eina er hann sat í hæginda-
stól í óðalssetri sínu kom honum í
hug setning, sem allir sannir Bat-
man-aðdáendur þekkja utan að:
„Ég mun verða dýr næturinnar.
Eitthvað svart, hryllilegt, eitthvað...
(líkast svari flýtur risavaxin leður-
blaka inn um gluggann) já, leður-
blaka! Þetta er fyrirboði... ég verð
LEÐURBLAKA!" Þannig varð til
þessi furðulega vera myrkursins,
þessi hefndarengill réttvísinnar,
Leðurblökumaðurinn!"
Batman sló strax í gegn hjá
teiknimyndaáhugamönnum, því
ólíkt litríkum hetjum eins og Super-
man, sem var ekta ofurmaður, var
Batman dökkklæddur og alvöru-
gefinn. Hann var hetja, sem lét lög
landsins sig engu varða, og vakti
ótta hjá bæði glæpalýð og lögreglu.
Persóna hans var sveipuð vampýru-
líkingum; að degi var hann tignar-
legur yfirstéttarmaður, en að nóttu
Drakúla. Samt var dauðleiki hans
alltaf innan seilingar. Hægt var að
skjóta hann og drepa og oft blæddi
honum. Þannig vakti hann samúð
hjá almenningi, því hann var ekki
ódauðlegur guð, heldur venjulegur
maður. Þessi samkennd styrktist
enn meir, þegar hinn tryggi aðstoð-
armaður hans, undradrengurinn
Robin, kom til sögunnar 1940.
Batman stekkur ekki bros
Sá leðurblökumaður, sem sjón-
varpsáhorfendur hafa fallið fyrir,
er satt að segja ekki mjög líkur fyr-
irmynd sinni úr teiknimyndasögun-
um. Adam West, sem leikur hetj-
una, er ekki sérlega sannfærandi í
vexti — jafnvel á þann mælikvarða
sem var í gildi 1966. Ætlunin heldur
ekki sú að túlka Batman mjög bók-
staflega í þáttunum, heldur var
reynt að búa til algjörlega ýktan
teiknimyndaheim þar sem öllum
væri fúlasta alvara í baráttunni við
ofurglæpamennina, sama hversu
fáránlegar aðstæðurnar væru. Bat-
man er svo öfgakenndur dreng-
skaparmaður að hann getur ekki
einu sinni hent tímasprengju í sjó-
inn af ótta við að meiða fiskana.
Söguþráðurinn og leikrænir til-
burðir eru svo ýktir að maður getur
ekki annað en hlegið að vitleysunni.
Þar er líka komin ástæðan fyrir vin-
sældum þáttanna. Þeir eru svo
mikil della að þú fellur ekkert í áliti
hjá nærstöddum þótt þú hafir gam-
an af þeim. (Nýjustu ævintýri Leð-
urblökumannsins er að finna á
föstudögum kl. 19.25 í ríkissjón-
varpinu.)
Bruce
Wayne
dettur
snjallræði
í hug í
Detective
Comics
frá 1939
enn meiri háttar
0STATILB0Ð
stendur til 21. mars
nú eru það smurostarnir, 3 dósir í pakka
Rækju-, sveppa- eda 3 ostategundir í pakka
Áður kostuðu 3 dósir ca.M0 kr., 11Ú 290 kr.*
yfir 20% lækkun.
Beikonostur
Áður kostuðu 3 dósir ca. 424"kr., nú 330 kr.*
yfir 20% lækkun.
* leiðbeinandi smásöluverð
Produce of lceland
produce of Iceland
Produce
of Iceland
Produce of Iceland
®MjöW
Betri
heilsa
meö góöum vítamínum
og hollefnum
ÍTóró25eru 15vítamín og 10
steinefni í réttum hlutföllum.
Eitt hylki gefur fullan dag-
skammt allra helstu vítamína
og steinefna. Tóró 25 er e.t.v.
besta fáanlega fjölvítamínið,
hvað varðar verð og gæði.
jwStdró
„Sífellt fleiri rannsóknir á efn-
um til varnar sjúkdómum
benda til þess að nokkur
næringarefni dragi úr tíðni
krabbabeins í þekjuvef líkam-
ans. Meðal þeirra eru A, C
og E vítamín, B-karótín (for-
veri A vítamíns) og selen".
Hollar og fjölmettaðar fitusýr-
ur fyrir hjarta og æðakerfi.
Ekkert annað lýsisþykkni á
íslandi er ríkara af omega-3
fitusýrum, þ.e. 50% innihald
af EPA og DHA. Hylkin inni-
halda ekki A og D vítamín.
Gerið verðsamanburð.
Jiík TÓRÓ HF
Siöumúla 32, I08 Reykjavík, o 686964