Pressan - 16.03.1989, Side 19

Pressan - 16.03.1989, Side 19
19 Fimmtudagur 16. mars 1989 Rætt við þá aðila sem veita verðlaun í Sönglagakeppni íslands, Landslaginu. M VERÐLAUN FYRIR ÞRJAR MILLJONIR Senn líður að því að lögin tíu, sem komust í úrslit í Söng- lagakeppni íslands, Landslaginu, fari að hljóma á öldum Ijósvakans. Kynningarkvöld verður á Hótel Sögu 14. apríl og þessa dagana er allt í fullum gangi við lokaundirbúning. Gullsmiðir hafa fengið grjót í hus, byrjað er að útsetja lögin og höfundar og útsetjari velta vöngum yfir því hvort ein- hverju skuli breytt eður ei. EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR- MYNDIR EINAR ÓLASON Verðlaunin i keppninni um Landslagið eru mörg og glæsileg og verðmæti þeirra um þrjár milljónir króna. Þau koma í hlut höfunda fimm efstu laga keppninnar og eru veitt af Norrænu ferðaskrifstof- unni, Ferðamiðstöðinni Veröld, Vífilfelli/Coca Cola, ívari Þ. Björnssyni gullsmið og Kjötmið- stöðinni Garðabæ. Auk þess leggja Bylgjan og Stöð 2 fram sinn skerf, kynna lögin og senda beint út frá úrslitakeppninni. Aðrir sem þátt eiga í að gera keppni þessa eftirtekt- arverða eru íslenska auglýsinga- stofan, sem hannar auglýsingar og merki keppninnar, hljóðverið Stöð- in, sem útsetur og hljóðritar lögin, Gildi/Hótel Saga, þar sem keppnin fer fram á glæsilegu lokakvöldi, og vikublaðið Pressan, en þrír síðast- töldu aðilarnir standa að fram- kvæmd keppninnar. En þá er ekki úr vegi að spyrja: Hvaða hag sjá menn sér í því að gefa verðlaun fyrir þrjár milljónir króna? Er það framtakið sjálft sem kemur því til leiðar, eða er það aug- lýsingagildið? ÍVAR Þ. BJðRNSSON OG SVEINN GUÐNASON GULLSMIOIR: „Hugmyndin að verðlauna- gripnum er okkar beggja og hann verður veittur höfundum þriggja efstu laganna," sagði Sveinn. „Verðlaunagripurinn er gerður úr íslenskum gabbrósteini og látúni. Fimm teinar ganga niður á steininn I gegnum hljómplötu, sem smíðuð er úr látúni, og þar sem hringur er á hljómplötum verður ísland sagað út í ný- silfri. Teinarnir fimm tákna nótnastrengina og tónlykill úr nýsilfri verður áfastur þeim. Andri Bachmann kom að máli við okkur þegar hug- myndin að þessari keppni fæddist og okkur leist vel á að leggja okkar af mörkum. Steinsmiðja S. Helga- sonar í Kópavogi gaf okkur gabbrósteinana og nú er ekk- ert eftir annað en hefjast handa við smíðina." EMIL ÖRN KRISTJÁNSSON framkvæmdastjóri Norrænu ferðaskrifstofunnar: „Viðerum hlynntir því að hér á landi sé haldin keppni þar sem öllum sem vilja er gefið tækifæri á að spreyta sig. Keppni eins og Landslagið gerir óþekktum tónlistar- mönnum kleift að koma lögum sínum á framfæri og það er greinilegt að hér eru til margir góðir lagasmiðir. Norræna ferðaskrifstofan ákvað að veita höfundum laganna sem verða í fjórða og fimmta sæti. ferðaverðlaun til Færeyja og markmiðið með þeim verð- launum er einkum það að styrkja menningartengslin milli frændþjóðanna Færeyja og íslands." PÁLL ÞORSTEINSSON Bylgjunni: „Bylgjan mun kynna lögin frá byrjun aprílmánaðar, þann- ig að sem flestirverði farnirað þekkja þau þegar að úrslita- kvöldinu kemur. Sem tónlistar- stöð viljum við styðja við bakið á lagasmiðum landsins og telj- um okkur ákveðinn farveg fyrir þá. Þessi keppni erágætis leið til að koma tónsmíðum á fram- færi og að sjálfsögðu viljum við styðja við þá sem semja tónlistina sem við flytjum." BJÖRN G. BJÖRNSSON Stöð 2: „Við vildum styðja þetta EMIL EMILSSON markaösstjóri hjá Vífilfelli/Coca Cola: „Okkur hjá Vífilfelli finnst framtakið sem slíkt þess virði að styðja það. Auk þess styðj- um við sigurlagið með gerð myndbands og okkur finnst fara vel á því að sá sem verður bestur í þessari keppni eigi samleið með öðrum, sem eru bestir á sínu sviði. I gegnum árin hefur Coca Cola átt sam- leið með ungu fólki á öllum sviðum, íþróttum, listum og öðru, og því er þetta vel við hæfi.“ framtak ásamt því auðvitað að fá þetta dagskrárefni. Við telj- um þetta vera gott efni og vit- um að það verður horft á þaö. Það sem við leggjum til keppn- innar er að Stöð 2 hefur einn mann í dómnefnd, við kynnum öll lögin, eitt á dag frá 14. apríl og síðan í 19.19, og sendum oeint út frá úrslitakvöldinu. Það er engin spurning að margir munu horfa á þá út- sendingu. Þetta er dýrt fram- tak, en við viljum leggja okkar af mörkum til að keppnin geti orðið sem glæsilegust og á móti fáum við gott dagskrár- efni sem fólk horfir á. BIRGIR JÓHANN BIRGISSON hljóðverinu Stöðinni: Hljóðverið Stöðin er rekið af upphafsmanni keppninnar, Ax- el Einarssyni, og á Stöðinni verða lögin útsett af Birgi Jó- hanni Birgssyni, jafnframt þvf sem Stöðin sér um hljóðritun laganna fyrir hljómplötu. Birgir Jóhann fékk lögin í hendur I síðustu viku og segir að sér lít- ist mjög vel á það sem hann hafi heyrt: „Ég er byrjaður að út- setja lag Rúnars Þórs og líst vel á. Það verður ekki gerð mikil breyting á því lagi, og reyndar á ég ekki von á að miklar breyt- ingar verði á neinu laganna. Yfirleitt eru höfundar þeirra mjög áhugasamir og hafa kom- ið nálægt tónlist áður þannig aö þeir vita hvað þeir vilja. 1 Úað$[r vwrw ’ -SMWR FRAMUR SNORRABRAUT 60 — SÍMI 12045 ATH. Póstsendum samdægurs um allt land Narvik Thermofil fylling + 25° C — -f 8° C Þyngd 1900 gr. Verð kr. 5.690.- Femund Hollofil fylling + 25° C — -f 10° C Þyngd 1900 gr. Verð kr. 6.980,- Igloo Hollofil fylling + 25° C — -f 15° C Þyngd 2000 gr. Verð kr. 7.990,- Lynx 4 60 lítrar Þyngd 1100 gr. Verð kr. 5.590.- Jaguar E50 50 lítrar Þyngd 1700 gr. Verð kr. 7.690.- Panther 3 65 lítrar Þyngd 1600 gr. Verð kr. 8.390.-

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.