Pressan - 16.03.1989, Síða 24
24
PrtPt 'if:ri 9t Ttip^r.ijlrt r.n
Fimmtudagur 16. mars 1989
kvikmyndir og leikhús
Regnboginn
DEAD RINGERS (TVÍBUR-
AR)
Leikstjóri: David Cronen-
berg. Aðalhlutverk: Jeremy Ir-
ons og Genevieve Bujold.
Þeim, sem þekkja til hryllings-
mynda leikstjórans Davids Cron-
enberg, kemur þessi nýjasta mynd
hans nokkuð á óvart. í stað þess
að leggja áherslu á bókstaflegan
hrylling eins og í fyrri myndum
(The Fly, Videodrome o.fl.)
bregður hann út af vananum með
þessari sálfræðilegu spennu-
mynd, þar sem hryllingsbrellur
eru vart sjáanlegar. Myndin fjall-
ar um sérkennileg tengsl tvíbura-
bræðranna og kvenlæknanna Be-
verlys og Elliots Mantle (báðir
leiknir af Jeremy Irons). Þeir deila
öllu með sér; bæði ábatasamri
læknastofu og kvenfólki sem á
vegi þeirra verður. Tengsl þeirra
virðast órjúfanleg þangað til fal-
leg leikkona, Claire Niveau
(Genevieve Bujold), kemst upp á
milli þeirra. Furðulegt samband
tvíburanna rofnar smám saman
með ófyrirséðum og hryllilegum
afleiðingum.
Dead Ringers hefur yfirleitt
fengið góðar viðtökur hjá gagn-
rýnendum, það er helst að mönn-
um þyki eftirsjá að sérstæðum
brellum Cronenbergs. Ein helsta
ástæðan fyrir jákvæðum við-
brögðum manna hefur án efa ver-
ið ótrúlega næmur leikur breska
leikarans Jeremys Irons. Hann
fær það erfiða hlutskipti að túlka
tvíburana, sem eru mjög ólíkar
persónur þótt yfirborðið sé hið
sama. Með aðstoð sérstakrar
myndatökutækni birtist Irons oft
samtímis og það er sagt að kvik-
myndagestir hafi haldið að raun-
verulegir tvíburar væru á ferðinni
í hlutverkum furðulegu kven-
læknanna, svo sannfærandi er
hann.
Svo virðist sem Cronenberg
hafi tekist að gera mynd sem
markar algjörlega nýjar brautir
fyrir hann sem handritshöfund og
leikstjóra. Eins víst er að honum
takist að svekkja marga eldri að-
dáendur sína með mynd sem inni-
heldur fá blóðug hryllingsatriði.
Jafnframt öðlast hann örugglega
nýja aðdáendur með vandaðri
innsýn í sálfræðilegan hrylling
tvíburanna. Forvitnileg mynd sem
kröfuhörðum kvikmyndagestum
er óhætt að eyða kvöldstund í.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15. Bönn-
uð innan 16 ára.
Bióhöllin
THE DEAD POOL (í
DJÖRFUM LEIK)
Leikstjóri: Buddy Van
Horn. Aðalhlutverk: Clint
Eastwood, Patricia Clarkson,
Lian Reeson og David Hunt.
Það er varla að maður hafi
lengur tölu á því hve oft Clint
Eastwood, í hlutverki brosmilda
lögregluþjónsins Dirty Harrys
Callahan, hefur afmáð allan
glæpalýð San Francisco-borgar
með frethólki sínum einum sam-
an. Sem sagt: Hér er nýjasta Dirty
Harry-myndin komin og, ef eitt-
hvað er að marka gagnrýnendur,
ein sú besta. Söguþráðurinn er
ekkert nýtt, enda varla við því að
búast þar sem formúlan hefur
gengið svo vel í gegnum árin.
Meðal þess sem Dirty Harry á í
baráttu við að þessu sinni er leik-
stjóri hryllingsmynda, sem leikur
sér að því að fremja svæsin morð.
Endalok eru svo sem engin ráð-
gáta heldur, en það sem gerir
þessa mynd betri en hinar fyrri er
sterkur húmor, sem léttir yfir-
bragð myndarinnar til muna.
Heittrúaðir mega ekki missa af
þessari og góðar líkur á að við hin
getum skemmt okkur líka.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð
innan 16 ára.
Laugarásbíó
TWINS (TVÍBURAR)
Leikstjóri: Ivan Reitman.
Aðalhlutverk: Arnold
Schwarzenegger og Danny De-
Vito.
Það vantar víst ekki tvíbura-
myndir í kvikmyndahúsin þessa
dagana. Hér er þó á ferðinni (eins
og leikarar gefa til kynna) allt
öðruvísi útgáfa af samskiptum
tveggja bræðra. Arnold
Schwarzenegger og Danny DeVito
leika tvíbura (líklega ekki ein-
eggja), sem eru aðskildir í æsku
en hittast á ný þrjátíu og fimm ár-
um seinna. Söguþráður myndar-
innar gengur svo út á leit þeirra að
mömmu, sem er víst sú eina sem
getur þekkt þá í sundur. Hér er því
á ferðinni farsi sem er líklega jafn-
góður og annað í þessum dúr sem
kemur frá kvikmyndaverum vest-
anhafs, því bandarískar gaman-
myndir eru oft því marki brennd-
ar að annaðhvort elskarðu þær
eða hatar.
Myndin hefur fengið mjög
góða dóma og á sjálfsagt eftir að
hljóta góða aðsókn hérlendis, þó
ekki væri nema vegna þess að einn
besti grínleikari síðari ára, Danny
DeVito, er í aðalhlutverki. Án efa
verður svo forvitnilegt að sjá
Schwarzenegger munda eitthvað
annað en hríðskotabyssu, kannski
leikhæfileika?
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
SCHWARZENEGGER DEVITO
TWbNS
Only their mother can tell them apart.
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð
NASHYRNINGURINN
Höfundur: Eugéne Ionesco.
Leikstjóri: Andrés Sigurvins-
son. Aðalhlutverk: Sigurður
Pálsson og Benedikt Erlings-
son.
Margfrægt leikrit Ionescos um
baráttu einstaklingsins gegn
þrýstingi samfélagsins um að falla
í hópinn er hér komið í nýstárlegri
uppsetningu eins öflugasta
menntaskólaleikhúss landsins.
íbúar landsins verða þess varir
að einkennilegur sjúkdómur veld-
ur þvi að fólk breytist smám sam-
an i nashyrninga. Enginn virðist
óhultur og að lokum stendur
skrifstofumaðurinn Berenger
einn uppi gegn heimi þar sem ein-
sleitir nashyrningar hafa tekið
völdin.
Öll umgjörð sýningarinnar er
hin glæsilegasta, þarsem mest ber
á framúrstefnulegum búningum
Rósbergs Snædal. Skemmtileg
sýning í alla staði.
Sýningar fimmtudag kl. 20.30.
Uppl. í síma 39010.
Þjóðleikhúsið
HAUSTBRÚÐUR
Höfundur og leikstjóri:
Þórunn Sigurðardóttir. Aðal-
hlutverk: Jóhann Sigurðar-
son, María Sigurðardóttir og
Bríet Héðinsdóttir.
Nýjasta leikritið á fjölum Þjóð-
leikhússins fjallar um örlagaríka
atburði sem gerðust á Bessastöð-
um fyrir um 250 árum þegar hin
unga Appolónía Schwartzkopf,
heitkona amtmanns, lést með tor-
tryggilegum hætti. Verkið er að
nokkru leyti byggt á sannsöguleg-
um heimildum og hefur allt það
til að bera sem hægt er óska sér;
fornar ástríður, harm og dauða.
Sýningar fimmtudag, laug-
ardag og þriðjudag kl. 20.00.