Pressan - 16.03.1989, Page 28
IPRESSU
MOJLAR
largir erlendir fjölmiðlar
fréttu af látunum, sem urðu þegar
rikissjónvarpið setti myndina Lífs-
björg í Noröurhöfum á dagskrá.
Strax á miðvikudagsmorgun fór
síminn að glóa hjá sjónvarpinu og
fyrirspurnum um viðbrögð. íslend-
inga og Greenpeace-manna rigndi
yfir fréttastofúna...
h
Iróður kvikmyndarinnar
Kristnihalds undir jökli hefur bor-
ist út fyrir landsteinana og er von á
erlendu fjölmiðlafólki hingað til að
gera henni skil. Þýska timaritið
Stern sendir tvo blaðamenn og einn
ljósmyndara til að skrifa átta síðna
grein um myndina og aðstandendur
hennar. Og heyrst hefur að sænska
sjónvarpið hyggist einnig senda lið
manna til íslands með það fyrir
augum að kynna Kristnihaldið
sænskum áhorfendum...
c
^^tarfsfólk Bylgjunnar og
Stjörnunnar er nú í nokkurs konar
biðstöðu, þar til hluthafáfundur
verður haldinn í næstu viku og ný
stjórn kosin. Heyrst hefur að til
standi að ráða einn útvarpsstjórá
yfir fyrirtækið í heild og síðan verði
einn yfirmaður á hvorri stöð. Sagt
er að Jón Ólafsson leggi mikla
áherslu á að verða stjórnarformað-
ur, en Stjörnumenn muni einungis
samþykygtjíað, ef þeir fái embætti
útvarpsstjórans. I augnablikinu er
hins vegar allt á huldu og lítið um
breytingar á dagskrá og öðru í þessu
millibilsástandi. Fréttastofa Stjörn-
unnar hefur þó verið flutt í húsnæði
Bylgjunnar við Snorrabraut og far-
ið er að senda út fréttir á klukku-
tímafresti, en „heiti potturinn'* hef-
ur verið lagður á hilluna í bili... •
Þ
að er ekkert leyndarmál að
mikil keppni er á milli fréttastof-
anna á ríkissjónvarpinu og Stöð 2.
I lok síðastliðins árs sýndi niður-
staða skoðanakönnunar að áhorf-
endur 19:19 voru 0,1% fleiri en þeir,
sem horfðu á fréttir ríkissjónvarps-
ins. Var sagt frá þessum tíðindum í
einni af fyrstu fréttum kvöldsins á
Stöð 2. Svo bar hins vegar við í
febrúar, þegar könnun sýndi að rík-
isfréttirnar voru um 10% yfir
frjálsu fréttunum, að ekki var
minnst einu orði á það á Stöð 2...
I janúarbyrjun auglýsti banda-
rískur karlmaður í tvígang eftir ís-
lenskri blómarós í Morgunblaðinu
með hjúskap í huga. Atti hin út-
valda að vera grönn, bláeygð, ljós-
hærð, 46 til 57 kíló og 1.65 til 1.73 á
hæð og ekki degi eldri en 23 ára. Lét
auglýsandinn birta mynd af sér með
klausunni, en hann er 52 ára og frá-
skilinn. Ekki varð hins vegar mikill
árangur af þessari auglýsingu Am-
eríkanans eftir íslensku kvonfangi,
því engin einasta stúlka svaraði
manngarfninum. Er það allt annað
en hann hefur átt að venjast eftir að
hafa auglýst á svipaðan hátt á öðr-
um Norðurlöndum. Þaðan hafa
honum borist tilboð frá ýmsum feg-
urðardísum, skammarbréf og jafn-
vel morðhótanir fyrir að vera á
barnaveiðum...
c
^^tuðningsmenn séra Ólafs
Skúlasonar i biskupskjöri hafa ekki
setið auðum höndum. Þeir hafa
haft samband við flesta, sem greiða
mega atkvæði, og telja sig eftir það
ekki einungis hafa fullvissu fyrir
því að Ólafur verði næsti biskup
yfir íslandi. Þeir álíta nokkuð ör-
uggt að hann fái meirihluta at-
kvæða strax í fyrstu umferð og það
þurfi því ekki að kjósa nema einu
sinni...
b
ílasalar láta vel yfir tilver-
unni þessa dagana. Námsmenn eru
nýbúnir að fá námslánin sín og það
eru alltaf einhverjir sem þurfa þau
ekki til framfærslu og fjárfesta í.
staðinn í blikkbeljum . . .
A
^^inn þeirra, sem fram komu í
mynd Magnúsar Guðmundssonar,
Lífsbjörg í Norðurhöfum, var Dean
Wilkinson, fulltrúi Greenpeace.
PRESSUNNl þótti forvitnilegt að
kanna viðbrögð hans að lokinni
sýningu myndarinnar og sló á þráð-
inn, en þá kom í ljós að Dean þessi
starfar ekki lengur hjá samtökun-
um. Hann vinnur nú hjá banda-
ríska viðskiptaráðuneytinu í deild,
sem hefur með sjávarútvegsmál að
gera. Hafði Dean ekkert heyrt um
kvikmynd Magnúsar, enda sagðist
hann löngu hættur að skipta sér af
hvalamálum...
Ginsana fyrir þá sem hugsa fram i tfmann.
í flókinni stöðu,
skerpir Ginsana einbeitinguna
Nú á sérstökum tilboðskjörum
Skák er íþrótt hugans. Hugurinn starfar
best þegar líkaminn er vel hvíldur og fullur af
náttúrulegri orku. GINSANA styrkir þessa
þætti; eykur úthald, eflir einbeitingu og gerir
mönnum kleift aö standast betur andlegt álag.
SÉRSTAKT TILBOÐ
í tilefni af kynningarátaki á GINSANA
hylkjum og næringarvökva, gefur Heilsuhúsið
almenningi kost á GINSANA vörum á
sérstökum tilboöskjörum. Tilboöiö stendur
til loka mars eða á meöan birgöir endast.
TILBOÐ1. Þú kaupir kassa með 30
GINSANA-hylkjum á aðeins kr. 723, og
FÆST í APÓTEKUM,
færö í kaupbæti glas af MULTIVIT
fjölvltamínum og steinefnum, sem annars
mundi kosta þig kr. 339.
TILBOÐ 2. Þú kaupir flösku af GINSANA
TONIC (næringarvökvi) fyrir aðeins kr. 723,
og færö í kaupbæti glas af MULTIVIT
fjölvítamínum og steinefnum.
TILBOD 3. Þú kaupir kassa meö 100 hylkjum
af GINSANA fyrir aðeins kr. 2.067, og færð
í kaupbæti glas meö 180 töflum af MULTIVIT
fjölvftamínum og steinefnum, sem annars
mundi kosta þig kr. 768.
BÆTT HEILSA - BETRA LÍF
Ifilh€ilsuhú5ið
Skólavörðustíg 1A sími 22966 og Kringlunni 8-12 s(mi 689266
HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM MATVÚRUBÚÐA