Pressan - 13.04.1989, Page 8
8
Fimmtudagur 13. apríl 1989
VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÓGUM
Útgefandi Blað hf.
Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson
Ritstjórar Jónína Leósdóttir
Ómar Friðriksson
Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingasími:
68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 68 18 66. Setning og
umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaöaprent hf.
Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu-
blaðið: 900 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 125 kr. eintakið.
Biðlaun
alþingismanna
í janúar skýrði Pressan frá því að Sverrir Hermanns-
son Landsbankastjóri hefði þegið sex mánaða biðlaun
frá alþingi og á sama tíma verið á fullum bankastjóra-
launum. Þessi frétt Pressunnar vakti óskipta athygli og
reiði í þjóðfélaginu.
Viðbrögð almennings við frétt Pressunnar voru sterk
og skilaboðin tvímælalaus: Ráðamönnum ber skylda til
að girða fyrir óráðsíu og bruðl af öllu tagi.
Nú hafa þingmenn fimm stjórnmálaflokka tekið sig
saman og lagt fram frumvarp á alþingi um breytingu á
lögum um þingfararkaup alþingismanna. Frumvarpinu
er ætlað að koma í veg fyrir að mál á borð við biðlaun
Sverris Hermannssonar endurtaki sig.
Verði frumvarpið að lögum munu þeir þingmenn sem
afsala sér þingmennsku og hverfa til annarra launaðra
starfa missa allan rétt til biðlauna frá Alþingi.
Hér er um sjálfsagt réttlætismál að ræða. Það tíðkast
hvergi á almenna vinnumarkaðinum eða hjá ríkinu að
starfsmenn njóti launa á sínum gamla vinnustað eftir að
þeir hefja ný störf. Það er hins vegar rétt, eins og Sverrir
benti sjálfur á, að það voru auðvitað þingmenn sjálfir
sem settu þessa löggjöf á sínum tíma og af örlæti sínu
með skattpeninga almennings veittu þeir sjálfum sér rétt
til að þiggja þessar kjarabætur.
Nú hefur því sú opinbera umræða sem hófst fyrir til-
stilli Pressunnar orðið til þess að þingmenn leggja sjálfir
til lagabreytingu sem kveði skýrt á um að réttur til bið-
launa falli niður þegar þingmaður afsalar sér þing-
mennsku fyrir lok kjörtímabils og tekur við öðru starfi.
Reglur og
undantekningar
Mikil breyting hefur orðið á meðferð geðsjúklinga á
síðustu árum. í stað þess að loka þá inni í hálfgerðum
fangelsum, fjarri „venjulegu“ fólki, er nú lögð aukin
áhersla á að umhverfi geðsjúkra sé sem eðlilegast. Þetta
á raunar við um fleiri hópa, svo sem líkamlega fatlað
fólk.
Þessi þróun hlýtur að vera af hinu góða, enda hefur
hin svokallaða „normalisering“ gefið mjög góða raun.
Það er hins vegar alltaf hættulegt að alhæfa og láta eitt
yfir alla ganga, því aðstæður fólks geta verið breytilegar.
Foreldrar geðsjúks manns, sem PRESSAN birtir viðtal
við í dag, virðast vera slíkt undantekningartilfelli. Þau!
hafa lengi barist fyrir því að fá geðveikan son sinn vist-
aðan á stofnun til frambúðar, þar sem þau treysta sér
ekki lengur til að fá hann heim.
Ósk þeirra hjónanna stangast á við þá áherslu, sem
„kerfið“ leggur á náin tengsl fjölskyldna og sjúklinga.
„Kerfið“ vill að sonurinn eigi kost á því að dvelja heima,
en foreldrar hans segjast ekki geta tekið við honum. Þá
er spurningin þessi: Hvort á að fara eftir þörfum geð-
sjúklingsins eða þörfum heilsulausra foreldra hans? Um
það stendur hið átakanlega stríð, sem sagt er frá í viðtali
við hin fullorðnu hjón í þessu tölublaði PRESSUNN-
AR.
O
hin pressan
„Gœttu nú Sjálfstœ . . . ég meina Borgaraflokksins vel á meðan ég er í
burtu, Lycy mín. “
„Það ætti að senda Kringluna
til sálfræðings."
— Sigriður Halldórsdóttir I Morgun-
blaðinu.
„Erfiðast fannst mér að þurfa
að hætta aö borða sælgæti, sér-
staklega á páskunum."
— Herra ísland, Eióur Eysteinsson, í
Morgunblaðsviðtali.
„Maður fer heim og rífur eitt-
hvað í sig i hádeginu."
— Beitningamaðurá Patreksfirði í DV.
„„Lifsbjörg i Norðurhöfum“
hefur nú hafið sigurgöngu um Evr-
ópu.“
— Leiðari i Alþýðublaöinu.
Kveðjustundin
„Ég sceki ekki um
stöður á vegum
menntamálaráðu-
neytisins á meðan
kommúnistinn Svav-
ar Gestsson fer þar
með húsbóndavald. “
— Sjöfn Sigurbjörnsdóttir í Morgun-
blaöinu.
„Það er jákvætt að fólk gefi
fuglunum en það bjargar ekki
stofninum."
— Ævar Petersen fuglafræðingur i
Morgunblaðinu.
„í kosningu á landsfund Al-
þýðubandalagsins sem fór í hönd
var ég svo heppinn að vera hreins-
aður úr hópi landsf undarf ulltrúa."
— Þráinn Bertelsson I Morgunblað-
inu.
„Lanqí Seli og skuggarnir
roru meo tónleika á Hótel Borg i
|ær en ég veit ekki hvort ég var
>ar
Woimir PótnrQQnn í binrtuiliflniim
S7
„Ekki batnar það þegar þing-
menn hrannast i blöðin og láta
eins og götustrákar."
— Ingi Björn Albertsson í DV.
„Athyglisvert er, að dagblöðin þurfa engin lög tii að láta segja sér, að
efni þeirra skuli vera á islensku ...“
— Jónas Kristjánsson ritstjóri i DV.
„Þetta var langur fundur og
annaðhvort brestur minni mitt
eða þetta er rangt..
— Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra um heræfingar i Morgun-
blaðinu.
„Ég veit ekki betur en að það
hafi farið ágætlega um Jón Sig-
urðsson i Reykjavik."
— Guðmundur Arni Stefánsson bæj-
arstjóri i Þjóöviljanum.
„Þjófur gripinn með kjúklinga
og kartöflur. Brotist inn hjá
ÁTVR.“
— Fyrirsögn I Morgunblaðinu.