Pressan - 06.07.1989, Page 18
18
Fimmtudagur 6. júlí 1989
1.500 MILUÓNIR
KRÓNA RENNA í VASA
KJÖRBÓKAREIGiNDA
UM MÁNADAMÓTIN
í FORMI VAXTA
OG VERDBÓTA
Rétt einu sinni hafa Kjörbókareigendur ríkulega
ástæðu til að gleðjast. Nú um mánaðamótin leggst hvorki
meira né minna en einn og hálfur milljarður króna í
formi vaxta og verðbóta við innstæður Kjörbóka.
En það er ekki allt talið enn: Standi innstæða á Kjörbók
lengur en 16 mánuði reiknast aftunrírk hækkun á vexti,
og síðan aftur eftir 24 mánuði.
Samkvæmt nýjum lögum um verðtryggingu verða
bankarnirnú að breyta ákvæðum skiptikjarareikninga að
hluta. Það er gert á þann veg að verðtryggingar-
viðmiðunin gildir fyrir þann hluta innstæðu sem stendur '
óhreyfður heilt samanburðartímabil.
Næsta samanburðartímabil er
frá 1. júlí til 31. desember.
Kjörbók Landsbankans, kjörín leið til sparnaðar.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
l fjármálaráðherra yfir 100
tekjuhæstu ríkisstarfsmennina er
heldur betur gloppóttur. Þar má að
vísu finna launahæstu embættis-
mennina sem þiggja eingöngu laun
sín frá launadeild fjármálaráðu-
neytisins skv. upplýsingum ríkisfé-
hirðis en heiðursflokkurinn sjálfur
gleymdist. Þar er fyrst og fremst um
að ræða fógeta og sýslumenn yfir
feitustu umdæmunum sem þiggja
prósentur af innheimtu- og upp-
boðsgerðum embættanna eða 1%
af innkomunni. Lögunum um þetta
var breytt fyrir nokkrum árum en
fógetum gefinn aðlögunartími að
breytingunni þegar prósentureglan
verður lögð niður í lok næsta árs.
Því eru í dag nokkrir fógetar sem
hala inn nánast stjarnfræðilega há-
ar upphæðir fyrir uppboð og inn-
heimtur. Tekjuhæstur er Jón
Skaftason, yfirborgarfógeti í
Reykjavík, sem er sagður hafa um 3
milljónir kr. á mánuði í prósentu-
tekjur en er jafnframt sagður deila
upphæðinni út á meðal undir-
manna sinna í fógetaembættum. í
öðru sæti er Björn Hermannsson,
tollstjóri í Reykjavík. í þriðja sæti
er Elías I. Elíasson, bæjarfógeti á
Akureyri, Jón Eysteinsson í Kefla-
vík fylgir fast á eftir og í fimmta
sæti kernur Ásgeir Pétursson, bæj-
arfógeti í Kópavogi. Sigurður Giz/-
urarson, bæjarfógeti á Akranesi,er
í sjötta sæti en því næst koma sýslu-
maður Húnvetninga, Jón ísberg, og
fógetinn á Selfossi, Andrés Valdi-
marsson. Sýslumaður og bæjarfóg-
eti Hafnarfjarðar, Garðabæjar,
Seltjarnarness og Kjósarsýslu er í
dag Már Pétursson, en hann tók við
af Einari Ingimundarsyni eftir
lagabreytingu og nýtur því ekki pró-
sentutekna af innheimtu. Ástæða
þess að fógetarnir eru ekki á lista
fjármálaráðherra er sú að þeir ann-
ast sjálfir þessa launaöflun við inn-
heimtur og rennur hún ekki í gegn-
um ríkisféhirði. Laun þeirra allra
eru verulega fyrir ofan tekjuhæstu
embættismennina á lista ráðherra,
sem höfðu allt upp í 3,5 milljónir
kr. í árslaun á síðasta ári, en ekkert
skipulagt eftirlit er með tekju-
möguleikum uppboðshaldaranna
sem munda hamarinn...
a
fyrrnefndan lista ráðherra
vantar fleiri en fógetana. Þar er
ekki að finna fyrrverandi hæsta-
réttardómara sem í dag njóta þeirra
kjara að halda fullum launum eftir
starfslok ofan á full eftirlaun skv.
lífeyriskerfi embættismanna. Eftir-
launin nema rúmum 70% af heild-
arlaunum og því eru nokkrir dóm-
arar sem sest hafa í helgan stein á
tæplega tvöföldum dómaralaunum
við Hæstarétt íslands. Lagaákvæð-
um um þessi réttindi hefur að vísu
verið breytt þannig að eftirleiðis
eiga hæstaréttardómarar ekki að
eiga kost á þessum fríðindum...
c
^^öngvarinn kunni Pálmi Gunn-
arsson er meðal þeirra sem horfið
hafa úr stórborginni nýlega. Pálmi
og kona hans fluttu þó ekki af landi
brott, heldur austur til Vopnafjarð-
ar þar sem sólin hefur búið sér fast-
an samastað yfir sumartímann. Þar
munu þau hjónin ætla að sinna
kennslustörfum og væntanlega tón-
listinni líka...
s........................
irtektarverðrar kvöldstundar í
Casablanca á föstudagskvöldið. Er
þetta hluti af tónleikaferð hóps sem
heldur til Bandaríkjanna í næstu
viku. Á Smekkleysukvöldinu koma
m.a. fram hljómsveitirnar Bless,
Bootlegs og Hain. Og rithöfundur-
inn Jón Gnarr. Bless hljóðrituðu
nýlega nokkur lög fyrir Smekkleysu
á safnplötu sem fyrirhugað er að
komi út á Bretlandi í haust. Þá eru
Ham að leggja síðustu hönd á plötu
sem fyrirhugað er að konti út hjá
One Little Indian í haust og heldur
sveitin þá væntanlega í hljómleika-
ferð með Sykurmolunum um Evr-
ópu. Það eru því öll merki á lofti
um að fleiri framsæknar rokksveit-
ir séu að fylgja í fótspor Sykurmol-
anna...
| — að þykja miklir möguleikar
gefast í tónleikaferðinni sem
Smekkleysuhópurinn heldur í
næstu viku í til Bandaríkjanna.
Hún verður haldin í tengslum við
eina af helstu ráðstefnum tónlistar-
iðnaðarins í dag, New Music Sem-
inar, sem haldin verður í New York.
Áætlað er að um 10 þúsund manns
sæki þessa ráðstefnu og um 250
hljómsveitir og listamenn standa
fyrir uppákomum í helstu klúbbum
New York-borgar. íslensku sveitirn-
ar munu spila fjórum sinnum á
þessari tónlistarhátíð. Ekki er hægt
að segja annað en draumurinn um
að skapa alþjóðlegan vettvang fyrir
tónlistarstefnur samtímans hafi
ræst þarna og Smekkleysa hafi
komið íslendingum inn á kortið...
H^tiklar hræringar eiga sér
stað í mathúsamenningu Iandsins.
Meðal annars hafa veitingahús að
asískri fyrirmynd sprottið upp við
mjög góðar undirtektir. Á næstu
dögum bætist eitt slíkt við undir
nafninu „Mongolian Barbeque“.
Það verður staðsett við Grensásveg,
þar sem áður voru Úlfar og Ijón.
Sennilega er Ghengis Khan það
eina sem flestir Frónbúar vita urn
Mongolíu, fyrir utan að landið er
klemmt inn á milli tveggja stór-
velda. Aðstandandi nýja matstað-
arins er Sigvaldi Viggósson, sem
víða hefur komið við í bransanum.
Má nefna að hann er bróðir Þor-
steins Viggóssonar, sem um árabil
rak vinsæla skemmtistaði í Kaup-
mannahöfn, Pussycat og Bona-
parte. Fyrirkomulagið verður ein-
falt: Neytandinn hefur úr að moða
sértilreidda kjötrétti af ýmsum
tegundum og getur innbyrt þá eins
og í magann kemst fyrir 1.280 krón-
ur...
m#
mr erslunarmannahelgin nálg-
ast og einhverjir orðnir úrkula von-
ar um að blásið verði í lúðra og boð-
að til dansleiks á meginlandinu.
Eyjabúar hafa sína hefðbundnu
þjóðhátíð um verslunarmannahelg-
ina en öðrum þykir súrt í broti að
komast ekki á ærlegt ball uppi á
landi. Nú geta menn tekið gleði sína
að nýju því eftir því sem við heyrum
á að slá upp heljarmikilli rokkhátíð
í Húnaveri um verslunarmanna-
helgina. Langt er liðið frá því síð-
asta útihátíðin var haldin þar en
fyrir nokkrum árum var Húnaver
einn eftirsóttasti staður landsins
fyrir hátíðahöld af þessu tagi. Spil-
aði þar allt inn í, skógi vaxið land og
gróin engi og þar fyrir utan er
Húnaver talið á einum veðursæl-
asta bletti á íslandi. Meðal þeirra
sem við heyrum að eigi að leika fyr-
ir dansi í Húnaveri um þessa gleði-
helgi eru Langi Seli og Skuggarnir,
Síðan skein sól, Stuðmenn og fjöldi
annarra góðra músíkanta...