Pressan - 06.07.1989, Síða 25
M', r1 @89
spáin
(21. iiwrs — 20. april)
Láttu skyldustörfin ganga fyrir öórum
verkum sem þig langar kannski til að ein-
beita þér frekar að. En gakktu ekki of
langt því heilsan er ekki upp á það besta.
Þrátt fyrir það skaltu ekki skorast undan
ábyrgð sem þú þarft að axla. Vertu heið-
arleg(ur) í orði og æði.
(21. apríl — 20. nwi)
Það eru vissir hlutir i kringum þig sem
fara óskaplega i taugarnar á þér. Stilltu
þig gæðingur, og varastu alla fljótfærni i
samskiptum við þá nánustu. Eyddu ork-
unni frekar á einhvern jákvæðari hátt,
s.s. með líkamsrækt eða einhverju slíku,
þá eru meiri Ifkur á ánægjulegri helgi.
(21. mai — 21. júrii)
Meðfæddir leiðtogahæfileikar þinir
komatil meðað laðafólkaðþér. En fólkið
er af misjöfnum toga og þú verður að
sýna því skilning. Veldu þvi orð þín af
kostgæfni, því það má mistúlka þau.
Gefðu ferðaþránni útrás á næstu dögum
þvl það er hollt fyrir sál og líkama að
losna úr viðjum hversdagsleikans.
(22. jiini — 22. júli)
Þú hefur verið undir mikilli pressu að
undanförnu og þetta er farið að koma
niður á skapinu. Þú hefur gaman af að
grinast með aðra en öllu má nú ofgera.
Einbeittu þér að einhverju öðru, s.s.-
uppáhaldsáhugamálinu, sjálfum þér eða
þá skipulagningu sumarfrísins.
EL (23. jiilí — 22. úgúsl)
Þú hefurtrassað ættingjanaog verður
að bæta úr þvi. Sestu nú niður með
penna og láttu hugarflæðið og andlega
hæfileika leika með þig. Einbeittu þér að
framtiðinni og láttu fortiðina lönd og
leið. Það eru miklar likur á aö þessi helgi
verði Ijónum mjög afslappandi.
(23. úgiisl — 23. sept.)
Haltu þig vió þær ákvarðanir sem þú
hefur tekið og láttu aðra ekki hafa áhrif á
þig. Sýndu sjálfstæði í framkomu. Pyngj-
an er tekin að þyngjast að nýju en óvænt
útgjöld gætu sett strik í reikninginn.
Hugaðu að ástvinum sem þurfa ef til vill
á þér að halda. Meyjur i giftingarhugleið-
ingum ættu að slá til.
(24. sepl. — 23. okl.)
Þú kemst óvænt I mikla valdaaóstöðu
og þá er um að gera að nýta sér það til
fulls því vinnuvikan hefur veriö frekar
leiðinleg hjá þér. Þér finnst sumir í kring-
um þig fjandsamlegir en það er bara of-
skynjun. Farðu varlega I stóraðgerðir i
peningamálum þvi þú hefureytt of miklu
að undanförnu.
. (24. okt. — 22. núv.)
Varastu að láta gamminn geisa i um-
ferðinni því þaðeru fleiri ágötunni en þú.
Almennt séð ættiröu frekar að einbeita
þér að framtíðinni með tilliti til fjárhags
og félagslegra aðstæöna. Helgin fram-
undan er vel fallin til að blanda saman
einkalífi og viðskiptum. En ekki gera of
miklar væntingar til annarra.
(23. núv. — 21. des.)
Alveg frábær timi fyrir feróalög hjá
bogmönnum og -konum. Farðu i ferð
sem þig hefur lengi dreymt um að fara.
Rómantíkin mun blómstraogyfirieitt eru
bogmenn í mjög góóu andlegu jafnvægi.
Vinnuvikan verður þægileg og ekki neitt
nýtt á ferðinni þar.
(22. des. — 20. jainiar)
Þú ert yfirfull(ur) af bjartsýni þessa
dagana. Það er svo sem allt gott og
blessað en ekki vera bjartsýn um of.
Staðan I einkalifinu krefst djarfra að-
gerða til þess að koma hlutunum i rétt
horf. Góður timi fyrir steingeitur I maka-
leit og aldrei að vita nema eitthvað
spennandi gerist.
2L janúar — 19. febrúar)
Gagnrýni á verk þin innan heimilisins
er líkleg til þess að koma upp á yfirborð-
ið, en láttu það sem vind um eyru þjóta.
Þú hefur um alltannað aðhugsaen heim-
ilisstörf og áhugamálin eiga hug þinn all-
an. Veittu þeim rækilega af tíma þinum
og svo koma aðrir málaflokkar á eftir.
(20. febrúar — 20. nwrs)
Ekki þykjast vera neitt annað en þú ert,
það er ekkert sniðugt. Nýjar aðstæður
koma upp í lífi fiska og það krefst aölög-
unar. Vertu óhrædd(ur) við að takast á við
þessar nýju aðstæður sem gætu leitt
gott af sér seinna meir. Aðhalds i fjármál-
um er þörf, skipuleggðu þau.
“%5
i framhjáhlaupi
ARNÞRÚÐUR KARLSDÓTTIR
„REYKJAVÍK SÍÐDEGIS" Á BYLGJUNNI
VILPIHELSTVERA HEIMA-
VINNANPIHÚSMÓPIR
Hvaöa persóna hefur haft mest
áhrif á þig?
„Jón Óttar og Valdís Gunnars-
dóttir."
Hvenær varðstu hræddust á
ævinni?
„Ég get eiginlega ekki gert upp
viö mig hvenær ég varö „hrædd-
ust“. Mér finnst ég svo oft lenda
í einhverju sem ég hræöist."
Hvenær varöstu glöðust?
„Þegar ég útskrifaöist úr fjöl-
miðlanámi í Noregi."
Hvers gætirðu sist verið án?
„Ég er svo sérvitur aö ég þarf aö
hafa ákveðna hluti meö mér
hvert sem ég fer. Þeirra á meðal
eru bækurnar mínar og sængin
mín.“
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera?
„Að þrífa bílinn, það er alveg á
hreinu!"
Hvað finnst þér skemmtilegast?
„Mér finnst mjög notalegt aö
nitta góöa vini og kunningja.
Þaö allra skemmtilegasta er þó
aö tala í símann."
Hvaö fer mest í taugarnar á þér?
„Fordómar gagnvart fólki, illt
umtal og baktal."
Manstu eftir pinlegri stöðu sem
þú hefur lent í?
„Guö minn góður já! Ég er alltaf
í pínlegri stööu því ég er svo
fljótfær aö ég man aldrei hvort
ég er aö koma eða fara. Ef fólk
heilsar mér, sem ég man ekki
siðan hvenær eða hvort ég
þekki, heilsa ég og tala viö þaö,
þótt ég muni ekki hvaða fólk
þetta er. Þegar ég uppgötva að
ég þekki þaö ekki þori ég ekki að
segja þaö og held bara áfram að
tala!“
Hvað vildirðu helst starfa við ef
þú gætir ekki sinnt fjölmiðlun?
„Þá vildi ég helst starfa heima
hjá mér. Ég vildi vera i þeirri aö-
stööu aö hafa ráö á þvi aö geta
verið heima, skúra gólf og gera
það sem ég vonast alltaf til aö
aörir geri fyrir mig. Ég myndi
vilja vera góö heimavinnandi
húsmóöir því ég lít svo á að þaö
sé munaður aö geta veitt sér
slíkt.“
Áttu þér draum?
„Já, ég á mér marga drauma, en
þeir eru allir á því stigi aö ég
verö aö áskilja mér rétt til aö
hafa þá fyrir sjálfa mig. Eitthvað
verö ég nú aö hafa fyrir sjálfa
mig! En ég lofa því aö ég skal
láta þá rætast."
lófalestur
Í þessari viku:
BLÁMI
(kona, fædd 30.9.1963)
ALMENNT:
Þessi kona fer snemma sinar
eigin leiðirog hún áaö öllum lík-
indum eftir að setjast aö erlend-
is. Hún er mjög raunsæ og aö
mörgu leyti dæmigerö nútíma-
kona. Þaö myndi henta henni vel
aö vinna viö verslunar- eöa viö-
skiptastörf. Hún lætur skyn-
semina aö mörgu leyti stjóna
sér.
Hún þarf að leggja hart að sér
viö starfió allt fram til ársins
1994.
TILFINNINGALINAN (1):
Húri þyrfti aö vera allvarkár í
tilfinningamálum — sérstak-
lega þegar nálgast fertugsaldur.
Hún hefur nokkuð góö tækifæri
til aó komast áfram í lífinu, en
ævi hennar veröur viðburðarík-
ari milli fertugs og sextugs en á
fyrri hlutanum. Tímabilið 1990
til 1991 verður afar litskrúðugt
þar sem tilfinningamálin eru
annars vegar. Þá fær hún líka
ýmis tækifæri, sem hún ætti aö
nýta sér vel.
VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM
LÓFA?
Sendu þáTVÖ GÓÐ LJÓSRIT
af hægri hendi (örvhentir Ijós-
rita þá vinstri) og skrifaöu eitt-
hvert lykilorö aftan á blöðin,
ásamt uþplýsingum um kyn og
fæöingardag.
Utanáskriftin:
AMY
ENGILBERTS
lófalestur,