Pressan - 06.07.1989, Page 28
PRESSU
MOLAR
rak arkitektastofu með einum dóm-
nefndarmanna, Þorvaldi S. Þor-
valdssyni, forstöðumanni borgar-
skipulags. í hópi þeirra sem töldu
verðlaunaveitingu þessa bera vott
um siðleysi vegna náinna tengsla
verðlaunahafans og dómnefndar-
mannsins var Guörún Jónsdóttir
arkitekt. Guðrún situr lika stund-
urn í dómnefndum, t.d. vegna sam-
keppni um skipulag á Fífuhvamms-
landi sem fram fór nýlega. Önnur
verðlaun í þeirri samkeppni hlaut
Knútur Jeppesen arkitekt. Hann er
fyrrverandi eiginmaður Guðrúnar
Jónsdóttur en engu að síður vinna
þau saman að ýmsum verkefnum,
þ.á m. úrvinnslu á skipulagi í Mos-
fellsbæ. Þá hefur starfsfólk af arki-
tektastofu Guðrúnar verið lánað
yfir á stofu Knúts, nú síðast vegna
1 samkeppninnar um Fífuhvamms-
landið. Svona endurtekur sagan
sig...
d_..
verið til umfjöllunar undanfarið og
hefur kastljósið ekki síst beinst að
Hæstarétti. Efst á dagskrá hefur að
sjálfsögðu verið áfengiskaupamál
Magnúsar Thoroddsen. Um leið
hafa margir horft agndofa á mál
Þóris Stephensen gegn blaðamanni
Tímans, Halli Magnússyni. Og loks
er að nefna kæru Oddnýjar Gunn-
arsdóttur leigubílstjóra gegn Sverri
Einarssyni sakadómara. Nú þegar
Hæstiréttur íhugar hvort hann er
hæfur til að taka við áfrýjunarmáli
Magnúsar velta menn fyrir sér
hvort hugsanleg tengsl milli þessara
mála endurspegli ekki hættur þær
sem felast i fámennistengslunum
hér á landi. Frímúrarinn Hallvarð-
ur Einvarðsson ríkissaksóknari
fékk yfirlögfræðing embættisins,
Egil R. Stephensen, til að kanna
ákærugrundvöllinn í máli Sverris.
Málið var látið niður falla. í kjöl-
farið fylgdi harður dómur Sverris
yfir Halli í máli frímúrarans Þóris
Stephensen. Margir hafa lagt sam-
an tvo og tvo, en hér verður ekkert
fullyrt. En óneitanlega liggja leiðir
ákveðinna ætta og leynireglu-
manna víða saman..
d
^g^estalisti lyrir kvöldverðar-
boðið glæsilega til heiðurs kon-
ungslijónum Spánar í gærkvöldi er
athyglisverð lesning og vísast ekki
áhlaupaverk fyrir þá sem hann
sömdu að ákveða hverjum skyldi
boðið og hverjum ekki, frekar en
endranær þegar stórhöfðingjar
eiga leið hjá. Eðlilega mátti sjá þar
háttsetta embættismenn, ráðherra,
formenn þingflokka og fjölmarga
sem tengjast Spáni með ýmsum
hætti. Þá var frömuðum ferðamála
og viðskipta boðið til veislunnar.
Það sem hins vegar stingur í augu er
Iisti yfir fjölmiðlamenn og vekur
það auðvitað spurningar um til-
ganginn með því að bjóða fulltrú-
um hinnar frjálsu pressu. Þar er
Jón Óttar Stöðvarstjóri boðinn,
titlaður sem forstjóri Stöðvar 2 og
flokkaður með „ýmsum embættis-
mönnum“ á listanum. Þá hefur
þótt hæfa að velja úr nokkra fjöl-
miðla sérstaklega og bjóða frétta-
stjórum og ritstjórum þeirra. Þar
virðist handahófsreglan hafa ráðið
ferðinni; Indriði G. á Tímanum er
t.a.m. á gestalista en ritstjórar
Morgunblaðsins ekki, Bogi Ágústs-
son á ríkissjónvarpinu er þar en
ekki ritstjórar DV, Þorgeir Ást-
valdsson er titlaður útvarpsstjóri og
mætti til boðsins en ritstjóra Al-
þýðublaðsins var þar ekki að finna.
Kára Jónasson á Ríkisútvarpinu og
Árna Bergmann á Þjóðviljanum
mátti sjá í boðinu en ekki ritstjóra
Dags á Akureyri, né heldur útvarps-
stjóra FM. Ljósmyndari PRESS-
UNNAR brá sér þangað í upphafi
veislu til að festa hina útvöldu á
filmu eins og sjá má á bls. 24 í blað-
inu í dag..
M
■ V ■enn í ferðamannaiðnaði
hér á landi eru furðu lostnir yfir
uppsögn þeirra Magnúsar Odds-
sonar og Halldórs Sigurðssonar frá
Arnarflugi. Almennt er talið að
þessir tveir menn búi yfir gífurlegri
reynslu á sviði markaðsmála, sem
erfitt verði fyrir félagið að vera án.
Þykja þessar aðgerðir minna á upp-
sagnir innan Flugleiða fyrir u.þ.b.
áratug, þegar fjöldi þrautreyndra
starfsmanna var látinn „fjúka“ í tíð
Sigurðar Helgasonar hins eldri...
élagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, situr um þessar
mundir ráðstefnu evrópskra jafn-
réttisráðherra í Vínarborg. í ráð-
stefnulok verður samþykkt álykt-
un, sem ráðherrarnir hafa síðan
með sér í farteskinu, hver til síns
heimalands. í drögum að þessari
ályktun munu ríkisstjórnir Evrópu-
landa vera hvattar til að grípa til
tímabundinnar jákvæðrar mis-
mununar til að auka hlut kvenna á
ýmsum sviðum og stuðla að jafn-
rétti. Það verður athyglisvert að
fylgjast með því hvort ákvæði þetta
stendur óbreytt í endanlegri ályktun
ráðstefnunnar og hvernig íslenski
félagsmálaráðherrann framfylgir
því..
|>
ann 16. júlí verður mikið um
úti í Viðey. Þar verða saman
komnir aðstandendur Snæfellsáss
1989, sem standa að árlegum
mannræktarsamkundum undir
Snæfellsjökli, og aðrir áhugamenn
um dulræn málefni, óhefðbundnar
læknisaðferðir og fleira i þeim dúr.
í Viðey stendur til að efna til eld-
göngu, hvorki meira né minna, og
við höfum fregnað að þekktur
stjórninálamaður verði að öllum
líkindum fyrstur til að ganga yfir
bálið..
c
^■tærsta fyrirtæki landsins,
Samband islenskra samvinnule-
laga, er víðar að spá í framkvæmdir
en i hinu gamla húsnæði Kirkju-
sands. SÍS vill nú stækka og hækka
úr steinsteypu hús sitt við Snorra-
braut, þar sem nú eru Herraríki,
fataverksmiðjan Gefjun og svo
áfengisverslun. SÍS vill bæta ofan á
og til hliðar samtals tæplega 1.500
fermetrum. í byggingarnefnd
Reykjavíkur var málinu nýverið
frestað, en nefndarmönnum þótti
gangur í gamla húsið of mjór og
vildu salerni í viðbótina sem betur
hæfði þörfum fatlaðra. Að auki lét
Magnús Skúlason bóka að breyting
á útliti hússins væri illa unnin og
vildi að viðbótin væri meira í stíl við
hið upprunalega útlit...
a sínum tima varð mikið
fjaðrafok í kringum samkeppni
arkitekta um nýbyggingu fyrir
starfsemi Alþingis. M.a. var gagn-
rýnt að Manfreö Vilhjálmsson
arkitekt, sem hlaut önnur verðlaun
í samkeppninni fyrir tillögu sína,
Lífeyrlssjóðir
ern samtrygging!
Samtrygging felst meðal annars í því að þeir sem njóta örorku-,
maka-eða barnalífeyris fá almennt langtum hærri lífeyri en sem
nemur greiddum iðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóðs.
Sumir halda hins vegar að lífeyrissjóðir séu eins konar bankabók,
þ.e. iðgjöldin fari inn á sérreikning hvers og eins sjóðfélaga og
greiða skuli lífeyri eins lengi og innistæðan endist - en ekki lengur!
Um 1700 sjóðfélagar með um 400 börn njóta örorku-og barna-
lífeyris hjá SAL-sjóðunum.
Hætt er við að örorku- og barnalífeyrir yrði rýr ef eingöngu ætti
að miða við greidd iðgjöld bótaþeganna.
Lífeyrissjóðir eru ekki bara bankabók. Peir eru langtum meira!
Lífeyrissjóðir eru samtrygging sjóðfélaga! Mundu það!
SAMBAND ALMENNRA
IÍFIYRISSJÓDA
- Samræmd lífeyrisheild -