Pressan - 07.09.1989, Síða 14

Pressan - 07.09.1989, Síða 14
14 Fimmtudagur 7. sept. 1989 eiði, annaðhvort út í sjátfa sig eða itarfsfólk fæðingardeildarinnar. ^að er ekkert nema gott um það að :egja, þegar konur ásaka hjúkrunar- ólk fyrir að hafa brugðist sér. Þann- g fá þær útrás og það er betra að íún beinist að starfsmönnum deild- irinnar en í eigin barm. Það er óskaplega erfitt, þegar konum finnst þær sjálfar eiga einhverja sök á hvernig fór. Hjúkrunarfólkið þarf líka stuðning Sumar konurnar ná því að sætta 1986 1987 1988 Andvana fœdd börn 13 10 19 Börn dáin á fyrstu viki i 12 17 8 ALLS 21 Guðrún Eggertsdóttir er aöstoðaryfirljósmóðir á fæðingardeild Landspítalans: „Reynt er að láta sömu Ijósmóðurina sjá um konuna eftir að fæöingin er yfirstaðin." Söngkonan Annie Lennox í Eurythmics fæddi andvana barn fyrir ári: Kemst aldrei yfir þetta og þá myndi þetta gleymast. Guð- rún Eggertsdóttir benti mér hins vegar á að eignast ekki barn of fljótt. Hún sagði mér að varast að fá barn ,,í staðinn fyrir“ þau sem dóu og alls ekki að skíra sömu nöfnum og tvíburarnir hétu. Ég fór að henn- ar ráðum og er mjög fegin því. Gott að hafa alltaf sömu Ijósmóðurina Mér fannst aðhlynningin á Land- spítalanum alveg til fyrirmyndar. Guðrún sinnti mér eins og best verð- ur á kosið og mér fannst mjög mikil- vægt að geta haft samband við sömu ijósmóðurina allan tímann. Hún var viðstödd fæðinguna og stóð í þessu öllu með mér. Ég hefði alls ekki viljað verða fyrir því að ný ljósmóðir tæki við mér, því ég hefði ekki getað deilt tilfinningum mínum með henni á sama hátt. Eflaust hefði ég leitað til samtaka fólks, sem eignast hefði andvana börn, ef þau hefðu verið til staðar. En ég fann bara fyrir þeirri þörf í mjög takmarkaðan tíma og er ekk- ert viss um að ég starfaði í slíkum samtökum í dag, þó þau væru til. Maður tekur á móti sorginni og vinnur sig út úr henni, en vill ekkert endilega sökkva sér í þær tilfinning- ar til lengdar. Það kemur að því að maður vill segja skilið við þetta tímabil og takast á við ný verkefni, þótt dýrmætar minningar verði allt- af til staðar. Tveimur árum eftir að tvíburarnir fæddust eignaðist ég stóran og heil- brigðan dreng, sem núna er rúm- lega eins árs. En þegar fram líða stundir mt\n ég gera honum grein fyrir því að hann sé alls ekki elsta barnið mitt. Hann átti eldri bræður, þótt þeir séu ekki lengur hjá okkur.“ Annie Lennox, söngkonan í Eurythmics, fæddi andvana son fyrir tæpu ári. Hún áhvað að nýta frægðina til að hjálpa öðru fólki í sömu sporum. Þess vegna hefur hún ekki skorast undan að ræða þessa erfiðu lífsreynslu, heldur tjá- ir sig opinskátt um hana i þeirri von að dauði Daníels öðlist þar með einhvern tilgang. Annie hafði lengi þráð að eign- ast barn með eiginmanni sinum, Uri Fruchtman, og þegar hún varð loks ófrísk varð gleði þeirra mikil. Þau eru grænmetisætur og Annie hugsaði mjög vel um heilsuna á meðgöngunni. Einn daginn kom þó í Ijós við sónarskoðun að hjarta barnsins hafði hætt að slá og fram- kalla þurfti fæðingu. Þau hjónin ákváðu að fara að ráðum samtaka, sem nefnast The Stillbirth and Neonatal Death Society, en það er félagsskapur fólks sem eignast hefur andvana börn eða misst börn innan við mánaðargömul. Samtökin ráð- leggja foreldrum eindregið að fá börnin í fangið og láta taka af þeim myndir og þetta gerðu Annie og Uri, þó þeim fyndist það erfið til- hugsun. „Ég hélt að það yrði alveg hræðilegt að halda á dánu barni," sagði Annie í blaðaviðtali fyrir skemmstu. „En okkur fannst mjög gott að sjá Daníel og snerta hann, í stað þess að láta fara með hann út úr herberginu. Ég hvet alla for- eldra til að gera þetta, þó maður verði raunar að fara varlega í sak- irnar. Fyrst þorðum við tæpast að líta á hann, en það er afar mikil- vægt að gera það og núna erum við mjög fegin. Það hlýtur að vera hræðilegt að ganga með barn í níu mánuði og fá aldrei að sjá það." Anr.ie segir þessa lífsreynslu hafa verið ákaflega þroskandi, þó hún sé ekki enn búin að jafna sig og muni líklega aldrei gera það. Þau Uri ætla að reyna aftur að eignast barn, en gera sér grein fyr- ir að það getur brugðið til beggja vona með það, eins og annað í líf- inu: „Stundum heldur maður að jafnvægi sé náð og allt muni ganga eins og í sögu. En þá fer maður að hallast ískyggilega til annarrar hliðar... Við þurfum öll að takast á við sorg og erfiðieika hér á jörð- inni. Þeir frægu og ríku sleppa ekkert frekar en aðrir!" sig að nokkru leyti við orðinn hlut á meðan þær eru enn á spítalanum, en þar með er þetta þó yfirleitt ekki í höfn. Sorgin skýtur aftur upp koll- inum og lengi á eftir geta þær fengið þunglyndisköst og gengið i gegnum erfið tímabil. Við bendum foreldr- unum oftast á að hafa samband við Samtök um sorg og sorgarvið- brögð og bjóðum þeim líka að leita til okkar hvenær sem þeir vilja. Við viljum ekki ,,týna“ þeim. . . Móðirin nær oft góðu sambandi við ljósmóðurina og getur rætt við hana um það, sem gerðist. Hún hef- ur einmitt þörf fyrir að ræða þetta, en ættingjar, sem koma í heimsókn, forðast yfirleitt að tala um barnið og fæðinguna. Fólk á svo erfitt með að tala um dauðann. Það er þó auðvit- að ekkert auðvelt fyrir Ijósmæðurn- ar og annað hjúkrunarfólk að takast á við það, þegar börn fæðast and- vana eða deyja á fyrstu vikunni. En fyrstu skiptin eru auðvitað verst. Það eru oft sömu ljósmæðurnar, sem taka þetta að sér, en það er kannski ekki rétt stefna. Það hafa allar Ijósmæður gott af þessari reynslu, því hún er þrátt fyrir allt mjög þroskandi og gefur manni geysilega mikið. En þær aðstæður geta komið upp að ljósmóðir er við- stödd tvær andvana fæðingar með stuttu millibili og það tekur veru- lega á. Það hefur lengi verið draumur okkar að stofna sérstakan hóp til að taka á þessum málum, en hann er nú ekki fullmótaður ennþá. Hér er prestur, sem tekur þátt í þessu með okkur, og einnig barnalæknar og fé- lagsráðgjafi — og við getum öll leit- að styrks hvert hjá öðru. Það er nefnilega líka mikilvægt að starfs- fólk spítalans byrgi ekki tilfinningar sínar inni, þegar fengist er við erfið mál, heldur fái eðlilega útrás fyrir þær. Við segjum konunum alltaf frá niðurstöðum krufningarinnar. Þeim. líður oftast betur, ef einhver ástæða finnst fyrir dauða barnsins, en erfið- ara þegar orsökin er óljós. Því fylgir óöryggi, þar sem þær hræðast þá að þetta geti alveg eins gerst aftur. Ef þessar konur verða ófrískar aftur er hins vegar reynt að sjá til þess að sami læknir og sama ljósmóðir ann- ist þær — fólk, sem veit hvað þær hafa gengið i gegnum. Það er fylgst mjög vel með þeim alla meðgöng- una og reynt að styðja þær í hví- vetna.“ t

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.