Pressan - 18.01.1990, Page 9

Pressan - 18.01.1990, Page 9
Fimmtudagur 1& jan. 1990 9 Viðtal við Guðmund Pórðarson hdl. sem ákærður er í máli Pýsk-íslenska fyrir undandrátt upp á tugi milljóna kr. „PÓLITÍSK LYKT AF ÁKÆRUNNI" Guðmundur Þórðarson héraðsdómslögmaður er annar tveggja forsvarsmanna Þýslc-islenska sem ókærðir hafa verið ffyrir tugmilljóna undandrótt i tengslum við skattskil og fjórreiður fyrirtækisins. Guðmundur og Ómar Kristjónsson, framkvæmda- stjóri og aðaleigandi Þýsk-islenska hferu ákærðir fyrir brot á lögum um tekju- og eignarskatt, hegn- ingarlög og lög um bókhald. Þung refsing er við EFTIR ÓMAR FRIÐRIKSSON þessum meintu brotum. Guðmundur féllst á viðtal við PRESSUNA en hann hefur ekki tjáð sig opinber- lega um mál Þýsk-islenska frá þvi það kom fyrst i fréttir árið 1985. Hann hefur ýmislegt við ákæruna að athuga og ásakar opinbera embættismenn um óeðlilega málsmeðferð og telur að pólitiskur þrýst- ingur hafi ráðið þvi að ákæran kemur nú fram efftir langa bið. MYNDIR EINAR ÓLASON „Mér er auðvitaö ekki gefinn kostur á aö afneita kærunni en ég tel hana ranga og órökstudda." Guðmundur Þóröarson hdl. var fjármála- stjóri Þysk-íslenska. Hann og Ómar Kristjánsson framkvæmdastjóri eru í ákæru sagðir hafa dregið undan tekjur upp á 90 milljónir króna. „Ákæran kom mér á óvart. Ég taldi að saksóknaraembættið væri komið á þá niðurstöðu að það væri ekki grundvöllur til ákæru fyrr en í fyrsta lagi eftir að Hæstiréttur hefði komist að niðurstöðu í sjálfu skatta- málinu sem þar er nú rekið, en svo virðist sem menn hafi allt í einu skipt um skoðun og ákveðið að ryðj- ast fram með ákæru án þess að hafa grundvöllinn. Því er málið allt byggt á sandi," segir hann aðspurður um ákæruna sem birtist í fjölmiðlum um síðustu helgi. Guðmundur, sem var fjármála- stjóri Þýsk-íslenska, segist líta á sig sem starfsmann fyrirtækisins þótt hann hafi átt litinn hlut í því og setið í stjórn þess ásamt Ómari og eigin- konu hans. Hann hvarf úr fyrirtæk- inu árið 1986, seldi sinn hlut og hef- ur stundað lögmannsstörf síðan. Ákæran varðar skattskil og bók- haldsóreiðu árið 1984. Þá hefur endurálagning ríkisskattstjóra árið 1986 verið rekin fyrir dómstólum og er eins og fyrr segir fyrir Hæstarétti. Hverjar eru skýringar Guðmundar á þessum meintu brotum? ,,Ég var fastur starfsmaður hjá Þýsk-íslenska á þessum árum. Upp- bygging fyrirtækisins var mjög hröð og hugsanlega einsdæmi á Islandi hve útþenslan var mikil. Má segja að allt of fáir hafi starfað hjá fyrirtæk- inu miðað við hvað veltuaukningin var hröð. Samfara þessu var ákveðið að tölvuvæða fyrirtækið. Við lent- um í að kaupa tölvubúnað frá fyrir- tæki sem varð gjaldþrota og höfð- um þá ekki fengiö allan búnaðinn í hendur. Við urðum að kasta því töivukerfi og kaupa nýtt sem síðar reyndist gallað. Fram kom galli í hugbúnaði og má nefna sem dæmi að árið 1984 týnast 719 nótur sem ekki komu fram á viðskiptareikn- ingum. Við vorum ekkert einir um að lenda í vandræðum með tölvu- væðingu en það gerði okkur veru- lega erfitt fyrir og átti sinn þátt í hvernig fór." „Fréttaleki" — Skattrannsókn ríkisskattstjóra hófst í nóvember 1985. Var þá ekki búið að uppgötva þetta? „Jú, þegar rannsókn fór af stað var búið að komast fyrir þetta vandamál og bókhald til fyrirmynd- ar upp frá þvi. Þá var búið að fá end- urskoðanda sem átti að yfirfara alla reikninga framvegis og sjá til þess að málum yrði komið í eðlilegt horf. Þegar við lentum í skattrannsókn- inni varð strax Ijóst að skattrann- sóknarstjóri vildi láta þetta verða stórmál í fjölmiðlum, enda þurfti hann á því að halda til að sýna fram á árangur í starfi, því embættið hafði verið gagnrýnt og Ijóst var að staða ríkisskattstjóra yrði laus til umsóknar eftir nokkra mánuði." — Ertu að segja að opinberir embættismenn hafi lekið? „Það er alveg Ijóst að málið gat aðeins borist til fjölmiðla frá emb- ættinu. Ég tel það opinbert leyndar- mál að skattrannsóknarstjóri sjálfur lét upplýsingar til ákveðins frétta- manns til að koma þeim á framfæri. Það er alvarlegt íhugunarefni þegar embættismenn sem eru bundnir þagnareiði opinbera mál með þess- um hætti. Því var logið að málið snerist um undandrátt upp á rúm- lega 200 milljónir og umboðslauna- og söluskattssvik o.s.frv. Svo þegar farið er að rannsaka málið fer held- ur betur að skerast af þessum tölum og meintu brotum. í Ijós kemur að ekki var um nein umboðslaunasvik að ræða og engin söluskattssvik. Það eina sem þeir fundu áþreifan- legt var ákveðin vörunotkun sem fyrirtækið hafði viðhaft vegna ný- byggingar sem við stóðum í. Þetta þróast síðan þannig að rannsóknar- deild skattstjóra berst við að halda í þær risatölur sem blásnar voru upp í byrjun. Ég vildi eindregið krefjast opinberrar rannsóknar á þessum fréttaleka en Ómar vildi leysa málið með samvinnu svo það gengi eins hratt og vel fyrir sig og kostur væri þannig að fyrirtækið skaðaðist sem minnst. Ég lét af störfum um þetta leyti þannig að ég hafði minni af- skipti af málinu eftir það. Ljóst var að sú stefna Ómars að fara í sam- starf hefur bitnað á honum og fyrir- tækinu því málið er enn að velkjast í kerfinu fjórum árum síðar og auk þess er rykið dustað af því ár hvert 1 með þeim hætti að almenningur er látinn halda að alitaf sé nýtt og nýtt mál að koma upp. En hér er alltaf á ferðinni sama gamla málið." Leiddur í gildru — En fékk ekki skattrann- sóknardeiidin útskýringar ykk- ar í málinu? „Jú, útskýringar sem þeir tóku gildar en þeir studdust við skatt- framtal og tölvulista sem var óaf- stemmdur og óleiðréttur. Ómar hóf samvinnu við embættið en ég var á móti, því ég þekkti til hjá skattrann- sóknarstjóra þar sem ég hafði starf- að þar sjálfur um fimm ára skeið og taldi mig vita að flestir þeir aðilar sem fara í fulla samvinnu við emb- ættið koma yfirleitt mun verr út úr slíkri rannsókn en hún sjálf gefur til- efni til. En málið tók þessa stefnu og ég tel að Ómar hafi verið leiddur í gildru. Málið snerist svo upp í það að við þurftum að taka til varna til að fá leiðréttingu bæði hvað varðaði endurálagninguna og skattrann- sóknina sjálfa ef rannsókn skyldi kalla, því vinnubrögð embættisins voru hreint með ólíkindum í þessu rnáli." — Eftir sem áður eruð þið ákærðir fyrir mjög alvarleg brot sem nema háum fjárhæðum og eru sundurliðaðar í ákærunni. Ertu að segja að ekki sé fótur fyrir þeim? „Ég vil ekki fara út í að ræða ein- stök atriði á þessu stigi. Ég get þó nefnt að stærsta upphæðin varðar vörubirgðir og þar endaði ágrein- ingurinn við töluna 47 milljónir. Það má endalaust deila um vörubirgðir. Við vorum með mikinn lager af alls- konar vörum sem seljast ekki og þá er spurningin sú hvort það á að eignfæra það upp í topp hverju sinni eða ekki. Það er mikilvægt að taka það fram að allir þeir fjármunir sem deilt er um í þessu máli hafa verið inni í fyrirtækinu. Það var ekki um það að ræöa að einhver tæki út fjár- muni eða drægi sér fé.“ Af hverju beið saksóknari? Mál Þýsk-íslenska var sent til ríkis- skattanefndar og til rannsóknar hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. „Rík- isskattanefnd vísaði málinu frá sér vegna vanreifunar beggja aðila. Við túlkuðum það sem svo að endur- álagning ríkisskattstjóra stæðist ekki en fógetaréttur heimilaði lög- tak. Við teljum að ekki hafi fengist marktæk niðurstaða í þessu skatta- máli fyrr en Hæstiréttur hefur fellt sinn dóm. Fógeti er í raun ákveðinn hluti af gjaldheimtu ríkisins og það hefur aldrei gerst að sá tógeti sem kvað upp úrskurðinn hafi synjað um lögtak. Ákæran sem kemur fram núna er byggð á endurálagningu ríkisskatt- stjóra sem var lögð fram fyrir fjór- um árum. Saksóknaraembættið hefur beðið allan þennan tíma. En hvers vegna er þá farið af stað núna allt í einu þegar eðlilegt er að bíða aðeins lengur og fá dóm Hæstarétt- ar?' — Hverjar telurðu að séu skýringarnar á því? „Ég tel að ástæðan sé sú að stjórn- sýslan sé þarna að hafa áhrif á ákæruvaldið. Þessu er allt í einu sparkað af stað, eftir að hafa legið niðri, og fenginn sérstakur sækjandi utan úr bæ til að fara með málið. Við viljum meina að það sé pólitísk lykt af þessu máli. Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri, sem fór með málið sem skattrannsóknarstjóri á sínum tíma, er Alþýðubandalagsmaður. Honum var mjög i mun að koma málinu myndarlega í sviðsljósið áð- ur en hann tæki við embætti ríkis- skattstjóra. Þegar flokksbróðir hans sest í embætti fjármálaráðherra er farið að beita þrýstingi í málinu. Sækjandi er ekki starfandi hjá emb- ætti ríkissaksóknara en hann er flokksbróðir rikisskattstjóra og fjár- málaráðherra." — Hvernig varð þér við þegar ákæran öll birtist svo í fjölmiðl- um um helgina? „Það stakk mann óneitanlega hve þetta var blásið mikið upp í Morgun- blaðinu því á sömu síðu blaðsins voru birtar nokkrar línur um mann sem dæmdur hefur verið í 15 mán- aða fangelsi fyrir nauðgun án þess að nafns hans væri getið. Það tel ég ólíkt alvarlegra mál en það sem við erum ákærðir fyrir. Aðstandendur voru verndaðir í því tilviki en svo er birt heilsíða um ákærur á hendur okkur, með nöfnum og öllum út- skýringum." — Þú segist ekki hafa átt von á að þér yrði birt ákæra nú. Hvernig snart þetta þig persónu- lega? „Það er auðvitað leiðinlegt þegar svona gerist og raunar verst fyrir að- standendur manns. Sjálfur er ég fjöl- skyldumaður og á börn þannig að það gefur augaleið að þetta er ekki þægilegt. Maður er hættur að kippa sér upp við þetta sjálfur og ég hef látið hverjum degi nægja sína þján- ingu eftir að þessi máí hófust, en mér hefur fundist fjölmiðlar alltof grófir í hvernig þeir hafa blásið þetta mál upp frá upphafi." — Afneitarðu ákærunni? „Mér er auðvitað ekki gefinn kostur á að afneita henni en ég tel hana ranga og órökstudda. Það má alls staðar finna eitthvað að þegar farið er að grandskoða bókhald fyr- irtækja. En við teljum að ákæran sé á misskilningi byggð og vefengjum harðlega þá meðferð sem þetta mál hefur fengið. Við munum taka upp mjög harða vörn í málinu hvernig sem það þróast. Ákæran er byggð á hráum tölum úr frumrannsókn málsins og við teljum að það hafi verið staðið illa að rannsókninni eins og ég hef rakið. Hún er ekki í samræmi við neinar þær kröfur sem gera verður til opinberra aðila. Þessi vinnubrögð eru hreint hneyksli og lágmarkskrafa hefði verið að beðið hefði verið eftir nið- urstöðu Hæstaréttar í skattamálinu sjálfu áður en ráðist var í að gefa út opinberar ákærur á hendur okkur."

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.