Pressan - 18.01.1990, Qupperneq 11
Fimmtudagur 18. jan. 1990
ATHUGASEMD
VEGNA MOLA
Rilstjórar Pressunnar,
Kœru ritsljórar!
I ágœtu blaði ykkar, 11. janúar,
1990, birtust tvœr klausur vegna
viðhorfskönnunar til banka, sem
gerð var í september síðastliðnum.
Vegna þeirra langar mig til að
biöja ykkur að birta eftirfarandi
upplýsingar.
1. 1 annarri klausunni segir orð-
rétt: ,,1 haust gerði Sameinaða
auglýsingastofan könnun á við-
horfi fólks til bankanna í land-
inu. “ Hin klausan hefst svona:
,,Samband íslenskra viöskipta-
banka lét Félagsvísindastofnun
gera könnun um viðhorf lands-
manna til banka. “
/ fréttatilkynningu sem afhent
var á blaöamannafundi þriðjudag-
inn 9. janáar, 1990, segir orðrétt:
....þótti stjórn Sambands við-
skiptabankanna œskilegt að
kanna viðhorf almennings til
bankastarfsemi í landinu og fékk
Félagsvísindastofnun Háskólans í
samvinnu við Sameinuðu auglýs-
ingastofuna til þess að gera yfir-
gripsmikla könnun um viðhorf til
bankanna".
Er þetta atriði þar meö vonandi
upplýst.
2.1 annarri klausunni segir orð-
rétt: ,,Niðurstööur voru kunngerð-
ar nú nýverið en eina spurningu
þykir alveg hafa vantað í þessa
könnun. Sú spurning varðar af-
greiðslutíma bankanna, en eins og
kunnugt er eru öll útibú þeirra
opin á sama tíma. “
/ áðurnefndri fréttatilkynningu
segir orðrétt: ,,Rúmlega þrír af
hverjum fjórum, eða 76,8%, sögðu
að afgreiöslutími bankanna hent-
aði sér vel eða sœmilega. “
Er þetta atriöi þá vonandi einn-
ig upplýst.
3.1 annarri klausunni segir orð-
rétt: ,,Þegar niðurstöður bárust
voru þœr hins vegar ekki sendar
fjölmiðlum, heldur fengnar auglýs-
ingastofu til túlkunar. Þeir sem
fylgjast með skoðanakönnunum
vita að þœr má túlka á ýmsa vegu
og því segir útskýring auglýsinga-
stofunnar ekki alla söguna um
það hvert viðhorf landsmanna er
til bankanna. “
Nú er mér ekki alveg Ijóst hvert
blaðið er aö fara með þessum orð-
um. Eg get vissulega verið sam-
mála því að skoðanakannanir
hafi veriö teygðar og togaðar í út-
skýringum, og á þaö ekki síst við
þegar fjölmiðlar telja sig þurfa að
túlka skoðanakannanir um sjálfa
sig.
En í samrœmi við þaö sem segir
í lið 1 er Ijóst að Sameinaða aug-
lýsingastofan vann að þessari
könnun með Félagsvísindastofnun
Háskólans en datt ekki inn í málið
við gerð fréttatilkynningar. Því
lœöist að mér sá grunur að verið
sé aö gera tortryggilega þá frétta-
tilkynningu sem ég vann fyrir
Sameinuðu auglýsingastofuna og
afhent var á áöurnefndum blaöa-
mannafundi.
Vegna þessa vil ég upplýsa að
bœði stjórn Sarhbands viöskipta-
bankanna og við á Sameinuðu
auglýsingastofunni erum sannfœrö
um að íslenskir blaöamenn séu
ágœtlega lœsir. Hefði œtlunin ver-
ið að veita engar aðrar upplýsing-
ar en í fréttatilkynningunni standa,
þá heföi verið látið duga að senda
hana á ritstjórnir. Blaðamanna-
fundir eru ekki œtlaðir til þess að
lesa fréttatilkynningar upp fyrir
blaðamenn heldur til þess aö
svara þeim spurningum sem þeir
vilja spyrja og veita þœr upplýs-
ingar sem menn telja þörf á. Mér
er tjáð af þeim er sátu þennan
fund að ekki hafi verið neitað að
svara neinni þeirra spurninga sem
fram voru bornar.
Er þetta mál þá vonandi að
fullu upplýst.
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una.
Fyrir hönd
Sameinuðu
auglýsingastofunnar,
Magnús
Bjarnfreðsson.
Kf&dnKona-
-ifjriALE) SÁ
r A 1
rii
Rskstrarvörur, verslunar- og framleiöslufyrirtæki með almennar rekstrar- og hreinlæíisvörur
fyrir fyrirtæki og stofnanir, var eitt afþeim fyrirtækjum sem lenti í stórbrunanum að Réttartiálsi
2, þann 4. janúar 1989. RV nefiir nú fiutt starfsemi sína aftur á Réttarháis 2 í nýtt, stærra og
giæsiiegra húsnæði.
(........... s Nú geía aliir komlð á RV - IVlarkað og verslað
w rekstar- og iireinlætisvönir á mjög Isagstæðu
R. o I verði. RV - Markaður er ávallt með sérstaka iil-
8 . boðspakka og mánaðartilboö sem sniðin eru
1 Jjf | að þörfum stofnana, fyrirtækja og heimila sem
-If vilja spara.
A RV - Markaðnum eru allar vorur strrka-
merktar til að hraða afgreiðslu og lækka
rekstarkostnað.
“ 13501^'-
— flSn Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Rétlarhálsi2 - HOR.vik - Simar31956*685554
...
tv*' :•
v Ö R UR
REKSTRARVORUR "i
RW
Tilboð
FLORIDA
Verð frá kr.
pr. mann
31.926,-
*
FLUG OG GISTING I
NÆTUF.
* Hjón + 2 börn, 2-12 ára.
10
Helgarferðir
LONDON
23.520,-*
FLUG OG GISTING í 3
NÆTUR M/MORGUN-
VERÐI
GLASGOW
24.150,-*
FLUG OG GISTING í 3
NÆTUR M/MORGUN-
VERÐI
LUXEMBOURG
Verð frá kr.
23.781 -*
FLUG OG GISTING í 3
NÆTUR M/MORGUN-
VERÐI
FRANKFURT
..... 26.904,.*
FLUG OG GISTING í 3
NÆTUR M/MORGUN-
VERÐI
STOKKHÓLMUR
Verð frá kr. ^
28.059,-
FLUG OG GISTING í 3
NÆTUR M/MORGUN-
VERÐI
* Verð pr. mann,
2 i herbergi.
Verð miðað við gengi
27.12. '89
<JTCO<VTH<
HALLVEIGARSTlG
SlMI 2 83 88
vtsA | zfiTrl z
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustujélagi