Pressan - 18.01.1990, Side 17
Fimmtudagur 18. jan. 1990
PRESSU
f æðingarheimilið hefur verið í
sviðsljósinu í vikunni vegna samn-
ings borgarstjórnar við nokkra
lækna um leigu á fyrstu og annarri
hæð hússins. Hér er um að ræða
skurðstofu með tækjum og legu-
deild. Grunnleigan er 100 þúsund
krónur á mánuði og hækkar sam-
kvæmt byggingarvísitölu. Auk þess
greiða læknarnir 3,5% af greiddum
einingum fyrir unnin læknisverk og
er reiknað með að þær séu ekki
færri en 32 þúsund á mánuði. Hér
bætast því rúmlega 122 þúsund
krónur við. Samkvæmt þessu
reikna borgaryfirvöld með því að
leigja húsnæðið og tækin fyrir
a.m.k. 556 kr. fermetrann, en
læknarnir annast sjálfir minniháttar
viðgerðir innanhúss og viðhald
tækja ...
c
%9éra Sjöfn Jóhannesdóttir
sótti nýlega um prestsembætti á
Djúpavogi og hlaut það. Eiginmað-
ur sr. Sjafnar er sr. Gunnlaugur
Stefánsson, prestur i Heydölum,
næsta prestakalli við Djúpavog, og
verða þau hjónin því nágranna-
prestar. Þetta er í annað sinn sem
hjón þjóna sem nágrannaprestar en
þetta fyrirkomulag gæti færst í auk-
ana, því þess munu a.m.k. átta
dæmi að guðfræðingar eða guð-
fræðinemar hafi ruglað saman reyt-
um . . .
A
^^^g talandi um presta þa eru
fleiri breytingar í vændum. Séra
Þorbjörn Hlynur Árnason , prest-
ur á Borg á Mýrum, hefur verið ráð-
inn biskupsritari frá og með vor-
inu. í kjölfar skipulagsbreytinga á
biskupsstofu hefur hlutverk bisk-
upsritara breyst og hann verður
nokkurs konar aðstoðarmaður
biskups. En þetta þýðir að presta-
kall hans losnar, að minnsta kosti
um tíma, sem kemur sér vel fyrir
prestastéttina því aðeins tvö presta-
köll voru laus fyrir en í guðfræði-
deild eru um 60 manns . . .
ATHUGASEMD
VEGNA GREINAR UM
ÞRÓUNARFÉLAG ÍSL.
í upptalningu á hlut Þróunarfélags
íslands í einstökum fyrirtækjum í
síðasta blaði misritaðist hlutur þess
í Fiskeldi Eyjafjarðar. Skv. upplýs-
ingum Þróunarfélagsins átti það
tæp 4% í fyrirtækinu en ekki tæp
40% eins og misritaðist. Að sögn Ól-
afs Halldórssonar, framkvæmda-
stjóra Fiskeldis Eyjafjarðar, er raun-
verulegur hlutur þróunarfélagsins
raunar enn minni í dag eða 0,78%.
Þetta leiðréttist hér með.
í sömu grein var greint frá sam-
keppni Marels hf. og Pólstækni á Isa-
firði. Að sögn Harðar Ingólfssonar,
framkvæmdastjóra Pólstækni, er
ekki rétt að fyrirtækin hafi samein-
ast fyrir síðustu áramót heldur hafi
þau komið á samvinnu með hluta-
fjárkaupum hvort hjá öðru. Um tíma
hafi blasað við að Marel öðlaðist
meirihluta en það breyttist á síðari
stigum og segir Hörður að nú eigi
Marel 49% í Pólstækni. Ritstj.
AST - FASTboard i486-spjald
TOLVUR SEM VAXA
Hingað til hafa allar nýjungár í
PC-tölvubúnaði stillt þér upp
gagnvart erfiðri ákvörðun. Annað
hvort er að fylgja þróuninni og
kaupa ávallt það nýjasta á mark-
aðnum og njóta ávaxtanna af
aukinni vinnslugetu eða aðhafast
ekkert og reyna að nýta þá fjár-
festingu sem þegar er búið að
leggja í.
AST hefur kynnt nýjungar sem
losa þig undan þessari erfiðu
ákvörðun. Cupid-32™ hönnunin
gerir þér kleift að stækka tölvuna
þína eftir því sem þörfin fyrir
vinnslugetu eykst.
AST Premium 386SX/16 og AST
Premium 386 (25 og 33 MHz)
hafa vaxtargetu sem tryggir þér
fjárfestingavernd. Þú fylgir þró-
uninni og eykur afköstin, nú þeg-
ar alla leið upp í i486, án þess að
þurfa að fjárfesta í nýrri tölvu.
stöðvum í netkerfi eða auka af-
köst tölvunnar sem einmenn-
ingstölvu, t.d. við hönnun og
teikningu (CAD/CAM), kemur
Cupid-32 þér til góða. Einföld
skipti á einu FASTboard™*
spjaldi í tölvunni er allt sem þarf
til að auka aflið.
í stað hinnar erfiðu ákvörðunar
bjóðum við þér eina auðvelda.
Hví fjárfesta í tölvu frá einhverj-
um öðrum þegar þú getur eign-
ast hágæða AST Premium tölvu?
Enda eru þær einu tölvurnar sem
vaxa með þér.
AST - lykillinn að farsœlli
tölvuvœðingu
Ef þú þarft að fjölga notendum í
fjölnotendakerfi, bæta við vinnu-
Hafðu samband, það borgar sig örugglega
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, stmi 686933
* Eftirfarandi FASTBoard eru nú þegar fáanleg
FASTBoard 386/25, 25 MHz 80386 örgjörvi
FASTBoard 386/33, 33 MHz 80386 örgjörvi
FASTBoard 486/25, 25 MHz 80386 örgjörvi
Cupid-32™ og FASTBoard™ eru skrásett vörumerki AST Research Inc.
augljós 28.164