Pressan - 18.01.1990, Side 22

Pressan - 18.01.1990, Side 22
22 Fimmtudagur 18. jan. 1990 ............................................................................................................................................................................................................................ 1 ............................................................................................................................................................................. Björn Ingi Magnússon hjá Gísla J. Johnsen. „Forritaþjófnaður setur framleiöendum og innflytjendum stólinn fyrir dyrnar." Umhverfíð verður myndrænna Gísli J. Johnsen og SkrHslofuvélor sameinuðusl nýverið, en báðir hafa þessir aðilar meðal annars selt IBM-vélar. Yfir hugbúnaðardeild fyrirlækisins er Björn Ingi Magnússon og hann hefur jafnframl umsjá með Tölvuskólo Stjórnunarfélags íslands og GJJ. Blaðamaður Pressunnar hitti Bjðrn að máli í húsakynnum GJJ í Kópavogi og spurði hann fyrst hverjar væru helstu áþreifaniegu framfarir á sviði hugbúnaðar um þessar mundir. „Pað sem notandinn verður fyrst og fremst var við er sú þróun sem á sér stað ! svonefndum graf- ískum notendaskilum. Svo þaö sé orðað almennar má segja að skjá- myndirnar í forritinu séu sífellt að verða myndrænni og myndrænni. Meira er byggt á allskyns gluggum og öðrum grafískum formum en áður. Þá er einnig aukin áhersla lögð á samræmingu milli forrita, þannig að þó forrit séu um margt mjög ólík þá eru ákveðnir hlutir í þeim eins. Sem dæmi má nefna hluti eins og þegar sækja á forrit í minni tölvurnar, vista skjöl, prenta út og þess háttar. Ólík forrit frá mismunandi framleiðendum eru sem sé í auknum mæli að færast í þetta horf. Forritin eru einnig að verða þannig að þau líta eins út á DOS, ÖS/2 og fleiri stýrikerfum. Sem dæmi um þessa þróun má nefna að Microsoft er komið með umhverfi sem þeir kalla Windows, eða Glugga, sem er ekki ósvipað því umhverfi sem unnið er ineð í Macintosh. í þessu forriti má segja að það besta frá báðum aðilum sé sameinað í eitt forrit og það mun koma að því áður en langt um líð- ur að notandinn verður alltaf í sama umhverfi, án tillits til þess að hvaða verkefni er verið að vinna. „Windows" vinnur á DOS en í OS/2 eru grafísku notendaskilin eins og í „Windows". OS/2 er híns vegar mun öflugra kerfi og getur framkvæmt margar aðgerðir í einu. Hvað ritvinnslu varðar er geng- ið langlengst í þá átt að gera um- hveríi notandans þægilegra hjá Word. Þú getur valið um ótal letur- gerðir, myndir og fleira, líkt og gerist í umbrotsforritum. Allt ger- ist þetta i þessu Glugga-umhverfi og þess verður ekki langt aö bíöa að svipuö lausn komi í Word-Per- fect-ritvinnslunni, þ.e. að stuðst verði svo mikiö við „Windows" notendaskil. Með „Windows" verður líka önnur breyting sem hefur ekki svo lítið að segja. Vegna hinna mörgu íslensku stafa höfum við til þessa þurft að leggja óhemjuvinnu í að laga einstök forrit að íslenskunni. Við erum með u.þ.b. 20 islenska stafi, hástafi og lágstafi, og það segir sig sjálft að það fer gífurleg vinna í þessa aðlögun. Þetta breyt- ist með Windows. Nú nægir okkur að íslenska það og þar með heyra þessar breytingar að mestu leyti sögunni til. Það er því óhætt að tala um sannkailaða byltingu hvaö þetta varðar. Það er fleira sem er að gerast og hefur verið að gerast að undan- förnu í þessum málum, sem er til góðs fyrirokkur íslendinga, og má þar til dæmis nefna nýja stafatöflu sem komin er fram hjá IBM. Hún er sameiginieg fyrir alla Evrópu og hefur að geyma 256 stafi. í þessari töflu eru allir islensku staf- irnir. Það að þessi stafatafla skuli nú vera þannig útbúin gerir að verkum að hugbúnaðarhús um allan heim taka tillit til þeirra stafagerða sem tíðkast í hverju landi fyrir sig. Á þessu sést að þróun í gerð hugbúnaðar er í átt að stöðlun bæði í útliti og innri gerð, en um leið verður meira tillit tekið til sér- þarfa ýmissa Evrópulanda, okkur til góðs." í tölvugeiranum verður mönnum tíörætt um stýrikerfi og hvaða kerfi verði ofan á í þeirri samkeppni. Hverju spáir þú í þeim efnum? „Það er rétt, um þetta hefur ver- ið mikið rætt og ritað. Enn|rá er DOS allsráðandi en OS/2 sækir á. OS/2 er öflugt kerfi, sem getur framkvæmt margar aðgeröir í einu, eins og ég drap á hér að fráman. Það er ekki fjöinot- endakerfi, heldur fjölverka. OS/2 hefur meðal annars það fram yfir UNIX-stýrikerfið, sem einnig hefur sótt í sig veðrið á undanförnum ár- um, að þar er á ferðinni staðlaö ÆBBB jqr M ÆHum stora i Tæknival hf. var stofnað árið 1983 og starfaði fyrirtækið i upphafi eingöngu á sviði tölvumála fyrir iðnfyrirtæki. Reksturinn þróaðist svo smám saman út i að vera einkum tengdur sölu á ýmiss konar rekstrarvörum fyrir tölvur og er þekktast fyrir það i dag. Innan þess er engu að siður sérdeild sem hefur á sinni könnu tölvuvæðingu i iðnaði. Sem dæmi um stór verkefni fyr- irtækisins á því sviði má nefna fjargæslukerfi/stjórnkerfi, fyrir hitaveitu Seltjarnarness, þar sem Tæknival sér um verkið í heild sinni; hönnun, teiknun, uppsetn- ingu, gangsetninu og prófanir. Hjá fyrirtækinu starfa 17 manns og velta síðasta árs var 125 millj- ónir. Tæknival hóf í apríl síðastliðn- um innflutning á Hyundai-tölvum, en þær eru frá S-Kóreu. Þessi sam- steypa, þ.e. Hyundai, er gífurlega stór og ætlar sér stóra hluti á heimsmarkaöi, að því er Rúnar Sigurösson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir. „Hyundai-samsteypan frámleið- ir allan sinn tölubúnað sjálf og hef- ur átt mjög vaxandi vinsældum að fagna, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Sern dæmi um söluna í Bandarikjunum má nefna að Hy- undai var fjórða mest selda tölvan þar árið 1988. Alls seldust þá 220.000 Hyundai-tölvur þar. Áætl- uð sala í Evrópu á þessu ári er 170.000 tölvur þannig að það er mikið uppgangstímabil framund- an hjá fyrirtækinu og það setur markið mjög hátt. Hyundai-verksmiðjurnar setja gæðakröfur á oddinn og bilana- tíðni tölvanna er enda mjög lág. Auk þess að selja tölvur og rekstrarvörur ýmiss konar seljum við þann ísienska viðskiptahug- búnað sem á boðstólum er, svo sem OPUS, Ráð, TOK og nú nýjan pakka sem við seljum í samvinnu við Streng. Sá heitir Bústólpi og er framleiddur af PC & C í Danmörku en hefur nú verið íslenskaður. Við tókum þetta kerfi í notkun hér inn- andyra um áramótin síðustu og er- um mjög ánægðir með það. Sá hugbúnaður sem við seljum fiér er fyrst og fremst í tengsíum við vörur okkar. Þar á ég við ýmiss konar samskiptahugbúnað og sér- hugbúnað t.d. Turbo-Backup. Það forrit er danskt og hefur einnig verið þýtt á íslensku. Turbo-Back- up tekur afrit af harða disknum og ílytur yfir á diskettur. Við höfum lagt áherslu á ýmiss konar búnað sem tengist öryggi og má þar fyrst og fremst nefna varaafigjafa frá Victron, afritunar- stöðvar frá Mountain-computers og svo fyrrnefndan Turbo-Backup. Við stefnum á mjög aukna tölvu- söiu hér heima og ætlum okkur að ná ákveðinni hlutdeild í markaðn- um. Tii þess njótum við góðrar að- stoðar Hyundai-verksmiðjanna, enda eru stórir hlutir í bigerð þar. Forráðamenn Hyundai ætla sér að gera fyrirtækið sérhæft og þekkt fyrir gæði og tækni á tölvumark- aðnum og setja markið mjög hátl í þeim efnum." Svo áfram sé skyggnst inn í framtíðina. Hver sérðu fyrir þér að þróunin verði þar helst? „Hún er nú margslungin en svo borið sé einhvers staðar niður tel ég að framtíðin verði sú að AT-vél- in, þ.e. 286, komi til með að detta út aí markaðnum sem fyrirtækja- vél, þvi 386-vélin mun taka yfir á þeim vettvangi. Það er mun öfl- ugri vél og afkastameiri en litlú dýrari. Ég spái því að 386 SX-vél- arnar verði allsráðandi hér á þessu ári. Hvað stýrikerfi varðar tél ég að OS/2 muni koma mjög sterkt inn á þessu ári. Þetta kerfi hefur ekki komið jafnsterkt út og skyldi, því hugbúnaðurinn hefur verið svo langt á eftir. Þetta er að breytast og það er OS/2 í vil. Samkeppni OS/2 og UNIX er í raun óskrifað blað. Þessi tvö kerfi munu bítast um markaöinn á næstunni en væntanlega vinna saman áður en yfir lýkur. UN- IX-kerfið er takmarkað að þvi leyti að það eru svo fáir sem þekkja það. Tölvumenn sem alist hafa upp á undanförnum árum þekkja DOS-kerfið og það umhverfi sem það býður upp á. Það er þvi erfitt fyrir þá að skipta yfir í UNIX. Auk þess er til miklu meira af hugbún- aði fyrir DOS og hann er þar að auki mun ódýrari. Svo áfram sé spáð í stýrikerfin, þá mun OS/2 ekki nýtast vélum á borð við PC og 286, til þess er það kerfi. í UNIX eru menn enn aö koma sér saman um ákveðin not- endaskil, þ.e. ákveðinn staðal í þeim efnum. Þeir eru því að mínu mati orðnir nokkuð á eftir i þróun- inni. Af þeim ástæðum, meðal annars, spá margir OS/2 og DOS betra brautargengi en UNIX." Úr stýrikerfum í forritastuld. Telurðu mikið vera um slíkt hérlendis? „Já, því miður er mjög algengt að hér séu notaðar illa fengnar út- gáfur af hinum ýmsu forritum. Þær eru í gangi jafnt í fyrirtækjum sem og hjá einstaklingum, það vit- um við. Oft og tíðum gerir fólk sér alls enga grein fyrir því að það er að stela. Þarna er oft um það að ræða að í einu fyrirtæki er eitt- hvert forrit fjölfaldað svo nota megi það í mörgum tölvum. Þetta má ekki. Reglan er eitt forrit á fiverja eina tölvu. Þetta er gífur- legt vandamál sem mjög erfitt er að eiga við og einmitt vegna þess hve miklu magni forrita er stolið veigra menn sér við því að láta þýða forrit yfir á íslensku. Það hefur verið giskað á að fyrir hvert vel fengið forrit hérlendis séu þrjú til fjögur stolin. Það sér það hver heilvita maður að fyrir þann markað sem hér er er ákaf- lega áhættusamt að fara út í rán- dýrar þýðingar, nema nokkur vissa sé fyrir ákveðinni sölu á við- komandi forriti. Þjófnaður tefur því verulega fyrir jíessari þróun! Þetta er hins vegar ákaflega við- kvæmt mál, því jafnvel þó við vit- um af stolnum forritum í einhverj- um þeirra fyrirtækja sem eru við- skiptavinir okkar er ákaflega

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.