Pressan - 18.01.1990, Síða 25
Fimmtudagur 18. jan. 1990
i^C
25
'Örtölvutækni er eitt þeirra fyrirtækja sem starfa
mikiö á hugbúnaðarsviðinu, en auk þess er fyrir-
tækið heildsöluaðili á Hewlett Packard PC-tölvum
og -prenturum á íslandi og umboðsaðili fyrir hol-
lensku Tulip-tölvurnar.
Helstu verkefni fyrirtækisins
eru á sviöi nettenginga tölva af
ólíkum gerðum sem krefjast mik-
illar þekkingar á viðkomandi bún-
aði. I slíkum netum er unnið í einu
umhverfi á mörgum ólíkum stöð-
um og því að ýmsu að huga við
uppsetningu slíkra kerfa. Við hana
er lögð mikil áhersla á verndun og
óryggi gagna. Til þessara verk-
efna notar fyrirtækið einkum tölv-
ur frá HP og Tulip.
Tulip-tölvurnar hollensku komu
fyrst fram á sjónarsviðið 1978 og
frá þeim kom PC-töiva fyrst '82. I
dag er íyrirtækið mjög stórt í
heimalandi sínu og fer ört vaxandi
á erlendum markaði. Tulip hefur,
að sögn Sigurðar S. Pálssonar,
framkvæmdastjóra Örtölvutækni.
verið viðurkennd góð vél sem
hentar vel íslenskum aðstæðum.
Hewlett Packard er hins vegar
nokkurs konar gæðamerki fyrir-
tækisins. Pær tölvur henta eink-
um þar sem krafist er mikils hraða
og öryggis. Þá selur fyrirtækið jað-
artæki fyrir IBM AS/400 og Syst-
em/3x.
Aí hugbúnaði sem Örtölvu-
tækni leggur mesta áherslu á ber
fyrst að nefna AutoCAD, sem er
teiknihugbúnaður sem nýtist
meðal annars arkitektum og verk-
fræðingum, netstýrikerfi frá Nov-
ell og Tops, þar sem lögð er megin-
áhersla á nettengingar, og síðast
má nefna hugbúnað sem fyrirtæk-
ið er með í umboðssölu og þjón-
ustar, svo sem frá Microsoft, Word
Perfect og Lotus Symphony sem
er samofinn hugbúnaður í sam-
keppni við Framework og Excel.
Auk þess allskyns íslenskur við-
skiptahugbúnaður, svo sem frá ís-
lenskri forritaþróun, Víkurhug-
búnaði o.fl.
Sigurður S. Pálsson fram-
kvæmdastjóri segir mikla um-
svifaaukningu hafa átt sér stað hjá
fyrirtækinu á milli áranna 1988 og
'89.
„Við verðum varir við miklar
breytingar hjá fyrirtækjum hvað
snertir endurnýjun vélakostsins.
Menn eru í auknum mæli aö
skipta úr PC-vélum yfir í AT eða
stærri 38ö-tölvur. Þessi þróun á sér
nú stað, bæði innan ríkisgeirans
og einkafyrirtækja, og ég hef þá
trú að svo veröi einnig á þessu ári.
islendingar eru tæknisinnaðir og
vilja vera búnir bestu tækjum,
hverju sinni."
Arnlaugur Guðmundsson hefur
umsjón meö hugbúnaði og hug-
búnaðarþjónustu hjá Örtölvu-
tækni. Blaðamaður fór þess á leit
við hann að hann útskýrði í gróf-
um dráttum þessi þrjú atriði sem
lögð er megináhersla á hjá fyrir-
tækinu, þ.e. AutoCAD, netstýri-
kerfin og umboðssöluna.
„Svo byrjað sé á AutoCAD-kerf-
inu, þá er þar um að ræða opið
grunnteiknikerfi með mjög fjöl-
breytta möguleika. Þetta er kerfi
sem hægt er að laga að þörfum
nánast allra sem þurfa að teikna.
Þar getur verið um að ræða skipu-
lag garða, rafmagnsteikningar,
hús, heilu borgirnar, veitukerfi og
svo framvegis. Kerfið má nota
beint til þessara hluta og svo geta
menn lagað það að sínum verk-
efnum og gert það þannig þægi-
legra í vinnslu fyrir sig.
I rauninni byggja fjölmörg fyrir-
tæki afkomu sína á því að laga for-
ritið að einhverjum sérsviðum.
Svo tekið sé dæmi um nýtingu
forritsins má nefna útreikning efn-
istöku. Gerum ráð fyrir að verið sé
að teikna skurð fyrir veitufram-
kvæmdir, þá er hægt að láta forrit-
ið reikna út hversu mikið efni þarf
að fjarlægja. Eða ef verið er að út-
búa eldhúsinnréttingu. Þú teiknar,
gerir ráð íyrir þetta mörgum hurð-
um og höldum og öllu þvi sem til
þarf. Um leið og innréttingin er
orðin eins og þú vilt liafa hana get-
urðu fengið upp á skjáinn hversu
mikið hun kostar.
AutoCad er mjög útbreitt forrit
og hefur þegar verið selt í yfir
200.000 eintökum, þar af eru um
20.000 á Norðurlöndunum. Hér
hefur það fyrst og fremst veriö
nýtt af mönnum sem vinna við raf-
magnsteikningar, en einnig er það
til í háskólanum, Tækniskólanum,
iðnskólum, fjöibrautaskólum og
nokkrum öðrum opinberum
stofnunum og fyrirtækjum.
AutoCAD hefur verið selt hér
síðan '84. Fyrst skoðaði fólk það
og það var ekki fyrr en íyrir u.þ.b.
þremur árum sem það fór að seij-
ast að einhverju ráði.
CAD og svo snúið sé að næsta
megináhersluefni fyrirtækis-
ins, netstýrikerfunum. Hvað er
helst að nefna þar?
„Til að byrja með er rétt að út-
skýra aðeins þetta hugtak, net.
Þar er átt við samtengingu nokk-
ura tölva. Kosturinn er sá að hver
notandi er óháður hinum.
í fjölnotendakerfum er áberandi
að sá sem er með þung verkefni í
vinnslu gerir hinum notendunum
erfitt fyrir og getur jafnvei einok-
að allt kerfið. I netinu gerist það
ekki því þá sækja menn forritin í
eina móðurstöð en vinna síðan
með gögnin í sinni eigin vél. Um-
ferðin á netinu er því einungis
fólgin í því að sækja og senda en
eiginieg vinnsla fer þar ekki fram.
Meö netinu sparast líka talsvert
mikill kostnaður því margir not-
endur geta nýtt saman jaðartæki
eins og t.d prentara og einn not-
andi getur verið tengdur mörgum
ólíkum tegundum prentara, ailt
eftir þörfum hvers og eins. Menn
velja sér alfarið net eftir stærö og
notkunarþörfum.
Novell-stýrikerfið, sem við selj-
um hér, er ætlað fyrir meira en
4—8 notendur og allt upp í 100
eða fleiri. í því er mjög mikil
áhersla lögð á verndun og öryggi
gagna og þetta kerfi getur varið
gögnin mjög vel. Novell er mjög
öflugt stýrikerfi þar sem fljótlegra
er að sækja gögn út á netdiskinn
en á disk í eigin tölvu!
Þetta kerfi ber höfuð og herðar
yfir keppinauta sína og hefur mjög
stóra heimsmarkaðshlutdeild. Þaö
er til fyrir ótal gerðir véla og nú
einnig fyrir Macintosh.
Við höfum einnig upp á að bjóða
annaö netstýrikerfi sem nefnist
TOPS. Það er einfaldara en Novell
og var í upphafi einungis ætlað
Arnlaugur Guðmundsson og Sigurður S. Pálsson hjá Örtölvutækni. „Ört vaxandi fyrirtæki."
umsvifa-
aukning
fyrir Macintosh-tölvurnar enda
hefur það um 65% heimsmarkaðs-
hlutdeild fyrir þær tölvur. TOPS er
enn fyrst og fremst gert fyrir Mac-
intosh en einnig er hægt að nota
það við PC-tölvur ef notað er sér-
stakt tengispjald. f TOPS eru miklu
færri öryggislásar en í Novell og
öryggi gagnanna er tryggt með
aðgangsorðum. Það er einfalt í
uppsetningu og í stað eins þjón-
ustustjóra þá er hver og einn not-
andi þjónustustjóri fyrir sinn hluta
netsins. Þetta er einfaldara en í
Novell en ekki nærri eins öruggt.
í stuttu máli má segja að viö
bjóðum bæði upp á einföld og
ódýr net og fiókin og dýrari."
Þá eru enn ótalin þau forrit,
sá hugbúnaður sem Örtölvu-
tækni er með í umboðssölu fyr-
ir önnur fyrirtæki.
„Já. Sem dæmi um þann við-
skiptahugbúnað sem við seljum
má nefna ÓPUS frá íslenskri for-
ritaþróun og það er reyndar sá
búnaður sem við notum sjálf hér
innanhúss. Við erum einnig meö
búnað frá Víkurhugbúnaði sem er
örlítið einfaldari og um leið ódýr-
ari. Einnig höfum við selt Stólpaj
sem er sérhæfður pakki fyrir iðn-
fyrirtæki.
Þessi forrit hafa svipaða grunn-
uppbyggingu, notandinn ræður í
raun hvernig pakkinn er saman-
settur. T.d. þurfa sumir einungis
fjárhagsbókhald, aðrir fjárhags-,
viðskiptamanna-, lager- og launa-
bókhald og enn aðrir miklu flókn-
ara kerfi.
í þessum tilfellum sjáum við
ekki um uppsetningu og þjónustu
kerfanna eftir á, heldur gera við-
komandi fyrirtæki þjónustusamn-
inga við framleiðendurna. Þau
gerast þá t.d. áskrifendur að nýj-
ungum í hugbúnaðinum, því alltaf
er verið að þróa öll forrit, sífelit
koma fram nýjungar. Það koma
fram nýjar árgerðir forrita líkt og
bíla. Það er hætt við að eigendur
bíla yrðu heldur ánægðir ef þeir
fengju senda heim á hverju ári nýj-
ustu árgerð af þeim bíl sem þeir
ættu, einungis fyrir vægt áskriftar-
gjald!
Skráður notandi hvers forrits
fyrir sig hefur þannig rétt til þess
að íá ávailt nýjustu gerðir forrita
sinna, á vægu verði.
Öll þessi viðskiptahugbúnaðar-
kerfi eru gerö fyrir net- eöa fjöl-
notendastýrikerfi þar sem fæstum
fyrirtækjum dugar ein tölva. Þau
virka þó vissulega einnig á slíkum
forsendum."
Þetta er forrit sem getur teiknaö
í tví- og/eða þrívídd. Hægt er aö
skoða hlutina oíanfrá, neðanfrá,
utanfrá eða innanfrá. Til viðbótar
við AutoCAD er svo hægt að fá
AutoSHADE sem færir myndirnar
enn nær raunveruleikanum, má
segja að það íullbúi þær. Þessi
hugbúnaöur er til fyrir margar
ólíkar gerðir tölva, fyrir allskyns
skjái og prentara og er þar aí leið-
andi lítið „véiaháð" forrit. Fyrir jól
bættist svo stærsta Macin-
tosh-tölvan í hóp þeirra véla sem
keyrt geta AutoCAD og má segja
að þar með sé í fyrsta sinn komið
fram „alvöru" teikniforrit fyrir
þær vélar. Frá AutoCAD er einnig
tíl AutoSKETCH, sem er mjög
ódýrt. Það teiknar í tvívídd og
birtir mál á teikningunum. Þetta
forrit er með mikla, en þó talsvert
takmarkaða möguleika.
AutoCAD er einnig mjög þægi-
legt að því leyti, að þó unnið sé á
t.d. Macintosh að einhverju
ákveðnu verkefni er hægt að færa
teikningarnar yfir í t.d. PC og
halda því áfram þar og öfugt.
Varðandi stærðir teikninga má
nefna að til dæmis væri hægt að
teikna ísiand og einangra svo
smátt og smátt myndina þar til
einungis íbúðin mín væri eftir. Það
væri jafnvel hægt að ganga svo
langt að teikna hvað væri í ís-
skápnum!
Það er hægt að teikna í nokkurs
konar lögum, líkt og gert er með
glærur. Þ.e. fyrst væru t.d teiknaðir
útveggir á eitt skjalið, þá milli-
veggir á það næsta, síðan húsgögn
á það þriðja o.s.frv.“
Þannig er lýsingin á Aúto-
Ópus
Fleiri íslendingar kunna á Ópus en
nokkurn annan viðskiptahugbúnað
□ vegna þess að fleiri en 600 fyrirtæki nota Ópus viðskiptahugbúnað frá íslenskri
forritaþróun hf. í daglegum rekstri.
□ vegna þess að Ópus er notaður við tölvubókhaldskennslu hjá Háskóla íslands,
Verzlunarskóla íslands og fjölmörgum öðrum framhaldsskólum.
Ópus er öruggur og sveigjanlegur í notkun og honum fylgja skýrar handbækur. Á bak
við Ópus er öflugt fyrirtæki með vel þjálfuðu og reyndu starfsfólki. Sérstök þjónustu-
deild okkar sér um það eitt að veita notendum Öpus viðskiptahugbúnaðar úrvals-
þjónustu og þjálfun. Ópus er fáanlegur bæði á einkatölvur og fjölnotendatölvur.
Þegar þú velur hugbúnað skiptir miklu máli að velja rétt. Mistökin geta kostað of mikið.
Veldu rétt.
VELDU ÖRYGGI, VELDU ÓPUS
íslensk
forritaþróun hf.
Engjateig 3
105 Reykjavík, sími 671511