Pressan - 18.01.1990, Síða 27
'r
Fimmtudagur 18. jan. 1990
fyrr af alkóhólinu (!). Konur með hlædingar ættu
sérstaklega að gæta að áfengisneyslu, því líkurnar
á verulega slæmum eftirköstum aukast þegar slíkt
er í gangi.
9) Tíminn er besti læknir timburmannanna.
Reyndu að sofa eins mikið og þér er unnt.
10) Taktu tvær paracetamol-töflur, annaðhvort
með vatni eða sódavatni. Aspirin-töflur hafa ekki
góð áhrifá magann svo þú skalt forðast þær, nema
þær séu uppleysanlegar.
11) Betra er að taka C-vítamín inn í töfluformi
en að skella í sig mörgum glösum af ávaxtasafa. I
slíkum safa er oft mikið af sykri, og hann er ekki
góð fæða á degi sem þessum.
12) Menn eru ekki á eitt sáttir um það hvort
kaffi og te séu æskilegir drykkir til að hressa fólk
viðá stundum sem þessari. Sumirmæla með þvíað
þeir þunnu fái sér sterkt kaffi eða te þar sem koff-
ínið geri gagn; aðrir segja að koffín sé það eina sem
briskirtillinn, lifrin og hjartað vilji alls ekki fá.
Flestir mæla með heitum og sætum drykkjum, til
dæmis hunangsdrykk eða heitum sítrónusafa með
miklum sykri.
13) Reykingar hafa örugglega sitt að segja og
ýta undir að líðanin næsta dag verður verri en ella.
Pað að reykja ekki nægir þó í fæstum tilvikum þar
eð reykjarkófið umlykur jafnt þá sem ekki reykja
og hina. Vart er þó hægt að mæla með að fólk neyti
aðeins áfengis innan um þá sem ekki reykja eða að
þeir komi sér upp sæti utan dyra í hvert skipti sem
þeir vilja fyrirbyggja timburmenn... Eða hvað?
Kannski er allt til þess vinnandi að losna við þessa
ömurlegu líðan sem þó aldrei verðúr ömurlegri en
svo að hún er gleymd næst þegar blandað er íglas-
ið.
Hvað gera þau?
Örugglega allir sem hafa orðið þunnir einhvern tíma eiga í
bakhöndinni ráð sem hjálpa þeim að komast í gegnum ,,dag-
inn eftir". Sumir drekka marga lítra af mjólk og fullyrða að
mjólk sé eina lækningin, aðrir breiða upp fyrir höfuð og neita
að fara úr rúmi og enn aðrir raða í sig mat. Við leituðum til
nokkurra aðila og báðum þá að gefa okkur ráð við þynnku.
GÖÐUR SVEFN, MIKIL VINNA
„Besta ráðið til að fyrirbyggja þynnku er auðvitað að drekka
minna kvöldið áður!" sagði Guðvarður Gíslason veitinga-
maður. ,,Eg hef líka trú á þvi að það sé gott að drekka nógu
mikið af vökva til að hreinsa út þann sem maður áður lét ofan
í sig. Góður svefn held ég að skipti miklu máli. Gott ráð er að
hafa nógu mikið að gera í þynnkunni, vinna svo mikið að mað-
ur gleymi henni."
SOFA, BORÐA, GANGA
,,Ég verð nú eiginlega aldrei timbruð," sagði Sóley Jóhanns-
dóttir danskennari. „Mitt ráð er hins vegar það, að ef maður
er timbraður sé best að sofa áfram. Liggja i rúminu eins lengi
og kostur er, enda hefur enginn gott af að hafa þann þunna ná-
lægt sér! í þau fáu skipti sem ég hef orðið timbruð hef ég notað
þetta ráð fyrst og fremst. í öðru lagi færi ég út í góða gönguferð
og fengi mér síðan góða máltíð, eitthvað sem fyllir magann
vel. Vatn er það sem timbraðir eiga helst að forðast!"
AÐEINS EITT RÁÐ
„Já, ég veit um eitt gott sem kemur algjörlega í veg fyrir
þynnku," svaraði Sigurður Sigurjónsson leikari án umhugs-
urnar. „Að hætta að drekka!"
27
KYNLÍF ER BESTA LÆKNINGIN
„Það fer auðvitað eftir því á hvaða stigi timburmennirnir eru
hvaða ráð duga best," sagði Ragnhildur Gísladóttir tónlistar-
maður. „Mér hafa gagnast tvær aðferðir einkar vel. Önnur er
sú að hlaupa úti og hin er að stunda rækilegt kynlíf. Það er
heilsubætandi og læknar timburmenn á augabragði. Þegar
fólk er timbrað vill það helst borða einhvern ruslmat, en það
er ekki viturlegt. Best er að drekka nóg af grænmetissafa eða
heita drykki sem renna vel í gegn."
KOKKTEILL SEM LÆKNAR
Eiríkur Jónsson, dagskrárgerðarmaður hjá Aðalstöðinni,
sagðist þurfa að fletta upp sínu ráði. Þetta var meint í fúlustu
alvöru, ráðið hans Eiríks er nefnilega breskur „töfradrykkur".
Þessi hristingur segir hann að heiti „Prairie Oyster Cocktail"
og uppskriftinni fylgi að hann beri að blanda í kokkteilglas.
„Þessa uppskrift fékk ég hjá gömlum manni fyrir mörgum
árum," segir Eiríkur, „og þetta er ráð sem dugar." Uppskriftin
er svona:
I msk. ensk sósu (Worceslershire) setl í kokkteilglas
1 heil eggjuruudu lútin fljótu ofun ú sósunni
Strúiö sulti og puprikudufti yfir.
Hellió einni teskeid uf ediki yfir og
fyllid sídun glusid uf muturolíu.
Þessum drykk á að skella í sig í einum sopa. Skolið niður
með vatni. „Ef maður skolar þessu strax niður með vatni verð-
ur ekkert bragð eftir," lofar Eiríkur.
eöa
I