Pressan - 18.01.1990, Side 29

Pressan - 18.01.1990, Side 29
<59 Fimmtudagur 18. jan. 1990 f Cr i~. ci P. f spáin 18. — 22. janúar (21. murs—20. uprilj Þetta er timi nákvæmninnar, allir samnmgar veröa aö skoöast af mikilli vandvirkni og ein- stakri nákvæmni. Gættu aö oröum þínum því fólk kann aö leitast viö aö mistúlka þau, ef nokkurt.færi gefst á. Mikilvægt er þó aö mæta öllu meö bros á vör og sýna langlund- argeö því óþarfa geðshræringar gera eng- um gott. (21. upril—20. muí) Þaö sem virtist glatað má ef til vill endur- heimta. Þaö er ýmislegt sem bendir til þess aö svo sé, leitaðu aö vísbendingum þessa efnis. Leggöu þig fram í vinnunni, reyndar viö hvaö sem þú tekur þér fyrir hendur. Gættu aö því aö í ástarsamböndum er aldrei nægjanlegt aö hrífast einvöröungu líkam- lega af ástvininum. (21. mui—21. júni) Láttu ekki koma þér á óvart, þú mátt búa þig undir breytingar, ferðalag, tilbreytingu af einhverri gerö. Börn munu spila stóra rullu i lífi þínu næstu daga en kannski á annan hátt en helst væri viðbúið. Hafiröu löngun til aö beita persónutöfrunum í boöi eöa sam- kvæmi ætti þér aö ganga allt í haginn. Þaö verður ekki annaö séö. (22. júní—22. júli) Allar likur eru á aö þú verðir aö laga þig aö ákveðnum breytingum heima fyrir. Þaö er ekki alveg Ijóst hvort þær veröa góöar eöa slæmar þessar breytingar, líklegast er þó aö þær veröi í sambandi viö einhverja fegrun á heimilinu, listmuni eöa rándýran hlut annan. Þú ættir aö huga aö veskinu i þessu sam- bandi, kannski líka hvort þú getur ekki skorið niöur i eigin neyslu ef þér finnst viökomandi hlutur of dýr. (23. júlí—22. úífúst) Einhverjar upplýsingar sem þér berast munu veröa til að rugla þig i ríminu, enda eru þær misvísandi. í slíkum tilfellum er best aö gera sem minnst í málinu, þar til allt er kom- iö sæmilega á hreint, þaö getur veriö býsna afdrifaríkt aö taka ákvöröun í erfiðu máli þegar allar staöreyndir liggja ekki fyrir. Þessi heimspeki, ef heimspeki má kalla, mun borga sig á endanum, jafnvel þó frestun á ákvörðun kalli á streitu. (23. úyúst—23. sept.) Þú ert milli tveggja elda, sennilegast eru þaö tvær ólíkar manneskjur sem toga í þig, hvor í sína áttina. Haltu þig frekar viö þaö sem þú þekkir fyrir, þaö er alltaf öruggara, hiö óþekkta gæti líka verið fjárfrekara en þaö gefur sig út fyrir í fyrstu, sennilegast f járf rek- ara en þú ræöur viö. Varúö er best í öllu. (23. sepl.—24. okt.) Nú fer eitthvað aö gerast. Þaö sem menn höföu taliö glataðan málstaö veröur skyndi- lega þess viröi aö berjast fyrir aftur og þú lendir í sviðsljósinu, jafnvel í fjölmiölum út af málinu. Þú færö einstakt tækifæri til aö viöra skoðanir þínar og gáfur í opinberri umræðu, tækifæri sem kannski er eins gott aö nýta vel. Þaö er ekki víst aö þaö komi aftur. (24. okt.—22. nóu.) Líklegt er aö þú komist aö ýmsu um sjálfan þig þessa dagana, sem kannski var hulið áö- ur. Þú kemur til meö aö skilja betur hvar þú stendur í ýmsum málum. Þess vegna er rétt aö beina athyglinni aö þeim markmiöum sem þú stefnir aö, ástæöunni fyrir því og því sem drifur þig áfram. Þú kemst aö kjarna málsins þegar á líöur og líklegt er aö einhver manneskja, töluvert yngri en þú, hafi mikil áhrif á hvaöa ákvöröun þú tekur á endanum. (23. nóu.—21. des.) Einhverjar likur eru á, og þaö töluvert góöar, aö þú lendir í þeirri aöstööu aö taka snjalla ákvöröun i erfiöu máli og aö yfirmaðurinn taki vel eftir þvi. Hann veröur ánægöur, sem mun leiða til farsældar fyrir þig. I kjölfariö veröa einhverjar kröfur sem þú hefur sett fram líklegast samþykktar. (22. des.—20. jun.) Kryddið í tilveruna þessa dagana veröur aö koma frá eigin brjósti og hyggjuviti. Frum- leiki borgar sig afar vel í samskiptum viö annað fólk, sem og þegar einhvers konar samkunda þarfnast skipulagningar viö. Þér gengur vel og þú nýtur þess, jafnvel þó þú eigir þér greinilega óvildar- og öfundar- menn. Láttu þaö ekki hafa áhrif, hjá því verö- ur sennilegast ekki komist. (21. junúur—19. febrúur) Þaö má hiklaust mæla meö ferðalagi af ein- hverri gerö, stuttu eöa löngu. Hverskyns vikkun á sjóndeildarhring ætti aö veröa til góös en gættu þess jafnframt aö sækja ekki vatnið yfir lækinn. Ef allt gengur eftir mun þetta veröa til aö skapa betra jafnvægi milli vinnu og fritíma en áöur hefur veriö. (20. febrúur—20. mars) Líklegast er aö efnisheimurinn veröi þér afar hugleikinn næstu dagana, og ekkert bendir til þess aö þaö muni veitast þér illa aö leggja áherslu á efnisleg veraldargæöi umfram andleg í bili. Hinsvegar gengur þaö ekki til lengdar. Þaö er öllum kunnugt og ætti aö vera þér líka, maðurinn lifir ekki á brauöi einu saman. i framhjáhlaupi Árni Johnsen blaöamaöur Garðyrkjumaður á tunglinu — Hvaða persóna hefur haft mest áhrif á þig? ,,Séra Halldór Kolbeins, Broddi Jóhannesson og Matthí- as Johannesen." — Án hvers gætiröu síst ver- ið? „Góörar heilsu og tjáskipta viö fólk." — Hvað finnst þér leiðinleg- ast? „Ekkert." — En skemmtilegast? „Aö vera til og leysa hiö erfiöa og óvænta." — Manstu eftir einhverri ákvörðun sem breytti miklu fyrir þig? „Pólitískum hrossakaupum." — Við hvað ertu hræddur? „Fals." — Hver er tilgangurinn með lífinu? „Aö skila árangri." — Ef þú þyrftir að skipta um starf, hvað vildiröu helst taka þér fyrir hendur? „Eitthvaö á bilinu frá þvi aö vera trillukarl til þess aö vera garöyrkjumaöur á tunglinu." — Hvaö er betra en kvöld- stund í góðra vina hópi? „Góöur árangur í dagsins önn." draumar Hátta og sofa helst ég vil hvergi ofan kreika. Blunds af dofa dinglar til draumastofan veika. í þessari viku: Kona fædd 23.7. 1965 Þetta er hrifnæm, ástríðufull og tilfinninganæm kona. Hún er fremur glaölynd aö eölisfari, þó skapið geti raunar veriö sveiflu- kennt, og hún er dálítið klók. Hún er aö öllum líkindum mjög „um- svermuö" af gagnstæöa kyninu, en á erfitt meö að gera upp hug sinn í þeim efnum. Hennar áhrifaríkustu ár sem konu veröa eftir 30 til 35 ára aldur. Mér sýnist konan hafa orðið fyrir einhverju áfalli á seinni hluta barnsaldurs eöa snemma á unglingsaldri. Kannski var þetta VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM LÓFA? Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af hægri lófa (örvhentir Ijósriti þann vinstri) og skrifaðu eitt- hvert lykilorö aftan á blöðin, ásamt upplýsingum um kyn og fæðingardag. Utanáskrift: PRESSAN — lófalestur, Ármúla 36, 108 Reykjavík. þó ekki alvarlegra en svo að hún hafi þá verið haldin mjög miklum leiöa eöa áhugaleysi, t.d. vegna þess aö hún var ósátt viö um- hverfi sitt. Þaö uröu líka tölu- verðar breytingar á fjölskyldu hennar eöa heimilislífi þegar hún var 19 til 23 ára gömul. Og siö- asta ár, 1989, var afar umbreyt- ingasamt fyrir hana. Þessi kona hefur sterkt ímynd- unarafl, en verður raunsærri meö árunum. Hún gæti búiö yfir einhverjum listrænum hæfileik- um. Þegar hún er 23 til 26 ára veröa miklar breytingar á starfi og starfsstefnu konunnar, þ.e. á árunum sem nú eru framundan. Einnig virðist hún eiga eftir aö flytja, u.þ.b. á árunum 1996—7. Ég ætla nú aö reyna að ráöa aö einhverju leyti draum sem okkur var sendur fyrir jól. Aö ekki hefur orðið af þessu fyrr afsakar maður aö sjálfsögðu með jólaannríki. Dreym- andinn nefnir sig Jakob. Sem sagt, Jakob: Slagsmál eru alltaf fyrir erf- iðleikum eða veikindum. Að þú flúðir frá þeim bendir til þess að þú sleppir út úr erfiðleikunum en þó ekki eins vel og æskilegt hefði verið, þar sem þú varðst að stökkva út í óvissuna. Að þú síðan kemur í lík- hús sýnist mér því miður benda til þess að vonir þinar deyi. Öllu flóknara er að ráða í merk- ingu höfðanna sem þér þóttu ekki heyra til neinum líkama. Ýmsar ráðningar eru í gangi um þess háttar drauma. Sumir segja það fyrir dauðsföllum og slysum. Að dreyma að maður sjálfur eða einhver sem maður þekkir missi höfuðið er sagt Gamall húsgangur fyrir því aö hann sjái á bak þeim sem hann telur vera höfuð ættarinn- ar, héraðsins eða jafnvel landsins. Sbr. einnig orðatiltækið höfuðlaus iier. En í þínu tilfelli var ekki um að ræða höfuðlausan her, heldur herra- laus höfuð, þannig að nærtækt virð- ist að álykta að þú missir trúna á það sem þér hefur áður þótt vera höfuð- mál eða aðalatriði. Það væri gaman að lesendur sem dreymt hefði ein- hverja svipaða drauma sendu inn sínar ráðningar eða ráðningar sem þeir kynnu að hafa heyrt. Ef ég má vera svo sjálfsánægð að benda ykkur á Islensku drauma- ráðningabókina, sem ég tók saman ekki alls fyrir löngu, þá er þar skemmtileg frásögn merkt Stökk. Þar segir draumspök kona frá draumi sínum um stökk og ráðn- ingu hans. En mjög fáar ráðningar eru algildar, persónuleg viðhorf setja oft lit á tákn draumanna. Jakob, þetta verður erfiður tími, en ég held að þú spjarir þig.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.