Pressan - 18.01.1990, Blaðsíða 32
PRESSU
^^^amkomulag mun nú vera í
burðarliðnum á milli Landssam-
bands hestamannafélaga og Þrá-
ins Bertelssonar kvikmyndagerð-
armanns um að líann taki að sér út-
gáfu á tímaritinu Hesturinn okkar.
I>ó l’ráinn sé kannski þekktastur
sem kvikmyndagerðarmaður er
hann ekki alveg ókunnur á þessu
sviði, því eins og enn er í fersku
minni var hann ritstjóri Þjódviljans
um skeið. Þráinn er kunnur hesta-
maður og er m.a. í ritnefnd tímarits-
ins Eiðfaxa. Kkki er ólíklegt að Þrá-
inn leiti til Gísla B. Björnsson aug-
lýsingamanns varðandi útlit blaðs-
ins og fleira. Verði af því verður
hönnun tímaritsins vaentanlega eitt
af verkefnum nýrrar auglýsinga-
stofu, sem við heyrum að Gísli ætli
að opna, en hann seldi fyrir
skömmu lilnt sinn í G.B.B. Auglýs-
ingaþjónustunni . . .
HftÉiklu skiptir hvort
stóðhestar á Stóðhestastöð ríkis-
ins í Gunnarsholti fá einkunnina
8,0 eða meira, þvi þá fá þeir 1. verð-
laun sem kynbótagripir og seljast
oft á háu verði. Hestar með 2. verð-
laun seljast ekki jafnvel og á mun
lægra verði. A undanförnum árum
hafa t.d. verið seldir tveir folar frá
Laugarvatni, Pá og Angi, og var
samanlagt söluverð þeirra vel á
sjöttu milljón króna. Hestarnir
höfðu verið dæmdir í Gunnarsholti
og voru báðir í éigu sona Þorkels
Bjarnasonar, en hann er einmitt
einn þeirra, sem gefa þeim einkunn-
ir. Þess má geta að Pá var seldur úr
landi, en Angi f<>r til kaupanda inn-
anlands . . .
lÍylega var birtur listi yfi'r þau
hestfolöld, sem í haust voru valin
inn á Stóðhestastöð ríkisins í
Gunnarsholti. Mikla athygli hefur
vakið meðal hestamanna að í fyrsta
skij>ti í mörg ár völdu stjórnarmenn
stöðvarinnar ekkert folald frá sjálf-
um sér, en það var mikið gagnrýnt
i vor sem og að þessir sömu aðilar
væru síðan fengnir til að gefa hest-
ununi einkunnir. Heimildir úr röð-
um hestamanna segja varla tilviljun
að breyting verði á vinnubrögðum
einmitt nú, eftir opinbera gagnrýni
sem m.a. birtist hér í Pres;jimiri á sí<V
asta ári ... 1
\
Sú saga gengur nú um bæinn að
Atla Rúnari Halldórssyni, frétta-
manni ríkisútvarpsins, hafi verið
hótað uppsögn vegna umfjöllunar
lians uin útgerð Andra hf. síðustu
daga. Kkki mun ver;i neinn fötur
fyrir þessari sögusögn. Hins vegar
greip inn sig mikill „titringur"
*
vegna frétta Atja Rúnars, en á ýms-
um öðrum stöðum j þjóðfélaginu en
á ríkisútvarpinu .
b.........
son, fréttamaður á Stöð 2, hverfa af
skjánum um nokkurra mánaða
skeið. Þórir hefur haft erlendar
fréttir á sinni könnu og nú ;etlar
hann að kynna sér hlutina betur af
eigin raun með |)ví að dvelja í hálft
ár í Austur-Evrópu. Þegar dvölinni
þar lýkur leggst hann síðan jafnvel
í ferðalög enn austar ...
o
^•^ftir að ljóst Iiggur fyrir að nýr
meirihluti stjórnar hefur verið
myndaður á Stöð 2 þykir augljóst
að næsti stjórnarformaður Stöðv-
ar 2 og jafnframt talsmaður kaup-
mannahópsins verði Jón Olafs-
son, fyrrum stjórnarformaður Is-
lenska útvarpsfélagsins, sem rek-
ur Bylgjuna . . .
I
nýjustu markaðsspá Hag-
vangs kemur fram að ríkisútvarp-
ið skarar fram úr hvað útvarpshlust-
un varðar. Þar hefur rás 1 vinning-
inn, 30% hlustun, næst kemur rás 2
með 2(i% hlustun. Þriðja útvarps-
stöðin í röðinni reyndist vera Bylgj-
an með 17% hlustun og loks Aðal-
stöðin með 15%. Utvarpsstöðin
Stjarnan koinst vart á blað í könn-
un þessari. Athygli vekur útkoma
Bylgjunnar, því í könnun af sama
tagi í janúar 1989 var Bylgjan lang-
efst, með 32% hlustun . . .
largir eru ósáttir við að
þurfa nú að greiða 5000 krónur fyr-
ir heimsókn til sérfræðings, hafi
þeir ekki meðferðis tilvísun frá
heimilislækni/heilsugæslu-
læknir. Kn það þurfa fleiri en sjúkl-
ingar að leggja fram háar fjárhieðir.
Læknar þurfa nú að greiða 50.000
krónur fyrir læknisleyfið, sem kost-
aði eitthvað í kringum 5000 á síð-
asta ári, Þeir læknar og tannlæknar
sem luku námi erlendis en höfðu
ekki íengið leyfið fyrir áramót þurfa
því nú að greiða sem svarar 1.150%
liierra verð fyrir starfsleyfið . . .
k
■ostnaðurinn við að stoína
hlutafélag hækkaði heldur betur
um síðastliðin áramót, l-'ram að
þeim tíma urðu stofnendur að
greiða 6 þúsund krónur, en eftir 1.
janúar hækkaði upphæðin i heilar
100 þúsund krónur. Það er því
ekki ólíklegt að einhverjir liugsi sér
gott til glóðarinnar og dusti rykið af
..skúffufyrirtækjum'", sem einungis
liafa verið nafnið eitt árum saman.
Það mætti a.m.k. hugsa sér að ein-
liver vildi spara sér peninga og
kaupa t.d. fyrirt;ekjanafn á 50 þús-
und krónur eða svo . . .
lenn eru greinilega tölu-
vert að velta fyrir sér muninum á
gamla söluskattinum og nýja
virðisaukaskattinum — m.a. með
lilliti til þess hvor skatturinn gefi
meiri möguleika á svindli. Við frétt-
um t.d. í vikunni að einhverjir hefðu
komið auga á að hugsanlega væri
hægt að selja fyrirtækjum kvittanir
fyrir greiðslu á vörum eða þjónustu
— kannski fyrir svo sem 5% af upp-
hæðinni — ef viðkomandi kaupandi
hefði sjálfur ekki möguleika á að
nýta þær til þess að fá virðisauka-
skattinn endurgreiddan. Þar með
gæti fyrirtækið fengið 24,5% endur-
greidd írá ríkinu og báöir aðilar
græddu á uppátækinu. Það er hins
vegar annað mál hvernig fólki liði á
samviskunni, sem tæki upp á svona
löi|uöu . . .
fllVORU ^ fl GOIFEFNUM!
15-60% AFSLÁTTUR
TEFFI - DÚKAR - FLÍSAR
GÓLFTEPPI 15-30% AFSLÁTTUR
Dæmí: Master Píece kanadísk stofuteppí. Áður kr. 2.593,- m2
100% polYamid - biettavarin.________Ná aðeins kr. 1.945,- m‘
PARKET - GÓÐUR STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Á meðan útsalan stendur bjóðum víð afslátt á norska gæðaparketínu frá Boen.
Uppáhaldsparket allra fagmanna. Sértílboð: bírkí. Verð áður kr. 3.904,- m2
________________________________________Verð nú kr. 1.92S m2
GÓLFDÚKAR 15% 23% VERÐLÆKKUN
Allír Armstrong-dúkar lækka um 15% á útsölunní. Armstrong þarf ekkí að lima.
Dæmí: Harmony. Verð áður kr. 990 ,- m2
__________________________________________Verð nu kr. fQÓ,' m2
FLÍSAR - ALLT AÐ % AFSLÁTTUR Á AFGANGSFLÍSUM
ítalskar og spánskar gólf- og veggflisar i 1. gæðaflokkí. Fallegar og ódýrar. Öll hjálparefni
og fagleg ráðgjöf. Dæmí: Altopíano. Verð áður kr. 1.904,- m2
Verð nú kr. 1.240,- m2
STÖK TEPPl, MOTTUR OG DREGLAR MEÐ 15-25% AFSLÆTTI
DÚKAR OG TEPPl:
Afgangar og bútar á heíl herbergí og mínní fletí með ■—60% afslættí.
Hafið málín með ykkur. Það sparar ykkur tima og fýrírhöfn.
Þið getíð sparað þúsundir á útsölunní hjá okkur.
Mýtt
*°«a.
Eeuro
1 KRIrDIT
I euocx^ard .
V/LDARKIOR 1
V/SA
JLUTÆKIFÆRIÐ!!!!!
Sértílboð!!!!!!!!
STÓRAFSLÁTTUR
FYRIR STIGAHÚS
Zephyr - amerisk nælonteppí
Verð áðor kr. 1.746,- m2
Verð nú kr. 1.295,- m2
Samkort
GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S-91 681950