Pressan - 15.03.1990, Síða 7
7
Fimmtudagur 15. mars 1990
eitt tímaritið bætist bráð-
lega í fjölmiðlaflóruna. Það er fyrir-
tækið Frjáls markaður, sem ætlar
að gefa út nýtt mánaðarrit um mat
og matreiðslu og hefur því verið gef-
ið nafnið Matkrákur mánaðarins.
Lögð verður áhersla á að gera
hvunndagsmat spennandi og er rit-
stjóri blaðsins Jóhanna Margrét
Einarsdóttir, blaðamaður á DV.
Önnur Jóhanna, þ.e. Jóhanna
Birgisdóttir, er hins vegar á förum
frá Frjálsum markaði. Hún hefur rit-
stýrt blaðinu Barninu þínu, en
mun nú hafa ráðið sig til ríkisút-
varpsins . . .
^Íyrir skemmstu skoruðu tutt-
ugu arkitektar á Arkitektafélag
Islands að halda opinn fund um
fyrirhugaðar breytingar á sal
Þjóðleikhússins. Stjórn félagsins
varð við þessari áskorun og boðað
var til fundarins síðastliðið
fimmtudagskvöld, 8. mars. Þá bar
hins vegar svo við að húsameistari
ríkisins og byggingarnefnd
Þjóðleikhússins sáu sér ekki fært
að mæta til fundarins og var honum
því frestað. Þessir aðilar áttu að út-
%
skýra fyrirhugaðar breytingar en
þar sem fundartími var ekki ákveð-
inn í samráði við þá þótti mönnum
þeir hafa haldbæra afsökun. Var þá
tekið til bragðs að bíða með fundar-
haldið þar til búsameistari og aðr-
ir sem stórt hlutverk spila í máli
þessu gætu mætt...
rá Minneapolis barst i síðasta
mánuði bréf frá bókaútgáfu sem
hyggst gefa út bók um ísland í
myndum. Bókaútgáfa þessi sérhæf-
ir sig í útgáfu barnabóka og hefur
óskað eftir því við Blaðamannafélag
íslands að það hafi milligöngu um
að útvega Ijósmyndir héðan, jafnt
landslagsmyndir sem myndir úr
daglegu lífi almennings ...
Þ
að er ekki ofsögum sagt af
grasrótar-lýðræðinu í Kvennalist-
anum. í nýjasta fréttabréfi samtak-
anna er t.d. lýst eftir konu, sem hafi
áhuga á að fara fyrir hönd listans á
ráðstefnu til Skotlands. Ferðir og
uppihald er greitt fyrir viðkomandi
konu en í öðrum flokkum er slíkum
„bitlingum" ráðstafað eftir öðrum'
leiðum. Einnig er í sama fréttabréfi
lýst eftir „kosningastýru" fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar í Reykja-
vík með umsóknarfrest til 15. mars,
en samsvarandi stöður í fjórflokkun-
um sjást ekki auglýstar lausar til um-
sóknar með þessum hætti...
Leiðrétting
í mola í síðustu viku var rang-
hermt að Hagskipti hf. hefðu skipt
um nafn. Hið rétta mun vera að hlut-
hafar í Hagskiptum eiga einnig í fyr-
irtækinu Fjárskiptum hf., en mark-
mið þess fyrirtækis eru önnur en
Hagskipta hf.
TIL SÖLU
er m/s BALDUR frá Stykkishólmi, skipaskrárnúmer 994.
Skipið selst í því ástandi sem það er í í dag.
M/s BALDUR er smíðað 1966, 196 brúttótonn með
tveimur aðalvélum, samtals 640 hestöfl.
Skipið afhendist í vor eftir að ný ferja tekur við áætlun
yfir Breiðafjörð.
Allar nánari upplýsingar verða fúslega veittar af fram-
kvæmdastjóra, bréflega eða í síma 93-81120.
Tilboð sendist stjórn Flóabátsins Baldurs hf., Stykkis-
hólmi, fyrir 23. mars 1990.
Ódýr hádegismatur
alla virka daga
frá kl. 12—2.
1. Hamborgari dagsins
m/frönskum og salati kr. 490
2. Samloka dagsins
m/frönskum og salati kr. 395
3. Kjötréttur kr. 580
4. Fiskréttur kr. 580
Súpa fylgir.
Elskum alla þjónum öllum
s. 689888
AÐALSTOÐIN
AÐALSTRÆTI 16-PÓSTHÓLF 670« 121 REYKJAVÍK • SÍMI: 62 15 20-AUGLÝSINGASÍMI 62 12 13