Pressan - 15.03.1990, Síða 12

Pressan - 15.03.1990, Síða 12
12 Fimmtudagur 15. mars 1990 NEYTENDUR YAKNA TIL LlFSINS Tannstönglar, fföt og fjölbýlishús. Kvörtunardeildin hjú Neytendasamtök- unum er „Þjóðarsál## neytendanna. Sið- ustu þrjú árin haffa þúsundir íslendinga vaknað til vitundar um réttindi sin á neytendamarkaðnum. Kvörtunum ffjölg- ar stöðugt. „Við þyrfftum að geta svarað i marga sima i einu,## segir Elffa Björk Benediktsdóttir i kvörtunardeildinni. 15. mars er alþjóðlegúr neytenda- réttardagur. íslendingar voru meðal fyrstu þjóða sem stofnuðu neyt- endasamtök en þau voru stofnuð hér árið 1953. Lengi var þetta lítill félagsskapur en nú hefur færst líf í leikinn og skráðir félagar samtak- anna eru um 14 þúsund en voru inn- an við fimm þúsund fyrir þremur ár- um. Neytendablaðið kom fimm sinnum út á síðasta ári. Dónaskapureða heilbrigð skyn- semi? „Ég finn mun á því hvað okkur er betur tekið nú en fyrr,“ segir Elfa Björk. „Yfirleitt finnum við leiðir til samninga án þess að slá í borðið. í mörgum tilfellum getum við ekki vitað hver hefur rétt fyrir sér, því oft er það kunnáttuleysi í mannlegum samskiptum sem veldur. Fólk er að æsa sig upp úr öllu valdi yfir ein-, hverju sem ekkert er. Stundum gæt- ir þó vissrar tortryggni og nei- kvæðni í okkar garð við fyrstu kynni en það breytist þegar menn fara að þekkja okkur. Auðvitað eig- um við í höggi við ákveðna skúrka, en ég get ekki sagt að neitt svið eða nein stétt skeri sig sérstaklega úr,“ segir Elfa Björk og vill ekki hengja upp skúrkana. Mest kvartað yfir fatnaði Ef bornir eru saman janúar og október á síðasta ári kemur í Ijós að nær tvöfalt fleiri neytendur hringdu og kvörtuðu í október. Síðan í októ- ber hafa enn fleiri haft samband en sökum mikils annríkis hefur starfsfólkið á kvörtunardeildinni ekki haft tíma til þess að skrá öll EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR - MYND: EINAR ÓLASON símtölin. Tiltölulega fáir kvarta und- an mat, bæði hvað varðar merkingu og gæði, þó ýmsu sé ábótavant í þeim efnum. „Flestir kvarta yfir fatnaði, ef gölluð sending er í um- ferð hringja stundum nokkrir vegna sömu sendingar," segir Elfa Björk. Biblíufræðin duga ekki . „Þá er þú selur náunga þínum eitthvað eða þú kaupir eitthvað af náunga þínum, þá skulið þér eigi Annríkið < cIaAiih# „Fastir kúnnar eða nöldur- skjóður eru sjaldgæf og oft hafa menn mikilvæg mál fram að færa," segir Elfa Björk Benediktsdóttir. sýna hver öðrum ójöfnuð," III. Móse- bók 25. Þessi orð Mósebókar gerir Neytendablaðið frá 1964 að sínum, enda má segja að ef allir færu eftir þessu væri mikið unnið í málefnum neytenda. En því fer fjarri. Elfa Björk Bene- diktsdóttir segir að Islendingar séu ekki vel á veg komnir miðað við önnur Norðurlönd, til dæmis hvað varðar vörumerkingu. „En núna er loksins eitthvað farið að gerast í þessum málum hér á landi og þess vegna erum við ánægð," segir Elfa. Neytendablaðið hefur komið út frá stofnun samtakanna og er eitt elsta blað sinnar tegundar þó víða væri leitað. Blaðið hefur snemma gert sér grein fyrir vandamálum neysluþjóðfélagsins og þar segir í grein nr. 3 1964: „Alltof margir menn nota nú á dögum peninga, sem þeir ekki eiga, til að kaupa hluti, sem þá vantar ekki, til þess eins að þóknast fólki, sem þeir gera grín að." Alls bárust Neytendasamtökun- um 4.823 kvartanir á árinu 1989. Kvartanir í október voru nærri helmingi fleiri en í janúar. Yfir þessu kvörtum við mest: Jan. Okt. Fatnaður 59 122 heimilistæki 55 76 húsgögn og innréttingar 29 62 hreinsun 6 59 bílar, hjól og bátar 15 50 ferðalög 16 45 allt milli himins og jarðar 92 220 Sökum annríkis og frumstæðra vinnuaðstæðna hjá Neytendasam- tökunum er skráin ónákvæm en töl- urnar væru hærri ef allar kvartanir hefðu verið skráðar. Athugasemd Slúðurdálkur í síðustu Pressu var ur númerið 6.2 innan fjárlagagrein- lagður undir lítt grundaða frásögn af gangi mála við áskriftir ríkisins að dagblöðum, og er mitt nafn þar nefnt sem einhverskonar hæstráð- anda sem deili út blaðabunkum og drottni yfir fjárhag illa staddra dag- blaða. Þetta er síðan tengt fyrri störfum mínum á því ágæta mál- gagni Þjóðviljanum með undarleg- um hætti. Mér er ekki Ijóst hvað knýr blaðið til þessara skrifa. Eg veit hinsvegar af reynslunni að á fjöimiðlunum vinna menn undir pressu af ýmsu tagi. Og álagið verður stundum svo mikið að ekki gefst færi á að afla ná- kvæmra upplýsinga: Þessvegna þetta: Alþingi samþykkti fyrir jólin til- lögu Páls Péturssonar og fleiri að bæta inn í fjórðu grein fjárlaga nýj- um lið þar sem fjármálaráðherra var heimilað að kaupa allt að 500 eintökum af hverju dagblaði „fyrir skóla, sjúkrahús og aðrar þjónustu- stofnanir ríkisins". Þessi heimild hef- arinnar, en undir lið 6.1 er önnur heimild sem staðið hefur í fjárlögum undanfarin ár um kaup 250 dag- blaða fyrir „stofnanir ríkisins". Ráðherra ákvað að nýta þessar heimildir og eru því frá 1. febrúar keypt 750 eintök af hverju dagblað- anna sex á reikning fjármálaráðu- neytisins. Þegar sú áskriftaraukning sem löggjafinn samþykkti kom til framkvæmda var Ijóst að það yrði að endurskipuleggja áskriftirnar. Al- þingi greinir í fjárlögum skýrt á milli „stofnana ríkisins" og „skóla, sjúkrahúsa og annarra þjónustu- stofnana" í þessu tilliti. Við fram- kvæmdina var því ákveðið að 250 eintök færu til alþingis, alþingis- manna, ráðuneyta og nokkurra helstu stjórnstofnana, en 500 eintök skiptust á alla skóla landsins, sjúkra- hús og heilsugæslustöðvar. Örfáum eintökum var einnig ráðstafað til nokkurra rannsóknar- og þjónustu- stofnana í íslenskum fræðum. Forsvarsmönnum þeirra ríkis- stofnana, skóla og sjúkrahúsa sem hér um ræðir var sent bréf frá fjár- málaráðuneytinu, undirritað af Þór- halli Arasyni skrifstofustjóra. í því bréfi var beint þeim tilmælum til forsvarsmannanna að þeir nýttu þennan blaðakost eins og þeir teldu best henta starfsemi sinni, — og þeir voru einnig beðnir að haga áskrift- armálum sínum í samræmi við nýja skipan. Auðvitað er ekki ætlast til þess að ríkisstofnun sé áskrifandi að tveimur eintökum af sama dagblaði ef eitt eintak dugar, og ætti slikt ekki að þurfa að vefjast fyrir mönnum á þeim sérstöku aðhalds- og sparnað- artímum sem nú eru uppi í ríkis- rekstri og annarstaðar í samfélag- inu. Skrá um þær áskriftir sem fjár- málaráðuneytið greiðir fyrir er op- inbert gagn og öllum heimil sem eft- ir óska. Dagblöðunum, þar á meðal Pressunni/Alþýðublaðinu, ættu að vera hæg heimatökin, því að sjálf- sögðu er skráin til á afgreiðslum þeirra. Starfsmenn i fjármálaráðuneytinu hafa unnið að þessum málum í fullu samræmi við vilja löggjafans og án nokkurra annarra sjónarmiða en þeirra faglega staða gefur tilefni til. Um leið og upplýst er um alla þætti þessa áskriftarmáls hlýt ég þessvegna að biðjast undan því að starfsferli minum á Þjóðviljanum og annarstaðar sé blandað hér inn eða ráðuneytinu gerðar upp annarlegar forsendur við þessa framkvæmd. Mörður Arnason kaup ríki <lr 250 e dag í 75( renna tj/ 'yrirtækj; .senda ölj.l - aö-anna j Merdj Árr. kvdem a t samþyidj,^ ekki við :

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.