Pressan - 15.03.1990, Síða 21
Fimmtudagur 15. mars 1990
21
Rætt við Laufeyju Jóhannsdóttur og Skúla Gunnar Böðvarsson hjó ferðaskrifstofunni Alís í Hafnarfirði
AUSTUR-EVROPA ER FRAMTIÐIN
Laufey Jóhannsdóttir hjá Alís: „Austur-Evrópa heillar marga."
í Hafnarfirði er starfandi ferðaskrifstofan Alís og
hefur verið það síðan árið 1987. Viðmælendur
Pressunnar, þau Laufey Jóhannsdóttir og Skúli
Gunnar Böðvarsson, segja viðskiptin sífellt vera að
aukast og að það sé ánægjulegt að sjá æ fleiri af
Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu skipta við skrifstofuna,
sem þau segja hafa upp á að bjóða ferðir til allra
þeirra staða sem aðrar skrifstofur bjóða upp á — og
meira til!
„Við erum meðal annars með
vikulegt leiguflug beint til Billund í
Danmörku í allt sumar. Þetta flug
hentar vel jafnt í tengslum við sum-
arhús í Danmörku en ekki síður sem
upphafsstaður í „Flug og bíl", því
Billund er jú á Jótlandi og þaðan er
stutt til Þýskalands og annarra
landa Evrópu.
Við erum í mjög góðum sambönd-
um í Danmörku, höfum búið þar og
höfum þar af leiðandi komið okkur
upp persónulegum tengslum við þá
aðila sem við skiptum við þar. Þessi
tengsl koma farþegum okkar svo að
sjálfsögðu til góða.
Það er alltaf mjög mikið um að
fólk ferðist til frænda vorra á Norð-
urlöndum og þá jafnt til að heim-
sækja þar vini og kunningja sem og
til að ferðast og kynnast þannig
landi og þjóð. Margt af þessu fólki
hefur komið í stuttar ferðir til ein-
hverra þessara landa og heillast af
þeim. Það er oft þetta fólk sem fer
þangað síðar með fjölskylduna í
lengri ferðir.
Rætt við Helga Jóhannsson, forstjóra Samvinnuferða-Landsýnar:
HÖFUM NÁÐ ÓTRÚLEGUM
SAMNINGUM
Samvinnuferðir-Landsýn eru ferðaskrifstofa sem
hefur þá sérstöðu á markaðnum að vera að mestum
hluta í eigu launþegahreyfingarinnar í landinu.
Langflestir vinnandi menn í landinu eru þar af leið-
andi óbeinir eigendur skrifstofunnar og því ætti
hún að leitast við að bjóða þeim sem hagstæðust
fargjöld. Pressan ræddi við forstjóra S-L, Helga Jó-
hannsson, og spurði hann hvort þetta hefði tekist í
ár?
„Það er hárrétt, ef einhver ferða-
skrifstofa á að styðja við bakið á
launþegum í landinu þá er það S-L
og við stöndum svo sannarlega und-
ir nafni, nú sem endranær. Stjórn
fyrirtækisins ákvað á sínum tíma að
verðið ætti að vera í algjöru lág-
marki og að við myndum þannig
leggja okkar af mörkum í kjarabar-
áttunni. Könnun sem Stöð 2 gerði
um daginn á verði sambærilegra
ferða með þremur stærstu skrifstof-
unum sannaði það svo ekki verður
um villst að okkur hefur tekist ætl-
unarverk okkar. Þar kom í ljós að
minnsti verðmunur á sambærileg-
um ferðum til Mallorka í byrjun
ágúst fyrir fjögurra manna fjöl-
skyldu var 70.000 krónur en mestur
var munurinn 90.000 krónur!
Það skal tekið skýrt fram að þessi
könnun var unnin alfarið af Stöð 2
sem tryggir hlutleysi hennar og að i
henni er miðað við ferðir sem eru
mjög raunhæfur valkostur fyrir
venjulega íslenska fjölskyldu. Ef
70—90.000 krónur eru ekki umtals-
verð kjarabót fyrir heimilin i land-
inu, þá er ég illa svikinn!
Það að við skulum ná þessum
árangri er náttúrulega meiriháttar
afrek út af fyrir sig. Við höfum tekið
reglulega mikið á og þótt hagstæðir
samningar við samstarfsaðila okkar
ytra eigi að sjálfsögðu stóran þátt í
verðinu, þá er ekki allrar skýringar-
innar að leita þar. Samvinnuferð-
ir-Landsýn eru deildaskipt ferða-
skrifstofa með innanlandsdeild, við-
skiptaferðadeild og hópferðadeild
og þar sem gífurleg aukning hefur
verið í komu erlendra ferðamanna á
okkar vegum hingað til lands að
undanförnu höfum við getað fært til
fé á milli deilda og þannig lækkað
verðið til félagsmanna okkar enn
frekar."
Stefnir í metár
í móttöku erlendra
ferðamanna
Þú minntist á innflutning erlendra
ferðamanna hingað til lands. Er
hann vaxandi þáttur í rekstri fyrir-
tækisins?
„Já heldur betur. Það stefnir í met-
ár í móttöku erlendra ferðamanna
og þá er ekki einungis verið að meta
stöðuna með hliðsjón af höfðatölu
heldur einnig með verðmæti far-
þeganna í huga. Ég tala um verð-
mæta farþega og þá á ég við fólk
sem kemur hingað til lands jafnt á
Helgi Jóhannsson, SL: „Höfum unnið afrek hvað verðlagningu
varðar."
ráðstefnur og aðrar styttri ferðir og
einnig fólk sem er að koma hingað
til að ferðast um landið með rútum
okkar eða bílaleigubilum, gistir á
okkar hótelum eða öðrum gististöð-
um, borðar mat sem við seljum
þeim og þar fram eftir götunum.
Þetta eru verðmætustu farþegarnir
sem hingað koma og með fullri virð-
ingu fyrir puttaferðalöngunum
blessuðu þá er ósköp lítið á þeim að
græða sem fá far með öðrum, koma
með mat að heiman og gista í tjöld-
um, þó vissulega eigi þeir sinn til-
verurétt einnig."
Framhald á nœstu síðu
Austrið heillar marga
Okkur sýnist að sú nýjung sem
mun ná hvað mestu fylgi í sumar sé
ferðir til Austur-Evrópu. Við verð-
um nú þegar vör við mikinn áhuga
fólks á ferðum þangað, sem von er.
Það sem við getum helst státað okk-
ur af í þeim efnum er að bjóða fólki
að hefja ferðina í Vín eða Salzburg
en þar höfum við náð mjög hag-
stæðum samningum á bílaleigubíl-
um. Þaðan er líka þægilegt að kom-
ast austur yfir.
Hafi fólk áhuga á slíkum ferða-
máta getur það heimsótt okkur og
við skipuleggjum með því ferðina,
bókum bílaleigubíl og hótel á þeim
stöðum sem hugurinn girnist. A síð-
astliðnum tveimur mánuðum hefur
reyndar átt sér stað sannkölluð bylt-
ing hvað varðar möguleika á hótel-
bókunum þar eystra.
Við bjóðum fólki t.d. upp á hótel
úr Best-Western-hótelkeðjunni sem
við höfum umboð fyrir, en hún er
þekkt gæðanna vegna í Vestur-Evr-
ópu og er nú óðum að hasla sér völl
austan við járntjaldið horfna. Það er
líka stórsniðugt að tvinna saman
ferð um Vestur- og Austur-Evrópu
og þá er ýmist hægt að vera á fyrr-
nefndum hótelum hvorum megin
sem dvalið er, eða gista á sveita-
kránum sívinsælu sem svo margir
þekkja t.d. frá V-Þýskalandi. Það er
hins vegar alls ekki ráðlegt að gista
á öðrum stöðum en viðurkenndum
hótelum í löndum Austur-Evrópu,
sérstaklega vegna málaerfiðleika,
en fæstir í þessum löndum tala
nokkurt annað mál en sitt eigið."
En er það fyrir hvern sem er að
feröast um þessi lönd?
„Það á að vera það já. Ástæðan er
fyrst og fremst sú að breytingarnar
sem átt hafa sér stað síðastliðna
mánuði eru slíkar að nú er ekkert
meira mál að fara milli þessara
landa en t.d. milli Þýskalands og
Sviss.
Verðlag i þessum löndum er sér-
staklega hagstætt og þó hótelverð
hafi hækkað nokkuð að undanförnu
Framhald á nœstu sídu