Pressan - 21.06.1990, Síða 5
Fimmtudagur 21. júní 1990
5
TEMPLARAHREYFINGIN Á ÍSLANDI:
Templarahreyfingin þykir forneskjuleg,
hefur misst megniö af félögum sínum og þykir hafa rœkt
útbreiöslustarf sitt illa. Á hinn bóginn
á hreyfingin verulegar eignir og stendur í
umtalsveröum rekstri.
Góðtemplarareglan á íslandi erímiklum öldudal
um þessar mundir. Fjármál hreyfingarinnar eru í
ágætum skorðum og talsvert um fasteignakaup og
framkvæmdir, en stúkustarfog útbreiðsla bindind-
isstefnunnar er í molum — þó ætla mætti að til-
koma bjórsins hefði haft hvetjandi áhrifá virknina.
Ráðamenn þjóðarinnar hunsa templara og þeir
sjálfir hafa ástundað innbyrðis deilur af miklum
móð hin síðari ár.
EFTIR: FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON
MYNDIR: EINAR ÓLASON O.FL.
Það þarf ekki að koma
nokkrum á óvart að templar-
ar skuli vera í vondu skapi um
þessar mundir. Þeir hafa orð-
ið fyrir áföllum og ósigrum.
Þar ber hæst tilkomu bjórsins
og fjölgun vínveitingahúsa úr
66 í 148 og áfengisútsala úr 9
í 16 milli áranna 1983 og
1989.
Ráðamenn fá það
óþvegið
Greinilegt er á orðum
templara að þeim finnst sem
ráðamenn þjóðarinnar taki
ekkert mark á hreyfingunni.
Fyrir ári lögðu forystumenn
hreyfingarinnar ákveðið
fræðsluverkefni fyrir Svavar
Gestsson menntamálaráð-
herra og Guðmund Bjarna-
son heilbrigðisráðherra.
„Ráðherrarnir tóku vel á
móti okkur, en engin svör
hafa borist frá þeim ennþá,"
segir í skýrslu fráfarandi stór-
templars, Hilmars Jónsson-
ar, fyrir stórstúkuþing fyrr í
þessum mánuði.
Og hann heldur áfram:
„Loforð forráðamanna um
auknar fjárveitingar til for-
varna og fræðslu hafa öll ver-
ið svikin samanber ferð stór-
stúkufólks til tveggja ráð-
herra, Svavars Gestssonar og
Guðmundar Bjarnasonar, þar
sem kynnt var fræðsluher-
ferð í yngri hluta grunnskól-
ans. Viðhorf heilbrigðisráðu-
neytisins speglast best í eftir-
töldum staðreyndum: Heil-
brigðisráðherra var einn
þeirra sem samþykktu sterk-
an bjór — á sama tíma kvaðst
hann vilja auka vatnsdrykkju
með skátum."
Og Davíð Oddsson borg-
arstjóri fær einnig kaldar
kveðjur:
„Hingað til hafa bindindis-
menn átt vinsamleg sam-
skipti við ráðamenn þjóðar-
innar bæði á Alþingi og í
sveitarstjórnum. Ásíðustu ár-
um hafa orðið umskipti til
hins verra. Auður stóll borg-
arstjórans í Reykjavík í veislu
á aldarafmæli Stórstúkunnar
er talandi dæmi um það álit
og virðingu, sem sá embætt-
ismaður telur að sýna beri
þessum félagsskap."
Niðurstaða stórtemplarsins
er sláandi: „Valdamenn þjóð-
arinnar sjá ekki önnur ráð
fyrir þjóðina en að dæla í
hana áfengi og eitri."
Innbyrðis
ágreiningur
og valdabarátta
Þingtíðindi Stórstúku ís-
iands fyrir síðustu fjögur árin
bera með sér að templara-
hreyfingin er í mikilli lægð
samfara þessum ósigrum. Þar
kemur meðal annars fram að
erlend samskipti hafi verið af
skornum skammti, að út-
breiðslustarf sé í lágmarki,
stúkustarf í daufara lagi,
fundasókn fari minnkandi,
barnastúkum fjölgi ekki,
fundir þar fámennir og
.. blint hatur hefur náð
eyrum sumra félagsmanna
okkar. Jafnvel eru gefin út
blöð innan okkar raða þar
sem einstakir Reglumenn og
forystumenn hreyfingarinnar
eru lagðir í einelti með róg-
burði og ósannindum".
Þarna er vitnað til ágrein-
ings sem ríkt hefur innan
reglunnar um nokkurt skeið,
ekki síst um markmið og leið-
ir. PRESSUNNI er kunnugt
um að áhyggjufullir aðilar
hafi þrýst mjög á Helga Selj-
an, fv. þingmann, til að gefa
kost á sér sem stórtemplar og
var hann fús til þess fengi
hann ákveðna einstaklinga
með sér í framkvæmda-
nefndina. Ekki var orðið við
því.
Þingtemplar hreyfingar-
innar kemst svo að orði: „Það
hallar undan fæti fyrir félags-
skap templara. Svo er það
þegar á heildina er litið og
horft á landið allt. Vaxtar-
broddar eru vandfundnir. . .
ég held að félagsstarf undir-
stúknanna hafi verið minna
þennan vetur en undanfarin
ár... en hér er margt í fornu
formi og föstum skorðum."
Ur átján þúsundum
í fjögur þúsund
á þrjátíu árum
Sami embættismaður segir
ennfremur: „Það hafa verið
átta undirstúkur í Reykjavík.
Þrjár þeirra hafa haldið uppi
reglulegum fundum í vetur
hver fyrir sig. Hin fjórða og
fimmta hafa sameiginlega
haft reglulega fundi. Þeim
þremur sem þá eru eftir hefur
ekki lánast það og engin
þeirra á nú fulltrúa hér á
fundinum. Þegar kemur að
barnastúkunum er ekki betur
ástatt. Þar sem þó hefur tekist
að hafa fundi reglulega hafa
þeir verið svo fámennir að á
engan hátt er sambærilegt
við það sem var fyrir fáum ár-
um.“
Þetta er lýsing á stúkustarfi
í hreyfingu sem telur sig hafa
um 4.000 manns innan sinna
raða, en hafði á skrám sínum
18.400 árið 1960. Samkvæmt
þessu voru templarar 10,4%
þjóðarinnar fyrir 30 árum, en
1,5% nú. Og er nú samkvæmt
heimildum PRESSUNNAR
„algengast að á fundi þessara
gömlu stúkna mæti 5—10
manns og að meðalaldurinn
sé nálægt sjötugu. Út-
breiðslustarf er lítið sem ekki
neitt, engar áætlanir eru
lagðar fram í forvarnarmál-
um og eini Ijósi punkturinn
eru bindindismótin í Galta-
læk. Að öðru leyti er hreyf-
ingin einkamál nokkurra of-
stækismanna".
Þvert gegn þessum stað-
reyndum um dvínandi stúku-
og útbreiðslustarf kemur
fram að talsverð gróska er í
rekstri og framkvæmdum á
vegum hreyfingarinnar. Að
Framkvæmdanefnd Stórstúku íslands hefur aö mestu veriö óbreytt um árabil, en þessi
mynd er af stjóminni 1982—1984. Það þykir ekki boða miklar breytingar þótt séra Björn
Jónsson hafi tekið viö af Hilmari Jónssyni sem stórtemplar. Tilraun ákveðinna afla til
aö fá Helga Seljan, fv. þingmann, í embættið og stokka upp í stjórninni tókst ekki.
Templarahreyf ingin þykir ekki höfða til unglinga og barna, en af þessari mynd að dæma
var ástandið vart miklu betra fyrir 20 árum. Myndin var tekin á Unglingaregluþingi 1970
og má ætla að 5—6 af 23 á myndinni séu á táningsaldri!