Pressan - 21.06.1990, Síða 6
Firrmtpelagu.r\2Tr: iúm 199Q-,:i
tí
TEMPLARAHREYFINGIN Á ÍSLANDI:
vísu hefur hún neyðst til að
selja hótel sitt á Akureyri fyr-
ir 20 milljónir króna og er að
selja hús sitt á Isafirði, en
margt kemur á móti.
Umtalsverðar
framkvæmdir og
fasteignakaup
Þannig hefur hreyfingin
fest kaup á Tónabíói fyrir
tæplega 26 milljónir króna,
stofnað um kaupin sjálfseign-
arfélagið Veltubæ og ráðger-
ir að eyða 20 milljónum
króna til viðbótar í viðgerðir
og breytingar. Þá hefur Stór-
stúkan lagt 11 milljónir króna
í Borgarbíó á Akureyri, en
það var gert vegna fjárhags-
erfiðleika í kjölfar [)ess að
bíóið var endurnýjað frá
grunni. Nokkrum fjármunum
hefur síðan verið varið í upp-
byggingu Skálatúnsheimil-
isins og hreyfingin hefur
eignast nokkra sumarbú-
staði. Þá hefur PRESSAN ör-
uggar heimildir fyrir því að til
tals hafi komið að kaupa sum-
arhús á Spáni.
Fyrir á hreyfingin stórhýsið
við Eiríksgötu og húseignina
Laugaveg 56. Loks má nefna
að fyrir fáeinum árum var
keypt húsnæði í verslunar-
miðstöðinni við Þarabakka í
Mjóddinni, sem nefnt er
Hjallasel.
Hér er um umtalsverðar
eignir að ræða. Brunabóta-
mat Templarahallarinnar
við Eiríksgötu er 121 milljón
króna en fasteigna- og lóða-
mat tæpar 60 milljónir.
Brunabótamat fasteignarinn-
ar í Þarabakka er tæpar 18
milljónir en fasteigna- og
lóðamat tæpar 8 milljónir.
Brunabótamat Laugavegar 56i
er 17,7 milljónir, en fasteigna-
og lóðamat um 16 milljónir.
Eignarhlutur Stórstúkunnar í
BorgarbíóiáAkureyrier 11 af
um 50 milljónum og sem fyrr
segir hefur Tónabíó verið
keypt á 26 milljónir og ráð-
gert að endurbyggja þar fyrir
a.m.k. 20 milljónir til viðbót-
ar. í því sambandi má nefna
að ætlunin mun vera að
fjölga bingókvöldum úr
tveimur í þrjú á viku. Það
sem er sammerkt með fast-
eignum og rékstri hreyfingar-
innar er að megnið er skatt-
frjálst.
ViII bæta ímyndina
en halda
seremóníun um
Þegar reikningar eru skoð-
aðir fyrir stórstúkuna, Æsk-
una, bókabúðina, bingóið,
Borgarbíóið, húsið á ísafirði,
Templarahöllina við Eiríks-
götu, 15 sjóði, Gullbók og
saumaklúbb koma í Ijós eign-
ir upp á um 200 milljónir
króna að nafnverði, en skuld-
ir á móti upp á „aðeins" tæp-
ar 50 milljónir.
Séra Björn Jónsson var
spurður að því hvort rekstur
og fasteignakaup væru ekki
farin að bitna á stúkustarfi og
útbreiðslunni og hvort ekki
væri ástæða til að hafa
áhyggjur af slíku.
„Það er rétt að fram-
kvæmdir og fasteignakaup
hafa verið geysilega mikil að
undanförnu, en hvort út-
breiðsla hafi verið í daufara
lagi er afstætt. Ég myndi t.d.
segja að útbreiðsla væri alltaf
í daufara lagi. En vita/skuld er
ástæða til að hafa ahyggjur.
Ég lít enda sem stóHemplar á
það sem hlutverk mitt númer
eitt að vera í beínni lifandi
snertingu við stúkurnar í
Reykjavík og út um allt land.
munir verði að greiðast tíma-
bundið, en þetta er staður
sem á í framtíðinni að verða
sú fjáröflunarleið sem við
getum kannski helst treyst á.
Bingóstarfsemin hefur hjálp-
að okkur til að hafa einmitt
meiri útbreiðslu nú en áður
var og gera ýmsa aðra hluti.
Það sem okkur vantar fyrst
og fremst er að fólkið í stúk-
unum úti á landi vakni og að
Stórstúkan hefur keypt Tónabíó undir rekstur bingós og annarrar starfsemi. Kaupverð
var 26 milljónir og nú fara fram viðgerðir og breytingar fyrir að minnsta kosti 20 milljónir
til viðbótar.
Þær eru undirstaðan í öllu
starfinu. Ef það mætti takast
að fá fleiri til liðs við okkur og
verða virkir myndi þetta
breytast."
Og séra Björn var spurður
hvort templarahreyfingin
væri einfaldlega ekki of forn-
eskjuleg til að laða fólk í sínar
raðir.
„Það má kannski segja og
sumir halda því fram að til
þess að þetta takist þurfum
við að breyta um starfshætti
og ég er alveg inni á því að
breyta ímynd stúkunnar út á
við, þannig að starfið og regl-
an sem slík geti orðið að-
gengilegri í vitund fólksins en
hún er í dag. Það má því bú-
ast við breytingum, en hvað
varðar þær seremóníur sem
fylgja reglunni, þá verð ég
tregur til að sveigja þar af
vegi og láta þær hverfa — ég
held að þær hafi á þessum
rúmu 100 árum verið styrkur
en ekki veikleiki reglunnar."
Bingóið gaf
sextíu milljónir
á fjórum árum
Helsta tekjulind stórstúk-
unnar er áðurnefndur bingó-
rekstur, sem hingað til hefur
verið í Tónabæ, en mun flytj-
ast í Veltubæ (Tónabíó).
Hreinn hagnaður af bingóinu
var á síðasta ári 9 milljónir
króna en samtals 58,5 millj-
ónir að núvirði árin
1986-1989.
Nýkjörinn stórtemplar
reglunnar lítur enda á fast-
eignakaupin sem tekjuöflun
framtíðarinnar, en ekki pen-
ingaeyðslu. „Um þau fast-
eignakaup sem eru fyrirferð-
armest núna, kaupin á Tóna-
bíói, má segja að miklir fjár-
við fáum nýtt og ungt fólk til
að starfa með okkur."
Auk þess sem þegar hefur
verið upp talið hefur ríkis-
sjóður styrkt Stórstúku ís-
lands um að meðaltali 1 millj-
ón króna á ári að núvirði síð-
asta áratuginn — en það
finnst templurum alltof lítið.
Hilmar Jónsson, fráfarandi
stórtemplar, sagði þannig í
skýrslu sinni vegna 1988:
„Fjármálaráðherra afhenti
SÁÁ 15 milljónir úr vasa okk-
ar allra í tilefni 10 ára afmælis
þeirra samtaka í fyrra. Við
báðum um 16 milljónir og
fengum 800 þúsund. Það
fannst heilbrigðisráðherra
gott. Menntamálaráðherra
mætti í 90 ára afmæli Æsk-
Helsta afrek templara í útbreiðslustarfinu er útgáfa á lita-
bók, væntanlega fyrir yngstu aldursflokkana. Fjárveit-
inganefnd var beðin um 8 milljóna króna styrk vegna út-
gáfunnar, en hafnaði beiðninni. Textinn þykir ólíkiegur til
að hafa áhrif á börnin, en þýðandi bókarinnar er eigin-
kona fráfarandi stórtemplars og starfsmaður stórstúk-
unnar.
unnar með góðar óskir. Gjafir
fékk besta barnablað á Norð-
urlöndum engar frá því opin-
bera."
Ráðning eiginkonu
stórtemplarsins
gagnrýnd
Templarar fóru enda bón-
leiðir til búðar þegar þeir
heimsóttu fjárveitinganefnd
þingsins vegna fjárlaga yfir-
standandi árs. Vildu þeir fá
styrk til að gefa út litabókina
„Fávís og Fjölvís" og báðu
um 8 milljónir króna. Þeirri
beiðni var hafnað, þótti út-
gáfa litabókarinnar í besta
falli brosleg og alls ekki líkleg
til að ná til viðkomandi ald-
ursflokka.
Textinn við litabók þessa er
þýddur af Elísabetu Jens-
dóttur. Hún var ráðin
fræðslufulltrúi hjá stórstúk-
unni 1988 með full laun og
bifreið til afnota. Henni tókst
að koma á fót tveimur barna-
stúkum. Á stúkuþinginu
6.-9. júní sl. var upplýst að
hún hefði verið ráðin erind-
reki fyrir hreyfinguna. Það
sem þykir bera órækan vott
um miðstýringuna í hreyfing-
unni er að Elísabet er eigin-
kona Hilmars Jónssonar, frá-
farandi stórtemplars. Ráðn-
ing hennar var meðal annars
gagnrýnd fyrir þá sök að sjálf
framkvæmdanefnd stórstúk-
unnar var ekki spurð.
Séra Björn vildi í samtali
við PRESSUNA ekki tjá sig
um einstök ágreiningsefni
innan reglunnar, en lagði
áherslu á hugsjónirbindindis-
starfsins, sem enn væru í fullu
gildi þótt margt hefði breyst.
„Við erum fyrst og fremst
að berjast á móti áfengisnotk-
un og um leið gegn allri eitur-
lyfjanotkun. „Prímus mótor"
í þessu öllu er áfengið og með
forvarnarstarfi viljum við
koma í veg fyrir að einstakl-
ingar byrji að drekka. Sumt
fólk telur í lagi þó börn þess
sulli dálítið í brennivíni, bara
að þau leiðist ekki út í eitur-
lyfin. Þessi hugsun stenst
bara ekki.“
Laugavegur 56. Brunabótamat jafnt sem fasteigna- og lóðamat er um 17 milljónir króna.
Templarahöllin við Eiríksgötu. Brunabóta-
mat fasteignarinnar er 120 milljónir, en
fasteigna- og lóðamat 60 milljónir.
í þessu húsi við Þarabakka eiga templarar
húsnæði sem nefnt er Hjallasel. Bruna-
bótamat 18 milljónir, fasteigna- og lóða-
mat um 8 milljónir.