Pressan - 21.06.1990, Síða 8
8
Fimmtudagur 21. júní 1990
VIKUBLAÐ Á FIMMTUDOGUM
l 'ti»fíaiuli: Blað lií.
I Vamkva'imlastjiH i: Ilakon Hákonarsou
Kitstjiirai: .k’mina l.eósdótlir
Omar l-'rióriksson
Klaóanumn Anna Kristine Mi»i»ni'iscl«>tt
Kjori* Kva KrlviidsdóUir
Kriórik l»ór liuónuindssoi.i
hi(*il>jör|4 íiólriin (iískukittir
l.ji'ismynclai i: Kinar Olason
Utlil: Anna Th. Kói»nvaUlsdóttir
l’n'iíarkak'stui: Sii»ríóur H. (íunnarsdóttir
.\iii»lysini»astjfH i: Hinrik (iiinnar Hilmarsson
Ritstjorn og skrifstofur. Ármúla 3.6, simi: 68 18 66. Auglýsingasimi: 68 18 66.
Asknft oq dreifing: Ármula 36, simi 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf
Askriftariijald 500 kr a manudi Askriftargjald: Pressan oq Alþyöublaðið:
1000 kf. a manuði. Verð i lausasolu. 150 kr. eintakið.
SAMBÝLI TIL FYRIRMYNDAR
í Víöihlíö í Reykjavík starfrækir Styrktarfélag vangef-
inna þrjú sambýli fyrir þroskaheft fólk. Þar er einnig rek-
in skammtímavist fyrir fatlaða og hafa þar m,a. dvalið
einhverf börn.
Blaðamaður PRESSUNNAR heimsótti íbúana í Víði-
hlíð á dögunum og er fjallað um þá heimsókn í grein í
blaðinu í dag. Þar kemur fram að starfsemin er þar öll
til fyrirmyndar og augljóst að sambúðin við nágrannana
í hverfinu er eins og best verður á kosið.
Solveig Theodórsdóttir, þroskaþjálfi og forstöðumað-
ur sambýlisins, segir í greininni að sambýlið við ná-
grannana hafi alltaf gengið mjög vel þau sex ár sem liðin
eru frá því að heimilið var stofnað. „Nágrannarnir verða
auðvitað mikið varir við okkur hérna. íbúarnir okkar
eru öðruvísi en „heilbrigt" fólk. Hegðun þeirra er á
margan hátt frábrugðin hegðun annarra. En þeir kunna
listina að njóta lífsins. Ég tel að það sé heilbrigðum börn-
um nauðsynlegt að læra að umgangast fatlað fólk og sjá
það í umhverfi sínu,“ segir Solveig.
Það er ómetanlegt fyrir þetta fatlaða fólk að lifa utan
stofnana og inni á sínum eigin heimilum. „Hér eru þau
eins sjálfstæð og ábyrg og þau geta orðið,“ segir Solveig.
Þessi fyrirmyndarsambúð í Víðihlíð er athyglisverð í
ljósi þess ágreinings sem kom upp á Seltjarnarnesi á
dögunum vegna meðferðarheimilis sem þar er rekið fyr-
ir einhverf börn. Kröfur íbúa um að fjarlægja börnin —
„helst út í sveit" eins og einhver orðaði það svo smekk-
lega — eru með ólíkindum.
Frásögn PRESSUNNAR í dag af sambýlinu í Víðihlíð
færir okkur aftur á móti heim sanninn um hve ágætlega
starfsemi af þessu tagi getur gengið fyrir sig. Því, eins og
segir í grein PRESSUNNAR; „það getur ekki verið sam-
félaginu til góðs að fela einstaklinga sem eru öðruvísi“.
bcmkabrot
Þunkabrol skrifa: Bolli Hédinsson, efna-
liagsrádgjafi forsœtisrádherra, Einar Karl
Haraldsson, ritstjóri Nordisk Kontakt, Jón
Ormur Halldórsson stjórnmálafrœdingur
og Lára V. Júlíusdóttir, framkuœmdastjóri
Alþýdusambands íslands.
*
I Fokker 50 yfir Lúxemborg
„Yfir Holland, Belgíu og Lúxemborg hefur ó
liðnum óratug gengið oldo fjórfestingo
sænskra, norskra og finnskra fyrirtækja/'
Norðurlandaráð og Bene-
lúx-þingið hafa síðustu miss-
eri borið saman bækur sínar
með því að skiptast á sendi-
nefndum. Það var skýringin á
því að um miðja síðustu viku
sat ég í nýjum Fokker 50, „að-
laðandi flugvél með þotu-
þægindum", á leið frá Kaup-
mannahöfn til Lúxemborgar.
Flest í þeirri vél er eins og
segir í auglýsingum Flugleiða
um þessa væntanlegu sam-
göngubót í innanríkisfluginu.
Hins er náttúrlega ekki getið
þar að vélarnar eru eins kvik-
ar, að ekki sé sagt hvumpnar,
og þeir færleikar sem hafa
þjónað okkur nú um langt
skeið, og bera töiuna 27, ef ég
man rétt. Við sem fljúgum á
Islandi kunnum þessu flug-
lagi orðið vel, en förunautar
mínir voru eitthvað að æmta
út af snerpunni í sveigjum
Fokkersins. Á farþegarýmið
luku allir lofsorði og ósköp er
gott að eiga það í vændum að
geta teygt úr skönkunum á
milli Akureyrar og Reykjavík-
ur í Fokker 50 „eftir eitt ár og
níu mánuði" eins og ég las
um í Mogganum, sem til sölu
er á flugvellinum í Lúxem-
borg eins og önnur heims-
blöð.
-o-o-o-
Fokker og Moggi og Flug-
leiðir. Tengslin milli Benelúx-
landanna og íslands eru aug-
ljós. Fokkerinn er framleidd-
ur í Hollandi, Lúxemborg hef-
ur verið miðstöð Loftleiða og
síðar Flugleiða á meginlandi
Evrópu og Mogginn er alls-
staðar þar sem margir íslend-
ingar fara um. Eg var að hug-
leiða hvað þessi samskipti
væru nú eiginlega mikil og
gróin, þegar Grethe Lund-
blad, þingmaður sænskra
jafnaðarmanna, segir við
okkur hin i norræna hópn-
um:
„Þið verðið að fyrirgefa þó
að ég komi ekki með ykkur í
bæjarrölt eftir fíádegi. Ég var
búin að lofa að líta inn hjá
Sænska verslunarbankanum
hérna í Lúxemborg. Ég sit
nefnilega í stjórn bankans
heima í Svíþjóð, og þeir
hérna í útibúinu vilja endi-
lega hitta stjórnarmenn, þeg-
ar þeir eru á ferðinni."
Ekki varð ég var við að Ol-
afur G. Einarsson þyrfti nauð-
synlega að líta inn hjá ís-
lenskum fjármálastofnunum
í Lúxemborg. Það er kannski
talandi dæmi um, að Islend-
ingar hafa ekki reist hátimbr-
aðar hallir á þeim grunni
tengsla og samskipta, sem
þegar hefur verið lagður í
Benelúx-ríkjunum.
Yfir Holland, Belgíu og
Lúxemborg hefur á liðnum
áratug gengið alda fjárfest-
inga sænskra, norskra og
finnskra fyrirtækja. í Hol-
landi og Belgíu eru t.a.m. 400
sænsk dótturfyrirtæki ,með
50 þúsund starfsmenn. Á síð-
ustu þremur árum hafa bein-
ar fjárfestingar Svía í Bene-
lúx-löndunum numið 230
milljörðum íslenskra króna.
Holland er það land innan
Evrópubandalagsins sem Sví-
ar fjárfesta mest í. Svona
mætti halda lengi áfram.
-o-o-o-
Ástæðurnar fyrir norræn-
um viðskiptaáhuga á Bene-
lúx eru margar. Þetta er það
svæði innan Evrópubanda-
lagsins sem Norðurlandabú-
ar eiga auðveldast með að
átta sig á. Þrátt fyrir ólíka
menningu á margan hátt er
stærðarmunurinn ekki yfir-
þyrmandi og í Hollandi, hin-
um flæmska hluta Belgíu og í
Lúxemborg samsamast
menning og hátterni heima-
manna vel norrænum venj-
um, auk þess sem almenn
enskukunnátta auðveldar
fyrstu kynni. Hagstæðar
skattareglur, tiltölulega ódýr
aðföng, hagkvæmni í fram-
leiðslu, nálægð við markaði
og góðar samgöngur í lofti,
láði og legi hafa lokkað nor-
ræn framleiðslufyrirtæki til
Hollands og Belgíu. Aðilar
sem byggja viðskipti sín á
þjónustu við norræn fyrir-
tæki fylgja í kjölfarið. Til
Brussel flykkjast nú norrænir
lögfræðingar, arkitektar, ráð-
gjafar svo og fólk frá flutn-
ingafyrirtækjum og ferða-
stofum.
Og vegna sérstakra skatta-
ívilnana hafa 166 bankar,
meðal annars margir nor-
rænir, komið sér fyrir með
starfsemi í Lúxemborg á
þeim tveimur áratugum, sem
reglurnar hafa verið við lýði.
Um 50 fjárfestingar- og fjár-
málafyrirtæki bíða leyfis yfir-
valda í Lúxemborg til þess að
hefja þar starfsemi. Staða
landsins sem fjármálamið-
stöðvar er orðin svo grunn-
múruð, að áróður er nú rek-
inn fyrir að fá framleiðslufyr-
irtæki til þess að veðja á Lúx-
emborg, svo að atvinnulífið
verði ekki of einhæft.
Bankamenn í Lúxemborg
segja að starfsmönnum nor-
rænna fyrirtækja þyki örugg-
ara að fá ráðgjöf ámóðurmál-
inu, auk þess sem norrænu
bankastofnanirnar fjármagni
að verulegu leyti fjárfestingar
norrænna fyrirtækja innan
Benelúx með lánum sem tek-
in eru í Hollandi, Belgíu eða
Lúxemborg.
-o-o-o-
Þegar André Biver, borgar-
stjóri í Woltz og forseti Bene-
lux-þingsins, heyrir að ég er
íslendingur fer hann strax að
tala af þekkingu um sameig-
inlega flugmálasögu íslands
og Lúxemborgar. Lúxem-
borgarar virðast mér yfirleitt
alúðlegir og blátt áfram, en
það held ég að flestum verði
ljóst sem þá sækja heim, að
Islendingar eiga að þeim sér-
staklega greiðan aðgang.
„Ætli maður að ná fótfestu
á einum stað innan Evrópu-
bandalagsins er Benelúx-
svæðið kjörið," hefur sænsk-
ur iðnjöfur látið hafa eftir sér.
Við það má bæta, að ætli
maður að fá fljótt vissu fyrir
því hvernig EB muni þróast
eftir 1992, þá er Benelúx líka
kjörsvæðið. Með undirritun
Schengen-samkomulagsins
milli Belgíu, Hollands, Þýska-
lands og Frakklands nú í vik-
unni er ljóst að landamærin
milli þessara landa heyra að
mestu sögunni til þegar á
næstu árum. Hér er framtíð
Evrópu í sköpun.
Um þetta var ég að hugsa
þegar Fokker 50 sveigði út yf-
ir Mosel á mótum Þýskalands
og Lúxemborgar og stefnan
var sett á Frankfurt. Þar sem
ég sat og naut allra „þæg-
indaaukanna" sem íslending-
ar mega eiga von á í innan-
landsfluginu eftir „eitt ár og
níu mánuði" vaknaði eftirfar-
andi spurning: Hvenær
skyldi Landsbankinn setja
upp Evrópu-útibú í
EINAR KARL
HARALDSSON
hin pressan
##
„Skipt hefur veriö á 2,5 millj-
ónum króna og pappírssnifs-
um."
Frétt í Tímanum um peningahvarf á
Seyðisfirði
„Maöur skyldi samt varast aö
bíöa og borða rjómatertur þar
til lyfið kemur hingaö til
lands."
Laufey Steingrimsdóttir næringar-
fræðingur i Alþýðublaðinu
Hvers vegno fer SÍS allt í
einu að tapa, þegar bissn-
issmenn taka völdin?##
Guðmundur Einarsson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra í Alþýðublaðinu
„Ásmundur (Stefánsson)
veröur að hreinsa sig."
Páll Halldórsson formaður BHMR í
DV
„Maðurinn er stífur."
Talsmaður starfsmanna á Mógilsá
um landbúnaðarráðherra
„„Hann er meö skegg," hrökk
út úr mörgum, er sáu formann
Sjálfstæðisflokksins."
Frétt í Timanum
„Fer Beta á bak?##
Frétt i Timanum um komu Bretadrottningar
„En við vitum að það eru ís-
lenskar lopapeysur í búðum
erlendis sem eru prjónaðar
úti."
Talsmaður handprjónasambands-
ins í Timanum
4mPi(<0
,,Staöreyndin er
eigi að síður sú
að uið komum út
úr þessu hörm-
ungatímabili há-
vaxnari og
spengilegri en
hinar Norður-
Iandaþjóðirnar.“
Gunnar Biering læknir i Timanum
„Það er alltaf reykur þar sem
eldur er."
Albert Guðmundsson í DV
„Islendingar eru lítt gefnir fyr-
ir að nota smokkinn."
Frétt i Alþýðublaðinu .