Pressan


Pressan - 21.06.1990, Qupperneq 17

Pressan - 21.06.1990, Qupperneq 17
r r r t PENNASTIMPLAR Skapaðu þér ímynd með okkar sjálfblekandi stimpilpenna, það gæti gert gæfumuninn að hafa stimpil með nafni þínu, fyrirtæki eðagóðu slagorði alltaf við hendina. STIMPLAGERÐ PDæsúbiis KRÓKHÁLSI 6 SÍMI 67 1900 Fimmtudagur 21. júní 1990 ^Vtjórnvöld og æðstu embættis- menn ríkisstjórnarinnar naga sig í handarbökin þessa dagana vegna BHMR-málsins. Eru komnar upp allverulegar efasemdir um að rétt hafi verið staðið að málum þegar launaleiðréttinguBHMR-félaga, sem taka átti gildi 1. júlí, var frestað og kemur að öllum líkindum til kasta félagsdóms. Telja hinir sömu að rétt- ara hefði verið að láta frestunina taka gildi með bráðabirgðalögum strax því óttast er að dómur falli há- skólamönnum í vil og þá sé nánast ótækt að fella hann úr gildi með lög- gjöf. Það úrræði hefur reyndar lítil- lega verið rætt en er tæpast talið raunhæft. Er þetta mál hið mesta áhyggjuefni í innsta hring stjórn- kerfisins þessa dagana, skv. heim- ildum af þeim slóðum .. . L ■ Mér á landi eru stödd banda- rísk hjón, Betty og Reinald Werrenrath. Þau hjón eru búsett í Chicago og hafa starfað sem fé- lagsráðgjafar í gegnum tíðina. A síðustu árum hafa þau beint kröft- um sínum að því að búa til mynd- bönd um lifnaðarhætti og mannlíf í ýmsum löndum, líkt og Halla og og Hal Linker gerðu á árum áður, og eru nú stödd á íslandi í þessu skyni. Þau hjónin leituðu til Her- manns Ragnars Stefánssonar danskennara, sem kynntist þeim fyrir tæpum 30 árum i Bandaríkjun- um, og aðstoðaði hann þau við efn- isöflun. Betty og Reinald ferðast um landið og taka upp á myndband mannlíf og það sem fyrir augu ber í nágrenni við Selfoss, Akureyri og Vestmannaeyjar auk mannlífsins í Reykjavík og nágrenni. Þá fylgjast þau með tveimur íslenskum börn- um, 14 ára stúlku sem á hest og 10 ára fótboltastrák og dansara. Fylgst verður með degi í lífi þessara barna, myndir teknar á heimilum þeirra til að sýna hvernig við íslendingar bú- um og farið með þeim að sinna áhugamálunum. Myndbönd sín um lifnaðarhætti í ýmsum löndum selja þau hjónin grunnskólum í Banda- ríkjunum þar sem nemendur eru á aldrinum 6—15 ára, auk þess sem fé- lagasamtök sækjast mikið eftir þess- um kynningarmyndum. Það er því ekki amaleg kynning sem landið á von á í Bandaríkjunum . . . ■ að sem ekki síst vekur at- hygli þegar samkomulag minni- hlutaflokkanna um nefndakjör í borgarstjórn er skoðað er að Al- þýðubandalagið hefur fórnað uppáhaldsnefndum Sigurjóns Pét- urssonar. Hann vildi sitja áfram í breiðu sætunum í stjórn Lands- virkjunar og stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, en fé- lagar hans höfðu aðra forgangsröð á hlutunum og Framsóknarflokk- urinn fær mann í Landsvirkjun og lendir í hlutkesti í þriggja manna stjórn SPRON. Þá má það heita merkilegt að Kvennalistinn bað al- deilis ekki um öruggan mann í jafn- ALLAR GERÐIR STIMPLA réttisnefnd, þærhafa átt þar full- trúa frá byrjun, en hafa komist að þeirri niðurstöðu að um allsendis gagnslausa nefnd sé að ræða. Þá er merkilegt að Bjarni P. Magnús- son í Nýjum vettvangi er ekki ör- uggur í neina nefnd, en lendir í hlut- kesti um sæti í stjórn veitustofnana. Hann getur hins vegar huggað sig við að Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra skipaði hann skömmu eftir kosningar í stjórn íslenska álfé- lagsins . . . ^^mhverfið kringum Tann- garð, hús tannlæknanema við há- skólann, kvað vera heldur andfúlt í sumar. Skammt þar frá er nefnilega safnað í haug grasi og garðúrgangi og geymt einhvern tíma, þar til henta þykir að fjcu-lægja úrganginn. Þessu er safnað saman á flötinni rétt við Vatnsmýrarveginn. Gangandi og hjólandi vegfarendur kvarta yfir sterkum rotnunarfnyk af þessum völdum og telja aðúrbóta sé þörf. . . c ^Vtarfsliði Vinnuskóla Reykja- víkur vex stöðugt fiskur um hrygg. Frá því í fyrra hefur sérstakur hópur unnið við landgræðslu á Nesjavöll- um. í sumar eru 180 unglingar á Nesjavöllum og starfa þeir meðal annars við lúpínugræðslu og við að stinga upp rofabörð. Reynslan af starfi vinnuskólanna á Nesjavöllum í fyrra þótti góð þegar árangur starfsins var metinn í vor . . . 0LIEITT AR Opið alla daga 12.00—15.00 og 18.00—01.00 föstudaga og laugardaga til 03.00 MATUR, OL OG LIFANDI TÓNLIST Ífélagar í BHMR hafa nóg að gera, en þeir mæta ekki til vinnu í dag vegna ósættis við ríkisstjórn- ina um launamál. 3.500 manns eru í félaginu og búist er við því að stærstur hluti þeirra leggi niður vinnu á morgun. Aðgerðanefnd hefur skipulagt allan daginn frá morgni til kvölds. Dagur- inn hefst með fundi og trúlega kaffi- drykkju í kjallara Templarahallar- innar klukkan 9. Um hádegisbilið ganga háskólamenntaðir ríkisstarfs- menn í kröfugöngu niður að Alþingi og afhenda bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra mótmæli. Eftir afhendinguna halda þeir áfram að funda í Templarahöllinni, bæði um aðgerðir dagsins og væntanlega einnig um framhaldið .. . l^veir hópar fatlaðra vinna í sumar hjá Vinmskólum Reykja- víkur. Þetta eru 26 einstaklingar, sem eru staðsettir á Miklatúni og vinna fjóra tíma á dag. Þessi hópur hefur starfað við vinnuskólana síð- astliðin nokkur ár með góðum árangri. Hjá bajarvinnunni er einnig starfandi fúpur fatlaðra viö garðyrkjustörf. . . ÍFramkvæmdastjóri Sunda hf., Alfreð Jóhannsson, lét þar af störfum um síðustu helgi og hefur ráðið sig til Reykjagarðs hf. . . . SUZUKISWIFT SEDAN er sérlega glæsilegur og rúmgóður fjölskyldubíll, þar sem vel fer um farþegana og nægt rými er fyrir farangur. SUZUKISWIFT SEDAN býðst með aflmiklum 1,3 I og 1,6 I vélum, 5 gíra handskiptingu eða sjálfskiptingu. Einnig er hann fáanlegur með sítengdu aldrifi. VERÐ: 1,31GL eindrif...... 783.000,- kr. stgr. 1,61GLX eindrif..... 878.000,- kr. stgr. 1,61GLX sítengt aldrif. 1.031.000,-kr. stgr. KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ $ SUZUKI .......— SUZUKIBÍLAR HF SKEIFUNNI 17 • SÍMI 685100

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.