Pressan - 21.06.1990, Page 24
24-
Fimmtudagur 21. júní 1990
i framhjqhlaupi
Grétar Örvarsson
tónlistarmaður
— Hefurðu farið á miðils-
fund?
„Nei það hef ég ekki gert. Aft-
ur á móti tel ég mig hafa fengið
skilaboð í gegnum miðilsfund,
sem ég var ekki staddur á sjálf-
ur."
— Hvaða hugmyndir gerirðu
þér um líf eftir dauðann?
„Ég geri mér ekki nokkrar hug-
myndir um það. Ég hugsa aldrei
um þá hluti."
Lofthræddur og finnst
leiðinlegt að strauja
— Hvaða persóna hefur haft
mest áhrif á þig og hvers
vegna?
„Það er sambýliskona mín,
Guðrún Markúsdóttir. Hvers
vegna segi ég ekki."
— Án hvers gætirðu síst ver-
ið?
„Tónlistar. Ég gæti alls ekki
verið án hennar."
— Hvað finnst þér leiðinleg-
ast að gera?
„Að þvo upp og strauja. Ég er
að vísu búinn að fyrirbyggja það
fyrrnefnda með því að kaupa
mér uppþvottavél en sé ekki
fram á að framleidd verði sjálf-
stýrð straujárn í nánustu fram-
tíð!"
— En skemmtilegast?
„Mér finnst skemmtilegast að
eiga frí og slappa af heima hjá
mér."
— Hvaða eiginleiki finnst þér
eftirsóknarverðastur í fari
fólks?
„Heiðarleiki."
— Við hvaða aðstæður líður
þér best?
„í góðu andrúmslofti með fjöl-
skyldunni."
— Geturðu nefnt einn kost
þinn og einn galla?
„Það getur orðið erfitt því ég
hef svo marga galla. Einn þeirra
er sá að ég er sjálfselskur. Ætli ég
telji ekki til kosta minna að ég er
duglegur, hugmyndaríkur og
skipulagður."
— Hvaö fer mest í taugarnar
á þér í fari þeirra sem þú átt
samskipti við?
„Hægagangur; þegar vantar
driftina í fólk."
— Við hvað ertu hræddur?
„Ég er lofthræddur, það er að
segja þegar ég er kominn hátt
upp í stiga eða upp á þak ein-
hvers staðar. Þetta gildir ekki
þegar ég er um borð í flugvél."
— Hvaða starf myndirðu
velja þér ef þú yrðir að skipta
um starf?
„Þá gæti ég vel hugsað mér að
starfa við eitthvað sem tengist
ferðamálum."
— Hvernig vildirðu helst
verja sumarleyfinu í ár?
„Helst hefði ég viljað fara til
Bandaríkjanna. Eg vildi byrja í
San Francisco og fara síðan nið-
ur til Flórída. Ég get vel hugsað
mér að skoða Bandaríkin. Þang-
að hef ég ekki komið áður en á
örugglega eftir að heimsækja
landið."
— Hver er eftirlætisbílteg-
undin þín?
„Honda Accord. Ég er að
kaupa einn slíkan núna."
kynlífsdálkurinn
Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni.
Utanáskriftin er: PRESSAN — kynlífsdálkurinn, Ár-
múla 36, 108 Reykjavík.
Að koma úr felum
spqm
21. — 27. júní
(21. niurs—20 uprílj
Einhver sem þú hittir f yrir tilviljun veitir birtu
inn í líf þitt. Tækifæri sem þú taldir glataö
kemur aftur upp i hendurnar á þér. Loforð
sem þér var gefiö virðist hafa gleymst og þú
veröur aö ganga á eftir þvi. Þér snýst flest í
haginn þessa dagana.
(21. upril—20 mui)
Nákominn ættingi biður þig um aöstoö og
hann þarf virkilega á stuðningi þínum aö
halda. Vertu örlátur en gættu þess þó aö
missa ekki dómgreindina. Góöar líkur eru á
aö þú hittir gamlan kunningja um þessa
helgi, sem þú hefur ekki séö lengi, og þiö
geriö ykkur glaðan dag saman.
(21. mai—21. júni)
Farðu aö öllu meö gát í fjármálunum. Það
hefur lengi loöað við þig smákæruleysi í
þessum efnum og nú er komið að því aö þú
þurfir aö snúa viö blaöinu. Þér er líka fyrir
bestu aö ráöast nú á óleyst verkefni heima
viö. Talan þrír kann aö vera happatala þín
þessa dagana. Vertu vakandi fyrir þvi.
n
(22. júní—22. júli)
Þú hefur veriö meö nefið niöri í annarra
manna koppum og skipt þér af því sem
kemur þér ekki viö. Líttu þér nær og færöu
hlutina til betri vegar. Gættu þess sérstak-
lega aö vera ekki aö skipta þér af deilum
meöal vinnufélaga þinna og aö segja ekkert
sem gæti misskilist eöa veriö rangtúlkað.
(23. júlí—22 úijúsl)
Taktu ákveöna afstöðu i þjóðþrifamáli. Láttu
ekki aðra hafa áhrif á þig þótt margir kunni
aö vera á móti þér. Stattu fastur fyrir. Faröu
vel meö þig — haföu þaö náöugt um helg-
ina. Þaö ætti að vera í lagi aö leyfa sér ákveð-
inn munaö i mat.
(23. úglisl — 23. sepl.)
Skilin á milli vináttu og ástar gætu orðið
óglögg á næstunni. Gættu þess aö kasta
ekki frá þér kærum vini af þeirri ástæöu aö
þið eigið ekki samleið sem elskendur. Um-
fram allt máttu þó ekki vera feiminn við aö
kynnast nýju fólki og ná vináttu þess.
(23. sept.—24. okt.)
Þú færö þýðingarmikið símtal á næstu dög-
um. Allt veltur á þínum viöbrögöum því ef
þú metur aöstæöurnar ekki rétt kann þaö aö
hafa afdrifaríkar afleiöingar fyrir þig. Þú hef-
ur verið of upptekinn síðustu daga til aö átta
þig á aö heilsu þinni kann aö stafa hætta af
líferni þínu undanfarið.
„Hæ, hæ kæri kynlífsdálkur.
Þannig er mál með vexti að ég er
nokkuð viss um að ég er sam-
kynhneigður. Bestu vinir mínir
eru stelpur og ég veit vel að
strákar sem ég þekki gera grín
að mér. Eina manneskjan sem ég
hef trúað fyrir þessu er besta
vinkona mín. í gegnum tíðina
hef ég aldrei getað litið ágirnd-
araugum á stelpur. Eg hef meira
að segja reynt að vera með
stelpu en það gekk ekki upp.
Mitt vandamál er því að viður-
kenna fyrir mér og öðrum að ég
sé hommi.
Með von um góð ráð.
Baldur.
P.S. Vil gjarnan fá fréttabréf eða
upplýsingar um málefni sam-
kynhneigðra ungmenna."
Takk fyrir bréfið Baldur. Fyrr í vet-
ur skrifaði ég pistil um ungliðahreyf-
ingu Samtakanna’78. Þar kom fram
að ungir hommar og ungar lesbíur
telja það mjög mikilvægt að koma
strax úr felum, fástuðning og byrja
að byggja sig upp. Vegna þess að
samfélagið sýnir enn á margan hátt
lítinn skilning á samkynhneigð er
afar mikilvægt að leita uppi þá sem
hægt er að tala við Eina fyrirmynd-
in sem almenningur hefur um
homma og lesbíur eru úreltar
stereótýpur í bröndurum og bíó-
myndum. Það er nefnilega ekki
hægt að sjá á krökkum hvort þau
eru hýr eða ekki.
Sá sem er að koma úr felum á þess
vegna erfitt með að benda á sam-
kynhneigða manneskju sem er virt-
ur þjóðfélagsþegn og lifir ágætislífi.
Alltof fáar jákvæðar fyrirmyndir
geta verið þrándur í götu fyrir þann
sem vill viðurkenna kynhneigð
sína. Eitt er víst — það yrðu margir
hissa ef þeir vissu hverjir eru hýrir
og hverjir ekki.
Það má heldur ekki gleyma því að
það að vera hommi eða lesbía er
„bará' einn þátturinn af lífi samkyn-
hneigðra. Ég segi „bará' því margir
misskilja eðli kynhneigðar og halda
að fyrst manneskja sé samkyn-
hneigð hugsi hún ekki um annað.
Þetta er firra þó sumir hommar og
lesbíur hugsi ekki um annað en
samkynhneigð fyrst um sinn þegar
þau eru rétt nýkomin úr felum.
Óhjákvæmilega verður ekkert ann-
að mikilvægara í b'finu fyrst — mað-
ur er búinn að sitja á tilfinningum
þar að lútandi í mörg herrans ár.
Margir hommar og Iesbíur ná að
vinna sig í gegnum þetta fyrsta skref
í sjálfsviðurkenningunni. Samkyn-
hneigt fólk er ekkert öðruvísi en
annað fólk. Það laðast bara kynferð-
islega að einstaklingi að sama kyni.
Það eitt hefur samt nægt til að sam-
kynhneigðir flokkist undir „minni-
hlutahóp" í þjóðfélaginu — fellur
ekki alveg inn í mynstur fjöldans.
Enda eru til ótal, ótal margir minni-
hlutahópar í kynferðismálum ef
grannt er skoðað. Konur í heimi sem
sniðinn er að þörfum karla eru einn
hópur, karlmenn með stinningar-
erfiðleika, klæðskiptingar o.s.frv.
Aö upplifa unglingsárin
seinna en aörir
„Að koma úr felum" er hugtak
sem á að lýsa því að viðurkenna fyr-
ir sjálfum sér og öðrum samkyn-
hneigð sína. Þetta gerist smám sam-
an og er svipaðurferill hjá mörgum.
Fyrsta skrefið er að kynnast öðrum
á sama báti og ræða málin í botn.
Síðan koma „unglingsárin" (hefjast
oft seinna en hjá gagnkynhneigð-
um) en þá eru oft mynduð ástarsam-
bönd sem vara stutt og eru einskon-
ar „æfingasambönd". Að lokum er
það samhæfingarstigið en þá er við-
komandi búinn að vinna sig í gegn-
um tilfinningar sínar, búinn að
byggja upp sjálfstraustið og treystir
sér í langvarandi samband.
Þú hefur að öllum líkindum ekki
sagt foreldrum þínum frá tilfinning-
um þínum. Þegar þú ferð að viður-
kenna þig meir og meir munu þau
óhjákvæmilega frétta það — ef þú
verður ekki fyrri tii. Þú mátt alveg
búast við að þeim fallist hendur og
þau verði hissa, reið og fari jafnvel
að ásaka sig sjálf. Þegar þau hugsa
til þess að strákurinn þeirra sé
hommi hugsa þau um að hann sé að
verða eins og stereótýpurnar. Eðli-
lega verða þau fyrir áfalli. Það verð-
ur svo að koma í ljós hvort foreldra-
ástin er nægilegasterk og hvort þau
geta jafnað sig með tímanum. Til
eru þeir foreldrar sem afneita börn-
um sínum en sem betur fer eru líka
til foreldrar sem ná að vinna úr mál-
unum og eiga eðlilega samskipti við
krakkana sína.
Þú verður einnig að taka af skarið
og ræða málin við vini þína. Að öll-
um líkindum segja þeir ekkert að
fyrra bragði af hræðslu við að koma
þér í opna skjöldu. Einungis með því
að tala við aðra getur þú fundið út
hverjir eru sannir vinir þínir.
Ráðin sem ég get veitt þér eru þá
þessi: Hafðu samband við Samtökin
78 — sími 28539, haltu áfram að
ræða við þá vini sem þú treystir fyrir
sjálfum þér, aflaðu þér upplýsinga
og stuðnings ef þú hyggst ræða við
foreldra þína. Til dæmis mæli ég
með bókinni „Veistu hver ég er?“, en
hún er skrifuð fyrir aðstandendur
samkynhneigðra. Gangi þér vel.
JÓNA INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
KYNFRÆÐINGUR
(24. OÚI.—22. nóv.)
Nú er afbragöstími fyrir feröalög. Fjárfestu
lika i hlut sem þig hefur lengi langað til aö
eignast. Þú gætir aö líkindum fengiö hann á
niöursettu verði. Rómantik mun eiga vel viö
þig um helgina.
(23. nóv.—2l. des.)
Þú ert þinn besti félagi og enginn annar Ef
einhverjir tara i taugamai a jjeí ci ic„uo,,,.
ir þig aö halda þig i hæfilegri fjarlægð. Ein-
beittu þér aö listrænum hæfileikum þínum
og vertu umfram alft sjálfum þér nógur
næstu dagana. Seinna kemur aö þvi aö þú
fáir aö njóta þin meðal fólks og hugsanlega
veröuröu þá kallaður til mikilvægra forystu-
starfa.
m
(22. des.—2(J. jun.)
Það eru óveðursský á lofti og þú hittir
ákveöna persónu sem þú ert ekki alveg meö
á hreinu. Þetta veldur óöryggi í framkomu
en viljastyrkurinn hjálpar þér. Metnaður
þinn mun leiða til þess aö þú færö eitthvað
upp i hendurnar sem færir þér ómælda gleði
þegar frá liður.
(21. junúur—19.
febrúur)
Nú er aö ganga í hönd timi mikillar gæfu fyrir
þig. Nýttu þér það til hins ýtrasta. Margir
munu vilja freista þin en þú ert ákveðinn og
ferö þinar eigin leiðir. Vinir kunna að hrella
þig eitthvaö en þú lætur þaö eins og vind
um eyru þjóta. Ástin blómstrar um helgina.
(20. febrúar—20. mars)
Þú hyggst skipta um umhverfi og allt bendir
til aö þaö sé hárrétt ákvörðun. Gættu þess
þó aö undirbúa þig vel. Þaö ætti þó aö vera
óþarft aö spara sérstaklega vegna þessa þvi
þú ert engin eyðslukló og kemst bærilega
frá þessu fjárhagslega Svo er bara aö vinda
upp seglin og halda á vit ævintýranna.