Pressan - 09.08.1990, Síða 5
5
Fimtntudagur 9.-ágúst 199Qn
Hnykklœkningcir viö magakveisu angbarns
NÝSTÁRLEG AÐFERÐ
„Fyrstu þrjár vikurnar var drengurinn vær, en svo fékk hann
magakrampa og grét frá 5 upp í 12 tíma á sólarhring. Eftir tvö
skipti hjá kírópraktor (hnykki) kom ég heim með nýtt barn.
Hann hefur verið vær og ánægður síðan,“ segir móðir 9 vikna
barns.
Hnykklækningar á ungbörnum með magakveisu eru töluvert
stundaðar í Danmörku, hér á landi er meðferðin lítið þekkt og
þetta er í fyrsta sinn sem Katrín hefur reynt meðferð við maga-
krampa.
EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR - MYNDIR: MAGNÚS REYNIR
Tandri Már (9 vikna) fór þrisvar í með-
ferð hjá Katrínu Sveinsdóttur, kíróprak-
tor. Hann var sex vikna þegar hann mætti
fyrst á stofu Katrínar ásamt móður sinni
Eddu Björgu Sigurðardóttur, sem játar að
hún hafi verið kvíðin í fyrsta skiptið. ,,Það
var allt í lagi að hringja en ég var ekki eins
köld þegar stundin nálgaðist, ég hugsaði
meira að segja um að hætta við," segir Edda
Björg.
,,Þetta eru engin átök þegar maður er að
fást við svona lítið barn," segir Katrín Sveins-
dóttir. Hún þreifar á hrygglengju barnsins til
þess að leita að hreyfitruflunum í hryggjar-
liðunum. Hjá Tandra Má er stirðleiki ofarlega
í hrygglengjunni hægra megin. Meðferðin
felst í því að hnykkja til þessum stirðu liðum.
Þetta gerir Katrín við litla barnið með tveim
nætur og erfiða daga af þessum sökum, jafn-
vel svo mánuðum skiptir. Það er almennt
álitið að grátur barna með magakveisu, sem
annars eru heilbrigð að öllu leyti, stafi af
sársauka og verkjum í maga, en það er ekki
einu sinni sannað.
„Fyrst hélt ég að magaverkir barnsins
stæðu í sambandi við eitthvað sem ég borð-
aði, svo ég þorði ekki annað en að hætta að
borða ýmsar matartegundir. Á endanum var
ég komin á brauð og vatn en drengurinn grét
jafn mikið og áður," segir Edda Björg.
,,Hann grét alltaf frá sjö á kvöldin og til
miðnættis og oft grét hann mestallan daginn
líka. Við gengum með hann um gólf allan
tímann og skiptumst á um það á kvöldin. Um
miðnættið róaðist hann og gat yfirleitt sofið
á nóttinni.
Meðferðin virðist ekki vera óþægileg.
Tandri Már lætur sér hvergi bregða með-
an Katrín hnykkir til stirðu liðunum efst
í hrygglengjunni.
fingrum og meðferðin lítur út fyrir að vera
alveg meinlaus. Hér brakar ekki hátt í liðun-
um, eins og þegar liðir fullorðinna eru
hnykktir. Þetta lítur helst út eins og einhvers-
konar nudd. Tandri litli lætur ekki hnykking-
una trufla sig. Hann liggur hinn ánægðasti á
bekknum, slefar og spriklar með höndum og
fótum eins og ungbarna er háttur. Það er alls
ekki að sjá að hann taki eftir því að neitt sér-
stakt .sé um að vera.
„Hann grét aldrei á meðan verið var að
hnykkja, en strax á eftir hefur hann alltaf
sofnað mjög vært. Eftir fyrsta skiptið sem við
fórum lagaðist Tandri mjög mikið og eftir
annað skiptið var hann alveg orðinn góður.
Samt fórum við einu sinni enn eftir ráðlegg-
ingum Katrínar, og síðan er Tandri Már eins
og ég held að börn séu þegar þeim líður vel.
Hann er vær og ánægður og grætur ekki
nema hann sé svangur, þreyttur eða blautur."
Borðaði brauð og vatn —
en alltaf grét barnið
Ástæðurnar fyrir magakrampa ungbarna
eru enn óþekktar. Ýmsum kenningum hefur
verið haldið á lofti, en engar óyggjandi sann-
anir eru til um orsakir kvillans. Mikill fjöldi
barna og foreldra hefur orðið að þola vöku-
Edda Björg að klæða Tandra Má eftir
meðferðina. Augnabliki síðar er hann
sofnaður.
I sex vikna skoðuninni hjá barnalækni var
ekki hægt að fá neitt við þessu.
Vinkona mín sagði mér frá því að í Dan-
mörku hefðu börn læknast af magakveisu
við meðferð hjá kírópraktor. Systir mín hafði
líka lesið um þetta í dönskum blöðum og það
vildi svo til að önnur vinkona mín er starf-
andi kírópraktor. Ég vildi ekki gefast upp og
ákvað að prófa þetta líka, auk þess sem ég
pantaði tíma í ungbarnanuddi," segir móðir
barnsins, Edda Björg Sigurðardóttir.
Frumraun á íslandi
„Þetla var í fyrsta skipti sem ég reyndi
meðferð á svona ungu barni," segir Katrín
Sveinsdóttir kírópraktor. „En ég hef alltaf
verið opin fyrir því að prófa þetta og í skólan-
um í Bretlandi var þetta tekið fyrir, sérstak-
lega af dönsku kennurunum, en Danir eru
komnir lengst á þessu sviði.
Það er alveg ósannað hvað gerist í sam-
bandi við magakrampann við svona með-
ferð. Það verður að koma skýrt fram að ég
get ekki lofað neinum árangri. í fyrsta lagi
hef ég ekki reynslu nema af þessu eina barni
og í öðru lagi er ekki vitað hvaða áhrif með-
ferðin hefur," segir Katrín, en hún getur þó
vísað til danskrar rannsóknar á hnykklækn-
ingum við ungbarnakrampa í Danmörku
þar sem niðurstöður voru mjög jákvæðar.
„Það eru 4—5 kenningar í gangi um hvers-
vegna magakrampi getur læknast við með-
ferð kírópraktors. Ein þeirra gengur út á að
magakrampi hafi í rauninni ekkert meö
magann að gera, heldur sé þetta erting á
taugakerfinu við hrygginn sem valdi ólgu og
spennu í maga. Önnur kenning lýsir maga-
krampa sem ertingu í maga sem sendir tauga-
boð inn í miðtaugakerfið og veldur krampa
eða stífni í vöðvum sem liggja meðfram
hryggnum og hreyfitruflunum í liðamótum
hryggjarins," segir Katrín.
„Hnykkingar eru ekki bara það að láta
braka í liðum, en sumir halda kannski að
þetta séu einhver fantatök," segir Katrín.
Hún og starfsfélagar hennar sætta sig ekki
við íslenska nafnið hnykkir og nota því er-
lenda starfsheitið meðan ekki finnst neitt
betra. Aðeins þrír kírópraktorar eru starf-
andi á íslandi í dag. Þeir vildu heita liðfræð-
ingar, en heilbrigðisráðuneytið hafnaði
þeirri hugmynd. „Orðið hnykkir hefur nei-
kvæða merkingu í okkar augum, það er eitt-
hvað ruddalegt við það. Auk þess vantar í
orðið eitthvað sem segir til um menntunina
sem liggur að baki þessu starfi. En hún er
meiri en margir halda," segir Katrín.
Starfsgrein kírópraktora hefur hlotið við-
urkenningu íslenskra heilbrigðisyfirvalda
sem gefa starfsleyfi fyrir einstaklinga í grein-
inni, en aðeins þrír kírópraktorar eru starf-
andi á íslandi enn sem komið er.
Otrúlegur árangur í
Danmörku
Danska rannsóknin sem Katrín Sveinsdótt-
ir bendir á, hófst 1985 en endanlegar niður-
stöður lágu fyrir í fyrra. Samkvæmt þeim
hlutu 94% barnanna góðan eða fullan bata
við hnykkingarnar, þar af losnuðu 60% barn-
anna algjörlega við magaverkina. 6% barn-
anna sýndu engin batamerki og innan þess
hóps eru 2% sem virtist versna.
„Þessar niðurstöður ættu að gefa til kynna
að hnykklækningar geta borið góðan árang-
ur við magakrampa og það eru fleiri rann-
sóknir í gangi," segir Katrín. „Hér á landi
hafa ekki farið fram neinar rannsóknir og ég
get sjálf hvorki lofað árangri né lagt fram
sannanir fyrir því að meðferðin virki. En
danskir kírópraktorar eru komnir langt og
ég held að við getum lært mikið af þeim."
573 danskir kírópraktorar, starfandi á 50
stöðum í Danmörku tóku þátt í áðurnefndri
rannsókn og 569 börn voru skráð sem þátt-
takendur. Óll börnin þjáðust af ungbarna-
krampa, en þau urðu að uppfylla ákveðin
skilyrði til þess að fá að vera þátttakendur í
rannsókninni. 316 börn uppfylltu sett skil-
yrði.
Kírópraktorar sem stóðu að rannsókninni
störfuðu saman meðan könnunin stóð yfir
og unnu eftir samræmdum staðli. Mæður
barnanna héldu dagbók þar sem þær skráðu
allar upplýsingar um börnin yfir 28 daga
tímabil. Á sama tímabili voru tekin viðtöl við
mæðurnar og að lokum var endanlegur ár-
angur mældur í grátklukkutímum. Hvert
barn fór þrisvar í meðferð á tveggja vikna
tímabili.
Auk annars sem Katrín hafði lært um ung-
barnahnykkingar, hafði hún kynnt sér fram-
kvæmd dönsku rannsóknarinnar áður en
hún tók við Tandra. Hún fylgdi sömu aðferð-
um og Danirnir með þrískiptri meðferð. Þó
að Tandri virðist hafa losnað við verkina, lof-
ar Katrín engu um að það haldist. Hún hefur
því ráðlagt Eddu Björgu að koma aftur með
drenginn ef magakveisan gerir vart við sig á
ný. En nú eru liðnar tvær vikur án þess að
nokkur einkenni magakrampa hafi heyrst
eða sést.