Pressan


Pressan - 18.10.1990, Qupperneq 2

Pressan - 18.10.1990, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER Þeir framtakssömu menn með BJARNA ÓSK- ARSSON í Óperu í broddi fylkingar, sem ætla að senda JÓN PÁL SIGMARS- SON til Japans að kynna jólasveininn, hljóta að vera farnir að fá bak- þanka. Þeir sendu út fimm milljónir af dreifi- bréfum og óskuðu eftir að fólk skrifaði til jóla- sveinsins á íslandi. Sjálf- sagt myndi mörgum hrjósa hugur við að opna fimm milljónir bréfa eða jafnvel sleikja frímerki á jafnmörg svarbréf. En ímyndið ykkur að skrifa nöfn og heimilisföng fimm milljóna manna á umslögin og það allt á kórréttri japönsku. Þegar þýsku ríkin sam- einuðust bauð þýska sendiráðið öllu heldra fólki landsins til veislu. Þar voru mættir STEIN- GRÍMUR HERMANNSSON og JÓN BALDVIN HANNI- BALSSON ásamt fleirum. Það var vel veitt í sendi- ráðinu enda tilefnið stórt. Það vakti athygli siðmenntaðra manna að enginn íslendinganna hélt skálaræðu fyrir nýju og sameinuðu Þýska- landi. Það eina sem heyrðist var: „Eru til fieiri kjötbollur?" „Hvar er stelpan með kokkteil- ana" og fleira ámóta. HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON er frjáls- hyggjumaður af hug- sjón, — en ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON af skepnuskap. Ertu líka fyndinn á prenti Ómar? „Þó að þessi saga sé örlagasaga manns sem stendur fyrir œsilegustu uiðburðum á Islandi áð- ur en yfír iýkur, þá er hún krydduð litium gam- ansögum frá upphafí til enda. Hitt er suo annað mál huort þær þykja fyndnar. Einn af þráðun- um í bókinni er huenœr grínið endar og huar aluaran byrjar. “ Ómar Ragnarsson á að baki 32 ár sem skemmtikraftur og nú er von á bók frá honum fyrir jólin, skáld- sögu sem er blönduð raunveruleg- um atburðum og atburðum sem geta gerst. FUGLINN FÖNIX Sumir menn gefast aldrei upp. Þannig er það að minnsta kosti með Hrafn Bachmann í Kjötmiðstöðinni. Hann hefur farið nokkrar dýfur í verslunarrekstri og gert það með nokkrum stæl. Nú er hann risinn upp enn á ný, eins og fuglinn Fönix, og selur hamborgara í Armúlanum. Fins og áður gerir hann það ekki aiveg eins og aðrir, því hamborgararnir hans Hrafns eru 1 auðvitað miklu ' ódýrari. „Þetta er mikil viðurkenn- ing,“ segir Gudni Gunnarsson kroppatemjari. „Ég kom út til að athuga grundvöllinn hér og eftir þessar viðtökur er greinilegt að ég mun athuga málið betíir.“ Guðni er farinn úr Mætti í Skeifunni og kominn til há- borgar kvikmyndaiðnaðar- ins, Los Angeles. Þar tóku honum opnum örmum hjón- in Heba Þórisdóttir og Greg Fineburg, áður „pródúsent" hjá fyrirtæki Sigurjóns Sig- hvatssonar, Propaganda Films, og framleiðandi sjón- varpsþáttanna Twin Peaks. Þau Heba og Greg lögðu Guðna snarlega til þjálfunar- og kennsluaðstöðu á heimili sínu og er Guðni nú kominn með yfir fjörutíu viðskipta- vini. Meðal þeirra er sjón- varpsleikarinn Dana Ash- brook, sem meðal annars hef- ur sést í Twin Peaks-þáttun- um. Kerfið sem Guðni kennir hefur algera sérstöðu ytra, en kerfið hefur hann þróað sjálf- ■ ur úr líföndun, líkamslestri, jóga og „Feldenkrais". „Ég nota heildrænar að- m ferðir til að kynna fólki eigin líkama," sagði Guðni þegar . PRESSAN náði símasam- bandi við hann í LA. „Líkam- inn á ekki að vera egóistísk stytta og líkamsrækt á ekki að vera flótti. Ég kalla þetta að öðlast vinskap við eigin skugga." Starfsemi Guðna hefur ekk- ert verið auglýst heldur að-o eins spurst út manna á meðal, S og eftir aðeins tveggja mán- aða starf er svo komið að uppselt er í tímana. IEGC HENPUR ÁFÓLK Már Högnason félagsmeinafræðingur hefur enn aukið við starfsvettvang sinn. Nú býður hann ráðgjöf og heilun og tekur fram að hann leggi hendur á fólk. Auglýsing þessa efnis birtist í Hafnfirska fréttablaðinu fyrir skömmu og var mikil eftirspurn eftir þjónustu Más, að sögn talsmanns hans. Már þessi er köttur í eigu eins af blaðamönnum Hafnfirska fréttablaðsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann auglýsir þjónustu sína því fyrir rúmu ári auglýsti hann hugsanaráðgjöf ” og skoðanamyndun og sóttist fólk mjög eftir hvoru tveggja., ^áðg/öf &heffUa ^gghenduráfólk StoiöS 8“r LITILRÆÐI af tittlinum FLOSI ÓLAFSSON Um þessar mundir stend- ur íslenska þjóðin á öndinni útaf fáheyrðum mistökum í fjölmiðlapistli Páls Ásgeirs- sonar í Dagblaðinu Vísi 8. október síðastliðinn. Þó líklegt sé að sökin sé Páls þessa er fullvíst talið að ritstjórn DV sé endan- lega ábyrg fyrir mistökun- um sem eru, svo ekki sé meira sagt, skoplítil. í nefndum fjölmiðlapistli varð höfundi það á að titla Elísabetu Jónsdóttur kyn- fræðing. Talið er að þetta frum- hlaup hefði getað valdið umtalsverðum skaða á framgangi eðlilegs kynlífs á íslandi ef kynlífsfræðingur- inn Jóna Ingibjörg hefði ekki birt harðorð mótmæli í DV þann 12. október und- ir jfirskriftinni: ELÍSABET LATI STARFSHEITIÐ KYN- FRÆÐINGUR EIGA SIG. Jóna bendir á að þar sem Elísabet hafi ekki verið í Pennsylvaníuháskóla eða annarri sambærilegri menntastofnun í tvö ár að stúdera kynlíf, og lokið meistaraprófi í greininni, þá sé það óhæfa að nefnd Elísabet kalli sig kynfræð- ing. Ef hún verði að flagga einhverjum tittli, þá verði hún að láta sér nægja áhugamanneskja um kynfræðslu. Hér er um að ræða afar viðkvæmt mál. Þar sem starfsheitið kyn- fræðingur er ekki lög- verndað á íslandi er sú hætta jafnan fyrir hendi að fólk, sem ekki hefur stúder- að do-do uppá bókina, telji sig, í krafti mikillar og fjöl- skrúðugrar reynslu af ból- förum, hafa rétt á virðing- artittlinum kynfræðing- ur. Þetta er oft fólk sem hef- ur á langri ævi lifað afar fjölskrúðugu kynlífi og lagt dag við nótt að kynna sér bólfarir, stöðu þeirra og stellingar, fólk sem einskis hefur látið ófreistað að kanna nýjar leiðir, sem og ótroðnar slóðir, til að afla sér leikni og menntunar, reynslu og þekkingar í sam- förum. Nú gerir þetta fólk, sem hefur af ástríðuþrunginni alúð og kostgæfni helgað líf sitt neðanþindarmálum, kröfu til að fá að kalla sig kynfræðinga. Sú var raunar tíðin hér á landi að fólk gat í krafti mikillar og óumdeilanlegr- ar verklegrar reynslu feng- ið lögverndað starfsheiti í þeirri grein sem unnið hafði verið að. Konur sem lengi höfðu stundað hattasaum, hár- greiðslu eða barnakennslu, án þess að ganga í skóla, fengu virðingarheitin; hattadömur, hárgreiðslu- konur og kennarar (síðar leiðbeinendur). Og karlar gátu, án þess að læra að draga til stafs, orðið arkí- tektar. En þetta er liðin tíð. Hið upplýsta samfélag dagsins í dag krefst þess að bak við starfsheitin sé bók- leg menntun og gráða. Þó mikil og fjölskrúðug verkleg reynsla í kynferðis- málum sé svo sannarlega góðra gjalda verð er það ljóst að kynferðisleg vel- ferð íslensku þjóðarinnar veltur á því að háskólanám í do-do sé haft að leiðar- ljósi. Þess vegna stend ég stað- fastlega með kollega mín- um Jónu Ingibjörgu og skora á hana að halda tittlinum og „láta hann ekki deigan sígá'.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.