Pressan


Pressan - 18.10.1990, Qupperneq 5

Pressan - 18.10.1990, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR PRKSSAN 18. OKTÓBER 5 Félagsmenn í Sölusamtökum fiskframleiðenda hafa nú hafið und- irskriftasöfnun til að hvetja Magnús Gunnarsson til að draga uppsögn sína til baka. Magnús sagði upp starfi framkvæmdastjóra eftir að félagafundur felldi tillögu stjórnar um að reka þá fram- leiðendur úr samtökunum sem flytja út ferskan flattan fisk. Það sem gerði Magnús reiðastan var að þeir sem stóðu að tillögunni með honum studdu hann ekki á fundinum. Sá eini sem það gerði að einhverju ráði var Sigurður Einarsson í Vest- mannaeyjum. En þó fiskframleið- endur skori nú á Magnús að halda áfram eru þeir ekki tilbúnir að breyta kúrsinum... Ef svo færi að Magnús Gunn- arsson væri ófáanlegur til að draga uppsögn sína hjá Sölusamtökum fiskframleiðenda til baka er talið lík- legast að Sigurður Haraldsson að- stoðarframkvæmdastjóri taki við. Bæði kemur uppsögnin óvænt og eins eru ekki hæfari menn í sjón- máli... ólitískar væringar innan stjórnar Landsvirkjunar eru sagðar hafa komið mörgum á óvart, ekki síst stjórnarfor- manninum, Jó- hannesi Nordal, og Halldóri Jónatans- syni forstjóra. Það hefur vakið athygli margra að í gagn- rýni á Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra vegna orku- verðssamninga við Atlantsál hefur Davíð Oddsson borgarstjóri, sem sæti á í stjórninni, myndað banda- lag við fulltrúa Alþýðubandalags- ins, þá Sigurjón Pétursson og Finnboga Jónsson, og svífst einsk- is í gagnrýni á Jóhannes í leiðinni. Þykir því sem eitthvað búi undir og mun vera rætt innan Sjálfstæðis- flokksins að með þessu vilji Davíð gefa gamla flokkseigendafélaginu í Alþýðubandalaginu undir fótinn um stjórnarsamstarf eftir kosningar ... anna á Laugardalsvelli í næstu viku. Alls munu fimmtán útvarpsstöðvar hafa sótt um rétt til útsendinga frá leiknum og fimm sjónvarpsstöðvar, þannig að vandi var úr að velja. Erf- iðið á hins vegar eftir að skila sér og burtséð frá öllum hugsanlegum úr- slitum í viðureignum liðanna þykir sýnt að Fram verði milljónunum rík- ara þegar upp verður staðið... Fésýslan hefur undanfarin ár gefið vel í aðra hönd og engin þreyt- ing varð þar á á síðasta ári. Á lista Frjálsrar verslunar yfir stærstu fyrir- tæki landsins sést að 25 stærstu fjármála- fyrirtækin, þ.e. bankar, sparisjóðir, fjárfestingarlána- sjóðir og kaupleigu- og verðbréfafyrirtæki, skiluðu alls 2,3 milljarða króna hagnaði í fyrra. Eina áberandi undantekningu er þó að finna á þessu sviði. Fjárfestingar- félag íslands kom út með nær 100 milljóna króna tapi. Þetta gerðist á sama ári og Gunnar Helgi Hálf- dánarson fór til Landsbréfa og Gunnar Óskarsson yfirgaf fyrir- tækið og gerðist sjálfstæður ráðgjafi l^^áðning nýrra yfirmanna á Stöð 2 hefur líklega ekki farið fram- hjá neinum, en nokkuð hefur verið ------=----- á reiki um verkskipt- jgjKA inguna. Páli Magn- KMjul ússyni sjónvarps- stjóra mun aðallega ætlað að vera tals- V maður fyrirtækisins útávið, andlitstöðv- arinnar. Hins vegar mun framkvæmdastjórn hvíla meira á Baldvini Jónssyni, fyrrum auglýsingastjóra Morgunblaðsins, sem ráðinn var sem framkvæmda- stjóri markaðssviðs stöðvarinnar. Þriðja hjólið undir vagninum er Kristján Ólafsson fjármála- stjóri... Enn er rætt um arftaka Karvels Pálmasonar í annað sæti á lista Al- þýðuflokksins á Vestfjörðum, en lík- legast er talið að Sighvatur Björg- vinsson skipi fyrsta sætið. Auk Krist- jáns Jónassonar á Isafirði, sem nefnd- ur Var í síðustu PRESSU, er nú talið að lagt sé hart að Pétri Sigurðs- syni, forseta Alþýðusambands Vest- fjarða, að gefa kost á sér, en Pétur hefur oft verið orðaður við fram- boð... s NPá sem þykir hvað duglegastur að skrá nýja félaga í Sjálfstæðis- flokkinn er Ingi Björn Alberts- son, þingmaður og þátttakandi í próf- kjöri flokksins. Ingi Björn er sagður hafa skilað æði mörgum borgara- flokksmönnum heim til föðurhús- anna síðustu daga og þykja vinnu- brögðin um margt lík og hjá Albert Guðmundssyni, föður hans, sem vann glæsta sigra í prófkjörum ... Ir H^Knattspyrnudeild Fram komst aldeilis í feitt þegar liðið dróst á móti spænska stórliðinu Barcelona í Evr- ópukeppni bikarhafa. Halldór B. Jónsson, formaður knattspyrnu- deildarinnar, og aðrir stjórnarmenn hafa haft í nógu að snúast varðandi samningagerð fyrir fyrri leik lið- A stefnir í að Arnarflug verði lýst gjaldþrota á næstu dögum, að- eins þremur árum eftir að stjórn félagsins hefði átt að fara með það til fóg- eta. Þegar gjaldþrot- ið nálgast spyrja menn sjálfa sig hvers vegna skipt hafi ver- ið um stjórn í félag- inu í sumar þegar ljóst var hvert stefndi. Þá fór Hörð- ur Einarsson stjórnarformaður meðal annarra úr stjórn. Sam- kvæmt gjaldþrotalögum er heimilt að rifta öllum greiðslum á lánum og skuldbindingum ef forráðamenn fyrirtækja hafa látið lán sín ganga fyrir almennum lánardrottnum. Ný- lega var rannsakað hvort slíkt hefði átt sér stað hjá Vogalaxi. Líklega mun samskonar rannsókn verða framkvæmd ef Arnarflug fer í gjald- þrot innan tíðar... HLAUST- OG VETRARFERÐIR Skemmtilegar lielgarferdir LXJXEMBORG 15. nóv. til 18. nóv. Verð frá: kr. 29.970,- eða TRIER Verð: kr. 29.990,- Innifalið: flug, gisting og morgunmatur. Ef Trier er valin er flutningur til og frá flugvelli innifalinn. LIJXEMBORG 1. nóv. til 4. nóv. og 29. nóv. til 2. des. Verð: kr. 33.800,- Innifalið: flug, gisting á ROI DAGOBERT, 2 í herb., flutningur til og frá flug- velli. Dagsferð til Maástrict í Hollandi og dagsferð til Trier í Þýskalandi. TRIER - jólamarkaður 30. nóv. til 4. des. Verð frá: kr. 33.910,- Innifalið: flug, gisting og morgunmatur á HÓTEL DEUTSCHER HOF - 2 í herb., flutningur til og frá flugvelli. PARÍS - 17. okt. til 21. okt. PARÍS — helgarferðir sunnudaga og miðvikudaga Verð: kr. 33.330,- Innifalið: flug, gisting og morgunverður. LONDON - ST. GLLES eða ST. ERMIN’S 4 dagar/3 nætur Október Verð frá: kr. 36.810,- Nóvember Verð frá: kr. 33.220,- GLASGOW - HOSPITALITY INN 4 dagar/3 nætur — Verð frá kr. 25.770,- 5 dagar/4 nætur — Verð frá kr. 27.960,- FRANKFU RT - HÓTEL ARCADE 4 dagar/3 nætur Október Verð frá kr. 32.200,- Nóvember Verð frá kr. 30.780,- 5 dagar/4 nætur Október Verð frá kr. 34.300,- Nóvember Verð frá kr. 32.840,- KAUPMANNAHÖFN - HÓTEL ADMXRAL 4 dagar/3 nætur Október Verð kr. 35.440,- Nóvember Verð kr. 33.910,- FLÓRÍDA - ORLANDO 11 dagar/10 nætur Október Verð kr. 57.600,- Nóvember Verð kr. 61.600,- NEW YORK - MILFORD PLAZA 4 dagar/3 nætur Október og nóvember Verð kr. 41.510,- Verð hér að ofan miðast við 2 í heHaergi AMSTERDAM Brottfarardagar: 8. nóv., 22. nóv., 29. nóv. og 30. nóv. Verð frá: kr. 28.890,- Innifaliö: flug og gisting m/mor,gunveröi. KANARÍEYJAR — jólaferð 19. des. 3 vikur- Verð frá: kr. 83.400,- Jauúarferðir 2 vikur Verð frá: kr. 69.700,- Innrfalið: flug og gisting í íbúð, miðast við 2 í íbúð, flutningur tll og frá flugvelli. THAJLAND janúar — 2 vikur. Verð frá: kr. 98.400,- febrúar — 2 vikur. Verð frá: kr. 100.640,- Innifalið: flug, gisting, 2 í herb., flutningur til og frá flugvelli í Bankok. ENSKUSKÓLAR í ENGLANDI OG SKOTLANDI Allar upplýsingar á skrifstofunni. HELGARFERÐIR INNANLANDS 2ja nátta gisting í tvíbýli m/morgunverði, kvöldverði og „Rokkað á himnum“ á HÓTEL. ÍSLANDI - Verð frá: kr.7.560,- Afsláttur fyrir hópa. BENEDORM Beint flug* í sólina í allan vetur Ódýrar vetrarferðir - nú er hægt að njóta sólar jafnt sumar senri VETUR Við eigum takmarkaðan sætafjölda i eftirfarandi ferðir: 11. október 22 dagar 2 í íbúð 2. nóvember 47 dagar 2 í íbúð 19. desember/jólaferð 23 dagar 2 í íbúð 11. janúar 28 dagat 2 í íbúð 8. febrúar 21 dagur 2 í íbúð 1. mars 26 dagar 2 í íbúð kr. 47.950,- kr. 73.590,- kr. 60.400,- kr. 53.190,- kr. 53.850,- kr. 63.100,- TAKTU EfTCR! Verð er pr. rhann ef 2 eru saman í íbúð. Ef fleiri eru saman í íbúð laekkar veröið. Bamaafsláttur er veittur af ofangreindu verði. Innifalið er: flug, gisti.ng, flutningur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Flugvallarskattur er ekki innifalinn. Verð miðast við staðgreiðslu. Gengi og eldsneytisverð 25. sept. '90. Allt þetta og meira til. Hafðu samband. SJÁUMST! FERDASKRI FSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALST RÆTI 16 101 REYKiAVÍK sími 621490.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.