Pressan - 18.10.1990, Blaðsíða 11

Pressan - 18.10.1990, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER 11 ■^lokkur uppgjöf er sögð með- al kvikmyndagerðarmanna vegna fjárveitinga til Kvikmyndasjóðs ís- lands í fjárlagafrum- varpinu. Á sameig- inlegum fundi út- hlutunarnefndar, stjórnar sjóðsins og fleiri á dögunum mun m.a. hafa verið rætt hvort ekki væri rétt að breyta starfsemi sjóðsins í þá veru að hann verði fyrst og fremst umsagnaraðili um ágæti íslenskra kvikmyndagerðarmanna gagnvart erlendum framleiðendum, veiti út- völdum gæðastimpil. Þrátt fyrir þennan dapra tón er nú vitað um fjórar íslenskar kvikmyndir í fullri lengd sem verið er að vinna að. Tök- um er lokið á mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Barni náttúrunnar, mynd Lárusar Ýmis Óskarsson- ar, Bílaverkstæði Badda, verður lík- lega sýnd um jólin og tökur hafa staðið yfir á kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hvíta víkingnum. 1 vor er reiknað með að tökur hefjist á mynd sem Ásdís Thoroddsen leikstýrir, en margir muna eftir Ás- dísi í hlutverki Söndru í myndinni Skilaboðum til Söndru ... A ^^■khugamenn um fjölgun bila- stæða muna vafalaust eftir því þeg- ar Frímúrarareglan var skikkuð til að fjarlægja rafknúin bílastæðahlið við hús sitt á Skúlagötui Frímúrarar gefast hins vegar ekki upp og ný- lega var til meðferðar hjá bygging- arnefnd borgarinnar umsókn frá Birni Kristmundssyni f.h. regl- unnar um að setja upp slíkan búnað. Nefndin samþykkti umsóknina.. . stofu- og verslunarhúsnæði í borg- inni, sem kunnugt er, og gengur eig- endum illa að selja eða leigja. Eig- andi verslunarhússins í Leirubakka 34, bakarameistarinn Angantýr Vilhjálmsson, hefur í ljósi þessa gripið til þess ráðs að bjóða Reykja- víkurborg hið 240 metra hús til kaups. Angantýr leigði öðrum aðila húsnæðið, en sá var svo óheppinn að fara á hausinn, og keypti Angan- týr þá þrotabúið. Nú vill hann losna við húsnæðið og bendir á að borgin eigi lóðina við hliðina. Brunabóta- mat hússins er tæpar 12 milljónir. . . Jú, við bjóðum BETUR! Cordata CS-7103 (386SX) er glæný afburða vel hönnuð tölva með 1Mb minni (má stækka í 8Mb á móðurborði), 40Mb hraðvirkum hörðum disk, VGA litaskjá og vönduðu 102 lykla hnappaborði. Hún kostar aðeins 179.000 krónur staðgreitt og er til afgreiðslu af lager tollvörugeymslu strax. Cordata 386SX „Fyrir þá sem borga sjálfir!“ MICROTÖLVAN Sudurlandsbraut 12 -108 Reykjovík - s. 688944 Stórleikur á Hlíðarenda ÍSLANDSMÓTIÐ í HANDKNATTLEIK Valur Stjarnan Laugardaginn 20. okt. kl. 16.30 Mætum öll Valur er liðið

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.