Pressan - 18.10.1990, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER
15
Malta!
Eyjan Malta er nýja ferðamannaparadísin í
Miðjarðarhafi.
Sólin skín allan ársins hring og veðráttan er eins og
best verður á kosið. Sjórinn er hlýr og einstaklega
hieinn.
Ferðaþjónustan er til fyrirmyndar og
skemmtanalífið fjölbreytt. Mikið er um sjósport;
siglingar, sjóskíði og fleira. Þá bjóðast golf- og
tennisvellii'.
Fjölmargt má skoða á Möltu, enda sögulegar minjar
frá síðustu árþúsundum. Þá bjóðast skoðunarferðir
m.a. til Sikileyjar, Túnis og Egyptalands •
EINSTÖK FER0* NÝJAR SLÓÐIR
Sálen-skíðaferðir
Sálen er stærsta skíðasvæði Svíþjóðar, þar eru um
60 skíðalyftur og öll aðstaða eins og best verður á
kosið, m.a. fjölmargar upplýstar skíðagöngubrautir.
Um er að ræða veðursælan og sólríkan stað, með
góðum snjó frá miðjum nóvember fram undir
apríllok.
Gisting í pai'húsum í Sálfjállsbyn eða íbúðum í
Högfjallshotellet •
SANNKALLAÐUR SÆLUREITUR SKÍÐAFÓLKS
Jólaferð til Möltu
Jólaferðin hjá Land og Sögu til Möltu. Gerið
drauminn að veruleika og sleppið jólaumstanginu.
Meðalhitastig í desember er um 15 stig, fjögurra
stjömu hótel við sjóinn með garð til sólbaða-og
upphitaða innisundlaug.
Menningarlíf á Möltu er blómlegt og t.d. mikið um
hljómleika og aðra listviðburði yfir jólin.
Verðlag á Möltu er einstaklega hagstætt.
íslenskur fararstjóri
Borgarpakkar
íbúðir í London
Ekki þarf að fjölyrða um Lundúnaborg en nú
bjóðast glæsilegar íbúðir í hjarta borgarinnar, rétt við
Oxfordstræti.
Eldunaraðstaða.baðherbergi, litasjónvarp, sími og
svo mætti lengi telja enda um sannkallaðar
lúxusíbúðir að ræða *
Skólar á Englandi
fyrir fallorðna
Ekki þarf að fjölyrða um Lundúnaborg en nú
bjóðast glæsilegar íbúðir í hjarta borgarinnar, rétt við
Oxfordstræti.
Eldunaraðstaða, baðherbergi, litasjónvarp og sími.
Odýrar íbúðir, mismunandi stórar.
Einfaldar.