Pressan - 18.10.1990, Side 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER
25
viljað trúa þessu er sú, að þeir lentu meðal
efstu þjóða á lista yfir hæstu þjóðarfram-
leiðslu á mann fyrr á þessum áratug. Skýr-
ingin á þessu mun meðal annars hafa legið
í of háu gengi íslensku krónunnar og því
hafi þjóðarframleiðsla ísiendinga verið allt
of hátt metin.
Kannski er þessi trú þjóðarinnar einmitt
ástæða þess að íslendingar stefna að því
verða meðal fátækari þjóða. Þeir hafa haft
ofurtrú á ríkidæmi sínu og því ekki trúað
að mögulegt væri að leggja þetta efnilega
hagkerfi í rúst með vitlausri efnahags-
stjórnun, en það var einmitt sjúkdóms-
greining dr. Þráir.s.
\ 1 '
0
• HALLDOR
LAXNESS HEIMSFRÆGUR
RITHÖFUNDUR
Fyrir nokkrum árum vakti það almenna
hneykslan á íslandi þegar hingað barst
grein um Nóbelsverðlaunin sem birst hafði
í virtu erlendu tímariti. Greinin fjallaði um
hversu illa þessum verðlaunum hefði tekist
að auka almennan áhuga á góðbókmennt-
um. Til að draga það fram á skýran hátt
tiltók höfundurinn nokkra Nóbelshöfunda
sem enginn vissi nein deili á. Meðal þeirra
var Halldór Laxness.
Þrátt fyrir að íslendingar hafi hneykslast
mun þetta hins vegar vera reyndin. Þeir
eru afskaplega fáir, fyrir utan harðsvíraða
bókmenntaunnendur og Islandsvini, sem
hafa hugmynd um hver Halldór Laxness
er.
7
N'/
# ISLENSK
FJALLASÝN
TILKOMUMESTA
FJALLASÝN I HEIMI
Sjálfsagt stæra fáar þjóðir sig jafnmikið
af jafnlitlum fjöllum og íslendingar.
Hæstu fjöll Alpanna eru til dæmis meira
en tvöfalt hærri en Hvannadalshnjúkur,
hæstu fjöll Ameríku nær þrisvar sinnum
hærri og hæstu fjöll í heimi fjórum sinnum
hærri.
Þó íslensk fjöll séu mörg hver fögur á að
líta eru þau einfaldlega ekki nógu stór til
að hafa sömu áhrif á áhorfandann og al-
vöru fjöll. Það hefur því sömu áhrif að
horfa á íslensk fjöll, eftir útlistanir íslend-
inga, og að sjá oflofaða bíómynd sem
reynist vera hálfómerkileg þegar á reynir.
V 4
r c
o
• ÍSLENSKA
LAMBAKJÖTIÐ BESTA
KJÖT í HEIMI
Upp úr miðri þessari öld hrakti Halldór
Laxness þessa fullyrðingu í ritgerðum sín-
um um íslenskan landbúnað. Þar benti
hann á að þegar reynt var að selja ís-
lenska kjötið á Bretlandi var það dæmt
óhæft sem almenn verslunarvara. Það var
of holdrýrt og vesældarlegt til að nokkur
maður nennti að borða það.
Á stríðsárunum kom það sama í ljós
þegar Bretar og Ameríkanar hentu ís-
lensku kindaskrokkunum nánast ósnertum
á haugana þegar þeir voru neyddir til að
kaupa af okkur kjöt.
Fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar
síðan til að selja lambakjötið. Eina leiðin
til þess hefur verið að greiða verðið svo
mikið niður, að það jaðrar við að kaupand-
anum séu greiddar skaðabætur fyrirfram.
HREINASTA LAND
í HEIMI
Fyrir skömmu birtist skýrsla sem leiddi í
ljós að fjörur á íslandi eru jafnvel meng-
aðri en fjörur meginlands Evrópu. Það hef-
ur einnig verið dregið fram að mengun í
Reykjavík er hreint ótrúleg miðað við að
hér eru hús kynt með heitu vatni en ekki
olíu. Sorphirða á íslandi er í algjörum
ólestri og víðast er sorp brennt við opinn
eld, sem þykir ótækt meðal siðaðra þjóða.
Umgengni íslendinga við skolp er litlu
skárri. Bæði skolp- og sorphirða víða um
land er í raun tímasprengja, þar sem máv-
ar komast þar í snertingu við saurgerla
sem þeir síðan bera í óvarin vatnsbólin.
Þó íslendingar séu fáir í stóru landi hef-
ur hirðuleysi þeirra leitt til þess að meng-
un í þéttbýli hér á landi er engu minni en í
þéttbýli í öðrum iðnríkjum. Sóðaskapur
í sveitum hefur sömuleiðis verið landlægur
og sjást þess merki í kringum fjölmarga
sveitabæi.
INGAR LANGLÍFASTIR
ALLRA ÞJÓÐA
Opinberar tölur staðfestu þessa fullyrð-
ingu reyndar um nokkurra ára skeið en
því miður eru íslendingar ekki lengur
langlífastir allra þjóða. Dregið hefur úr lífs-
.líkum Isiendinga á sama tíma og lífslíkur
annarra þjóða hafa aukist. Japanir hafa því
erft þennan sess af íslendingum.
FISKURINN BESTI
FISKUR í HEIMI
í raun er ómögulegt að vita hvaðan ís-
lendingar hafa þessa fullyrðingu. Að
minnsta kosti hefur furðulítið reynt á hvort
hún er sönn eða ósönn. Það þekkist til
dæmis ekki að bestu veitingahús í heimi
sækist sérstaklega eftir íslenskum fiski.
Hins vegar er vitað að stór hluti af fisk-
afla landsmanna er frystur og seldur í
mötuneyti í Bandaríkjunum þar sem fang-
ar og skólabörn borða hann innpakkaðan í
rasp. Þessi meðferð stafar meðal annars af
því að Bandaríkjamenn eru ein minnsta
fiskneysluþjóð í heimi. Það verður því að
dulbúa fiskinn og gera hann sem líkastan
hamborgurum og öðrum verksmiðjumat til
þess að jafnvel ófrjálsustu menn fáist til að
borða hann.
Lengi vel stóðu íslendingar sömuleiðis í
þeirri trú að íslenski laxinn bæri af öðrum
laxi. Það hefur hins vegar komið í Ijós að
íslenski laxastofninn er nánast óhæfur til
eldis og hefur gert íslensk fiskeldisfyrir-
tæki ósamkeppnishæf við samskonar fyrir-
tæki erlend.
• ISLENSKAR
KONUR FALLEGUSTU
KONUR í HEIMI
Á skömmum tíma hafa tvær íslenskar
stúlkur hlotið titilinn ungfrú heimur og sú
þriðja lent í þriðja sæti í sömu keppni.
Trú íslendinga á fegurð íslenskra kvenna
er hins vegar mun eldri. Líklegast er að
hún sé sprottin af misskilningi á kurteisi
þejrra sem hafa sótt landið heim.
íslendingum er nefnilega tamt að túlka
saklausa kurteisi út í æsar. Þannig koma
íslenskir sölumenn vanalega heim frá sýn-
ingum erlendis þess fullvissir að erlendum
kaupendum hafi þótt vara þeirra mjög
áhugaverð og stórir viðskiptasamningar
séu í farvatninu. Miðað við hvað grátlega
lítið verður úr þessum viðskiptum er einna
líkast því sem Islendingarnir misskilji kurt-
eisi kaupenda sem ramba inn í sýningar-
básana þeirra. Þó íslendingar virðist ekki
gera sér grein fyrir því þykir það ekki
kurteisi að segja upp í opið geðið á söiu-
mönnum að varan sem þeir falbjóða sé
bæði ólystug og ókræsileg.
13
KRISTJÁN
JÓHANNSSON
HEIMSFRÆGUR
Það er hverju orði sannara að Kristján
Jóhannsson er góður tenórsöngvari. Hann
er hins vegar ekki heimsfrægur maður.
Það er til dæmis ekki stafur um Kristján í
gagnabanka Reuter, þar sem safnað er
saman öllum fréttum Reuter-fréttastofunn-
ar og helstu dagblaða og tímarita heims.
Þar er reyndar minnst á einn K. Johanns-
son, en sá er sænskur djassleikari.
14
m ■ • ÞAÐ ÞARF AÐ
TAKMARKA AÐGANG
ÚTLENDINGA AÐ
LANDINU SVO ÞEIR
FLÆÐI EKKI YFIR HINA
FÁMENNU ÞJÓÐ
Þó þetta sé nokkuð almenn trú hafa
nokkrir íslendingar dregið í efa að hún
eigi sér einhverja stoð í raunveruleikanum.
Islenskan er þröskuldur sem heldur
mörgum útlendingum frá landinu. Bæði er
máiið erfitt og eins er nánast einskisvert
að kunna það ef menn búa ekki hér eða
ætla að leggja stund á íslensk fræði.
Veðrið er annar þröskuldur og ætti það
ekki að koma íslendingum neitt á óvart,
þar sem þeir sjálfir þreytast seint á að
kvarta undan því.
Þá er fábreytt atvinnulíf á íslandi og fátt
sem ætti að laða fólk hingað í stríðum
straumum. Nokkur reynsla er komin á
sameiginlegan vinnumarkað á Norðurlönd-
unum og þrátt fyrir mikið atvinnuleysi í
Skandinavíu hafa fáir atvinnuleysingjanna
ratað hingað.
Gunnar Smári Egilsson