Pressan - 25.10.1990, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER
rátt fyrir gífurlegt tap á und-
anförnum árum og styrki og lánveit-
ingar frá opinberum sjóðum til fyrir-
tækja afkomenda Einars Guð-
finnssonar í Bolungarvík hefur
fjölskyldan ekki þurft að láta miklar
eignir sínar í Reykjavík af hendi. Má
þar meðal annars nefna hlutabréf í
Skeljungi, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, Eimskip og Flugleiðum
auk ýmissa fasteigna. Þetta hefur
farið fyrir brjóstið á mörgum og
mun meðal annars hafa komið upp
sú hugmynd innan Landsbankans
að reyna að fá þessar eignir til að
vega upp tapið á fyrirtækinu. Það
hefur hins vegar ekki gengið ...
D
■V orgaraflokksmenn sem
standa að stofnun heimastjórnar-
samtakanna gerðu eina kröfu þegar
þeir gengu til sam-
starfs við Þjóðar-
flokkinn og Stefán
Valgeirsson. Hún
var sú að enginn af
þingmönnum Borg-
arflokksins kæmi
nálægt samtökun-
um. Júlíus Sólnes, ÓIi Þ. Guð-
bjartsson og óbreyttir þingmenn
flokksins eru því „personae non
grata" í heimastjórnarsamtökun-
um ...
A
^^^ðalfundur kjördæmisráðs
Borgaraflokksins á Reykjanesi verð-
ur í kvöld. Samkvæmt auglýstri dag-
skrá mun Júlíus Sólnes umhverfis-
ráðherra halda tölu en síðan tekur
við umræða um lagabreytingar og
loks kosning stjórnar. Astæða þess
að lagabreytingar eru teknar fyrir
áður en stjórn er kjörin er sú að öll
aðalstjórnin sagði af sér fyrr á árinu
eða 21 maður. Auk þess sagði fimm
manna framkvæmdastjórn af sér.
Lagabreytingarnar fela í sér að í
stað 21 manns stjórnar verða stjórn-
armenn ekki nema þrír. Ástæðan er
hverfandi fylgi flokksins og erfið-
leikar við að fá menn til trúnaðar-
starfa...
A
hluthafafundi t Flugleiðum
stóð Bent Scheving Thorsteins-
son upp og spurði Hörð Sigur-
gestsson,, forstjóra
Eimskips, hvort Eim-
skip ætlaði að nýta
sér forkaupsrétt sinn
á 34 prósentum af
auknu hlutafé í Flug-
leiðum. Hörður
sagði að það yrði
lagt til innan tíðar í stjórn Eimskips
að kaupa mestallan ef ekki allan
hlutinn af hlutafjárútboðinu. Guð-
mundur H. Garðarsson prófkjörs-
kandídat lýsti því þá yfir að Lífeyris-
sjóður verzlunarmanna ætlaði að
auka hlut sinn í Flugleiðum, en
hann á nú um 5 prósent...
lEkki er allt fallið í ljúfa löð hjá
krötum á Vestfjörðum þótt Karvel
Pálmason hafi ákveðið að gefa
ekki kost á sér, en löngum háðu
hann og Sighvatur Björgvinsson
stríð um efsta sætið. 1 PRESSUNNI
hefur verið sagt að líklega verði Sig-
hvatur í efsta sæti og til greina í ann-
að sæti komi þeir Kristján Jónas-
son, fyrrum forseti bæjarstjórnar á
Isafirði, og Pétur Sigurðsson, for-
seti Alþýðusambands Vestfjarða. Nú
heyrist hins vegar að lagt sé að
Birni Inga Björnssyni frá Flateyri
að skella sér í slaginn, en Björn hef-
ur gert það gott sem kosningastjóri
Karvels í síðustu prófkjörum ...
Tvær grímur eru nú farnar að
renna á sjálfstæðismenn vegna próf-
kjörsins í Reykjavík. Blokkir hafa
myndast um alla sterku mennina í
prófkjörinu og stuðningsmenn
þeirra munu ekki greiða öðrum
sterkum mönnum atkvæði. Það
gæti því farið svo að ýmsir minni
spámenn fengju góða kosningu;
r
r
DYRIÐ
GENGUR
LAII^T
“..v » » m. m v » ■_
RIO TRIO I 25 AR
r
Asamt stórhljómsveit
Gunnars Þórðarsonar,
stórkostleg iö manna sýning,
glæsilegur matseðill,
Oestir á laugardaginn var sögðu:
,,Þvílík skemmtun, við höfum ekki
skemmt okkur eins vel í fleiri ár.
Stemmningin var rosaleg.“
Borðapantanir f sfmum 77500 og 78900
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikur fyrir dansi ásamt
söngvurunum Helgu Möller og Eyjólfi Kristjánssyni.
fólk sem enginn vill í raun sjá ofar-
lega á listanum. Þeir sem nefndir
eru í þessu sambandi eru til dæmis
Kristján Guðmundsson, Rann-
veig Tryggvadóttir og Lára
Margrét Ragnarsdóttir .. .
átturinn vinsæli Maður lif-
andi, sem verið hefur á dagskrá
Stöðvar 2 undanfarna föstudaga,
hefur að líkindum
runnið sitt skeið á
enda. Árni Þórar-
insson, stjórnandi
þáttarins, hefur sest
aftur í sinn gamla
stól sem ritstjóri
tímaritsins Mannlífs,
en áætlað var að hann hæfi ekki
störf þar fyrr en um áramót. Búið
var að sýna sex þætti af Maður lif-
andi og ekki vitað betur en þeir
yrðu áfram á dagskrá. Forsvars-
menn Stöðvar 2 munu hins vegar
hafa átt í miklum erfiðleikum með
að ákveða sig þannig að ljóst er að
ekki verður um fleiri þætti að ræða,
a.m.k ekki í bili. ..
lieikfélag Kópavogs sýnir nú
nýtt leikrit um unglinga eftir Val-
geir Skagfjörð. Á meðan á æfing-
um hefur staðið hefur móðir ungl-
ings í Kópavogi reynt að koma í veg
fyrir að nafn á einni söguhetjunni
verði notað. Telur hún að átt sé við
son sinn, sem lenti í klandri þegar
leikfélagið var með lokaæfingu í
fyrra. Þá var seðlaveskjum stolið úr
yfirhöfnum í fatahengi og sonurinn
var einn af þremur sem þar voru að
verki. Höfundur verksins mun hins
vegar ekki kannast við nein tengsl
þarna á milli og er ófáanlegur til að
breyta nafni persónunnar ...
yrir prófkjör Sjálfstæðisflokks-
ins eru ótrúlegustu vendingar. Nú
þykir mörgum flokkstoppum nauð-
synlegt að tryggja
að fulltrúi hinnar
ómenntuðu alþýðu
fái viðunandi kosn-
ingu. Sá heitir Guð-
mundur Hall-
varðsson og er for-
maður Sjómannafé-
lags Reykavíkur. Guðmundur mun
sjálfur nýta sér það óspart í barátt-
unni, að ef hann nái ekki kjöri verði
einlitur lögfræðinga- og aðstoðar-
mannalisti í boði fyrir kosningar.
Guðmundur er m.a. sagður njóta
stuðnings Þorsteins Pálssonar
flokksformanns. ..
A
^^Pðstandendur heimastjórnar-
samtakanna hafa borið víurnar í
nokkra nafntogaða menn um hugs-
anlegt framboð í
vor. Meðal þeirra má
nefna Guðmund J.
Guðmundsson
verkalýðsforkólf,
Karvel Pálmason,
þingmann krata,
Jón Ármann Héð-
insson, fyrrverandi þingmann
krata, og Jón ísberg, sýslumann á
Blönduósi...
| ræðu sinni á kjördæmisþingi
allaballa fyrir austan lýsti Hjörleif-
ur Guttormsson yfir framboði
sínu. Það vakti hins vegar engan
fögnuð og stóð hver maðurinn upp
á fætur öðrum og sagði slíkt ekki
tímabært, meðal annarrra Smári
Geirsson, forseti bæjarstjórnar í
Neskaupstað. Allaballar í Aust-
fjarðakjördæmi vilja halda mögu-
leika á forvali opnum. Þeir sem tald-
ir eru líklegir til að gefa sig í slaginn
gegn Hjörleifi eru, auk Smára, þeir
Einar Már Sigurðsson, formaður
Sambands sveitarfélaga á Austiir-
landi, og Björn Grétar Sveinsson,
verkalýðsforkólfur á Höfn ...